Spring Awaits |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Heklaður kjóll fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er heklað með laskalínu ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð 0 mánaða – 6 ára.
DROPS Baby & Children 38-13 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju frá fyrri umferð. Umferðin endar með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. Umferðin endar með 1 stuðli í fyrstu loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð. ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ: * 1 umferð fastalykkjur, 1 umferð stuðlar *, heklið frá *-* (1 umferð fastalykkjur + 1 umferð stuðlar = 1 áferðamynsturs umferð). ÚTAUKNING: Aukið út 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan þar til allt opið að aftan hefur verið heklað til loka, síðan er stykkið heklað áfram í hring. BERUSTYKKI: Heklið 67-71-75-79 (79-83-87) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3,5 með litnum kirsuber Safran. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja loftlykkju út umferðina = 66-70-74-78 (78-82-86) fastalykkjur. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið mitt að aftan – ATH: Það er EKKI heklað þegar prjónamerkin eru sett í stykkið): Hoppið yfir 9-10-11-12 (12-13-14) fastalykkjur (= hægra bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 18-20-22-24 (24-26-28) fastalykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 13 fastalykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fastalykkju (nú eru 9-10-11-12 (12-13-14) fastalykkjur í vinstra bakstykki á eftir síðasta prjónamerki. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ HEKLAR! Lestu HEKLLEIÐBEININGAR og heklaðu næstu umferð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, en í hverja fastalykkju með prjónamerki í eru heklaðir 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar = 78-82-86-90 (90-94-98) stuðlar. Heklið síðan ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fastalykkju/stuðull í hverja lykkju frá fyrri umferð, en í hverja umferð með fastalykkju frá röngu eru heklaðar 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð í laskalínu). Í næstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga í hverja laskalínu (= 16 stuðlar fleiri í umferð – ATH: Heklið um báða loftlykkjubogana). Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 4-4-5-5 (6-7-8) sinnum = 142-146-166-170 (186-206-226) lykkjur í umferð. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umferð með fastalykkjum frá röngu eins og áður. Stykkið á nú að mælast ca 6-6-8-8 (9-10-11) cm. Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar, næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hverja og eina af fyrstu 19-20-23-24 (26-29-32) fastalykkjum (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 33-33-37-37 (41-45-49) fastalykkjur fyrir ermi, heklið 6-8-6-10 (10-8-6) loftlykkjur undir ermi, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 38-40-46-48 (52-58-64) fastalykkjum (= framstykki), hoppið yfir næstu 33-33-37-37 (41-45-49) fastalykkjur fyrir ermi, heklið 6-8-6-10 (10-8-6) loftlykkjur undir ermi og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 19-20-23-24 (26-29-32) fastalykkjum (= vinstra bakstykki). Stykkið er síðan heklað áfram í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Tengið stykkið saman mitt að aftan með réttuna út og heklið 1 umferð með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð og 1 fastalykkju í hverja loftlykkju undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 88-96-104-116 (124-132-140) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 44-48-52-58 (62-66-70) lykkjur á fram- og bakstykki. Það á síðar að auka út lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki. Haldið áfram hringinn með ÁFERÐAMYNSTURS UMFERÐ. Þegar stykkið mælist ca 2 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 1½-2-3-3 (3-3½-4) cm millibili alls 6-7-7-8 (9-9-8) sinnum = 112-124-132-148 (160-168-172) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 13-19-21-25 (28-31-33) cm frá skiptingu (endið eftir 1 umferð með stuðlum, útaukningu á nú að vera lokið), heklið 1 umferð með fastalykkjum JAFNFRAMT er aukið út um 8-2-0-2 (2-0-2) fastalykkjur jafnt yfir = 120-126-132-150 (162-168-174) fastalykkjur. Klippið þráðinn frá. Skiptið yfir í litinn bleikur og heklið 1 umferð með fastalykkjum með 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð. Heklið síðan sólfjaðramynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklað er þannig: UMFERÐ 1: Heklið * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 40-42-44-50 (54-56-58) loftlykkjur. UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur (jafngildir 1 stuðli), * 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* þar til 1 loftlykkjubogi er eftir, heklið 3 stuðla + 2 loftlykkjur + 3 stuðla um síðasta loftlykkjuboga og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 20-21-22-25 (27-28-29) stuðlahópar með 1 stuðli á milli hverra stuðlahópa. UMFERÐ 3-4: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), * 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahópi, 1 stuðull í næsta stuðul *, heklið frá *-* umferðina hringinn, endið með 3 stuðla + 2 loftlykkjur + 3 stuðla um loftlykkjuboga mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 5: Heklið eins og umferð 3-4, en um loftlykkjuboga mitt í hverjum stuðlahópi eru heklaðir 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar (í stað 3 stuðla + 2 loftlykkja + 3 stuðla). Endurtakið umferð 5 þar til kanturinn mælist ca 6 cm í öllum stærðum (e.t.v. að óskaðri lengd). Heklið síðan síðustu umferð alveg eins, en með 5 stuðlum + 2 loftlykkjum + 5 stuðlum um loftlykkjuboga mitt í hverjum stuðlahópi. JÖFNUN Á HÁLSMÁLI: Til að flíkin passi betur er hekluð smá upphækkun aftan í hnakka. Setjið 1 prjónamerki í lykkjur í hvert “horn” í hálsi, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 prjónamerki mitt að framan. Heklið með heklunál 3,5 með litnum kirsuber þannig: Byrjið mitt að aftan og heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í, heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfan stuðul í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 1 lykkja er eftir á undan næstu lykkju með prjónamerki í, 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, 1 stuðul í lykkju með prjónamerki í og 1 hálfur stuðull í næstu lykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til eftir eru 4-4-5-5 (5-6-6) lykkjur á undan prjónamerki mitt að framan. Snúið stykkinu og heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju til baka mitt að aftan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fastalykkjur saman, þ.e.a.s. heklið 1 fastalykkju í hálfan stuðul, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í stuðul með prjónamerki í, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fastalykkju í næsta hálfa stuðul, en nú á að draga síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 fastalykkjur færri). Klippið þráðinn frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan í hinni hliðinni. TÖLUKANTUR AÐ AFTAN: Heklið meðfram vinstra opið mitt að aftan með litnum kirsuber þannig: Heklið 1 fastalykkju um hverja fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um hverja stuðla umferð. Heklið alls 4 umferðir með fastalykkjum fram og til baka, klippið þráðinn frá og festið. Meðfram hægra opi mitt að aftan eru hekluð hnappagöt þannig (byrjið frá réttu við hálsmál): Heklið 3 fastalykkjur (1 fastalykkja í fastalykkju umferð og 2 fastalykkjur um stuðla umferð). 4 loftlykkjur (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur til ca miðju á kanti að framan, 4 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fastalykkjur þar til 1 cm er eftir í kanti að framan, 4 loftlykkjur og festið með 1 fastalykkju í síðustu lykkju. Klippið þráðinn frá og festið. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið í kringum hálsmál með litnum bleikur frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* út umferðina, klippið þráðinn frá og festið. SÓLFJAÐRAKANTUR Í KRINGUM ERMI: Heklið með bleikur frá réttu þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja og ein af 6-8-6-10 (10-8-6) lykkjum mitt undir ermi, heklið síðan sólfjaðrakant í kringum op á ermi þannig: * hoppið yfir ca 2 lykkjur, í næstu lykkju eru heklaðir 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar, hoppið yfir ca 2 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, heklið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun á umferð. Klippið þráðinn frá og festið. Endurtakið neðst í kringum hina ermina. FRÁGANGUR: Þræðið silkiborða upp og niður í gegnum stuðlaumferð, ca 2 cm undir handveg á kjól, með byrjun frá miðju að framan. Saumið tölur í tölukant í vinstri hlið. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (15)
Margaretha wrote:
Virkar storlek 3/4 år och efter de 7 ökningarna för raglan så har jag för lite maskor. Jag har 27/41/ 54/41/27 maskor, luftmaskor oräknade. Enligt mönstret ska det vara 29/45/58/45/29... En åttonde ökning fixar ju det hela men är det jag som gjort nåt fel eller stämmer inte mönstret?
03.10.2021 - 17:40DROPS Design answered:
Hej Margaretha, har du 206 masker ellers er du nødt til at øge en gang til for at få fortsættelsen til at stemme. God fornøjelse!
06.10.2021 - 15:05Marylin wrote:
Good Morning. Quisiera hacer el patrón para una niña d 7 años. Como lo trabajo?... añadiendo más puntos? Y en dónde? Gracias x su ayuda.
24.09.2021 - 19:15DROPS Design answered:
Hola Marylin, en primer lugar, es mejor usar como guía las medidas directas en cm en vez de la edad de la niña. En segundo lugar, nosotros no hacemos patrones personalizados, debes calcular el número de puntos que tienes que variar haciendo reglas de 3 a partir de las medidas y los números de puntos usados en el patrón.
26.09.2021 - 20:52Agnieszka wrote:
Dzień dobry, podają Państwo rozmiar 110/116, od ilu oczek powinno się zacząć, aby uzyskać większy rozmiar? Być może mogą Państwo zasugerować ilość oczek na jeszcze większy rozmiar, np. 7 lat? Pozdrawiam!
12.05.2021 - 19:10DROPS Design answered:
Witaj Agnieszko, niestety nie możemy dostosować każdego naszego wzoru do indywidualnych potrzeb. Prosimy o kontakt ze sklepem, w którym została zakupiona włóczka, w celu uzyskania dodatkowej pomocy. Pozdrawiamy!
13.05.2021 - 13:34Sandra wrote:
Från när man börjar virka runt i mönstret så blir min rygg sned. Jag följer instruktioner med SM i slutet av varvet och luftmaska/or i början, men den blir sned efter några varv. Är det meningen? Sen undrar jag om man ska ha en maska mellan ökningarna där markören sitter varje varv eller ska man öka i 2 maskor efter varandra och markören är mellan maskorna?
30.04.2021 - 21:57DROPS Design answered:
Hei Sandra. Har du det maskeantallet det skal være eller øker/minsker du? Da vil det bli skeivt. Du øker i den masken markøren sitter i. Se gjerne videoen Hur man virkar raglan ovanifrån och ner på hvordan du skal økt til raglan. mvh DROPS design
10.05.2021 - 14:12Linda wrote:
Ik vind dit zo een mooi kleedje, maar geraak aan geen kanten aan het patroon uit
21.03.2021 - 19:04