DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Sweet Susan Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, gatamynstri og vængjaermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 220-35
DROPS Design: Mynstur bs-167
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 g litur 3250, ljós bleikvínrauður

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Hringlaga (bleik) NR 622: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í fyrstu umferð frá réttu eftir 4 umferðir garðaprjón efst í hálsi. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-8-8-8½ cm millibili.
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og 1 lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hvert prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við hvert prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það á að myndast gat.

GÖT ÁN ÚTAUKNINGAR:
Þegar útaukningu fyrir laskalínu er lokið er prjónað eins og útskýrt er að neðan til að gataumferðin haldi áfram meðfram laskalínu án þess að auka út lykkjur.
Gerið gat án útaukningar hvoru megin við hvert prjónamerki frá réttu þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Endurtakið við hvert prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið, það á að myndast gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, það á ekki að myndast gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 126-130-134-142-146-154 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3, munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, JAFNFRAMT eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 19-20-21-23-24-26 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 20 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 1 prjónamerki, prjónið 38-40-42-46-48-52 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 20 lykkjur sléttprjón (= ermi), setjið 1 prjónamerki, prjónið 19-20-21-23-24-26 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið sléttprjón með kantlykkjum að framan í garðaprjóni og aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 24-28-31-35-40-44 sinnum. MUNIÐ EFTIR hnappagati í hægra framstykki!
Eftir allar útaukningar eru 318-354-382-422-466-506 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni og prjónið GÖT ÁN ÚTAUKNINGAR – sjá útskýringu að ofan þar til stykkið mælist 17-19-20-22-26-28 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan.

Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 48-53-57-63-69-75 lykkjurnar í umferð (= framstykki), setjið næstu 68-76-82-90-100-108 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 86-96-104-116-128-140 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 68-76-82-90-100-108 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið eins og áður yfir næstu 48-53-57-63-69-75 lykkjur (= framstykki). Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 202-222-242-266-294-322 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING.
Aukið svona út með 2 cm millibili alls 14 sinnum á hæðina = 258-278-298-322-350-378 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-34-35-35-33-33 cm, skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir og prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka, fellið af með hringprjón 3 (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING í útskýringu að ofan).
Stykkið mælist ca 37-37-38-38-38-38 cm frá þar sem stykkið skiptist og alls ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Setjið 68-76-82-90-100-108 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 78-86-94-102-114-124 lykkjur. Færið umferðina til þannig að hún byrji mitt undir ermi. Prjónið þannig: Prjónið 4-3-2-1-2-2 lykkjur í A.2, prjónið A.3 (= 10 lykkjur) yfir næstu 70-80-90-100-110-120 lykkjur (= 7-8-9-10-11-12 mynstureiningar) og endið með 4-3-2-1-2-2 lykkjur í A.2. Haldið áfram með A.2 og A.3 þar til 1 umferð er eftir = 141-158-175-192-213-232 lykkjur. Fellið af eins og útskýrt er í mynsturteikningu (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = fellið af 1 lykkju
symbols = fellið af 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, fellið uppsláttinn af. Þetta er gert til að affellingarkanturin verði ekki stífur
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 220-35

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Barbara wrote:

Thanks for the very quick and clear reply. I see where I went wrong. After the single knit row with the 1st buttonhole at the end, I started the next row with stockinette stitch which I thought always started with a Knit row. So then I worked an extra knit row which turned the whole piece from right to left. It's not a big deal, as the buttons will now just be on the right instead of the left.

23.06.2023 - 16:13

country flag Barbara Higdon wrote:

This is a great pattern, seemingly easy and straight forward. But as I interpret the instructions, the buttonholes end up on the left side. If you work the 1st buttonhole on the Knit row immediately following the 2 knit ridges of 4 rows (that would be row 5 and a knit row) and need to work the buttonhole at the end of the row as indicated, for me, that works out to be the front left side of the cardigan (as correct side is facing).

22.06.2023 - 19:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Higdon, when you work a jacket top down you start from right side with left front piece and finish with right front piece, reason why the buttonholes will be worked at the end of a row from right side - for the right front piece. Happy knitting !

23.06.2023 - 07:50

country flag Sheryl wrote:

When knitting in the round the graph shows I need to knit from the wrong side. I am knitting from the right side and not purling from the wrong side. Do I purl the stitches the graph tells me to knit from the wrong side since all stitches are completed from the right side?

24.06.2021 - 20:54

DROPS Design answered:

Dear Sheryl, diagrams alwas show the patterns as you would see the stitch from the right side. So if there is a stitch that shows a knit stitch, that should be knitted from the right side and purled from the wrong side. When knitting on the round (always from the right side, always knit as shown in the pattern. Happy Stitching!

24.06.2021 - 21:01

country flag Sheryl wrote:

Working in the round from a graph. The graph shows knit from the wrong side but in the round all knitting is from the right side. How do I handle this row?

24.06.2021 - 06:41

DROPS Design answered:

Hi Sheryl, When working in the round on the sleeves, you work all rows in the diagram straight after each other, so from right to left and as you say all from the right side. Happy knitting!

24.06.2021 - 08:25

country flag Abelia wrote:

Je salue le retour du mannequin senior qui m’avait manqué !

05.02.2021 - 22:20