Floral Love |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Útsaumað blóm og útsaumað fiðrildi úr DROPS Sky. Í stykkið höfum við saumað út keðjusaum, leggsaumshnút, leggsaum, franskan hnút og flatsaum. Þema: Útsaumur
DROPS 222-48 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BLÓM OG FIÐRILDI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Það eru saumuð út 4 mismunandi blóm. 1: Krónublaðið er saumað út með 6 keðjusaums sporum og leggsaumshnút í miðju. Stilkurinn með leggsaumi og blöðin með keðjusaumi. 2: Krónublöðin eru saumuð út með 4 keðjusaums sporum og miðja á blómi er með 4 frönskum hnútum. Stilkurinn er saumaður út með leggsaumi. 3 og 4: Blómhnapparnir eru saumaðir út með keðjusaums spori. Stilkurinn er saumaður með leggsaum og blöðin með keðjusaum. Fiðrildið er saumað út með keðjusaum í vængjum og flatsaum í búk. BLÓM 1: Ef öll blómin eiga að standa í röð þá byrjar miðjan á þessu blómi ca 10,5 cm lengra upp. Byrjað er í miðju á blómi. Byrjaðu á að sauma út með leggsaumshnút með litnum trönuber – sjá mynsturteikningu A og útskýringu á mynsturteikningu – hnúturinn er saumaður þannig að hann verði ca 1 cm að þvermáli. Þetta er miðjan á blóminu. Saumaðu síðan með keðjusaumi í kringum miðju á blómi með litnum karrý og tveimur þráðum – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, það á að sauma út 6 spor í kringum miðju og hvert spor er ca 1,5 – 2 cm langt. STILKUR FYRIR BLÓM 1: Byrjaðu á að sauma út leggsaum með litnum sægrænn – sjá mynsturteikningu C og útskýringu á mynsturteikningu – Stilkurinn er saumaður út ca 9 cm langur með leggsaum sem er ca 1,5 cm langur. BLAÐ Á STILK FYRIR BLÓM 1: Saumaðu keðjusaums spor með litnum sægrænn – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, eftir 2 cm stilk er saumað út keðjusaums spor fyrir blað í hægri hlið og eftir 5 cm stilk er saumað út 1 keðjusaums spor fyrir blað í vinstri hlið – bæði blöðin eiga að snúa aðeins upp að toppi á blómi. Klippið þræðina og festið. BLÓM 2: Ef öll blómin eiga að standa í röð þá byrjar miðjan á þessu blómi ca 10 cm lengra upp. Byrjað er í miðju á blómi. Byrjaðu á að sauma út 4 franska hnúta með litnum trönuber - sjá mynsturteikningu D og útskýringu á mynsturteikningu – hnútarnir eru saumaður þétt þannig að þeir fylli þvermál ca 2 cm. Þetta er miðjan á blóminu. Saumaðu síðan með keðjusaumi í kringum miðju á blómi með litnum dauf bleikur og tveimur þráðum – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, það á að sauma út 4 spor meðfram neðri hlið á miðju á blómi og hvert spor er ca 2 – 2,5 cm langt, þau eiga að vísa niður og aðeins út. Klippið þræðina og festið. STILKUR FYRIR BLÓM 2: Byrjaðu á að sauma út leggsaum með litnum sægrænn – sjá mynsturteikningu C og útskýringu á mynsturteikningu – Stilkurinn er saumaður út ca 7,5 cm langur með leggsaum sem er ca 1,5 cm langur. BLÓM 3: Ef öll blómin eiga að standa í röð þá byrjar miðjan á þessu blómi ca 8,5 cm lengra upp. Byrjað er með blómahnappi og er saumað út með litnum trönuber. Gerðu 3 keðjusaums spor sem öll byrja frá sama gati - sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu – sporin eiga að vera ca 1,5 cm löng og eiga að sitja þétt – ca 0,5 lykkja á milli spora. Nú er saumaður neðri hlið á hnappi með litnum sægrænn þannig: Hoppaðu niður ca 1 cm fyrir neðan hnappinn og gerðu 3 keðjusaum spor sem vísa upp – láttu þau enda þétt þar sem keðjusaumurinn á hnappnum eru. Saumaðu síðan stilk og blöð þannig: STILKUR FYRIR BLÓM 3: Byrjaðu á að sauma út leggsaum með litnum sægrænn – sjá mynsturteikningu C og útskýringu á mynsturteikningu – Stilkurinn er saumaður út ca 4,5 cm langur með leggsaum sem er ca 1 cm langur. BLAÐ Á STILK FYRIR BLÓM 3: Saumaðu keðjusaums spor með litnum sægrænn – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, eftir 1, 2 og 3 cm er saumað út 1 keðjusaums spor fyrir blað á vinstri hlið, öll eiga að snúa aðeins upp að toppi á blómi. Klippið þræðina og festið. BLÓM 4: Ef öll blómin eiga að standa í röð þá byrjar þetta blóm ca 8,5 cm lengra upp. Byrjað er með blómahnappi og er saumað út með litnum trönuber. Gerðu 3 keðjusaums spor sem öll byrja frá sama gati - sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu – sporin eiga að vera ca 1,5 cm löng og eiga að sitja þétt – ca 0,5 lykkja á milli spora. Nú er saumaður neðri hlið á hnappi með litnum sægrænn þannig: Hoppaðu niður ca 1 cm fyrir neðan hnappinn og gerðu 3 keðjusaum spor sem öll vísa upp – láttu þau enda þétt þar sem keðjusaumurinn á hnappnum eru. Saumaðu síðan stilk og blöð þannig: STILKUR FYRIR BLÓM 4: Byrjaðu á að sauma út leggsaum með litnum sægrænn – sjá mynsturteikningu C og útskýringu á mynsturteikningu – Stilkurinn er saumaður út ca 7,5 cm langur með leggsaum sem er ca 1,5 cm langur. BLAÐ Á STILK FYRIR BLÓM 4: Saumaðu keðjusaums spor með litnum sægrænn – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu, eftir 3 cm er saumað út 1 keðjusaums spor fyrir blað á vinstri og þegar stykkið mælist 4 cm og 6 cm er saumað út 1 keðjusaums spor fyrir blöð á hægri hlið á stilki, öll eiga að snúa eins upp að toppi á blómi. Klippið þræðina og festið. FIÐRILDI: Byrjaðu ca 4 - 4,5 cm yfir BLÓM 3. VÆNGIR: Notaðu 1 þráð af litnum ljós gallabuxnablár og saumaðu keðjusaum spor sem öll byrja frá sama gati. VÆNGIR Á BAKI – SPOR: Saumaðu út 2 keðjusaums spor sem bæði eru ca 1 cm löng og láttu þau snúa aðeins aftur að afturhluta á fiðrildi og láttu þau vera ca 2 cm frá hvort öðru – sjá mynsturteikningu B og útskýringu á mynsturteikningu. VÆNGIR AÐ FRAMAN – SPOR: Saumaðu út 2 keðjusaums spor sem bæði eru ca 1,5 cm löng og láttu þau snúa aðeins fram að framhluta á fiðrildi og láttu þau vera ca 2,5 cm frá hvort öðru. BÚKUR: Taktu 1 þráð í litnum einhyrningur og saumaðu út eitt spor með flatsaum yfir vængina niður meðfram miðju á fiðrildi, láttu sporið vera ca 2 cm langt – sjá mynsturteikningu E og útskýringu á mynsturteikningu. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |