Lakeside Trails |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað í garðaprjóni, gatamynstri og með sjalkraga. Stærð XS - XXL.
DROPS 226-8 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um í hliðum á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju innan við 1 lykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. ÚTAUKNING (á við um undir ermum): Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 11, 19, 27, 35, 43 og 51 cm S: 11, 19, 27, 35, 43 og 51 cm M: 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm L: 12, 20, 28, 36, 44 og 52 cm XL: 13, 21, 29, 37, 45 og 53 cm XXL: 13, 21, 29, 37, 45 og 53 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Framstykkin eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna og sjalkraginn er saumaður saman mitt aftan í hnakka. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 50-54-58-62-68-74 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air – passið uppá að fitja ekki upp of stíft þannig að uppfitjunarkanturinn dragist saman. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur í umferð. Prjónið nú mynstur þannig: 10-5-7-9-5-8 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 28-42-42-42-56-56 lykkjur (= 4-6-6-6-8-8 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, 10-5-7-9-5-8 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm = 46-50-54-58-64-70 lykkjur. Þegar stykkið mælist 56-57-58-59-60-61 cm, fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af 2-3-4-6-6-7 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1-1-1-1-2-3 sinnum = 40-42-44-44-48-50 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 5-6-7-7-2-3 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 28-28-28-28-42-42 lykkjur (= 4-4-4-4-6-6 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, garðaprjón yfir síðustu 5-6-7-7-2-3 lykkjur. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm, fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsi = 14-15-16-15-17-18 lykkjur. Þegar stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 31-33-35-38-41-44 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air – passið uppá að fitja ekki upp of stíft þannig að uppfitjunarkanturinn dragist saman. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: 5-5-5-6-6-6 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 14-21-21-21-28-28 lykkjur (= 2-3-3-3-4-4 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, 10-5-7-9-5-8 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 10 cm, fækkið um 1 lykkju í hlið. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm = 29-31-33-36-39-42 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-57-58-59-60-61 cm. Fellið nú af lykkjur fyrir handveg í hverri umferð frá hlið (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá réttu) þannig: Fellið af 2-3-4-6-6-7 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1-1-1-1-2-3 sinnum = 26-27-28-29-31-32 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 5-5-5-6-6-6 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 14-14-14-14-21-21 lykkjur (= 2-2-2-2-3-3 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, 5-6-7-7-2-3 lykkjur garðaprjón. Þegar stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Fellið af fyrstu 14-15-16-15-17-18 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina. Prjónið síðan stuttar umferðir fram og til baka yfir 12-12-12-14-14-14 lykkjur fyrir sjalkraga þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 6-6-6-7-7-7 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka. Endurtakið umferð 1-6 þar til kraginn mælist 6-6-6-7-7-7 cm þar sem stykkið er styst. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 31-33-35-38-41-44 lykkjur á hringprjón 8 með 2 þráðum Air – passið uppá að fitja ekki upp of stíft þannig að uppfitjunarkanturinn dragist saman. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: 10-5-7-9-5-8 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 14-21-21-21-28-28 lykkjur (= 2-3-3-3-4-4 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, garðaprjón yfir síðustu 5-5-5-6-6-6 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 10 cm, fækkið um 1 lykkju í hlið. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm = 29-31-33-36-39-42 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-57-58-59-60-61 cm. Fellið nú af lykkjur fyrir handveg í hverri umferð frá hlið (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá réttu) þannig: Fellið af 2-3-4-6-6-7 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1-1-1-1-2-3 sinnum = 26-27-28-29-31-32 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 5-6-7-7-2-3 lykkjur garðaprjón, A.1 yfir næstu 14-14-14-14-21-21 lykkjur (= 2-2-2-2-3-3 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið fyrstu 2 lykkjur í A.1, 5-5-5-6-6-6 lykkjur garðaprjón. Þegar stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 14-15-16-15-17-18 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur út umferðina (= 12-12-12-14-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli). Prjónið nú stuttar umferðir fram og til baka yfir 12-12-12-14-14-14 lykkjur þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 6-6-6-7-7-7 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 9-9-9-10-10-10 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur til baka. UMFERÐ 5: Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið sléttar lykkjur til baka. Endurtakið umferð 1-6 þar til kraginn mælist 6-6-6-7-7-7 cm þar sem stykkið er styst. Fellið af. ERMI: Fitjið upp 40-40-42-42-44-44 lykkjur á stuttan hringprjón 8 með 2 þráðum Air. Prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan, í 6 cm. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 9. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónamerkið á að fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar auka á út lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 9 cm, aukið út um 0-1-1-1-1-1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 0-16-16-15-14-8 cm millibili alls 0-1-1-2-2-3 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 45-45-43-43-41-39 cm. Fellið nú af miðju 4-6-8-12-12-14 lykkjur undir ermi fyrir handveg (= 2-3-4-6-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið síðan fram og til baka í sléttprjóni og fellið af lykkjur í byrjun á hverri umferð fyrir ermakúpu þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-2-1-1-1-1 sinnum, 1 lykkja 0-0-2-4-5-7 sinnum, 2 lykkjur 0-2-2-2-2-1 sinni og 3 lykkjur 4-1-1-0-0-0 sinnum = 12-14-14-14-14-14 lykkjur eftir. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51-52-52-53-52-52 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana og látið vera eftir ca 15 cm fyrir klauf í hliðum. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið sjalkragann saman mitt að aftan (saumurinn á að snúa inn þegar kraginn er brotinn að bakhlið). Saumið kragann við kant í hálsmáli á bakstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Helga Reisenwebber wrote:
Masala Chai
24.08.2021 - 23:27Michèle PREVOST wrote:
Je propose Chemin d automne
08.08.2021 - 02:31Bente Haugen wrote:
Sen Høst
05.08.2021 - 20:49Erna wrote:
Chestnut dreams
04.08.2021 - 02:25Snuggly wrote:
Love this design and hope to have time to make it
03.08.2021 - 19:10Palmira wrote:
Realmente precioso y muy adecudo para otoñp
03.08.2021 - 17:43Emma wrote:
Really lovely jacket. Didn't vote for it in my top ten and now regretting it.
03.08.2021 - 17:31