Lila Mist Cardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 230-23 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: S: 9, 18, 27, 36 og 45 cm M: 9, 18, 28, 37 og 47 cm L: 8, 18, 28, 38 og 48 cm XL: 7, 16, 24, 33, 41 og 50 cm XXL: 8, 17, 25, 34, 42 og 51 cm XXXL: 8, 17, 26, 35, 44 og 53 cm AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið, framstykkin og ermar er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Frágangur á stykkjum er eins og útskýrt er í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 87-99-99-111-123-135 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið mynstur þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 72-84-84-96-108-120 lykkjur (= 6-7-7-8-9-10 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3 yfir næstu 6 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til fyrstu 4 umferðir í A.1 til A.3 hafa verið prjónaðar til loka á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú mynstur frá umferð með ör. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm (mælt frá þar sem mynstrið sveigist niður á móti – þetta á við í gegnum alla uppskriftina). Nú eru felldar af 6-6-6-6-12-12 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 75-87-87-99-99-111 lykkjur. Nú er mynstrið prjónað í mismunandi stærðum þannig – stillið af að byrjað sé í réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið haldi áfram eins og áður: Stærð S, M, L og XL: Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.4 yfir næstu lykkju, A.2 yfir næstu 60-72-72-84 lykkjur (= 5-6-6-7 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.5 yfir næstu 12 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 52-54-56-58 cm. Prjónið síðan frá Allar stærðir að neðan. Stærð XXL og XXXL: Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 84-96 lykkjur (= 7-8 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3 yfir næstu 6 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 60-62 cm. Prjónið síðan frá Allar stærðir að neðan. Allar stærðir: Fellið nú af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 24-30-29-35-34-40 lykkjur fyrir öxl. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm – yfir ystu lykkjur við hálsmál sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu af A.2 er prjónað sléttprjón eða garðaprjón eins og útskýrt er í A.2, en ekki er prjónaður uppsláttur og úrtaka. Fellið af – sjá AFFELLING. Prjónið hina öxlina alveg eins. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 49-55-55-61-67-73 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, XL og XXXL: Prjónið þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.4 yfir fyrstu lykkju, A.2 yfir næstu 36-48-60 lykkjur (= 3-4-5 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.3 yfir næstu 6 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til fyrstu 4 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar til loka. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú áfram frá umferð með ör. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 34-37-39 cm, prjónið áfram frá Allar stærðir að neðan. Stærð M, L og XXL: Prjónið þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 yfir fyrstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 36-36-48 lykkjur (= 3-3-4 mynstureiningar með 12 lykkjur), A.3 yfir næstu 6 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til fyrstu 4 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar til loka. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú áfram frá umferð með ör. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 35-36-38 cm, prjónið áfram frá Allar stærðir að neðan. Allar stærðir: Fellið nú af 6-6-6-6-12-12 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá röngu, prjónið út umferðina eins og áður = 43-49-49-55-55-61 lykkjur. Prjónið síðan mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M, L og XL: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 30-36-36-42 lykkjur í umferð, prjónið A.5 yfir næstu 12 lykkjur – stillið af að byrjað sé í réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið haldi áfram eins og áður, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Stærð XXL og XXXL: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 48-54 lykkjur í umferð, prjónið A.3 yfir næstu 6 lykkjur – stillið af að byrjað sé í réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið haldi áfram eins og áður, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Allar stærðir: Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm, nú eru eftir ca 8-8-9-9-10-10 cm að loka máli. Prjónið nú fyrstu 12 lykkjur frá réttu áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Prjónið nú mynstur og fellið af lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Lestu því kaflann MYNSTUR og ÚRTAKA áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR: Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – yfir ystu lykkjurnar við hálsmál sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu af A.2, prjónið sléttprjón eða garðaprjón eins og útskýrt er í A.2, en ekki er prjónaður uppsláttur og úrtaka. ÚRTAKA: Fellið af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-4-4-5-5 sinnum = 24-30-29-35-34-40 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 49-55-55-61-67-73 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, XL og XXXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir fyrstu 7 lykkjur, A.2 yfri næstu 24-36-48 lykkjur (= 2-3-4 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.5 yfir næstu 12 lykkjur, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til fyrstu 4 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar til loka. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú áfram frá umferð með ör. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör. Þegar stykkið mælist 34-37-39 cm, prjónið áfram frá Allar stærðir að neðan. Stærð M, L og XXL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 yfir fyrstu 7 lykkjur, A.2 yfir næstu 36-36-48 lykkjur (= 3-3-4 mynstureiningar með 12 lykkjur), A.3 yfir næstu 6 lykkjur, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til fyrstu 4 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar til loka. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú áfram frá umferð með ör. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 35-36-38 cm, prjónið áfram frá Allar stærðir að neðan. Allar stærðir: Fellið nú af 6-6-6-6-12-12 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu = 43-49-49-55-55-61 lykkjur. Prjónið síðan mynstur mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M, L og XL: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.4 yfir næstu lykkju – stillið af að byrjað sé í réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið haldi áfram eins og áður yfir þær lykkjjur sem eru eftir í umferð. Stærð XXL og XXXL: Prjónið 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 7 lykkjur - stillið af að byrjað sé í réttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið haldi áfram eins og áður, prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Allar stærðir: Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 46-48-49-51-52-54 cm, nú eru eftir ca 8-8-9-9-10-10 cm til loka máls. Prjónið nú fyrstu 12 lykkjur frá röngu áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Prjónið nú mynstur og fellið af lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Lestu því kaflann MYNSTUR og ÚRTAKA áður en þú prjónar áfram. MYNSTUR: Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður – yfir ystu lykkjur við hálsmál sem ekki ganga jafnt upp í heilli mynstureiningu af A.2, prjónið sléttprjón eða garðaprjón eins og útskýrt er í A.2, en ekki er prjónaður uppsláttur og úrtaka. ÚRTAKA: Fellið af lykkjur í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-4-4-5-5 sinnum = 24-30-29-35-34-40 lykkjur eftir fyrir öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. ERMI: Fitjið upp 53-55-57-57-59-61 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið mynstur fram og til baka þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1-2-3-3-4-5 lykkjur slétt, A.4 yfir fyrstu lykkju, A.2 yfir næstu 36 lykkjur (= 3 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.5 yfir næstu 12 lykkjur, 1-2-3-3-4-5 lykkjur, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til fyrstu 4 umferðir í mynsturteikningu hafa verið prjónaðar til loka á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið áfram með mynstri frá umferð með ör. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, endurtakið mynstur frá umferð með ör. Þegar stykkið mælist 10-10-10-8-7-4 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin á ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-11-13-14-15 sinnum = 73-77-79-83-87-91 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 50-48-49-47-44-41 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkir hvar botninn á handveg byrjar. Prjónið mynstur eins og áður þar til ermin mælist alls 53-51-52-50-51-48 cm. Fellið af – munið eftir AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermakúpuna við handveg. Saumið síðan klaufina efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu með hringprjón 4,5 og DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið upp 78 til 90 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þráðum) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í kringum kant í hálsmáli. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Fellið af – sjá AFFELLING. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (19)
Anne wrote:
Kan ik dit ook met katoen breien en zonder rondbreinaalden?
07.04.2024 - 11:22DROPS Design answered:
Dag Anne,
Katoen is zwaarder en heeft daardoor een ander effect, maar het zou zeker kunnen. Maak eventueel eerst even een proeflapje om te beoordelen wat je ervan vindt.
Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.
07.04.2024 - 18:46Liz wrote:
Can you please explain the gap at the beginning of rows 15 and odd numbers above on A2 there should be 12 stitches to pattern but there are only 11
15.03.2024 - 21:28DROPS Design answered:
Dear Liz, there is a gap in the first stitch but also an extra square at the end of the row. This also happens at the end of A.1 (there is an extra square) and the beginning of A.3 (there is a gap). These are suppossed to fit similarly to a puzzle. So you would work the row as follows: work A.1 but work the last stitch of A.1 together with the first stitch in A.2. Then work A.2 and work the last stitch of the repeat together with the first stitch of the next repeat of A.2. Continue like this until reaching the last repeat of A.2. Then, work the last stitch in the repeat together with the first stitch of A.3. Then continue working A.3 as shown in the chart. Happy knitting!
17.03.2024 - 21:31Elise wrote:
Hi! How are the increased sleeve stiches knitted? Am I supposed to just knit them in a garter stich? In that way the pattern won't continue naturally. Thanks!
12.02.2024 - 20:41DROPS Design answered:
Hi Elise, The increased stitches are purled twisted (through the back loop) on the first round after each increase, then worked in stocking stitch. Happy knitting!
13.02.2024 - 06:43Connie Bach wrote:
Hvorfor svarer I ikke retur ? Træls at sidde med dyrt garn man ikke kan bruge, da opskriften er fuldstændig uforståelig. Og ja, jeg er nybegynder og mangler simpelthen lidt lettere forklaringer, også på de pinde der ikke står i mønsteret, men er underforstået for en dygtig strikker.
24.06.2023 - 21:47DROPS Design answered:
Hei Connie. Under hver oppskrift står det: Du får vanligvis svar innen 5-10 arbeidsdager (du etterlyser svar etter 2 arbeidsdager!). I mellomtiden kan du lese tidligere spørsmål og svar som andre har lagt igjen på denne oppskriften eller bli med i DROPS Workshop på Facebook for å få hjelp av andre strikkere/heklere! Trenger du hjelp i løpet av en helg, er sosiale medier et flott sted å få hjelp. mvh DROPS Design
26.06.2023 - 11:33Sonja De Keersmaecker wrote:
Goedemorgen, kan deze trui ook met gewone breinaalden worden gemaakt\r\nAlvast bedankt voor een antwoord\r\nSonja
26.02.2023 - 07:47Geneviève Martin wrote:
Bonjour, est-ce que toutes les mailles augmentées pour la manche sont tricotées en jersey ? On se retrouve alors avec une partie qui n'est plus en point fantaisie... Ou bien faut-il reconstituer le point fantaisie au fur et à mesure des augmentations ? Merci de me'aider .
29.12.2022 - 09:21DROPS Design answered:
Bonjour Mme Martin, les augmentations des manches se tricotent en jersey (cf AUGMENTATIONS). Bon tricot!
02.01.2023 - 11:40Marlies Van Dijk wrote:
Zou u nog antwoord op mijn vraag kunnen geven? Blijf je die 3 steken van de mouw recht en averecht breien? Want er wordt gemeerderd, moet ik dan niet op een gegeven moment die steken in patroon gaan breien?Alvast bedankt.
23.10.2022 - 20:41Marlies Van Dijk wrote:
Bedankt voor uw antwoord. Maar ik heb nog een vraag. Blijf je die 3 steken van de mouw recht en averecht breien? Want er wordt gemeerderd, moet ik dan niet op een gegeven moment die steken in patroon gaan breien?Alvast bedankt.
12.10.2022 - 21:08DROPS Design answered:
Dag Marlies,
Nee, je volgt het patroon zoals aangegeven en de 3 steken midden onder de mouw aan beide kanten blijf je in tricotsteek breien. De gemeerderde steken brei je ook in tricotsteek.
24.10.2022 - 20:45Marlies Van Dijk wrote:
Mijn vraag betreft de mouw, direct bij de eerste pennen. Er staat voor de maat die ik brei, 1 kantsteek in ribbelsteek, 3 recht, dan patroon volen, eindigen met 3 recht en 1 kantsteek in ribbelsteek. De 3 steken recht, worden die in de teruggaande naalden ook recht gebreid, of averecht? Alvast bedankt voor het antwoord. I
10.10.2022 - 19:48DROPS Design answered:
Dag Marlies,
Nee de 3 recht brei je op de teruggaande naald averecht. Dee kantsteek brei je wel op iedere naald recht.
12.10.2022 - 20:18Françoise Benoit wrote:
Je suis rendu à toute tailles pour le dos du chandail 230-23 et je ne. On prend pas ce que vous voulez dire ( Tricoter Jersey/point mousse comme indiquer dans A2 mais je ne voie rien d’inscrit à ce sujet. Pouvez-vous me donner des explications pour terminer mon chandail. Merci
26.06.2022 - 00:05DROPS Design answered:
Bonjour Mme Benoit, lorsque vous tricotez le point fantaisie, certaines mailles sont tricotées à l'endroit sur l'endroit et sur l'envers (= point mousse); lorsque vous terminez chaque épaule séparément, le point fantaisie ne tombe pas juste côté encolure, vous tricotez alors les mailles comme elles le doivent (à l'endroit sur l'endroit et soit à l'envers sur l'envers (= jersey) soit à l'endroit sur l'envers (point mousse) mais sans les jetés/diminutions si vous ne pouvez pas faire les 2. Bon tricot!
27.06.2022 - 08:29