Trip to Provence Cardigan |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með öldumynstri, tvöföldum kanti að framan og trompetermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-30 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Prjónið hnappagöt í hægri kant að framan með byrjun frá réttu þannig: Prjónið yfir fyrstu 6 lykkjurnar eins og áður, snúið og prjónið til baka yfir 6 lykkjurnar eins og áður, snúið og prjónið til baka frá réttu yfir 6 lykkjurnar eins og áður. Klippið þráðinn. Prjónið alls 4 umferðir eins og áður yfir þær 6 kantlykkjur að framan sem eftir eru (fyrsta umferð er prjónuð frá réttu) og prjónið síðustu lykkjuna frá réttu saman með næstu lykkju meðfram kanti á peysu eins og áður. Í síðustu umferð frá röngu er prjónað yfir allar kantlykkjur að framan og haldið er áfram eins og áður yfir allar kantlykkjur að framan. Prjónið hnappagöt þegar kantur að framan mælist: S: 6, 14, 22, 30 og 38 cm. M: 6, 14, 23, 31 og 40 cm. L: 6, 13, 20, 27, 34 og 41 cm. XL: 6, 13, 21, 28, 36 og 43 cm. XXL: 6, 13, 21, 28, 36 og 44 cm. XXX: 6, 14, 22, 30, 38 og 46 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna, ofan frá og niður Frágangur á stykki er útskýrður í uppskrift. Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur að framan og kantur í hálsmáli sem felldur er af með picot. BAKSTYKKI: Fitjið upp 103-111-117-129-139-149 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Síðan er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 8-8-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 95-103-109-119-129-139 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: S, M og L: 1 lykkja í garðaprjóni, 3-5-5 lykkjur sléttprjón, A.1, prjónið 5-6-7 lykkjur sléttprjón, * A.2, prjónið 12-13-15 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, A.2, prjónið 5-6-7 lykkjur sléttprjón, A.3, prjónið 3-5-5 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. XL, XXL og XXXL: 1 lykkja í garðaprjóni, 5-7-11 lykkjur sléttprjón, A.2, prjónið 7-8-9 lykkjur sléttprjón, * A.2, prjónið 14-16-16 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, A.2, prjónið 7-8-9 lykkjur sléttprjón, A.2, prjónið 5-7-11 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm – mælt frá uppfitjunarkanti þar sem boginn beygist niður (öll mál á lengdina eru gerð héðan), fellið af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-3-3-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 4-4-5-6-6-6 sinnum = 73-77-81-85-89-91 lykkjur eftir – ATH: Þegar úrtaka mætir A.1/A.2/A.3 er afgangur af mynstureiningu prjónað í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm, fellið af miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ATH: Þegar úrtaka mætir A.2 er afgangur af mynstureiningu prjónað í sléttprjóni. Síðan eru felldar af 2 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsi = 20-22-23-25-26-27 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið aðeins laust af þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 54-58-60-67-71-77 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Síðan er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 5-5-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 49-53-55-61-65-71 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: S, M og L: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja í sléttprjóni, * A.2, prjónið 5-6-7 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, A.3, prjónið 3-5-5 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. XL, XXL og XXXL: 1 lykkja í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón, * A.2, prjónið 7-8-9 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, A.2, prjónið 5-7-11 lykkjur sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm – mælt frá uppfitjunarkanti þar sem boginn beygist niður (öll mál á lengdina eru gerð héðan), fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-3-3-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 4-4-4-6-6-6 sinnum = 38-40-42-44-45-47 lykkjur eftir – ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 39-41-42-44-45-47 cm, setjið ystu 11 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Síðan er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-4-5 sinnum = 20-22-24-25-26-27 lykkjur eftir á öxl. ATH: Þegar úrtakan mætir A.2 er afgangur af mynstureiningu prjónað í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af aðeins laust þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 54-58-60-67-71-77 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Síðan er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 5-5-5-6-6-6 lykkjur jafnt yfir = 49-53-55-61-65-71 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: S, M og L: 1 lykkja í garðaprjóni, 3-5-5 lykkjur sléttprjón, A.1, * prjónið 5-6-7 lykkjur sléttprjón, A.2 *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið 1 lykkju sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. XL, XXL og XXXL: 1 lykkja í garðaprjóni, 5-7-11 lykkjur sléttprjón, * A.2, prjónið 7-8-9 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, A.2, prjónið 1 lykkju sléttprjón, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm – mælt frá neðsta boga, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 2 lykkjur 2-3-3-4-4-6 sinnum og 1 lykkja 4-4-4-6-6-6 sinnum = 38-40-42-44-45-47 lykkjur eftir – ATH: Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 39-41-42-44-45-47 cm, setjið ystu 11 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli, en til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn. Síðan er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3-3-3-4-4-5 sinnum = 20-22-24-25-26-27 lykkjur eftir á öxl. ATH: Þegar úrtakan mætir A.2 er afgangur af mynstureiningu prjónað í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið af aðeins laust þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm. ERMI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fitjið aðeins laust upp 23-25-25-25-27-27 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 5-6-6-6-7-7 lykkjur sléttprjón, A.2, 5-6-6-6-7-7 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstur fram og til baka jafnframt því sem fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir ermakúpu í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig (nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni): Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-4-4-4 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 2-3-2-2-2-4 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið og að lokum 3 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 63-67-71-75-81-85 lykkjur. Stykkið mælist ca 9-10-10-11-12-14 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón 5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring eins og útskýrt er að neðan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2 yfir miðju 13 lykkjur. Þegar ermin mælist 4-4-4-2-2-1 cm frá þar sem stykkið var sett saman, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 9-10-11-12-14-15 sinnum = 45-47-49-51-53-55 cm. Þegar ermin mælist 47-47-47-44-44-44 cm frá uppfitjunarkanti (efst á ermakúpu), aukið út um 12-12-12-14-14-14 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 6-6-6-7-7-7 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við A.2 og prjónið A.2 eins og áður) = 57-59-61-65-67-69 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: S, M og L: 2-3-4 lykkjur sléttprjón, A.1, prjónið A.2 alls 3 sinnum, A.3, prjónið 2-3-4 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð þannig: 2-3-4 lykkjur sléttprjón, A.4, prjónið A.5 alls 3 sinnum, A.6, prjónið 2-3-4 lykkjur sléttprjón. Þegar A.4 til A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 fyrstu umferðir í A.4b, A.5b og A.6b = 65-67-69 lykkjur. XL, XXL og XXXL: 0-1-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 alls 5 sinnum, 0-1-2 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umferð þannig: 0-1-2 lykkjur sléttprjón, prjónið A.5 alls 5 sinnum, 0-1-2 lykkjur sléttprjón. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 fyrstu umferðir í A.5b = 75-77-79 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 55 cm í öllum stærðum – mælt frá uppfitjunarkanti efst á ermakúpu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp að hálsmáli. Prjónið upp lykkjur meðfram hægra framstykki, hoppið 90 til 120 cm inn á þráðinn og notið þráðarendann til að prjóna upp lykkjur (með því að gera þetta svona er hægt að prjóna áfram með dokkunni án þess að klippa þráðinn í lokin) þannig: Byrjið að taka upp lykkjur neðst á framstykki og prjóna upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 4,5 og DROPS Brushed Alpaca Silk. Nú heldur stykkið áfram í öðrum endanum á prjóni þar sem dokkan er = neðst á framstykki. Fitjið upp 12 lykkjur fyrir kant að framan sem viðbót við þær lykkjur sem teknar voru upp neðst á framstykki (uppfitjun á lykkjum er gerð frá röngu). Nú er kanturinn að framan prjónaður yfir 12 lykkjurnar jafnframt því sem kanturinn er prjónaðu saman með lykkjum sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Lyftið yfir fyrstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, * prjónið 1 lykkju slétt, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 12 kantlykkjum að framan, lyftið yfir síðustu lykkjunni á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, með þráðinn aftan við stykkið, prjónið næstu lykkju (lykkja frá framstykki), slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð slétt, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): * Lyftið yfir fyrstu/næstu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir allar 12 kantlykkjur að framan, snúið. Endurtakið umferð 1 og 2. Prjónið HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar allar lykkjur frá framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan, prjónið allar lykkjur 2 og 2 slétt saman áður en þær eru felldar af. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Kantur að framan er prjónaður neðan frá og upp. Lykkjur eru teknar upp með byrjun efst við öxl á framstykki, prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð niður meðfram öllu framstykkinu innan við 1 kantlykkju, notið hringprjón 4,5 og DROPS Brushed Alpaca Silk. Eftir að lykkjur hafa verið teknar upp eru fitjaðar upp 12 lykkjur fyrir kant að framan (= neðst á framstykki). Nú er kantur að framan prjónaður yfir 12 lykkjur jafnframt því sem kantur að framan er prjónaður saman með lykkjur sem prjónaðar voru upp meðfram framstykki þannig: UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með framan við stykkið, * prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir af 12 kantlykkjum að framan, lyftið yfir 2 næstu lykkjum (síðasta lykkja frá kanti að framan og fyrsta/næsta lykkja frá framstykki) á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið saman með þráðinn framan við stykkið, snúið. UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, * lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, lyftið yfir síðustu lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, snúið. Endurtakið umferð 1 og 2. Þegar allar lykkjur frá framstykki hafa verið prjónaðar saman með kanti að framan, prjónið allar lykkjur saman frá réttu þannig: Lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Saumið tölur í vinstri kant að framan. KANTUR Í HÁLSMÁLI MEÐ PICOT: Byrjið frá réttu og prjónið upp ca 85 til 95 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur á þræði að framan) á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með picot þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, * stingið inn hægri prjón á milli 2 fyrstu lykkja á vinstri prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkjuna), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 3 nýjar lykkjur á vinstri prjón), prjónið sléttar lykkjur og fellið jafnframt af 6 lykkjur (= 1. lykkja á hægri prjóni + 3 uppslættir + 2 lykkjur), Nú er haldið áfram með að prjóna frá *-* + fella af 6 lykkjur alveg eins meðfram allri affellingunni þar til ekki eru nægilega margar lykkjur eftir til að gera nýjan picot. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, klippið þráðinn og dragið í gegnum síðustu lykkju. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Christina Rohde wrote:
Hvordan skal jeg forstå diagrammet i starten af bagstykket? Et det kun første linje af de tre diagrammer, der skal strikkes i mønsteret og ingen glatstrik runder?
12.05.2024 - 16:37DROPS Design answered:
Hej Christina, jo vi beskriver første (nederste) pind i diagrammet, næste pind strikkes ifølge 2.pind i diagrammet :)
14.05.2024 - 11:53Yvonne wrote:
Ich habe 3 Fragen: Aus welchem Grund werden nach den Krausrippen (Bündchen) 8 Maschen bzw. 5 Maschen wieder abgenommen? Kommt so das Wellen-Bündchen zustande? Oder entsteht das Wellen-Bündchen lediglich durch das Lochmuster?
29.02.2024 - 22:25DROPS Design answered:
Liebe Yvonne, es wird Maschen nach den Krausrippen abgenommen, um die richtige Breite zu behalten, wenn man dann das Muster strickt. Viel Spaß beim stricken!
01.03.2024 - 08:08Christiane ARVIEUX wrote:
Bonjour, pour ce modèle combien faut-il de pelotes pour une taille XL. Merci de votre réponse
25.05.2023 - 21:14DROPS Design answered:
Bonjour Mme Arvieux, vous trouverez la quantité requise pour chaque taille dans l'en-tête, en haut de la page, autrement dit, il faut en XL 200 g DROPS Brushed Alpaca Silk / 25 g la pelote = 8 pelotes. Bon tricot!
26.05.2023 - 10:05Nicola Sewell wrote:
Currantly kniting trip to provence cardigan and have got a wee bit stuck. It says slip outermost 11 sts towards mid front, work them which makes sense. Then continue to cast off for neck edge, im thinking the neck edge is straight. My brain is thinking it should say armhole edge and not neck edge. Please please help as i thought that this cardigan pattern was the easiest as the others have raglan shaping or short rows which confuse me.
30.03.2023 - 12:38DROPS Design answered:
Dear Nicola, you can see in the schematic under the pattern instructions that the neck edge is slightly shaped, since it's a round neck. So the decreases are for this round neck edge. On the other hand, the armholes are straight and have no decreases. Happy knitting!
02.04.2023 - 16:44Cinzia Galli wrote:
Buongiorno sto cercando di realizzare questo cardigan ma non capisco perch il davanti dx riporta 2 volte il pattern di 13 maglie A2 ed una volta il pattern A3mentre nella spiegazione del mezzo davanti sx il pattern A2 non è menzionato ma viene indicato solo A 1 per 2 volte . Cosa non ho capito? O c’è un errore? Grazie
16.03.2023 - 17:04DROPS Design answered:
Buongiorno Cinzia, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto le spiegazioni per il davanti sinistro. Buon lavoro!
18.03.2023 - 15:19Marina Maernhout wrote:
Tender Lavender
22.01.2023 - 19:27Kristin wrote:
Lavender Dream
21.01.2023 - 11:01Christina wrote:
Une touche de la Provence
21.01.2023 - 01:52Christina wrote:
Lavender Flair
21.01.2023 - 01:48María Del Carmen wrote:
Lavanda
20.01.2023 - 16:04