DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Meet the Captain

Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með röndum, tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 239-38
DROPS Design: Mynstur x-489
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALASKA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-550-650-700-750-850 g litur 37, gráblár
200-200-250-250-300-300 g litur 02, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð á undan / eftir 1 lykkju í sléttprjóni (lykkja með prjónamerki í).
Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá réttu / á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá röngu.
Aukið út fyrir ermar á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki (alltaf er aukið út frá réttu á ermum).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.

Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMFERKI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt.

Uppslátturinn er prjónaður frá réttu þannig:
Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt.
Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt.

RENDUR:
Byrjið við 1. prjónamerki (þannig að litaskiptin í röndum verði ekki sýnileg mitt aftan á peysu) og prjónið rendur þannig:
* Prjónið 5 umferðir með litnum natur (ca 2 cm), prjónið 8 umferðir með litnum gráblár (ca 3,5 cm) *, prjónið frá *-*.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur með DROPS Alaska með litnum gráblár yfir stuttan hringprjón 5 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt JAFNFRAMT því sem fjórða hver lykkja er prjónuð saman með fjórðu hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Héðan er nú stykkið mælt.

Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið, þetta er gert samtímis sem aukið er út um 4 lykkjur í hverri umferð eins og útskýrt er að neðan – prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu:
Prjónið 10-12-12-14-14-16 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21-23-25-27-29-31 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur.

HÁLSMÁL:
Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Byrjið mitt að aftan.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta prjónamerki.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan.

Stuttu umferðirnar hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu við hvert prjónamerki = 124-128-132-136-140-144 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan.

STÆRÐ S, M, L og XL:
Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki og ermum (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í) í annarri hverri umferð alls 2-8-10-11 sinnum = 140-192-212-224 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13 cm frá kanti í hálsmáli eru prjónaðar rendur – lesið RENDUR í útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni, rendur og útaukningar fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-15-14-16 sinnum á fram- og bakstykki (9-7-7-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 24-27-28-31 sinnum á fram- og bakstykki og 15-19-21-23 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 248-280-296-320 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

STÆRÐ XXL og XXXL:
Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í hverri umferð á fram- og bakstykki 2-6 sinnum og í annarri hverri umferð á ermum 1-3 sinnum = 152-180 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13 cm frá kanti í hálsmáli eru prjónaðar rendur – lesið RENDUR í útskýringu að ofan. Síðan er aukið út á fram- og bakstykki og ermum (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í) í annarri hverri umferð alls 10-7 sinnum = 232-236 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni, með röndum og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hver skipt sem aukið er út er nú einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-22 sinnum á fram- og bakstykki (9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 34-39 sinnum á fram- og bakstykki og 24-25 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 340-368 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
= 248-280-296-320-340-368 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og rendur án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-32 cm
Mælt mitt að framan eftir stroffi í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 37-42-43-48-51-58 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 75-83-87-95-103-115 lykkjur (framstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 38-41-44-47-52-57 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 162-178-190-206-226-250 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum þar til stykkið mælist 28-28-28-28-28-27 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með nokkrum umferðum í litnum gráblár fyrir stroff (nú eru eftir ca 5 cm að loknu máli) og afgangur af stykki er prjónað í litnum gráblár.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-22-22-26-26-34 lykkjur jafnt yfir = 180-200-212-232-252-284 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 49-57-61-65-67-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-63-69-73-77-79 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram hringinn með sléttprjóni og röndum. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 8-4½-3-2½-2-2 cm millibili alls 5-8-10-11-12-12 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-36-35-33-31-29 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með nokkrum umferðum í litnum gráblár fyrir stroff (nú eru eftir ca 6 cm að loknu máli) og afgangur af stykki er prjónaður í litnum gráblár.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-41-39-37-35 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Meet the Captain

Leighton, United States

Meet the Captain

Edyta, Poland

Meet the Captain

Latica, Croatia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Rita wrote:

Dopo aver piegato il collo, chiedo se la suddivisione delle maglie con i 4 aumenti è corretta? non mi tornano i conti… sto eseguendo la taglia L e non riesco ad arrivare a 100 maglie totali. Grazie

06.10.2023 - 23:06

DROPS Design answered:

Buonasera Rita, durante il giro di inserimento dei segnapunti si aumentano 4 maglie, quindi da 96 passerà a 100 maglie. Ci può spiegare meglio il suo dubbio? Buon lavoro!

09.10.2023 - 23:15

country flag Rita wrote:

Hallo zusammen, Ich wage mich zum 1.Mal an Raglan. Bin jetzt bei den Raglanzunahmen am Rumpf und Ärmel. Was bedeutet denn 2-6× in der Höhe stricken ? Bin völlig ratlos und hoffe auf eure Hilfe. Danke im voraus. Rita

13.09.2023 - 19:56

DROPS Design answered:

Liebe Rita, meinen Sie unter GRÖSSE XXL und XXXL:? Dann stricken Sie nach den verkürzten Reihen in Runden, und gleichzeitig nehmen Sie für den Raglan so zu: Beim Vorder- und Rückenteil nehmen Sie in jeder Runde und gleichzeitig nehmen Sie für die Ärmel in jeder 2. Runde - so nehmen Sie abwechslungsweise 4 Maschen (Vorder + Rückenteil) und 8 Maschen (Vorder-, Rückenteil und Ärmel). In XXL stricken Sie so 2 Runden, in XXXL stricken Sie So 6 Runden insgesamt. Viel Spaß beim stricken!

14.09.2023 - 09:52

country flag Rick wrote:

Is the raglan placement of markers and 4 st increase still incorrect? Is there any other updated version?

03.09.2023 - 14:05

DROPS Design answered:

Dear Rick, you can see the correction history in: This pattern has been corrected. Click here to see the correction/s... All corrections are directly applied to the pattern, so the updated version is the one available online. Happy knitting!

03.09.2023 - 23:46

country flag Christiane Guay St-Arnaud wrote:

Bonjour, en ce qui concerne le modèle 239-38, dans la section, empiècement pour la taille Medium, lorsque j'ai mes 192 mailles, je n'ai que 9 cm de tricoté à partir du bas de mon encolure, Est-ce que je dois calculer les 4 cm de mon col pour arriver à 13 cm et de là commencer mes rayures et les nouvelles augmentations ?

17.07.2023 - 16:00

DROPS Design answered:

Bonjour Christiane, il parait que votre echantillon n'est pas correct, vous avez probablement plus de rangs pour 10 cm que prevu dans le modele. Si la tension n'est pas juste en hauteur et que l’on a plus de rangs pour 10 cm que dans l’échantillon, l'empiècement sera trop court et les emmanchures trop étroites. On peut ajuster en tricotant 1 rang jersey supplémentaire à espace réguliers lors de l'empiècement. Verifiez bien votre tension/echantillon, c'est tres important quand on fait le raglen. Bon tricot!

17.07.2023 - 22:54

country flag Marina Pilon wrote:

Hallo, ik kom niet uit met de pas. Ik heb een proeflapje gebreid om de juiste naalddikte te bepalen. Ik gebruik nu naald 6, maar de pas wordt nu te lang. Hij is al 20 centimeter lang en ik heb pas 6 van de 16 meerderingen op het lijf gemaakt ( naast de 3 van de 8 op de mouwen). Ik brei maat XL. Wat doe ik verkeerd? Als ik een dunnere naald gebruik wordt de trui te smal.

09.07.2023 - 10:46

DROPS Design answered:

Dag Marina,

Als de stekenverhouding in de hoogte anders is door een dikker naald, zul je inderdaad de interval waarop je meerderingen maakt voor de raglan aan moeten passen. Maar ik heb eerder het vermoeden dat je meer naalden tussen de meerderingen hebt. Meerder je de ene naald wel en de andere naald niet? Dus om en om?

13.07.2023 - 20:22

country flag Caroline Pålman wrote:

Hej! Jag undrar över halsringningen. Varv 1 gör man omslag på båda sidorna om markörerna. Varv 2 stickar man omslagen - men ska man även göra nya omslag så det ökas på det varvet också?

06.07.2023 - 11:38

DROPS Design answered:

Hej Caroline, ja du øker på hver pind ifølge mønsteret så længe du strikker forkortede pinde :)

07.07.2023 - 10:41

country flag Lea Rønnow wrote:

Hejsa hvad betyder det når i skriver: DROPS RUNDPINDE NR 5: Længde 40 cm og 80 cm. DROPS RUNDPINDE NR 4: Længde 40 cm og 80 cm. DROPS STRØMPEPINDE NR 5. DROPS STRØMPEPINDE NR 4. hvor mange mm skal pinden så være? jeg kan nemlig ikke finde en pind som hedder drops nr 5 eller 4 - hvad skal jeg så købe?

03.07.2023 - 10:40

DROPS Design answered:

Hei Lea Denne genseren strikkes på rundpinne og her trenger du rundpinne i str 5 (tykkelsen, angitt i mm og 2 lengder. 40 cm lengde til starten på halsen til du har nok masker til å strikke rundt med 80 cm lengde. Du må også str. 4 - 40 cm lengde til vrangbordene i halsen og str. 4 - 80 cm lengde til vrangborden til kanten nederst på genseren. Når du skal strikke ermene starter du med vrangborden og settpinner 4, når vrangborden er ferdig går du over til settpinner 5 og når du har nok masker kan du gå over til rundpinne 5- 40 cm og strikke resten av ermene. Klikk deg inn på Find en butikk! Og finn en butikk nærmest deg for innkjøp av pinner.

03.07.2023 - 12:04

country flag Marta wrote:

Hello, I really like the pattern but it is the first time i am doing a neckline. On row 3 where you say turn on previous turn, what does that mean? Which marker are we talking about? Could you break down the steps a little further? Thank you

29.06.2023 - 22:45

DROPS Design answered:

Dear Marta, you are working short rows working always more stitches after marker -2 (from RS) and after marker -3 (from WS), and on 3rd row you will work 3sts more than you worked on 1st row, on 4th row you will work 3 sts more than you worked on 2nd row etc.. this video shows how to work short rows for a neckline increasing for the raglan at the same time (but remember to increase just as explained in this pattern). Happy knitting!

30.06.2023 - 07:55

country flag Karin Ö wrote:

Hur gör man med de förkortade varven, ska man sticka tillbaka till mitt bak innan man påbörjar nästa varv eller räknas tex Varv 2 direkt från vändningen i Varv 1? Jag förstår isf inte hur man gör nya omslag för raglan. Tacksam för hjälp hur jag gör!

27.06.2023 - 21:33

DROPS Design answered:

Hej Karin, Varv 1 börjar mit bak, ökar till raglan vid de 2 markörer (4 ökade maskor).Varv 2 börjar direkt efter vändningen, forbi alla 4 markörer, till du har stickat 3 maskor förbi sista markören (8 ökade maskor) :)

29.06.2023 - 14:38

country flag Mette Nielsen wrote:

Ved opdeling til ærmer og forstykke/bagstykke, står der ved den mindste størrelse, at jeg skal sætte 49 masker på en tråd til ærmer. Min maskefordeling af de 248 masker på det tidspunkt er: 35+1+51+71+51+36=248. Er det korrekt? Jeg har alle udtagninger indtastet i et regneark og her kommer jeg frem til samme resultat. Vh. Mette

19.05.2023 - 09:49

DROPS Design answered:

Hej Mette, ja det stemmer, men følg opskriften, så du får lidt flere masker på ryg & forstykke og lidt færre masker på ærmerne :)

23.05.2023 - 10:02