Meet the Captain |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með röndum, tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-38 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð á undan / eftir 1 lykkju í sléttprjóni (lykkja með prjónamerki í). Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá réttu / á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki þegar prjónað er frá röngu. Aukið út fyrir ermar á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki (alltaf er aukið út frá réttu á ermum). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig: Á UNDAN PRJÓNAMFERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Uppslátturinn er prjónaður frá réttu þannig: Á UNDAN PRJÓNAMERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR PRJÓNAMERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. RENDUR: Byrjið við 1. prjónamerki (þannig að litaskiptin í röndum verði ekki sýnileg mitt aftan á peysu) og prjónið rendur þannig: * Prjónið 5 umferðir með litnum natur (ca 2 cm), prjónið 8 umferðir með litnum gráblár (ca 3,5 cm) *, prjónið frá *-*. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur með DROPS Alaska með litnum gráblár yfir stuttan hringprjón 5 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt JAFNFRAMT því sem fjórða hver lykkja er prjónuð saman með fjórðu hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Héðan er nú stykkið mælt. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið, þetta er gert samtímis sem aukið er út um 4 lykkjur í hverri umferð eins og útskýrt er að neðan – prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu: Prjónið 10-12-12-14-14-16 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21-23-25-27-29-31 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. HÁLSMÁL: Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Byrjið mitt að aftan. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta prjónamerki. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll prjónamerkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu prjónamerkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan. Stuttu umferðirnar hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu við hvert prjónamerki = 124-128-132-136-140-144 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ S, M, L og XL: Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki og ermum (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í) í annarri hverri umferð alls 2-8-10-11 sinnum = 140-192-212-224 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13 cm frá kanti í hálsmáli eru prjónaðar rendur – lesið RENDUR í útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni, rendur og útaukningar fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-15-14-16 sinnum á fram- og bakstykki (9-7-7-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 24-27-28-31 sinnum á fram- og bakstykki og 15-19-21-23 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 248-280-296-320 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXL og XXXL: Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í hverri umferð á fram- og bakstykki 2-6 sinnum og í annarri hverri umferð á ermum 1-3 sinnum = 152-180 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13 cm frá kanti í hálsmáli eru prjónaðar rendur – lesið RENDUR í útskýringu að ofan. Síðan er aukið út á fram- og bakstykki og ermum (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í) í annarri hverri umferð alls 10-7 sinnum = 232-236 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, með röndum og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hver skipt sem aukið er út er nú einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-22 sinnum á fram- og bakstykki (9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 34-39 sinnum á fram- og bakstykki og 24-25 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 340-368 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 248-280-296-320-340-368 lykkjur. Prjónið sléttprjón og rendur án útaukningar þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-32 cm Mælt mitt að framan eftir stroffi í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 37-42-43-48-51-58 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 75-83-87-95-103-115 lykkjur (framstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 38-41-44-47-52-57 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-206-226-250 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum þar til stykkið mælist 28-28-28-28-28-27 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með nokkrum umferðum í litnum gráblár fyrir stroff (nú eru eftir ca 5 cm að loknu máli) og afgangur af stykki er prjónað í litnum gráblár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-22-22-26-26-34 lykkjur jafnt yfir = 180-200-212-232-252-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 49-57-61-65-67-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-63-69-73-77-79 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það er notað síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Haldið áfram hringinn með sléttprjóni og röndum. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 8-4½-3-2½-2-2 cm millibili alls 5-8-10-11-12-12 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-36-35-33-31-29 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með nokkrum umferðum í litnum gráblár fyrir stroff (nú eru eftir ca 6 cm að loknu máli) og afgangur af stykki er prjónaður í litnum gráblár. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-41-39-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (36)
Eelke Keessen wrote:
Voor de kleinste maat S: Als de mouw 4 cm meet 2 st minderen. Daarna elke 8 cm in totaal 5 x minderen. Brei verder tot de mouw 38 cm meet. Bij mij is de mouw dan 4 cm + 8x5 = 44 cm. Klopt dit wel? Misschien elke 7 cm minderen?
01.05.2023 - 00:18Tekerringa69 wrote:
Hei Hilde Pronstad. Jeg strikker denne genseren i Tykk Line fra Sandnes garn. Synes oppskriften er veldig innviklet i forhold til Sandnesgarn sine oppskrifter. Har kommet frem til at det må være pga oppskriften blir oversatt til flere forskjellige språk. Er du litt dreven på å strikke,så kan en lett forandre litt på oppskrifta. .
11.04.2023 - 17:58Ricarda wrote:
Diese Frage schließt an Anastasias Frage an der Stelle der Fortsetzung der Arbeit nach der doppelten Halsblende an: Werden die Maschen, in die die Markierer eingesetzt werden, abgestrickt oder nur abgehoben? Sie werden in der Anleitung nicht mitgezählt, wenn ich das recht verstehe? Vielen Dank!
11.04.2023 - 14:32DROPS Design answered:
Liebe Ricarda, die Maschen mit den Markierungen werden jeweils glatt rechts (= wie alle anderen Maschen) gestrickt, also bei der letzte Reihe vor den Halsausschnitt stricken Sie alle Maschen rechts, inkl. die mit den Markierungen. Diese Maschen gehören zu der gesamten Maschenanzahl, die kommen nicht extra. Viel Spaß beim stricken!
11.04.2023 - 16:54Anastasia wrote:
Hi, I really don’t understand the calculation just before the neckline when we set markers. Especially where you are saying that we need to knit last 11 stitches and then increase, but there are more stitches are left. So there are 3 more stitches are left. That makes back bigger than front and also mid stitch not in the middle anymore. So then on the left side from the mid back marker we have 13 stitches before marker 1 and on the right side we have 15 stitches after marker 4, is it correct?
01.04.2023 - 20:57DROPS Design answered:
Dear Anastasia, for example, for the S size, you start with 88 stitches and work as follows: knit 10, increase 1 stitch, insert marker in next stitch, knit 21, insert marker in next stitch, knit 21 and increase 2 stitches evenly, insert marker in next stitch, knit 21 , insert marker in next stitch, knit 11 stitches and increase 1 stitch. So, you have worked 10+21+21+21+11 = 84 stitches + 4 stitches with markers = 88 stitches + 4 increases = 92 stitches. The front and back pieces are equal: on the front you have 21 stitches +2 increases (=23), while on the back piece you have 10+1 on one side and 11+1 on another side (=11+12= 23). Happy knitting!
02.04.2023 - 20:44Marine Mazelier wrote:
Bonjour, je suis bloquée au niveau de l'empiècement pour la taille S. J'ai réussi à avoir mes 140 mailles mais je n'arrive pas à comprendre les explications qui suivent. Je n'arrive pas à obtenir un total de 248 mailles à la fin de mes augmentations
25.03.2023 - 20:42DROPS Design answered:
Bonjour Mme Mazelier, vous devez maintenant augmenter à un rythme différent pour le dos/le devant (toujours tous les 2 tours comme avant) mais, vous allez maintenant augmenter tous les 4 tours pour les manches, autrement dit, vous augmentez alternativement 4 m (dos/devant seulement) et 8 m (dos, devant et manches - comme avant). Vous augmentez ainsi 18 x 4 m + 9 x 4 m = 140+ 72 + 36 = 248 mailles. Bon tricot!
27.03.2023 - 09:15Hilde Pronstad wrote:
Kan genseren strikkes i bomullsgarn? I så fall hvilket? Evt med dobbel tråd?
15.03.2023 - 16:21DROPS Design answered:
Hei Hilde, Drops garn er samlet i grupper, og innenfor hver gruppe kan man bytte til et annet garn og bruke samme maskeantall og mål. Drops Alaska er i Garngruppe C, og der finnes det flere bomullsgarn du kunne bytte til. Eller du kan bruke 2 tråder bomullsgarn fra Gruppe A. Velg Garn og Pinner på toppen av siden og deretter garngrupper. God fornøyelse!
16.03.2023 - 15:12