Bunny Ears Slippers |
|||||||
|
|
||||||
Heklaðar tátiljur / kanínutátiljur fyrir börn og dömur í 2 þráðum DROPS Fabel og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Stykkið er heklað frá hæl að tá, eyru eru hekluð og nef og augu saumuð út. Stærð 24 - 43. Þema: Páskar.
DROPS 238-39 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umferðir byrja með 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað fyrstu fastalykkju, heldur kemur sem viðbót. ÚRTAKA-1 (á við um tá): Það er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju fram þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki í: * Stingið inn heklunálinni í næstu lykkju, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, það eru 4 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni. Það hefur fækkað um 2 fastalykkjur. Endurtakið við hitt prjónamerkið. Það hefur fækkað um 4 lykkjur í umferð. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu mitt í úrtöku þannig að auðvelt er að sjá hvar fækka á lykkjum í næsta skipti. ÚTAUKNING: Aukið út með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu lykkju. ÚRTAKA-2: * Stingið heklunálinni inn í næstu lykkju, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna *, heklið frá *-* einu sinni til viðbótar, það eru 3 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar. Það hefur fækkað um 1 fastalykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tátiljurnar eru heklaðar fram og til baka frá hæl, síðan eru lykkjur fitjaðar upp mitt ofan á fæti og táin er hekluð í hring að loknu máli. Hællinn er saumaður saman mitt að aftan og táin saumuð saman. Lykkjur eru heklaðar upp fyrir eyru mitt á fæti, að lokum eru saumuð út augu og nef. HÆLL: Notið heklunál 3,5 og 2 þræði DROPS Fabel og 1 þráð DROPS Kid-Silk (3 þræðir sem haldið er saman). Heklið 17-19-21-23 (23-25-27) loftlykkjur. Lesið LOFTLYKKJA og HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina. Það eru 16-18-20-22 (22-24-26) fastalykkjur í umferð. Heklið 1 fastalykkju í hverja af fyrstu 7-8-10-11 (11-12-13) lykkjum, heklið 2 fastalykkjur í hvora af næstu 2 fastalykkjum (2 fastalykkjur fleiri), heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju út umferðina = 18-20-22-24 (24-26-28) fastalykkjur. Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til stykkið mælist 9-10-10½-12 (13-13-13) cm – nú eru eftir ca 6-7-7½-8 (9-11-13) cm að loka máli. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í lok síðustu umferðar eru heklaðar 8-8-8-8 (10-12-14) loftlykkjur (mitt ofan á fæti), ekki snúa stykkinu, brjótið stykkið þannig að hægt sé að hekla beint áfram í fyrstu fastalykkju frá hinni hliðinni á stykkinu. FÓTUR: Nú á að hekla stykkið í hring án þess að enda umferðina, þ.e.a.s. á eftir síðustu lykkju er heklað beint áfram í fyrstu lykkju. Í fyrstu umferð er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 1 fastalykkja í hverja loftlykkju = 26-28-30-32 (34-38-42) fastalykkjur. Síðan er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju umferðina hringinn. Heklið þar til stykkið mælist ca 3-4-4½-5 (6-7½-9½) cm frá þar sem stykkið var sett saman, það eru ca 3-3-3-3 (3-3½-3½) cm eftir að loka máli, mátið e.t.v. tátiljuna og heklið að óskaðri lengd fyrir tá. TÁ: Leggið stykkið flatt þannig að það eru 8-8-8-8 (10-12-14) loftlykkjur ofan á fæti sem liggja mitt í stykki, setjið 1 prjónamerki í lykkju í hvorri hlið á tátiljunni, þannig að það séu jafnmargar lykkjur ofan á fæti og undir fæti = 12-13-14-15 (16-18-20) lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í. Nú eru heklaðar fastalykkjur eins og áður jafnframt því sem lykkjum er fækkað í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA og fækkið lykkjum við hvort prjónamerki í annarri hverri umferð alls 2-2-2-2 (2-2-2) sinnum, síðan í hverri umferð alls 2-2-2-2 (2-3-3) sinnum = 10-12-14-16 (18-18-22) fastalykkjur eftir. Tátiljan mælist ca 15-17-18-20 (22-24-26) cm frá hæl að tá. FRÁGANGUR: Brjótið stykkið saman tvöfalt þannig að prjónamerkin eru hvoru megin við tá. Saumið tánna saman, þ.e.a.s. lykkjur frá efri hlið saman með lykkjum frá neðri hlið – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn sjáist sem minnst. Brjótið tátiljuna saman tvöfalda mitt að aftan á hæl og saumið saman í ystu lykkjubogana. EYRU: Það eru hekluð 2 eyru í 8-8-8-8 (10-12-14) loftlykkjur sem heklaðar voru mitt á tátilju. FYRRA EYRA: Byrjið frá réttu og heklið þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í sömu loftlykkju, heklið 2-2-2-2 (2-1-1) fastalykkjur í næstu loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 1-1-1-1 (2-3-4) loftlykkjur og heklið 1 loftlykkju (í hlið á eyra), það eru eftir 5-5-5-5 (6-7-8) loftlykkjur í umferð, það á ekki að hekla núna í þessar. Snúið stykkinu þannig að það sé hægt að hekla í 4-4-4-4 (5-5-6) lykkjur sem var verið að hekla. Heklið 1 fastalykkju í aftari lykkjubogann í hverja af 4-4-4-4 (5-5-6) fastalykkjur og heklið 1 loftlykkju (í hlið á eyra). Nú er heklað í hring í 8-8-8-8 (10-10-12) fastalykkjur og 2 loftlykkjur sem var verið að hekla í núna. UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í fremri lykkjubogann í hverja af fyrstu 4-4-4-4 (5-5-6) fastalykkjum, heklið 1 fastalykkju um loftlykkju í hlið á eyra), heklið 1 fastalykkju í gegnum báða lykkjubogana í hverja af næstu 4-4-4-4 (5-5-6) fastalykkjum, heklið 1 fastalykkju í hlið á eyra. Það eru 10-10-10-10 (12-12-14) fastalykkjur í umferð. Nú er heklað áfram í gegnum báða lykkjubogana! UMEFRÐ 2-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 6: Heklið fastalykkjur og aukið út um 3 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 13-13-13-13 (15-15-17) fastalykkjur. UMFERÐ 7-9: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 10: Heklið fastalykkjur og fækkið um 5 fastalykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA-2 = 8-8-8-8 (10-10-12) fastalykkjur. UMFERÐ 11-12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 13: Heklið fastalykkjur og fækkið um 2 fastalykkjur jafnt yfir = 6-6-6-6 (8-8-10) fastalykkjur. UMFERÐ 14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju. UMFERÐ 15: Heklið 2 og 2 fastalykkjur saman umferðina hringinn = 3-3-3-3 (4-4-5) fastalykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. SEINNA EYRA: Það eiga að vera 2 loftlykkjur á milli fyrra eyra og seinna eyra, byrjið frá réttu, hoppið yfir 2 loftlykkjur og byrjið á að hekla hitt eyrað í næstu loftlykkju. Heklið annað eyra á sama hátt. ÚTSAUMUR: Notið afgang af litnum grár, saumuð 1 lítið spor keðjusaum fyrir hvort auga – sjá mynsturteikningu B og mynd. Notið afgang af litnum grár, saumið út 2 löng spor flatsaum fyrir veiðihár – sjá mynsturteikningu A og mynd, sporið á að vera ca 2 cm langt og krossa hvort annað fyrir miðju. Saumið 1 lítið spor flatsaum þvert yfir þar sem veiðihárin mynduðu kross. Notið afgang af litnum bleikur, saumið út 4 lítil spor flatsaum fyrir nef – sjá mynsturteikningu B og mynd, sporið á að byrja í sömu lykkju – staðsetjið sporið beint yfir litla sporið mitt í veiðihárum. Heklið aðra tátilju á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Susana wrote:
On the first step for the heel do we also need to do an extra chain stitch as indicated on the crochet information?
20.03.2023 - 16:08DROPS Design answered:
Dear Susana, yes you should start every row with double crochet (UK-English) with a chain. Happy crocheting!
20.03.2023 - 16:27