Petite Heidi |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónaður kjóll fyrir börn með norrænu mynstri og stuttum umferðum, bolero og sokkar, prjónað úr DROPS Fabel og Alpaca.
DROPS Baby 16-25 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR (á við um kjól): Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – mynsturteikning sýnir 1 mynstureiningu af mynstri, allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Í 3 miðju umferðum í M.2 sem prjónað er með Fabel, höfum við notað ljós rauðu eininguna í dokkunni. ÚRTAKA (á við um kjól): Öll úrtakan er gerð frá réttu! Lykkjum er fækkað fyrir handveg innan við 3 lykkjur garðaprjón. Fækkið lykkjum á undan 3 lykkjum þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 3 lykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. HÆLÚRTAKA (á við um sokka): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA-1 (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan stroffi: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir stroffi: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ÚRTAKA-2 (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kjólinn er fyrst prjónaður frá hlið að hlið, síðan eru teknar upp lykkjur í neðri kanti og prjónaður er faldur. Eftir það eru teknar upp lykkjur í efri kant og berustykkið er prjónað. KJÓLL: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-52-72 (82-94) lykkjur með Fabel á hringprjón 3. Prjónið slétt fram og til baka – JAFNFRAMT (til að kjólinn verði víðari í neðri kant) eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR þannig: Prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur, * Prjónið 17-26-36 (41-47) lykkjur, snúið, herðið á þræði, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða og prjónið til baka, prjónið 4 umferðir yfir allar lykkjur, prjónið 28-43-60 (68-78) lykkjur, snúið, herðið á þræði, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða og prjónið til baka, prjónið 2 umferðir yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-*. (Þ.e.a.s. 1 mynstureining = 10 umferðir í neðstu lykkju og 6 umferðir í efstu lykkju). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 44-48-54 (60-66) cm efst (það mælist þá ca 73-80-90 (100-110) cm neðst), fellið LAUST af. Saumið kjólinn saman kant í kant, mitt að aftan. FALDUR Í NEÐRI KANTI: Prjónið upp með Fabel á hringprjón 3: 1 lykkja í annarri hverri umferð neðst á pilsi = ca 175-192-216 (240-264) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir í rauður Alpaca og prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Skiptið yfir í natur Alpaca og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn aukinn út til 180-198-234 (252-270) lykkjur. Prjónið síðan M.1 (= 10-11-13 (14-15) mynstureiningar hringinn). Eftir M.1 er skipt yfir í rauður Alpaca – prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í Fabel, prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið síðan LAUST af. BERUSTYKKI: Prjónið upp með rauður Alpaca á hringprjón 3. 1 lykkja í annarri hverri umferð efst á pilsi = ca 106-116-130 (144-158) lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir í natur – prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn aukinn út til 112-120-136 (152-168) lykkjur. Prjónið nú M.2 (= 14-15-17 (19-21) mynstureiningar hringinn). JAFNFRAMT í síðustu umferð í M.2 er fækkað um 6-6-6 (8-10) lykkjur jafnt yfir = 106-114-130 (144-158) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= 53-57-65 (72-79) lykkjur bæði á fram- og bakstykki). Skiptið yfir í rauður Alpaca, prjónið 2 umferðir garðaprjón, haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-34-42 (47-52) cm prjónið 4 umferðir með garðaprjón yfir 12 lykkjur í hvorri hlið (= 6 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki), aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Í næstu umferð eru felldar af miðju 6 lykkjurnar í hvorri hlið og fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 47-51-59 (66-73) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4-4-4 (5-5) sinnum = 39-43-51 (56-63) lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-40-48 (53-58) cm eru miðju 9-11-13 (16-17) lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Fækkið nú lykkjum í byrjun á hverri umferð frá hálsi þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 4 sinnum = 9-10-13 (14-17) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 38-45-54 (60-66) cm. BAKSTYKKI: = 47-51-59 (66-73) lykkjur. Fækkið lykkjum fyrir handvegi eins og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 36-43-52 (58-64) cm. Fellið nú af miðju 17-19-21 (24-25) lykkjurnar af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í byrjun á hverri umferð frá hálsi 2 sinnum = 9-10-13 (14-17) lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 38-45-54 (60-66) cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp á hringprjón 3 með Fabel 65-70-75 (80-85) lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan). Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið og fellið síðan af með sléttum lykkjum. ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað með sléttum lykkjum fram og til baka í öllum umferðum (= garðaprjón). BOLERO: Fitjið upp 34-38-40 (44-48) lykkjur á prjón 3 með Fabel. Prjónið 4 umferðir slétt. Klippið frá. Skiptið yfir í rauður Alpaca, fitjið upp 14-17-21 (24-27) lykkjur í byrjun á prjóni, prjónið síðan 34-38-40 (44-48) lykkjur sem eftir eru og fitjið upp 14-17-21 (24-27) lykkjur í lok umferðar = 62-72-82 (92-102) lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT (til að bolero jakkinn verði víðari í ystri köntunum) eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR þannig: * Prjónið 5 umferðir yfir allar lykkjur, prjónið 10-12-15 (18-20) lykkjur, snúið, herðið á þræði, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða og prjónið til baka, prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur, prjónið 10-12-15 (18-20) lykkjur, snúið, herðið á þræði, takið fyrstu lykkju óprjónaða, prjónið til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 22-25-28 (31-35) cm fyrir miðju. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Fellið af fyrstu 14-17-21 (24-27) lykkjur, prjónið út umferð og fellið af fyrstu 14-17-21 (24-27) lykkjur í hinni hliðinni. Skiptið yfir í Fabel og prjónið 4 umferðir slétt yfir þær 34-38-40 (44-48) lykkjur sem eftir eru. Fellið af. FRÁGANGUR: Brjótið uppá jakkann tvöfalt í miðju – sjá teikningu 1 og saumið hliðarsauma í ystu lykkjubogana. Heklið í kringum allt opið með rauður Alpaca og heklunál 3 þannig: * 1 fastalykkja, 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-48 (52-56) lykkjur á sokkaprjón nr 2,5 með Fabel. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðiðr í 7-8-9 (10-11) cm. Haldið eftir fyrstu 18-22-22 (22-26) lykkjur á sokkaprjóni fyrir hæl (setjið aðrar 26-26-26 (30-30) lykkjur á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Takið síðan upp 8-9-10 (11-12) lykkjur hvoru megin við hæl og setjið til baka lykkjur af þræði (= ofan á fæti) á prjóninn = 50-54-56 (62-66) lykkjur. Haldið áfram með stroff yfir 26-26-26 (30-30) lykkjur ofan á fæti á sokknum og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stoff lykkjur – SJÁ ÚRTAKA-1 í annarri hverri umferð alls 5-7-6 (7-9) sinnum = 40-40-44 (48-48) lykkjur. Prjónið slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 3-3-3 (4-4) cm. Setjið prjónamerki í hvora hlið á sokknum, þ.e.a.s. að það verða 20-20-22 (24-24) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – SJÁ ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 3 sinnum og síðan í hverri umferð 5-5-6 (7-7) sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Sokkurinn mælist nú ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (85)
Inger wrote:
Kjolen er for voksenagtig.
09.11.2008 - 21:36Kari wrote:
Denne skal jeg strikke til barnebarnet mitt til 17. mai. Aldeles nydelig
06.11.2008 - 20:26Åsa wrote:
Vilken härlig dress. synd att man inte har en liten dotter
06.11.2008 - 16:11Debbie wrote:
As others have commented, this would be better for an older child. A toddler might trip on this. That said, it is still absolutely beautiful.
06.11.2008 - 04:37Viola wrote:
Beautiful! so very unusual. we don't see clothing articles like this in Canada very often.
05.11.2008 - 15:58Kusum Budhwar wrote:
Very original and eye catching. Something for a special occasion
05.11.2008 - 12:54Helen Feltrin wrote:
Absolutely beatiful.I've seen no patterns like this in Australia.
05.11.2008 - 06:07Karen Siegmann wrote:
I love it. Please include larger children's sizes when publishing this pattern
04.11.2008 - 23:36Susanne wrote:
Det er dog en rædsel
04.11.2008 - 19:38HERVE Danielle wrote:
Il faut que je progresse pour réaliser cette jolie robe. Original
04.11.2008 - 19:11