Easter Finest |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Sett með peysu fyrir börn með hringlaga berustykki og blómum, húfu og sokkum úr DROPS Alpaca.
DROPS Baby 17-14 |
||||||||||||||||
MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1, M.2 og M.3 – Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. M.2 er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um peysu): Fækkið um 1 lykkju til skiptis vinstra og hægra megin við öll prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Þ.e.a.s. í fyrsta skipti er þetta gert vinstra megin við öll prjónamerki og í næsta skipti er þetta gert hægra megin við öll prjónamerki o.s.frv. HEKLAÐUR PICOT KANTUR: Heklið með fjólublár og heklunál 2,5. Heklað er í bleika uppábrotið þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu loftlykkju (= 1 picot), hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*. ---------------------------------------------------------- PEYSA: FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Fitjið upp 132-148-164 (176-192) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með bleikur. Prjónið 1 umferð slétt (umferð 1 = rétta). Skiptið yfir í natur, prjónið 7 umferðir í sléttprjóni (= umferð 1 = ranga), skiptið yfir í bleikur, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 7 umferðir í sléttprjóni með natur, klippið frá (í næsta skipti þegar prjónað er með natur á að byrja í hinni hliðinni). Bleiki þráðurinn hangir nú á hægri hlið, færið lykkjurnar til baka til hægri á prjóninum og prjónið 2 umferðir slétt með bleikur. Haldið áfram með M.1 og natur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-27) cm – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu af M.1 – prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 29-33-37 (40-44) lykkjur slétt (= hægra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 58-66-74 (80-88) lykkjur slétt (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 29-33-37 (40-44) lykkjur slétt (= vinstra framstykki). Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-38-40 (42-44) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með bleikur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan þannig: 7 umferðir slétt með natur, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið með bleikur – HÉÐAN ER NÚ MÆLT – 7 umferðir slétt með natur, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið með bleikur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan M.1 með natur – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu í 6.-5.-5. (6.-6.) hverri umferð alls 6-7-9 (10-12) sinnum = 48-52-58 (62-68) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 15-16-18 (22-26) cm – stillið af eftir heilli mynstureiningu af M.1 – prjónið 1 umferð slétt. Í lok þessara umferðar eru felldar af 8 lykkjur mitt undir ermi = 40-44-50 (54-60) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 196-220-248 (268-296) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með natur – JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-7 (3-7) lykkjur jafnt yfir = 193-217-241 (265-289) lykkjur, prjónið síðan M.2 með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið – JAFNFRAMT á undan síðustu umferð á M.2 eru sett 15 prjónamerki í stykkið þannig (frá réttu): Fyrsta eftir 13-18-16 (21-19) lykkjur, síðan á að vera 12-13-15 (16-18) lykkjur á milli hverra prjónamerkja, þá koma til með að vera 12-17-15 (20-18) lykkjur eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umferð (= síðasta umferð af M.2) er fækkað um 1 lykkju hægra megin við öll prjónamerkin með því að prjóna saman 2 lykkjur slétt. Prjónið síðan M.3 – JAFNFRAMT er haldið áfram að fækka lykkjum í 4. hverri umferð – sjá ÚRTAKA 6-7-8 (9-10) sinnum til viðbótar = 88-97-106 (115-124) lykkjur. Prjónið M.3 áfram þar til stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm upp að öxl – stillið af eftir 3. umferð í mynstureiningu. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 54-60-66 (72-78) lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Brjótið uppá kantinn neðst á peysunni og ermar tvöfalt að röngu og saumið niður með bleikur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónað er fram og til baka á hringprjón. Prjónið upp ca 65-70-80 (90-100) lykkjur meðfram vinstri kanti að framan innan við 1 kantlykkju á hringprjón 2,5 með natur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 6 umferðir sléttprjón með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir í bleikur, prjónið 2 umferðir slétt (= uppábrot), skiptið yfir í natur, prjónið 7 umferðir í sléttprjóni með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið (= innanverðu á kanti), fellið af með sléttu frá röngu. Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið niður með natur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri kantur en eftir 2 umferðir í sléttprjóni með natur er fellt af fyrir 5-5-6 (6-6) hnappagötum jafnt yfir – efsta hnappagatið á að vera 2 lykkjum ofan frá og neðsta ca 3 cm frá neðri kanti. 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar í næstu umferð. Gerið einnig hnappagöt á sama stað á kanti eftir 3 umferðir slétt. KANTUR Í HÁLSI: Prjónið upp með natur: 5 lykkjur yfir hægri kant að framan, prjónið síðan inn lykkjur frá þræði og prjónið upp 5 lykkjur yfir vinstri kant að framan = ca 64-70-76 (82-88) lykkjur. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá röngu og 4 umferðir í sléttprjóni með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið, skiptið yfir í bleikur, prjónið 2 umferðir slétt (= uppábrot), skiptið yfir í natur og prjónið 5 umferðir í sléttprjóni með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið áður en fellt er af með sléttu frá röngu. Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið niður með natur. Saumið tölur í. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið PICOT KANTUR neðst á fram- og bakstykki – sjá útskýringu að ofan – í kringum ermar og í kringum hálsmál. ---------------------------------------------------------- SOKKAR: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið laust upp 40-40-40 (48-48) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með natur. Prjónið 4 umferðir sléttprjón (= innanverðu á kanti), skiptið yfir í bleikur, prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið (= uppábrot), skiptið til baka yfir í natur og prjónið 4 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan M.2 – byrjið efst til hægri í mynsturteikningu og prjónið niður á við (þannig að blómið vísi upp á sokknum). Eftir M.2 er sokkurinn prjónaður til loka með natur, prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 40-44-44 (48-52) lykkjur, prjónið síðan 2 cm stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*. Prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42-46) lykkjur. Í næstu umferð eru fyrstu 12-14-14 (15-17) lykkjur settar á þráð, haldið eftir næstu 10-10-10 (12-12) lykkjum á prjóni og setjið síðustu 12-14-14 (15-17) lykkjur á þráð. Eftir það er M.3 prjónað fram og til baka yfir lykkjur á prjóni í 3½-4-4½ (6-7) cm (= efra stykki). Takið upp 9-10-12 (15-19) lykkjur hvoru megin við efra stykkið og setjið til baka lykkjur af þráðum á prjóninn = 52-58-62 (72-84) lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka frá miðju að aftan – JAFNFRAMT eftir 1½-2½-3 (3-4) cm er lykkjum fækkað þannig: Prjónið saman 2 lykkjur slétt í byrjun og lok umferðar og hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar, endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umferð þar til kanturinn mælist 3-4-5 (5-6) cm. Fellið af. Prjónið annan sokk alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið saum undir fæti og upp að gataumferð mitt að aftan – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Brjótið uppá kantinn efst á sokknum að röngu og saumið niður með natur. Heklið PICOT KANTUR efst í hring á sokk – sjá útskýringu að ofan! SNÚRA: Heklið með heklunál 2,5 með 2 þráðum bleikur loftlykkju snúru ca 50 cm. Þræðið snúruna í gataumferðina á sokknum. ---------------------------------------------------------- HÚFA: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið laust upp 81-89-97 (105-105) lykkjur á hringprjón 2,5 með natur. Prjónið 6 umferðir sléttprjón (umferð 1 = rétta), skiptið yfir í bleikur og prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið til baka yfir í natur og prjónið 6 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan M.2 með 1 kantlykkju í hvorri hlið – byrjið efst til hægri í mynsturteikningu og prjónið niður á við – JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju mitt í stykki með því að prjóna saman 2 lykkjur slétt = 80-88-96 (104-104) lykkjur. Haldið áfram með M.1 – byrjið í 5. umferð í mynsturteikningu þannig að það verða einungis 2 umferðir í sléttprjóni með natur á undan 1 umferð brugðið. Þegar stykkið mælist 12-13-14 (15-16) cm fellið af 4-5-6 (4-4) lykkjur í hvorri hlið = 72-78-84 (96-96) lykkjur. Setjið síðan 6 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta eftir 1 lykkju, næstu 5 með 12-13-14 (16-16) lykkju millibili, þá eru 11-12-13 (15-15) lykkjur eftir síðustu lykkju. Haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – jafnframt í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki, endurtakið úrtöku í hverri umferð frá réttu þar til 12 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið síðan saman lykkjur 2 og 2 og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Herðið að og notið þráðinn til að sauma húfuna saman við miðju að aftan – saumið í ystu lykkjubogana, það á einnig að sauma í 4-5-6 (4-4) lykkjur sem voru fyrst felldar af. FRÁGANGUR: Brjótið uppá kantinn fram að röngu og saumið niður með natur. FALDUR FYRIR SNÚRU: Prjónið upp með natur á hringprjón 2,5 ca 66 til 80 lykkjur innan við 1 kantlykkju neðst á húfu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir í bleikur, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot), prjónið síðan 5 umferðir í sléttprjóni með natur, fellið af með sléttu frá röngu. Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið niður. Heklið PICOT KANTUR í kringum húfu að framan – sjá útskýringu að ofan. SNÚRA: Heklið með heklunál 2,5 með 2 þráðum bleikur loftlykkju snúru ca 70 cm. Þræðið snúruna í faldinn fyrir snúru neðst á húfu |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (56)
Heather wrote:
Adorable,I love this too.
05.11.2008 - 19:20Kerstin Andersson wrote:
Flickig och fin
24.10.2008 - 14:53Wiktoria Merete wrote:
Dette settet har det sarte babypreget som jeg foretrekker. Nydelig med de små blomstene og tilhørende lue. Lillejenta får frem nostalgien hos bestemor. Lunt og godt, vakkert og praktisk.
24.10.2008 - 10:24Jelena wrote:
Denne er meget søt og tidløs!!
22.10.2008 - 22:35Ingrid wrote:
Eine wunderschöne klassische Ausfahrgarnitur! Da macht das Stricken Spaß!!
22.10.2008 - 14:41Helene Lundqvist wrote:
Gud så söt! man vill ju bara sätt i gång att sticka på studs!
20.10.2008 - 20:55Marianne wrote:
Super sød
20.10.2008 - 17:03Emma wrote:
Fint med blommor och jag älskar när bebisarna är söta och det är den här.
20.10.2008 - 17:00Krikri wrote:
Super mignon mais que dire de toute la collection tout est beau on a envie de tout faire
19.10.2008 - 20:39Marianne wrote:
Söt modell, fint med blommorna, ser välarbetad ut
17.10.2008 - 18:07