Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Miss Mossy |
|
|
|
Sett með prjónaðri peysu og sokkum fyrir börn í perluprjóni úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 18-10 |
|
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum á hægri lista að framan. 1 HNAPPAGAT = Prjónið saman aðra og þriðju l frá miðju að framan slétt og sláið síðan uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar kanturinn að framan mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 11,16 og 21 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 13, 18 og 23 cm. STÆRÐ 12/18 MÅN: 16, 21 og 26 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 15, 21 og 27 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 18, 24 og 30 cm. ---------------------------------------------------------- PEYSA: Bæði framstykkin eru prjónuð fyrst, jafnframt er aukið út fyrir ermar, síðan eru framstykkin sett á sama hringprjón, prjónað er niður yfir bakstykki, ermar eru felldar af og prjónað er áfram yfir bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónað er fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 36-39-42 (45-48) l (meðtalin 1 kantlykkja og 12 kantlykkjur að framan) með Merino Extra Fine á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan! Næsta umf er prjónuð frá miðju að framan þannig: Prjónið 12 kantlykkjur að framan með PERLUPRJÓN – sjá skýringu að ofan – 23-26-29 (32-35) l sléttprjón og 1 kantlykkja með garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er felld af 1 l á hlið, endurtakið úrtöku með 2-2½-3 (3-3½) cm millibili, alls 5 sinnum = 31-34-37 (40-43) l. Munið eftir HNAPPAGATI á hægri lista að framan – sjá skýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fitjið upp l fyrir ermi. Fitjið upp í lok hverrar umf frá hlið: 4 l 1-1-2 (1-2) sinnum, 6 l 1-1-1 (1-1) sinni, 8 l 1-1-1 (2-2) sinnum og 17-19-19 (23-26) l 1 sinni = 66-71-78 (89-99) l á prjóni – haldið áfram með sléttprjón og 12 l perluprjón á kanti að framan og 10 l perluprjón í neðst á ermi. Þegar stykkið mælist 22-24-27 (28-31) cm setjið síðustu 9-10-11 (12-12) l við miðju að framan á band fyrir hálsmáli. Fellið nú af í byrjun hverrar umf frá hálsi: 2 l 1 sinni og 1 l 3 sinnum= 52-56-62 (72-82) l á öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm setjið prjónamerki (= miðja á öxl). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjóni 1 cm til viðbótar, geymið stykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og hægra framstykki, nema spegilmynd – ekki er fellt af fyrir hnappagötum á hægri kanti að framan. BAKSTYKKI: Prjónið inn l frá vinstra framstykki á prjóninn, fitjið upp 16-18-20 (22-22) nýjar l (= aftan við hnakka) og prjónið inn l frá hægra framstykki á prjóninn = 120-130-144 (166-186) l. Prjónið síðan sléttprjón með 10 l perluprjóni á hvorri hlið (= neðst á ermum). Þegar stykkið mælist 7½-8½-8½ (9½-10) cm fellið af erma-l á hvorri hlið þannig: Fellið af í byrjun hverrar umf: 17-19-19 (23-26) l 1 sinni, 8 l 1-1-1 (2-2) sinnum, 6 l 1-1-1 (1-1) sinni og 4 l 1-1-2 (1-2) sinnum = 50-56-62 (68-74) l eftir á prjóni. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 13-13-14 (16-17) cm aukið út um 1 l á hvorri hlið með 2-2½-3 (3-3½) cm millibili, alls 5 sinnum = 60-66-72 (78-84) l. Þegar stykkið mælist 25-27-30 (32-35) cm eru prjónaðar 4 umf garðaprjón yfir allar l, fellið síðan af. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 46 til 66 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af bandi að framan) á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 3 umf slétt fram og til baka, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið erma- og hliðarsauma í eitt, innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í innst á vinstra kant að framan þannig að kantarnir komi aðeins á ská. Brjótið upp ermar eftir þörfum. ----------------------------------------------------------- SOKKUR: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-44-48-(48-52) l á sokkaprjóna nr 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf sléttprjón, haldið áfram með stroff = 2 l sl /2 l br í 6-7-7 (8-8) cm. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6 l jafnt yfir umf = 34-38-42 (42-46) l. Haldið eftir fyrstu 10-10-12 (12-14) l á prjóni (=efra stykki), þær 24-28-30 (30-32) l sem eftir eru, eru settar á þráð. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá skýringu að ofan – í 3-3½-4 (5-6) cm yfir l á efra stykki. Prjónið nú upp 7-8-9 (12-14) l hvoru megin við efra stykkið og l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 48-54-60 (66-74) l. Prjónið nú perluprjón hringinn yfir allar l í 1½-2-2½ (3-3½) cm, prjónið nú 1 umf br. Fellið af allar l nema 10-10-12 (12-14) l fyrir miðju að framan. Prjónið 9-10-11 (13-14) cm perluprjón fyrir sóla yfir þessar l. Fellið af og saumið sólann við sokkinn, saumið kant í kant svo að ekki verði of þykkur saumur. Prjónið annan sokk alveg eins. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (89)
Mary wrote:
Why dont you use a print friendly button to your pattern pages so we can save the pattern till later rather than just a print option would be so much easier for users and everyone is doing it nowadays. Would be ideal and cant take to long to add this option. Regards Mary
27.03.2016 - 19:04DROPS Design answered:
Dear Mary, You always can save them printing them as .PDF - so if you can print as .PDF from your phone, a file will be created, instead of a print, that you can store. Happy knitting!
29.03.2016 - 09:58Katariin Raska wrote:
Tere. Olen oma kudumiga parema esiosa lõpus. Koon kampunit esimest korda ning võib-olla et seetõttu ei saagi aru, mida antud mustris nimetatakse SM- ks (õla keskkosa). Ning kuidas seda paigaldama peab. Ette tänades.
30.10.2015 - 13:41DROPS Design answered:
Tere Katariin! SM on lühend silmusemärkijale, millega märgitakse mingit asukohta, antud juhul õla keskkohta. Silmusemärkijana võib kasutada ka lihtsalt teist värvi lõngajuppi, kirjaklambrit jne. Head kudumist!
03.11.2015 - 12:15Mary Ann wrote:
Do I bind off the stitches of the front band (where the botton holes are on the right front) before I slip stitches onto holder? So then I would actually start slipping off starting at the 12th stitch form the edge. right???
31.05.2015 - 02:03DROPS Design answered:
Dear Mary Ann, you first put the first 12 sts towards neck on a st holder, then cast off for neck every other row (every row starting from neck) - afterwards you move sts from st holder back on needle and pick up sts around neck to wark neckline. Happy knitting!
01.06.2015 - 09:46Mary Ann wrote:
Dear Hannah, for the right front piece, you will beg from RS, put the first 9-12 sts from RS on a st holder, then bind off at the beg from every row from RS 2 sts 1 time and 1 st 3 times. For the left front piece, you will bind off for neckline at the beg of every row from WS = always at the beg of row starting from neckline towards the side. Happy knitting!
31.05.2015 - 01:57Mary Ann wrote:
Right front neck: when you say slip the first stitches to a stitch holder do you mean the ones from the front band? if not do I bind off the 12 band stitches then put the next stitches on the holder? and then start the decreases for neck. A little confused, Mary Ann
30.05.2015 - 22:01DROPS Design answered:
Dear Mary Ann, you put aside for neck the first 12 sts towards mid front, depending on your size, you will either work some more rows over front band sts (1st, 2nd, 3rd size) or put all front band sts on a st holder (2 larger sizes). Cast off then at the beg of every row starting from mid front: 2 sts 1 time and 1 st 3 times. Happy knitting!
01.06.2015 - 09:41Susana wrote:
Nas partes da frente quando diz "A 5 cm de altura total, diminuir 1 m/p de cada lado e repetir estas diminuições a cada 2-2,5-3 (3-3,5) cm, num total de 5 vezes = 31-34-37 (40-43) ms/pts." vai dar um total de 10 malhas diminuidas mas o total de malhas apresentado após as diminuições não corresponde, pois dá apenas 5 diminuições
18.10.2014 - 12:57DROPS Design answered:
Efectivamente, o número de diminuições é 5. Por lapso, diz-se dimonuir 1 m/p de cada lado quando, na realidade, se diminui apenas no lado da costura. Obrigado por nos contactar. Bom tricô!
20.10.2014 - 11:32Hannah wrote:
Hello‘When piece measures 22-24-27 (28-31) cm slip the first 9-10-11 (12-12) sts towards mid front on a stitch holder for neck. Cast off to shape the neckline at the beg of every row from neckline: 2 sts 1 time and 1 st 3 times = 52-56-62 (72-82) sts left on shoulder/sleeve’ - but cannot work out which stitches to slip and then where the decrease starts and should I be starting on a right side or wrong side row?
28.07.2014 - 14:30DROPS Design answered:
Dear Hannah, for the right front piece, you will beg from RS, put the first 9-12 sts from RS on a st holder, then bind off at the beg from every row from RS 2 sts 1 time and 1 st 3 times. For the left front piece, you will bind off for neckline at the beg of every row from WS = always at the beg of row starting from neckline towards the side. Happy knitting!
29.07.2014 - 09:16Fromm Renate wrote:
Beim Halsausschnitt heisst es, 3R. hin und zurück stricken. Welche Maschen soll man stricken?
14.07.2014 - 15:43DROPS Design answered:
Sie stricken die 46 bis 66 M, die Sie aus dem Halsrand aufgefasst haben, über 3 R re. Die Info, dass diese 3 R re gestrickt werden, wird umgehend ergänzt.
14.07.2014 - 20:43Eve wrote:
Wenn ich nach der Schultermarkierung 8 1/2cm weiter stricke, ergibt das bei mir kein Perlmuster - Bündchen von 12cm...?
14.04.2014 - 16:56DROPS Design answered:
Liebe Eve, jetzt habe ich Ihre Frage verstanden. Beachten Sie bitte die Position des Markierungsstrichs in der Schnittzeichnung: die 12 cm beziehen sich nicht auf die Ärmelunterkante/Bündchen sondern auf das Mass am Armausschnitt.
22.04.2014 - 10:24Eve wrote:
Rückenteil: wenn ich von der neuen Schultermarkierung 81/2 weiter stricke, stimmen die 12cm für das Armbündchen (in der Zeichnung angegeben) nicht. Von wo messe ich und wie breit wird der Armabschluss?? Liebe Grüsse Eve
09.04.2014 - 06:28DROPS Design answered:
Liebe Eve, könnten Sie Ihre Frage nochmals genauer fomulieren? Was meinen Sie mit 81/2? Die Schnittzeichnung bedeutet: Das Ärmelbundchen ist 5 cm im Perlmuster (10 Maschen am Rand der Arbeit. Der Ärmel ist unten in Grösse 12/18 Monate 2 x 12 cm im Umfang.
14.04.2014 - 08:55