DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6534.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 112-1
DROPS Design: Mynstur nr L-092
--------------------------------------------------------

Stærð: S-M-L-XL-XXL-XXXL

Efni:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 gr litur nr 03, natur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6534.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf slétt og 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GATAMYNSTUR:
Hægri kantur að framan:
UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið 3 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 1 l br, 3 l sl.
UMFERÐ 2 (frá röngu): Prjónið 5 l sl, 1 l snúin slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), 3 l sl.
UMFERÐ 3: Fellið af 2 l (= 1 l eftir á hægri prjóni), 2 l sl, 1 l br, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 1 l snúin slétt.
UMFERÐ 4: Prjónið 2 l sl, 1 l sl í tvöfalda uppsláttinn, hinn uppslátturinn er látinn falla niður, 4 l sl.
Vinstri listi að framan:
UMFERÐ 1 (frá röngu): Prjónið 3 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 4 l sl.
UMFERÐ 2 (frá réttu): Prjónið 3 l sl, 1 l br, 1 l sl, 1 l snúin slétt, 3 l sl.
UMFERÐ 3: Fellið af 2 l (= 1 l eftir á prjóni), 3 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 1 l snúin slétt.
UMFERÐ 4: Prjónið 3 l sl (hinn uppslátturinn er látinn falla niður), 1 l br, 3 l sl.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á eftir kanti að framan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan kanti að framan þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 176-188-204-220-244-260 l á hringprjóna nr 5 með Bomull-Lin.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú sléttprjón. Setjið 8 prjónamerki í stykkið með ca 22-23-25-27-30-32 l millibili. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerkin með 8 cm millibili alls 5 sinnum (= 8 úrtökur í hverri umf) = 136-148-164-180-204-220 l. Þegar stykkið mælist 38 cm er haldið áfram í garðaprjóni. Setjið tvö prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun umf og 1 eftir 68-74-82-90-102-110 l. Þegar stykkið mælist 44 cm er prjónað áfram með byrjun á eftir fyrsta prjónamerki þannig: Prjónið 32-35-39-43-49-53 l sl, GATAMYNSTUR (umf 1 – hægri kantur að framan) – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 7 l, 128-141-157-173-197-213 l sl, fitjið upp 4 nýjar l fyrir aftan hægri kant að framan = 140-152-168-184-208-224 l. Snúið við og prjónið fram og til baka. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Gatamynstur (umf 1- vinstri kantur að framan) yfir fyrstu 7 l, sléttprjón yfir næstu 126-138-154-170-194-210 l, gatamynstur (umf 2 – hægri kantur að framan) yfir síðustu 7 l (= hægri kantur að framan) ATH! Fjöldi l kemur til með að vera breytilegur vegna gatamynsturs. Teljið því bara l á eftir umf 4. Þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm eru felldar af 3 lykkjur megin við bæði prjónamerkin og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 62-68-76-84-96-104 l. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun hverrar umf þannig: Fellið af 2 l 0-1-2-3-5-6 sinnum og 1 l 0-0-1-2-3-4 sinnum = 62-64-66-68-70-72 l. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm prjónið garðaprjón yfir miðju 30-30-32-34-34-36 l. Þær l sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm er fellt af miðju 14-14-16-18-18-20 l fyrir hálsmáli. Í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 23-24-24-24-25-25 l eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með 7 l garðaprjón við hálsmál. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 33-36-40-44-50-54 l. Fellið af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 33-34-35-36-37-38 l. Prjónið sléttprjón með gatamynstri yfir kant að framan – JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli innan við kant að framan með 2½ cm millibili alls 10-10-11-12-12-13 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 23-24-24-24-25-25 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt / spegilmynd.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 50-52-54-54-56-58 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5 með Bomull-Lin. Prjónið 10 umf garðaprjón og haldið áfram í sléttprjón. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 l á hvorri hlið með 9-6½-4½-3½-2½-2 cm millibili alls -5-6-8-10-11 sinnum = 58-62-66-70-76-80 l. Þegar stykkið mælist 34-33-33-33-31-30 cm – ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla – fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 3-3-3-3-4-4 sinnum, 1 l 0-1-2-3-3-5 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 40-40-41-42-42-43 cm. Fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið og fellið síðan af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 41-41-42-43-43-44 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma kant í kant. Saumið ermar í. Saumið ermasauma.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 112-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (182)

Margaret wrote:

Yes its the first size so after the first decrease row would my stitches I listed be correct?

19.11.2018 - 15:04

DROPS Design answered:

Dear Margaret, on first decrease row you will decrease 1 st on the right side of each marker = there will be 21 sts between each marker, then on 2nd decrease row you decrease 1 st on the left side of each marker = after each marker = there will be then 20 st between each marker. Repeat the decreases llike this, alternately on the right side and on the left side of markers (= alternately before and after the markers). Happy knitting!

19.11.2018 - 16:18

Margaret wrote:

I have placed my markets and done the first decrease row but worried that I may have misunderstood the pattern. For the 8 sections I have from the BOR marker 20 sts, then 22sts ,20sts, 22sts, 20sts, 22sts, 20sts and finally 22 sts is this correct?

19.11.2018 - 14:28

DROPS Design answered:

Dear Margaret, depending on your size the number of sts will be different between each marker -in 1st size you add 1 marker after every 22nd stitch, you have then 22 sts x 8 markers = 176 stitches. Happy knitting!

19.11.2018 - 14:44

country flag Jutta wrote:

Was bedeutet : abwechslungsweise auf der linken Und rechten Seite der Markierungen abnehmen? Soll man in einer Runde Links und in der nächsten rechts abnehmen oder innerhalb einer Runde einmal Links und einmal rechts der Markierung?

30.08.2018 - 16:13

DROPS Design answered:

Liebe Jutta, bei den ersten Abnahmen, werden Sie rechts jeder Markierer abnehmen, bei den nächsten Abnahmen werden Sie links jeder Markierer abnehmen (= 8 Markierer = 8 Abnahme pro Abnahmerunde), und so weiter abnehmen. Viel Spaß beim stricken!

04.09.2018 - 12:25

country flag Jutta wrote:

Hallo, in der Anleitung für Größe l steht, nach 5cm alle 25M eine Markierung einziehen. Aber bei 204 M geht das nicht auf. Es sind 7x alle 25m und einmal 29. wie teile ich es richtig auf?

30.08.2018 - 11:35

DROPS Design answered:

Liebe Jutta, es sollen ungefär 25 Maschen zwischen jeder Markierung sein, Sie können den Markierungen z.B. abwechslungsweise mit 25 und 26 M einsetzen. Viel Spaß beim stricken!

04.09.2018 - 12:31

country flag Berit Arnesen wrote:

Hei jeg får ikke til fellingen til V hals. Skal man ikke felle til V før man har delt arbeidet til rygg? Skal det felles 1 maske før blonden eller 2? Mvh Berit

16.07.2018 - 17:10

DROPS Design answered:

Hei Berit. Fellingen til V-hals begynner ikke før arbeidet deles i bak- og forstykker, det stemmer. Du feller 1 maske på innsiden av stolpen, og det felles forskjellig langs den høyre og den venstre stolpen (se felletips). God fornøyelse

19.07.2018 - 14:58

country flag Renate wrote:

Betekent dat dan ik de mindering in de 3e naald aan de linkerkant wel aan de verkeerde kant moet doen? Sorry dat ik jullie hier over blijf bevragen, het kwartje wil maar niet vallen.

27.10.2016 - 14:34

DROPS Design answered:

Hoi Renate. Ja, zoals er staat onder kantrand langs linkerkant dan is nld 1 (en dan ook 3) aan de verkeerde kant. Je breit de linkerkant aan de goede kant vanaf het armsgat naar middenvoor. Dus moet je beginnen middenvoor, dan is het een nld aan de verkeerde kant :)

27.10.2016 - 15:31

country flag Renate wrote:

Alle minderingen moeten aan de goede kant gemaakt worden. De minderingen aan de linkerkant hals moeten in de derde naald gedaan worden, maar volgens mij is dat de verkeerde kant. Wat doe ik verkeerd?

26.10.2016 - 19:26

DROPS Design answered:

Hoi Renate. Ja, maar dat is ook de verkeerde kant in het patroon. Je begint middenvoor op de linker voorkant = verkeerde kant. 2e nld is dan goede kant (breit van armsgat richting middenvoor) en 3e nld komt dan weer aan de verkeerde kant.

27.10.2016 - 10:06

country flag Birgit Hugenschmidt wrote:

Liebes Drops-Team, wird bei dem Spitzenmuster der Blende jeweils die 1. bis 4. Reihe wiederholt und ab wann wird mit der Abnahme am Hals begonnen, direkt 1,5 cm nach Beginn der Blende oder mit Beginn der Ärmelabnahme?

29.08.2016 - 21:16

DROPS Design answered:

Liebe Birgit, ja man strickt für die Spitzenblende stets Reihe 1-4. Laut Anleitung wird mit dem Ausschnitt 1,5 cm nach der Ärmelabnahme begonnen.

31.08.2016 - 13:34

Vana wrote:

Thank you for your reply. What do you mean with kfb last picked up st?

18.08.2016 - 14:07

DROPS Design answered:

Dear Vana, work the last st picked up one time in front loop of st + in back loop of st - see video below. Happy knitting!

18.08.2016 - 14:28

Vana wrote:

Hello, I would like to ask you about the pick up 4 new sts behind right neckline. Thanks to your video tutorial I understand how it is done but you need all previous sts from where you pick up the new sts to be K sts. In this case the forth new st has to be made from a yarn over. How can I do it? Thank you

18.08.2016 - 13:19

DROPS Design answered:

Dear Vana, if you choose to pick up the sts behind right neckline, you can kfb last picked up sts or cast on the last extra st to get the 4 sts for the band. Happy knitting!

18.08.2016 - 13:33