DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide |
447.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel 75% Ull, 25% Polyamide |
477.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide |
508.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide 447.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel print 75% Ull, 25% Polyamide 477.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide 508.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Monument Valley |
|
|
|
Prjónuð kápa með 2 þráðum úr DROPS Fabel með domino-þríhyrningum á framstykki. Stærð S – XXXL.
DROPS 114-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LITIR DOMINO-ÞRÍHYRNINGAR Prjónað er með tveimur þráðum ÞRÍHYRNINGUR 1: Litir 672 + 674 ÞRÍHYRNINGUR 2: Litir 674 + 912 ÞRÍHYRNINGUR 3: Litir 912 + 543 ÞRÍHYRNINGUR 4: Litir 912 + 672 ÞRÍHYRNINGUR 5: Litir 672 + 674 ÞRÍHYRNINGUR 6: Litir 672 + 543 ÞRÍHYRNINGUR 7: Litir 674 + 912 DOMINO-ÞRÍHYRNINGUR 1: UMFERÐ 1 (= ranga): Allar lykkjur eru prjónaðar slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 l eru eftir á prjóni, 2 l sl saman. Endurtakið umf 1 og umf 2 þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og dragið þráðinn í gegnum l. DOMINO-ÞRÍHYRNINGUR 2: UMFERÐ 1 (= ranga): Allar lykkjur eru prjónaðar slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 l eru eftir á prjóni , 2 l sl saman Endurtakið umferð 1 og umf 2 þar til 1 l er eftir á prjóni, klippið frá og dragið þráðinn í gegnum l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KÁPA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónuð lengja af 7 þríhyrningum sem mynda kant að framan. DOMINO-ÞRÍHYRNINGUR: Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í hverri umf (= garðaprjón). Fitjið upp 57-59-61-63 l á prjóna nr 5 með litum fyrir ÞRÍHYRNINGUR 1 – sjá LITIR DOMINO-ÞRÍHYRNINGAR að ofan. Prjónið DOMINO-ÞRÍHYRNINGUR 1- sjá útskýringu að ofan. Skiptið um lit fyrir ÞRÍHYRNINGUR 2 og prjónið upp 57-59-61-63 l meðfram hægri hlið á fyrsta þríhyrningi. Prjónið DOMINO-ÞRÍHYRNINGUR 2 – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir í lit fyrir ÞRÍHYRNINGUR 3 og prjónið upp 57-59-61-63 l meðfram vinstri hlið á fyrri þríhyrningi, prjónið DOMINO-ÞRÍHYRNINGUR 1 aftur. Haldið áfram að prjóna DOMINO-ÞRÍHYRNINGUR 2 og DOMINO-ÞRÍHYRNINGUR 1 til skiptis þar til prjónaðir hafa verið alls 7 þríhyrningar á hæðina, skiptið um lit fyrir hvern þríhyrning eftir útskýringu að ofan. MERKINGAR Sjá mynd 1. Setjið MERKI 1 (= A) í hornið þar sem 3. 4. og 5. þríhyrningur mætast (= fyrir miðju að aftan). Mælið 13 cm út frá þessu merki og setjið MERKI 2 (= B) öðru megin og MERKI 3 (= C) hinum megin. Saumið þráð í brúnina á milli merkinga 2 og 3 (= 26 cm). Dragið þráðinn saman þar til 18 sm eru á milli merkinga. Festið þráðinn vel. Mælið 20-21-22-23 cm frá MERKI 2 og setjið MERKI 4 (= D), bilið á milli þessara tveggja merkja er handvegur. Mælið 20-21-22-23 cm frá MERKI 3 og frá MERKI 5 (= E), bilið á milli þessara tveggja merkja er handvegur. FRAM- OG BAKSTYKKI Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 134-154-174-194 l á prjóna nr 5 með 1 þræði nr 672 + 1 þræði nr 674. Prjónið 4 umf sléttprjón fram og til baka (sl frá réttu, br frá röngu) Prjónið síðan áfram í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 61-64-67-69 cm er fellt af fyrir handveg. ATH: Mælið lengjuna með þríhyrningunum, frá fyrsta þríhyrningi og að MERKI 4 (byrjun á handvegi). Bolurinn á að mælast jafnlangur. Prjónið næstu umf þannig: Prjónið 22-27-32-37 l (= framstykki), fellið af 8 l, prjónið 74-84-94-104 l (= bak), fellið af 8 l, prjónið 22-27-32-37 l (= framstykki). Hér eftir eru bæði framstykki og bakstykki prjónuð hvert fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI = 22-27-32-37 l. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá handveg: Fellið af 3 l 0-1-1-2 sinnum, 2 l 1-1-2-2 sinnum og 1 l 3-3-4-4 sinnum = 17-19-21-23 eftir á öxl. Fellið af þegar handvegur mælist ca 20-21-22-23 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. BAKSTYKKI = 74-84-94-104 l. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf eins og á framstykki = 64-68-72-76 l. Þegar handvegur mælist ca 18-19-20-21 cm eru felldar af 26 l fyrir miðju og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af 2 l í byrjun næstu umf frá hálsmáli = 17-19-21-23 l á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist jafnhátt framstykki. ERMI: Ermar eru prj fram og til baka. Fitjið upp 46-48-50-52 L á prj nr 5 með 1 þræði 672 + 1 þræði 674. Prj 4 umf slétt prjón, (sl frá réttu, br frá röngu) fram og til baka. Prj síðan áfram í garðaprjóni. Þegar ermi mælist 10 sm er aukið út um 1 l í byrjun og enda umf. Endurtakið útaukningu á 4.-3½.-3.-2½. sm fresti, alls 9-10-11-12 sinnum = 64-68-72-76 L. Þegar ermi mælist 46-45-44-43 sm (styttri ermar í stærri stærðunum vegna meiri axlavíddar) er mótuð ermakúpa: Fellið af í byrjun hverrar umf: 4 l 1 sinni, 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinni og 1 l 3-4-5-6 sinnum. Fellið síðan af 2 l í báðum hliðum þar til ermin mælist 54 sm. Fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af restina af lykkjunum þegar ermin mælist ca 55 sm (allar stærðir). FRÁGANGUR Saumið kápuna saman frá röngu. Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma fyrir innan kantlykkju. Saumið ermarnar í við handveg. Saumið þríhyrninga-lengjuna við framstykkin og við hálsmál. Saumið yst í kantinn og byrjið við merki 1 og saumið síðan niður með hvorri hlið fyrir sig. HEKLAÐUR KANTUR Heklið með 1 þræði af lit nr 672 + 1 þræði af lit nr 674 og heklunál nr 5 eftir stystu hlið þríhyrninga-lengjunnar (þ.e.a.s upp eftir hægra framstykki, hálsmáli og niður vinstra framstykki) þannig: Heklið 1 fl í fyrstu lykkju, * 1 ll, hoppið yfir ½ sm, 1 fl í næstu l*, endurtakið frá *-* - JAFNFRAMT eru hekluð 4 hnappagöt upp eftir hægra framstykki: Hnappagat = 4 ll á milli fl í staðinn fyrir 1 ll. Staðsetjið neðsta hnappagatið ca 25 cm frá neðstu brún og síðan með 9 cm millibili. Saumið tölurnar yst í vinstri brún á móts við hnappagöt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (28)
Margreet Van Scherpenzeel wrote:
Goedendag,\\\\r\\\\nwil dit model maken in dezelfde kleuren maar kan de nummers van de wol niet vinden van Fabel, zijn die nummers verandert?
03.02.2021 - 16:06Nicole Pelletier wrote:
Bonjour, Si je veux exécuter ce modèle avec un fil de brusched alpaca silk en plus, qu'elles sont les quantités requises ? Cordialement Nicole Pelletier
29.11.2020 - 22:49DROPS Design answered:
Bonjour Mme Pelletier, utilisez notre convertisseur (Fabel, 2 fils) ou bien retrouvez ici comment calculer une nouvelle quantité alternative. Bon tricot!
30.11.2020 - 09:53Robin Charlotte wrote:
Liebes Drops-Team, wie viel Garn müsste ich verwenden, wenn ich das Modell nicht aus zwei Fäden A-Garn, sondern aus einem Faden der Kategorie C stricken wollte? Ginge das so überhaupt? Vielen Dank für die Antwort!
19.02.2015 - 01:47DROPS Design answered:
Ja, das geht. Sie haben dann natürlich nicht mehr diesen sehr bunten, abwechslungsreichen Effekt. Sie müssen die Gesamtmenge an Garn addieren, die Sie für Ihre Größe benötigen, das Ergebnis dann mit der Lauflänge von Fabel auf die Meter umrechnen (50g = 205m) und diese Menge dann halbieren (da Sie ja doppelfädig stricken). Die erhaltene Lauflänge teilen Sie durch die Lauflänge des Garnes, das Sie als Ersatz wünschen, und erhalten damit die benötigte Anzahl Knäuel. Bei einer "krummen" Zahl runden Sie nach oben.
21.02.2015 - 10:30Annika wrote:
In de beschrijving staat dat je voor het 'lijf' steken op moet nemen. Maar welk onderdeel van het vest is dit? Ik heb 'mouwen', 'achterpand', 'voorpanden' en dan nog de 'domino rand'. Maar wat is dan 'lijf'? Ik hoop dat iemand mij kan helpen!! Alvast bedankt!
02.10.2014 - 18:42DROPS Design answered:
Hoi Annika. Je begint met het opzetten van het vermelde aantal st voor het lijf. = lijf zijn de st voor het achterpand+voorpanden voordat je deze opdelen (lees het patroon helemaal door). De dominovierkantjes komen middenvoor en de mouwen worden ook apart gebreid.
03.10.2014 - 16:06Reximama wrote:
Ich würde diese Jacke gerne in 2 Farben stricken. Und zwar nur die Dreiecke.Der Rest in der Grundfarbe. Wie muss ich dafür die Wollmenge aufteilen?
04.05.2012 - 09:48DROPS Design answered:
Da würde ich ca. 2 x 150-150-250-250 gr. der Farbe für die Vierecke kaufen (mit Rückgaberecht evt. ein Knäuel mehr).
07.05.2012 - 09:21Servolle wrote:
J'aimerai savoir si ce modèle a besoin d'être doubler pour une meilleure tenue Qu'en pensez vous? et comment réaliser cette doublure
05.05.2010 - 08:55DROPS Design NL wrote:
Hoi Carine. Dit vest moet heel ruim vallen. Het achterpand is ongeveer 62cm breed langs de onderrand (maat S). Er wordt niet verminderd om het lijf smaller te maken, maar de model is gemaakt zodat hij smaller valt. Je kunt eventueel zelf een paar minderingen maken aan de zijkanten om nog meer model in te krijgen. Vind je de model te wijd, dan kan je ook het aantal steken voor het lijf verminderen. Let dan op de steekverhouding en het afkanten voor de mouwen. Succes. gr. Tine.
08.01.2010 - 10:42Carine wrote:
De afmetingen zijn zo groot??? Bij een small heb je een omtrek van 130 cm. Ik heb dit haast nodig voor een XL/XXL. Wordt hij dan niet heel erg groot? In het rugpand zie je op de tekening dat die versmalt, maar in de beschrijving merk je geen vermindering van steken. Hoe kan dit verklaart worden? Ik vind nochthans het model super.
08.01.2010 - 08:39DROPS Deutsch wrote:
Ich würde auf jedenfall 900 gr. bestellen.
03.11.2009 - 13:11Annette wrote:
Ich möchte die Jacke in einer einzigen Farbe stricken. Wieviel Wolle brauche ich in Größe M?
03.11.2009 - 11:40