DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 116-15
DROPS Design: Mynstur nr PO-019
--------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M - L
Höfuðmál: ca 54/56 - 58 cm

Efni:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
200-200 gr litur nr 04, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 15 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 6 l og 8 umf með klukkuprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN 10 (80 cm) – fyrir stroff.

HÁLSKLÚTUR:
Stærð: ca 33 x 180 cm

Efni:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
800 gr litur nr 04, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 15 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 7 l og 8 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÚFA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI (prjónað fram og til baka):
UMFERÐ 1: Prjónið 1 l garðaprjón, * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið á 1 l sl, 1 l garðaprjón.
UMFERÐ 2: Prjónið 1 l garðaprjón, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið á 1 uppslætti, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l garðaprjón.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 l garðaprjón ,* prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l saman slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l saman slétt, 1 l garðaprjón.
Endurtakið umf 2 og umf 2 upp úr.

BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI:
Þegar skipt er um dokku og byrjað er á nýjum þræði er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka og nýja þræðinum, endarnir eru bleyttir, aðeins nuddaðir á milli fingra.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

HÚFA:
Fitjið upp 27-29 l á hringprjóna nr 10 með Polaris. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið nú stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff 1 l sl, 1 l br þar til 2 l eru eftir, endið á 1 l sl, 1 l garðaprjón. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 7 cm (síðasta umf er prjónuð frá röngu). Skiptið yfir á hringprjóna nr 15. Prjónið nú KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI í næstu umf frá réttu – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur. Lesið BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI! Þegar stykkið mælist 26-28 cm prjónið 1 umf sléttprjón með 1 l garðaprjón í hvorri hlið JAFNFRAMT sem 3 og 3 l eru prjónaðar saman = 14-15 l. Þræðið þræðinum í gegnum síðustu l, herðið að og saumið húfuna kant í kant.

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið upp 23 l á hringprjóna nr 15 með Polaris. Prjónið GARÐAPRJÓN yfir allar l – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 10 cm, JAFNFRAMT í síðustu umf frá röngu eru auknar út 4 l jafnt yfir = 27 l. Prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, 1 l br, M.1 (= 6 l), 1 l br, M.2 (= 6 l), endið á 1 l br og 6 l garðaprjón = 27 l. (Þær l sem prjónaðar eru br frá réttu eru prjónaðar sl frá röngu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist ca 170 cm (stillið af eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina), prjónið nú garðaprjón, JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 4 l jafnt yfir = 23 l. Fellið af þegar stykkið mælist ca 180 cm (passið uppá að enda á 10 cm garðaprjón).

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Colombelle

Elise, France

Colombelle Hat

Niebo, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 116-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (115)

country flag Iole wrote:

Buongiorno,vorrei realizzare questa belissima sciarpa.Vi chiedo scusa ma nella dscrizione del modello non ho ben capito ogni quanti ferri devo fare\ ripetere il diagramma M1 ed M2 .Onestamente non trovo molto chiaro tutta la descrizione del modello.Grazie e buona giornata

24.01.2018 - 10:45

DROPS Design answered:

Buongiorno Iole. Dopo aver lavorato i 10 cm a punto legaccio, prosegue con i diagrammi. I diagrammi sono formati da 10 righe (alla quinta riga intreccia). Finite le dieci righe, riprende dalla prima riga e prosegue così fino alla lunghezza desiderata. Buon lavoro!

24.01.2018 - 11:38

country flag Claudia Wächtler wrote:

Hallo Möchte noch etwas zu der Mütze schreiben.Habe Model 125-31 von Drops gestrickt und dachte mir oh diese Mütze passt.Das Model 125-31 habe ich mit Nadelstärke 12 gestrickt und nicht mit Nadelstärke 15.

26.11.2017 - 08:43

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wächtler, Hauptsache ist die Maschenprobe, für die Mütze sollen Sie hier 6 M x 8 R im Patentmuster haben, je nachdem Sie stricken, brauchen Sie Nadel nr 15 (wie wir) oder kleinere, die Maschenprobe bitte zuerst stricken und Nadel anpassen wenn nötig ist. Viel Spaß beim stricken!

27.11.2017 - 10:58

country flag Claudia Wächtler wrote:

Hallo Ich bin der festen Überzeugung das die Maschenzahl 27-29 Maschen nicht richtig ist.

26.11.2017 - 08:24

DROPS Design answered:

Liebe Frau Wächtler, für die Mütze muss man 27-29 M anschlagen. Viel Spaß beim stricken!

27.11.2017 - 10:09

country flag Lore wrote:

Hallo, in der Anleitung für die Mütze heißt es: 1 Krausrippe entspricht 2 Reihen rechts. Also sind Krausrippen wagerecht. Was heißt dann 1 M Krausrippe? M Krausrippe steht füreine Masche, die dann einfach nur rechts gestrickt wird? VG Lore

11.02.2017 - 17:19

DROPS Design answered:

Dear Lore, das Video below zeigt, wie man die Randmachen in Krausrippe strickt. Viel Spaß beim stricken!

13.02.2017 - 10:15

country flag Gisèle wrote:

Je vous remercie pour vos magnifiques patrons mais j'ai un regret c'est qu'on ne peut pas juste les enregistrer. Pour les avoir, il faut les imprimer et ça prend beaucoup de papier si on veut les conserver. Moi j'enregistre et je mets sur une clé usb. ensuite je prends le patron seulement lorsque j'en ai besoin. Si on ne les imprime pas tout de suite, on perd tout... Vraiment dommage.

25.11.2016 - 15:56

DROPS Design answered:

Bonjour Gisèle, vous pouvez toujours imprimer les modèles souhaités en version pdf et ainsi les conserver dans ce format. Bon tricot!

25.11.2016 - 16:30

country flag VAST wrote:

J'aimerai faire ce modèle de bonnet avec 2 aiguilles et non une circulaire. Les explications et le rendu sont-ils les mêmes ? Merci de votre réponse et bravo pour votre site

28.07.2016 - 18:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vast, Le bonnet se tricote ici en allers et retours sur aiguille circulaire, vous pouvez ainsi le tricoter sur aiguilles droites sans modifier les explications. Cliquez ici pour en savoir plus sur l'adaptation des modèles sur aiguilles droites. Bon tricot!

29.07.2016 - 08:04

country flag Liv wrote:

På oppskrift DROPS 116-15, luen. Skal det strikkes to stykker og så sy de sammen? 27 masker ble så kort...

03.03.2015 - 22:31

DROPS Design answered:

Hei Liv. Nej, den strikkes i ét stykke frem og tilbage. Husk at have den rette strikkefasthed.

04.03.2015 - 14:55

country flag Anja wrote:

Ist es auch möglich, die Mütze gleich rund zu stricken? Wenn ja, könnten sie bitte beschreiben, wie? LG Anja

20.02.2015 - 13:04

DROPS Design answered:

Liebe Anja, ja, das geht, eine Anleitung, wie man das Patentmuster in Runden strickt, finden Sie hier: Sie schlagen 2 M weniger an, da die kraus re gestrickten Rand-M wegfallen. Die 1. Rd stricken Sie re, dann das Rippenmuster 1 M re/1 M li (OHNE die beiden kraus-re-M, dies sind die entfallenden Rand-M), dann folgt das Patentmuster in Rd.

22.02.2015 - 11:02

country flag Hélène wrote:

Bonjour, Pour le bonnet, je ne comprends pas le fonctionnement des diminutions à partir de 26 cm : une fois fini le 3ème rang des côtes anglaises, comment doit-on faire pour revenir à un rang jersey ? Car lorsque je veux tricoter mes mailles 3 à 3, ça ne se présente pas du tout comme dans la vidéo. De plus, si je tricote 3 à 3, une maille reste seule... Merci !

16.02.2015 - 17:10

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, quand vous diminuez à 26 cm, tricotez 1 m lis, puis toutes les mailles suivantes 3 par 3 (les jetés comptent alors comme des mailles, c'est-à-dire que vous tricotez ens 1 m + 1 m glissée et son jeté), et ceci 13 fois au total, il reste 14 m, passez ensuite le fil dans les 14 m restantes pour serrer, le bonnet est terminé, il reste la couture à faire. Bon tricot!

17.02.2015 - 13:42

country flag Bianca wrote:

Ik zou graag willen weten met hoeveel steken ik moet meerderen na 10 cm gebreid te hebben als ik de ribbelsteken aan de zijkanten over 10 steken brei en de kabels ook over 10 steken in plaats van alles over 6 steken. Ik wil de sjaal namelijk nog breder hebben. Alvast bedankt voor uw reactie.

11.02.2015 - 22:09

DROPS Design answered:

Hoi Bianca. Ik zou dan berekenen hoeveel st je in totaal nodig hebt: 10 ribbelst, 1 av, M.1 = 10 st, 1 av, M.2 = 10 st, 1 av en 10 ribbelst = 43 st. En dan beginnen met 39 st en na de eerste ribbelst 4 st meerderen zoals ook in het patroon. Maar bij aanpassingen is het ook een beetje spelen met wat het mooiste wordt. Dus kijk of dit zo goed zal zijn en pas eventueel aan als nodig.

12.02.2015 - 17:27