Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
My First Christmas |
|
|
|
Prjónaður galli fyrir börn fyrir jólin með hettu úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Þema: Jól.
DROPS Baby 19-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið umferð 2. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið saman 2. og 3. lykkju frá miðju að framan slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist alls: STÆRÐ 1/3 MÁN: 23, 30, 37, 44, 51 cm STÆRÐ 6/9 MÁN: 28, 36, 44, 52, 60 cm STÆRÐ 12/18 MÁN: 31, 38, 46, 53, 61, 68 cm STÆRÐ 2 ÁRA: 34, 42, 50, 58, 66, 74 cm STÆRÐ 3/4 ÁRA: 39, 48, 56, 65, 73, 82 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan er stykkið sett saman og gallinn er prjónaður uppúr. SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið laust upp 34-36-40 (44-48) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum í litnum hvítur. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 12 cm er skipt yfir á sokkaprjón 5 og 2 þræði í litnum rauður. Prjónið síðan sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = innan á skálm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu í 2.-2.-3. (4.-5.) hverri umferð alls 7-8-9 (9-10) sinnum = 48-52-58 (62-68) lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-24-27 (32-37) cm fellið af 4 lykkjur innan á skálm (= 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 44-48-54 (58-64) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. GALLI: Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón 5 með affellingu á mót hvor annarri = 88-96-108 (116-128) lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka frá miðju að framan (umferð 1 = rétta): Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið slétt yfir allar lykkjur og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 94-102-114 (122-134) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki 25-27-30 (32-35) lykkjur inn frá hvorri hlið (= 44-48-54 (58-64) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón en 5 ystu lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni upp að hálsmáli (= kantar). JAFNFRAM þegar stykkið mælist 23-28-31 (34-39) cm fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá HNAPPAGAT! Þegar stykkið mælist 45-53-61 (66-73) cm skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 44-48-54 (58-64) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir ermar: 3 lykkjur 2-1-3 (1-2) sinnum, 5 lykkjur 1-2-1 (2-2) sinnum, 7 lykkjur 1-1-1 (2-2) sinnum og síðan 9-10-12 (14-16) lykkjur 1 sinni = 98-108-120 (140-156) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 55-64-73 (79-87) cm fellið af miðju 16-18-18 (20-20) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið 2 umferð til viðbótar yfir 41-45-51 (60-68) lykkjur í hvorri hlið – fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 25-27-30 (32-35) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur í garðaprjóni – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok umferðar í hlið fyrir ermi eins og á bakstykki = 52-57-63 (73-81) lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-61-69 (75-83) cm fellið af fyrstu 5-6-6 (7-7) lykkjur við miðju að framan fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum = 41-45-51 (60-68) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-65-74 (80-88) cm, fellið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið eins og vinstra framstykki, nema spegilmynd – munið eftir hnappagötum í kanti að framan. FRÁGANGUR: Saumið sauma yfir ermum með lykkjuspori frá réttu. Leggið hægri kant að framan yfir vinstri og saumið þá saman neðst við uppfitjunarkant. Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana. Saumið tölur í. STROFF: Prjónið upp 32-36-36 (40-40) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum í litnum hvítur neðst í kringum aðra ermina. Prjónið perluprjón þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið á sama hátt neðst í kringum hina ermina. Brjótið uppá ermar og skálmar eftir þörf. HETTA: Prjónið upp frá réttu ca 40 -50 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 5 með 2 þráðum í litnum rauður – byrjið eftir 5 kantlykkjur að framan á hægra framstykki og endið á undan 5 kantlykkjum að framan á vinstra framstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka – JAFNFRAMT í umferð 2 (= frá réttu) er aukið út jafnt yfir til 66-70-74 (78-82) lykkjur. Þegar hettan mælist 21-23-25 (27-28) cm fellið af. Saumið hettuna saman efst í toppnum með lykkjuspori. Prjónið kant meðfram opinu á hettunni þannig: Prjónið upp frá réttu ca 81-89-97 (105-109) lykkjur meðfram opi á húfu á prjón 4,5 með 2 þráðum í litnum hvítur. Prjónið perluprjón þar til kanturinn mælist 6 cm og fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið tvöfalt uppá kant að réttu og saumið kantinn niður við 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Gerið einn dúsk ca 4-5 cm að þvermáli í litnum hvítur og saumið niður í hornið aftan á hettu. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (71)
Ann wrote:
Hat es einen Vorteil, den Strampler mit 2 Fäden der Garngruppe A zu stricken anstatt mit 1 der Garngruppe C? Wird er dann weicher/flexibler/...? Is there any benefit to choose two threads of yarn A instead of one thread of yarn C? Is the first option more flexible/softer/...? thanks!
26.08.2015 - 15:51DROPS Design answered:
Nein, das lässt sich so generell nicht sagen. Die Robustheit ist z.B. von der Verzwirnung und dem Material des einzelnen Garns abhängig. Sie können 2 Fäden der Gruppe A einfach durch 1 Faden C ersetzen,wenn Ihnen ein Garn der Gruppe C besser gefällt, Sie müssen nur beachten, dass Sie die benötigte Menge neu berechnen müssen, und es ist wichtig, die Maschenprobe einzuhalten.
01.09.2015 - 15:43Maria Saggese wrote:
Volevo sapere come fare la tutina rossa senza usare i ferri circolari grazie della vostra disponibilita
23.04.2015 - 18:41DROPS Design answered:
Buongiorno Maria. Deve modificare un po' le istruzioni per le gambe. Avvia le m senza chiudere in tondo; può aggiungere 1 m vivagno ai lati per la cucitura. A 14 cm inizia ad aumentare 1 m ai lati. A 21-24-27 (32-37) cm dovrà intrecciare, le prime 2 e le ultime 2 m. Le restanti istruzioni prevedono già una lavorazione in ferri di andata e ritorno. Anche per i polsini, può riprendere le m e lavorare a grana di riso prima di completare la cucitura delle maniche. Buon lavoro!
23.04.2015 - 19:19Auni wrote:
Hei, kuinka neulominen jatkuu lahkeiden teon jälkeen.Molemmat lahkeet ovat nyt pyöröpuikoilla mutta keskietu kohta on puikkojen johto-osalla. En saa keskietukohtaa puikkojen alkuun,koska silmukoita ei saa venytettyä niin.Pitäisikö olla toiset puikot joilla aloitan neulomisen? Kiitos avusta!
29.01.2015 - 12:37DROPS Design answered:
Hei! Kun olet ottanut molemmat lahkeet samalle puikolle, päätösreunojen tulee olla vastakkain, eli "aukko" tulee puikkojen kohdalle. Tämä on jatkossa keskietu ja neulominen voidaan aloittaa tästä. On vaikea selittää kirjoittaen, mutta voit aina käydä lähimmässä DROPS-jälleenmyyjäliikkeessäsi ja kysyä heiltä neuvoa.
06.02.2015 - 17:25Anette Solberg Jensen wrote:
Kan man bruke 15 mm tre knapper istedet for perleknappene?
14.01.2015 - 11:47DROPS Design answered:
Hei Anette. Ja, det burde gaa fint. God fornöjelse med den.
14.01.2015 - 14:27Dayana wrote:
Salve io volevo domandare dal momento che mia sorella deve ancora partorire se potevo fargli questo regalo prima Dell evento !!!! Grazie cordiali saluti
06.12.2014 - 14:52DROPS Design answered:
Buongiorno Dayana. Sarà sicuramente un regalo gradito. I ferri indicati sono il n° 5 e quindi il lavoro cresce abbastanza in fretta. Il tempo necessario per la realizzazione dipende dalla sua esperienza e da quanto tempo riesce a dedicare al lavoro a maglia. Valuti anche in base a quanto tempo manca alla nascita. Buon lavoro e auguri!
07.12.2014 - 16:03Bossard wrote:
Merci.jai compris quand j ai ferme mes mailles merci.peut on mettre notre ouvrage
19.11.2014 - 12:35DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bossard, vous pouvez partager votre ouvrage terminé sur notre Facebook, sur celui de votre magasin ou/et sur le forum DROPS. Bon tricot!
19.11.2014 - 14:23Bossard wrote:
Bonsoir.problème avec la capuche ça ne fait par de pointé .merci a vous de m avoir guider auparavant
18.11.2014 - 19:42DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bossard, quand on plie le dernier rang de la capuche en double pour le coudre, la petite pointe est formée au niveau du pli - la vidéo ci-dessous pourra peut-être vous aider. Bon tricot!
19.11.2014 - 09:41Bossard wrote:
Bonjour ;la hauteur total du debut jambe on mesure d ou car j ai 12cm en blanc ensuite si je fait 15cm en rouge ok 27cm mais je n ai pas mes 58m sur chaque jambe
09.11.2014 - 11:31DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bossard, c'est bien ainsi que l'on procède, on tricote 12 cm en blanc puis 15 cm en rouge (soit 27 cm bordure comprise), dans ces 15 cm en rouge, vous devez augmenter 9 fois 2 m tous les 3 tours - pensez à bien vérifier votre échantillon (17m x 22 rangs = 10 x 10 cm en jersey), vous devez avoir 33 rangs rouge au total pour 15 cm. Bon tricot!
10.11.2014 - 09:42Nancy Brodrick-Ward wrote:
On the Left Front Piece section of this pattern my grannie who is knitting this for me has said that the measurements are too big by a lot? She is doing the 12-18month the last section says it comes out at 74cm or 291/8 " which is much too big for this age. Could you let me know if she has misunderstood this section, she has already knitted the trousers and they are perfect but she is stuck here. Many thanks Nancy
16.10.2014 - 16:49DROPS Design answered:
Dear Mrs Brodrick-Ward, you can check measurement in the chart at the end of the pattern: 27 cm for the each leg + 34 cm fo body to armhole + 13 cm from beg of casting on for sleeves to shoulder = 74 cm. The bottom cuff will be folded towards RS (double). Happy knitting!
17.10.2014 - 09:11Suzanne Wärme Meigård wrote:
Hej jag undrar hur mycket garn som går åt till en ettåring, hittar det inte någonstans. Mvh Suzanne
15.07.2014 - 18:25DROPS Design answered:
Hej Suzanne. Du skal så nok bruge str 12/18 måneder (3e størrelse). Du skal så bruge 3e tal for materialer: dvs, 300 gr Alpaca rød og 100 gr Alpaca hvid. Du finder det altsammen øverst på mønstret.
16.07.2014 - 17:29