DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17798.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Jane Austen

Prjónuð peysa með hettu í sléttprjóni og hekluðum kanti úr 1 þræði DROPS Paris eða 2 þráðum DROPS Alpaca. Stærð S-XXXL.

DROPS 120-1
DROPS Design: Mynstur nr W-386
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
650-700-800-850-950-1050 gr litur nr 30, gráblár
Og einnig:
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 17, natur

Eða:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
600-700-750-800-900-1000 gr litur nr 6347, gráfjólublár
Og einnig:
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 0100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af Paris eða 2 þráðum af Alpaca.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón.
DROPS HEKLUNÁL NR 4 – fyrir heklaðan kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17798.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MÆLING:
Vegna þyngdar á garninu verður að öll mæling að gerast þegar stykkinu er haldið uppi, annar verður flíkin allt of löng þegar hún er mátuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 204-216-232-248-264-284 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði í litnum gráblár Paris eða 2 þráðum í litnum gráfjólublár Alpaca.
Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar l. LESIÐ MÆLING!
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36 cm í öllum stærðum er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Setjið tvö prjónamerki í stykkið, 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 102-108-116-124-132-142 l. Prjónið nú 14 umf garðaprjón á hæðina, JAFNFRAMT í umf 1 er prjónað þannig: 11-14-18-22-28-33 l garðaprjón, 2 l slétt saman þar til 11-14-18-22-28-33 l eru eftir á undan 1. prjónamerki, 22-28-36-44-56-66 l garðaprjón, 2 l slétt saman þar til eftir eru 11-14-18-22-28-33 l innan við 2. prjónamerki, garðaprjón yfir þær 11-14-18-22-28-33 l sem eftir eru = 124-136-152-168-188-208 l. Þegar prjónaðar hafa verið 14 umf með garðaprjóni á hæðina er prjónuð 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 12 l jafnt yfir í öllum stærðum, aukið út með ca 9-10-11-12-14-16 l millibili (passið uppá að auknar eru út 6 l hvoru megin við prjónamerki) 136-148-164-180-200-220 l. Skiptið aftur yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm er prjónað þannig: Prjónið 31-34-38-42-47-52 l með sléttprjóni, 6 l garðaprjón, snúið við (héðan er nú prjónað fram og til baka), prjónið 6 l garðaprjón, prjónið sléttprjón yfir þær l sem eftir eru, fitjið upp 6 nýjar l við miðju að framan = 142-154-170-186-206-226 l. Haldið áfram í sléttprjóni með 6 l garðaprjón við miðju að framan í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umf er fellt af 6 l fyrir handveg í hvorri hlið (fellt er af 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki). Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 34-37-41-45-50-55 l. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá hlið þannig: Fellið af 2 l 1-2-3-4-6-8 sinnum og 1 l 1-1-2-3-4-4 sinnum = 31-32-33-34-34-35 l. Þegar stykkið mælist 58-60-61-63-64-66 cm (passið uppá að síðasta umf er frá röngu) setjið 6 l í garðaprjóni við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun umf við miðju að framan þannig: Felli af 5-6-6-6-6-7 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 1 sinni = 15-15-16-17-17-17 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. ATH! Passið uppá að síðasta umf á undan úrtöku fyrir hálsmáli er frá röngu eins og á vinstra framstykki.

BAKSTYKKI:
= 62-68-76-84-94-104 l. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 56-58-60-62-62-64 l. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af miðju 24-26-26-26-26-28 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 15-15-16-17-17-17 l. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.

HETTA:
Prjónið upp 64-68-71-71-78-78 l (meðtaldar l af þræði) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði í litnum gráblár Paris eða 2 þráðum í litnum gráfjólublár Alpaca. Prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka á hringprjóna. Prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 20-22-23-23-26-26 l, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sléttprjón *, endurtakið frá *-* alls 12-12-13-13-14-14 sinnum, endið á 20-22-23-23-26-26 l sléttprjón og 6 l garðaprjón = 76-80-84-84-92-92 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br. Haldið áfram í sléttprjóni með 6 l garðaprjón í hvorri hlið. Fellið af þegar stykkið mælist 34-34-35-35-36-36 cm. Leggið hettuna tvöfalda saman og saumið hana saman efst á toppnum.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 42-44-46-48-50-50 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði í litnum gráblár Paris eða 2 þráðum í litnum gráfjólublár Alpaca. Prjónið 2 umf garðaprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 4-2½-2½-2-1½-1 cm millibili alls 6-8-9-10-12-14 sinnum = 54-60-64-68-74-78 l. Þegar stykkið mælist 30-29-29-28-27-25 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af 6 l við miðju undir ermi (fellt er af 3 l hvoru megin við prjónamerki). Prjónið nú stykkið fram og til baka, JAFNFRAMT er haldið áfram að fella af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 2-2-2-2-3-3 sinnum, 1 l 3-5-6-7-7-9 sinnum, fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 38-38-39-39-40-40 cm. Fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af. Saumið ermar í.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál nr 4 með 1 þræði í litnum natur Paris eða 2 þráðum í litnum natur Alpaca í hring á neðri kanti á fram- og bakstykki þannig: Heklið 1 fl, * 4 ll, 1 st í 1. ll, hoppið yfir 2 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í 1. fl.
Heklið á sama hátt í kringum ermar, í kringum hettu og niður opi á hálsmáli. Saumið lítið spor til þess að festa hægri hlið á opi við hálsmáli fyrir aftan það vinstra.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 120-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (206)

country flag Cristina Rizzi wrote:

Credo vi sia un problema con il pattern e avrei bisogno di parlare con qualcuno Grazie

02.05.2020 - 14:49

DROPS Design answered:

Buongiorno Cristina. Può provare a indicare il problema qui oppure può contattare il suo rivenditore Drops di fiducia. Buon lavoro!

02.05.2020 - 14:54

country flag Ruth Burgherr wrote:

Nach 47 cm wie folgt: 38 M glatt, 6 M Krausrippe und am Schluss der Arbeit 6 M. anschlagen. Müssen diese 6 M am Schluss der Arbeit angenäht werden? Diese 6 M hängen ja in der Luft. Das sieht ja speziell aus?

26.12.2019 - 21:02

DROPS Design answered:

Liebe Frau Burgherr, es ist so richtig, dh die 6 Maschen am Ende der Reihe sind die "Blendemaschen", also die 6 Maschen beidseitig (Halsausschnitt) werden krausrechts gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

02.01.2020 - 11:12

country flag Patty wrote:

Btw this pattern is so beautiful and fun. Going to make multiples in diff colors. Thank you!!

15.06.2018 - 04:43

country flag Patty wrote:

All good until here " turn and now continue back and forth on needle, work 6 GARTER STS – see above, stockinette st on..." Am I supposed to knit the 42 Purl 6 and then turn around and knit 6, Purl 42 to keep that stockinette stitch and then turn around again at the beginning of the round as would be usual and during that next row add the stitches? Thus making the right side 1 row longer?

15.06.2018 - 04:41

DROPS Design answered:

Dear Patty, you now continue working in rows (= alternately from RS and from WS starting with a WS row) with 6 sts in garter st at the beg of row (= from WS K the first 6 sts) and 6 sts at the end of row (on first row pick up 6 sts behind the 6 sts from beg of row - see video)., ie on first row from RS: K6, P to the end of row and pick up 6 sts behind the first 6 sts from beg of row. Happy knitting!

15.06.2018 - 08:41

country flag Nina wrote:

Auch ich bin anders vorgegangen, damit mir das Band aus Krausrippen nicht genau über foe Brust verläuft: nach 34cm hab ich 5 Krausrippen gearbeitet und dann ab deren oberem Rand nochmal 10cm glatt re gestrickt, bis ich mit den Abnahmen für die Armlöcher begonnen habe. Nun hat der Pulli in Gr M eine Gesamtlänge von gut 70cm und alles sitzt, wo es soll. Sehr schönes Modell!

17.05.2018 - 14:16

country flag Mel wrote:

I am having trouble making the XXL size. I have 264 stitches, have changed to 3.5mm needles, but cannot make sense of the instructions during the garter stitches, to reduce to 188 stitches. Can someone please tell me how to make the maths work to reduce by 76 stitches?

02.03.2018 - 15:21

DROPS Design answered:

Dear Mel, work as follows: 28 garter sts, K2 tog across the next sts until 28 sts remain before first marker, work now 56 garter sts (= 28 sts before + 28 sts after marker), K2 tog across until 28 sts remain before second marker, and finish with garter st on the remaining 28 sts = 188 sts. You will have 28 sts worked in garter st on each side of both markers (= 56 sts on each side) and work all sts on mid front + all sts on mid back tog 2 by 2. Happy knitting!

02.03.2018 - 16:24

country flag Husen wrote:

Hallo, Was heisst beim linken Vorderteil gegen die Mitte 6 M auf einen Hilfsfaden legen. Weiter bei jeder R von der Mitte gegen den Hals abk. Ich verstehe das gegen absolut nicht.

18.08.2017 - 22:58

DROPS Design answered:

Liebe Frau Husen, beim linken Vorderteil, die 6 ersten Maschen (bei einer Hin-Reihe) stricken dann auf einem Hilfsnadel stilllegen, weiter stricken und gleichzeitig für den Hals wie beschrieben abketten. Viel Spaß beim stricken!

28.08.2017 - 12:10

country flag Camilla wrote:

Jeg er på på de siste fellingene på ermet. Men det står ikke noe om hvor mange masker som skal felles av til slutt? Litt misvisende å bare henvise til cm-lengde. Synes det hadde vært lettere å kontrollere mitt eget arbeid om jeg visste hvor mange masker jeg skal ha igjen etter hver felling.

18.02.2017 - 16:43

DROPS Design answered:

Hej Camilla. Det er ikke relevant hvor mange masker du har i dette mönster, derfor staar det der ikke. Fölger du beskrivelsen og har det rette antal cm (strikkefasthed), saa kommer det til at stemme fint. Du kan ogsaa skrive hvor mange masker du har tilbage naar du er faerdig med aerme 1 - saa har du det til dit aerme 2.

22.02.2017 - 12:23

country flag Vala Gudjonsdottir wrote:

Ska precis börja med tröjan och undrar lite över de rätstickade varven nedtill. Ska man sticka 1 varv slät och 1 varv aviga totalt 2. Varv eller 2 varv rätstickning totalt 4 varv (2 "åsar"?

22.01.2017 - 11:59

DROPS Design answered:

Hej Vala. Du skal strikke 2 v RÄTST: 1 v rätt och 1 v avigt

23.01.2017 - 14:26

country flag Judith wrote:

Beim besten Willen und auch nach dem Lesen der Antworten zum selben Problem weiter unten, ich verstehe nicht, was nach den 45 cm gemacht werden soll. Es heisst nach den 32 Maschen glatt und 6 Krausrippen die Arbeit wenden und zurückstricken, dann am Ende der Reihe 6 Maschen neu aufnehmen. Das wäre dann bei mir am Armausschnitt, was keinen Sinn macht, weil es ja die Blende vom Ausschnitt sein soll. Muss ich die Maschen links von den Krausmaschen aufnehmen? oder auf der anderen Seite oder wo?

22.01.2017 - 10:14

DROPS Design answered:

Liebe Judith, Runde beginnen an der Seite, so sollen Sie die ersten 31 M glatt re stricke, 6 m Kraus recht stricken, von jetzt werden Sie hin und zurück stricken, dh wenden und von der Rückseite stricken Sie: 6 M Kraus re, glatt (= li von der Rückseite) bis zur Ende der Reihe (= Mitte Vorne) und 6 neue M. anschlagen, wenden. Bei der nächste Reihe werden Sie jett die Maschen für die Armlöcher abketten, und dann jedes Teil separat stricken. Viel Spaß beim stricken!

23.01.2017 - 10:37