Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt frá réttu, brugðið frá röngu | |
= brugðið frá réttu, slétt frá röngu | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir | |
= 2 lykkjur slétt saman í aftari lykkjubogann | |
= takið 1 lykkju óprjónaða, 2 lykkjur slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
DROPS Baby 20-12 |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Peysa fyrir börn, prjónuð frá hlið í garðaprjóni og gatamynstri úr DROPS BabyMerino.
DROPS Baby 20-12 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Þegar snúið er við í miðri umferð er 1. lykkja tekin óprjónuð í næstu umferð. Herðið síðan á þræði og haldið áfram eins og áður. Þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er að prjóna vinstra framstykki, haldið áfram út að ermi, meðfram bakstykki, að hinni erminni og hægra framstykki. PEYSA: Fitjið laust upp 62-68-78 (88-96) lykkjur á prjón 2,5 með ljós bleikur Baby Merino og prjónið 8 umferðir slétt fyrir kant að framan (umferð 1 = rétta). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Yfir fyrstu 15 lykkjur er prjónað slétt JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir (aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn). Prjónið síðan slétt yfir þær lykkjur sem eftir eru á prjóni = 70-76-86 (96-104) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur, uppslátturinn er prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. Prjónið síðan þannig: Prjónið fyrstu 23 lykkjur samkvæmt M.1, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar slétt í hverri umferð. JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir þannig – LESIÐ LEIÐBEININGAR: * Prjónið yfir fyrstu 30-32-38 (42-47) lykkjur, snúið við og prjónið til baka, prjónið yfir fyrstu 46-50-57 (65-70) lykkjur, snúið við og prjónið til baka, prjónið yfir fyrstu 64-70-80 (90-98) lykkjur, snúið stykkinu og prjónið til baka, prjónið yfir allar 70-76-86 (96-104) lykkjur, snúið við og prjónið til baka *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 16-17½-19½ (20½-22) cm frá uppfitjunarkanti mælt nákvæmlega neðan við fyrsta snúninginn (þ.e.a.s. beint yfir M.1). Klippið frá. Setjið síðan fyrstu 41-45-52 (60-65) lykkjur frá neðri kanti á þráð (= hlið). Fitjið upp 36-42-46 (60-70) nýjar lykkjur yfir lykkjur á þræði (þ.e.a.s. á undan 29-31-34 (36-39) lykkjur sem eftir eru á prjóni) fyrir ermi áður en haldið er áfram þannig (umferð 1 = frá réttu): * prjónið yfir fyrstu 41-47-51 (65-75) lykkjur, snúið stykkinu og prjónið til baka, prjónið yfir fyrstu 59-67-74 (90-103) lykkjur, snúið stykkinu og prjónið til baka, prjónið yfir allar 65-73-80 (96-109) lykkjur, snúið og prjónið til baka *. Endurtakið frá *-*. Þegar stykkið mælist 16-17-18 (18-20) cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir ermi mælt þar sem stykkið er breiðast (= neðri kantur) fellið af síðustu 36-42-46 (60-70) lykkjur neðst á ermi. Klippið frá. Setjið til baka 41-45-52 (60-65) lykkjur af þræði í hlið á prjóninn og setjið eitt prjónamerki í stykkið. Haldið síðan áfram að prjóna neðst á stykki eins og áður frá *-* alveg eins og á framstykki (umferð 1 = frá réttu). Þegar stykkið mælist 28-31-35 (37-40) cm frá prjónamerki mælt nákvæmlega neðan við fyrsta snúning (þ.e.a.s. beint yfir M.1) klippið frá. Setjið fyrstu 41-45-52 (60-65) lykkjur við neðri kant á þræði (= hlið). Fitjið upp 36-42-46 (60-70) nýjar lykkjur yfir lykkjur á þræði (þ.e.a.s á undan 29-31-34 (36-39) lykkjum sem eftir eru á prjóni) fyrir ermi áður en haldið er áfram eins og áður frá *-* alveg eins og á undan hinni erminni þar til prjónaðar hafa verið jafnmargar umferðir á báðum ermum. Fellið af síðustu 36-42-46 (60-70) lykkjur neðst á ermi. Klippið frá. Setjið til baka þær 41-45-52 (60-65) lykkjur af þræði í hlið á prjóninn áður en haldið er áfram frá neðst á stykki eins og áður frá *-* eins og á framstykki (umferð 1 = rétta). Þegar prjónaðar hafa verið jafnmargar umferðir á hægra framstykki og á vinstra framstykki (kantur að framan er ekki talinn með) er næsta umferð frá réttu prjónuð þannig: Yfir fyrstu 23 lykkjur er prjónað slétt JAFNFRAMT er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir (fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman). Prjónið síðan slétt yfir þær 47-53-63 (73-81) lykkjur sem eftir eru = 62-68-78 (88-96) lykkjur. Prjónið síðan kant að framan þannig (umferð 1 = ranga): Prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir 3 hnappagötum þannig (þ.e.a.s. frá neðri kanti og upp að hálsmáli): Prjónið 41-45-53 (61-65) lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, prjónið 7-8-9 (10-12) lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, prjónið 7-8-9 (10-12) lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Snúið við og prjónið slétt til baka yfir allar lykkjur. Prjónið síðan 5 umferðir slétt yfir allar lykkjur áður en fellt er laust af frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið saman saum undir ermum kant í kant með smáu fínu spori. Saumið tölur í. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant neðst á peysunni með heklunál nr 3 með litnum hvítur Baby Merino þannig: Heklið 1 fastalykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu af 3 loftlykkjum, hoppið fram ca 1 cm, 1 fastalykkja*, endurtakið frá *-*. Heklið á sama hátt neðst í kringum ermar. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (121)
Patricia S wrote:
Bonjour, Merci beaucoup pour votre aide. Je tricote le modèle 12/18. Le col ne s’arrondit pas. Est-ce normal ? De plus, je ne comprends pas comment pas comment faire pour les manches après 19,5 cm. J’ai 86 mailles. Que dois-je faire ensuite ? Merci pour vos explications simples pour une non-pro :-)
03.11.2023 - 22:19DROPS Design answered:
Bonjour Patricia, le col va s'arrondir progressivement car on tricote moins de rangs sur les dernières mailles (fin de rang, vu sur l'endroit = côté encolure) qu'en bas du gilet (=début de rang sur l'endroit = bas du gilet); en fonction de la taille, on le voit plus ou moins vite. Quand le devant mesure 19,5 cm (après un rang sur l'envers), coupez le fil, mettez en attente les 52 premières mailles, vu sur l'endroit (côté du gilet). Montez 46 mailles (bas de la manche) et tricotez les mailles restant sur l'aiguille et tricotez maintenant les rangs raccourcis comme indiqué. Bon tricot!
06.11.2023 - 09:25Patricia wrote:
Hello, I love this pattern but I am about to givre un because I don’t understand WhatsPad péans : « work the first 23 sts on needle in M.1, and K remaining sts on every row. AT THE SAME TIME work shortened rows as follows – see KNITTING TIP: * work the first 30-32-38 (42-47) sts« What does that mean ? IN franchement if possible. Trankil you
29.10.2023 - 17:47Micheline Léonard wrote:
Bonjour je souhaiterai une précision sur le point de repérage de mesure pour le devant: juste au dessus de m1 ,mais du côté du col ou en bas dans le motif comme l ouvrage part en biais pour ce gilet 2012 (que j adore faire) merci
30.09.2023 - 18:20Micheline Léonard wrote:
Bonjour je souhaiterai une précision sur le point de repérage de mesure pour le devant: juste au dessus de m1 ,mais du côté du col ou en bas dans le motif comme l ouvrage part en biais pour ce gilet 2012 (que j adore faire) merci
30.09.2023 - 18:18DROPS Design answered:
Bonjour Mme Léonard, on mesure le long du côté le plus large = à droite, vu sur l'endroit, ce qui correspond au bas du gilet. Bon tricot!
02.10.2023 - 10:00Magdalena Lambropoulos wrote:
Hi I love this pattern but wish that you would write it in separate lines instead of everything just following in one huge paragraph. I do however change the format to lines. Thank you for the lovely patterns. :)
22.07.2023 - 07:57Birgit Gotthardsen wrote:
Hej Kan man strikke drops design 20-12 i voksen størrelse - hvis ja - hvordan gør man så det? Ha en god dag Hilsen Birgit Gotthardsen
16.07.2023 - 14:04DROPS Design answered:
Hei Birgit Design avd. har ingen mulighet til å omskrive denne baby jakken til en voksen str. Men ta en titt på våre dame jakker som er strikket sidelengs. Kanskje du finner en lignende som du vil strikke. Søk på: Gratis Oppskrifter / DAME / Jakker & Cardigans / og under Filter velg sidelengs under Strikkeretning. mvh DROPS Design
25.07.2023 - 08:17Karen wrote:
I have a question regarding work the first 30-32-38 (42-47) sts, turn piece and work return row, work the first 46-50-57 (65-70) sts, turn piece. Are the short rows part of the pattern or knitted separately as when I count the stitches in pattern I get 26 stitches.
09.04.2023 - 14:30DROPS Design answered:
Dear Karen, the first stitches of the shortened rows will include the stitches in M.1. Happy knitting!
10.04.2023 - 17:13Diane wrote:
Bonjour, Pourriez-vous m'expliquer (6-9mois): Premier rang avec raccourci On tricote les 23 m de M1 et le reste en point mousse jusqu'à 32 m.??? 2ieme rang: les 23 m. de M1 et le reste en point mousse??? 3ième rang: 23m de M1 et le reste en point mousse jusqu'à 50???
26.03.2023 - 23:04DROPS Design answered:
Bonjour Diane, tricotez les rangs raccourcis ainsi: tricotez 32 m (= rang 1 de M.1 + 9 m point mousse), tournez et tricotez ces 32 m (9 m end + rang 2 de M.1), tournez, tricotez 50 m (rang 3 de M.1 + 27 m end), tournez et tricotez ces 50 m (27 m end + rang 4 de M.1), tournez et tricotez 70 m (rang 5 de M.1 + 47 m end), tournez et tricotez ces 70 m (47 m end + rang 6 de M.1), tournez, tricotez 76 m (rang 7 de M.1 + 53 m end), tournez et tricotez ces 76 m (53 m end, rang 8 de M.1). Répétez ces 8 rangs. Bon tricot!
27.03.2023 - 09:40Karen wrote:
Continue as follows: work the first 23 sts on needle in M.1, and K remaining sts on every row. Does this mean I knit 23 sts on the needle then I follow the pattern in M1 first row. How many rows do I need to do this for? I know the next part is short rows.
24.03.2023 - 15:17DROPS Design answered:
Dear Karen, the first 23 stitches at the bottom of piece are worked as shown in diagram M.1 (first row = from RS); and all remainging stitches will be knitted on every row (= garter sttich). Happy knitting!
24.03.2023 - 15:28Karen wrote:
In this section K 1 row from WS on all sts. I'm on the right side and the tail is at the top and working Yarn if I flip it the tail is now at the left end along with working yarn. How can I knit ws on all of the row.
25.02.2023 - 00:55