Sophie by the Sea |
|
|
|
Hekluð peysa fyrir börn með vösum úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Baby 20-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta hálfa stuðli í hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Hver umferð endar með 1 hálfum stuðli í 2. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið er út fyrir ermar í lok hverrar umferðar þannig: Heklið jafn margar loftlykkjur og fjöldi hálfa stuðla sem á að auka út, snúið stykkinu, heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni (nú eru 2 fastalykkjur í byrjun á umferð = 1 loftlykkja + 1 fastalykkja), heklið 1 hálfan stuðul í hverja og eina af þeim loftlykkjum sem eftir eru áður en haldið er áfram að hekla eins og áður. Í lok næstu umferðar í hlið er hekluð 1 fastalykkja í síðasta hálfa stuðulinn áður en aukið er út fyrir ermi. Þetta er gert þannig að ekki verði ójafn kantur undir ermi. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið lykkjum í byrjun hverrar umferðar frá hlið þannig: Skiptið út þann fjölda hálfa stuðla sem á að fækka mínus 1 hálfum stuðli með 1 keðjulykkju í hvern hálfa stuðul, heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir síðasta hálfa stuðulinn sem á að fækka um og heklið síðan eins og áður. Þetta er gert til að ekki verði ójafn kantur undir ermi. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = skiptið út öðrum hálfa stuðli frá miðju að framan með 1 loftlykkju. Í næstu umferð er heklaður 1 hálfur stuðull um þessa loftlykkju. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 8, 12 og 16 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 9, 13 og 17 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 10, 15 og 20 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 11, 16 og 21 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 11, 17 og 23 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er hægra framstykkið heklað jafnframt því sem aukið er út fyrir ermi, vinstra framstykkið er heklað jafnframtu því sem aukið er út fyrir ermi, síðan eru bæði framstykkin sett saman og heklað er niður yfir bakstykki, ermalykkjum er fækkað og síðan er heklað yfir bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 29-31-35 (38-41) loftlykkjur (meðtaldar 2 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál nr 4,5 með litnum natur. Fyrsta umferðin er hekluð frá miðju að framan þannig: 1 hálfur stuðull í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 3 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 3-5-4 (2-5) loftlykkjur, hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 hálfan stuðul í hverja af 2-4-3 (1-4) loftlykkjum sem eftir eru = 23-25-28 (30-33) hálfur stuðull í umferð, snúið stykkinu. Haldið áfram að hekla 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 15-16-18 (19-21) cm fitjið upp nýja hálfa stuðla fyrir ermi, fitjið upp í lok hverrar umferðar að hlið – LESIÐ ÚTAUKNING: 5 hálfir stuðlar 2-2-3 (3-4) sinnum og síðan 18-20-17 (25-25) hálfur stuðull 1 sinni = 51-55-60 (70-78) hálfir stuðlar í umferð fyrir öxl/ermi – haldið áfram með hálfa stuðla. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm setjið eitt prjónamerki 10-11-12 (13-13) hálfir stuðlar frá miðju að framan – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umferð er EKKI heklað yfir síðustu 10-11-12 (13-13) hálfa stuðla við miðju að framan, en heklaður er 1 hálfur stuðull í hvern af 41-44-48 (57-65) hálfum stuðlum sem eftir eru JAFNFRAMT er aukið út um 1 hálfan stuðul við prjónamerki með því að hekla 2 hálfa stuðla í síðasta hálfa stuðul við prjónamerki. Nú eru 42-45-49 (58-66) hálfir stuðlar í umferð. Geymið stykkið og heklið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykkin nema gagnstætt – ekki fella af fyrir hnappagötum í kanti að framan. BAKSTYKKI: Heklið hálfan stuðul yfir 42-45-49 (58-66) hálfa stuðla á vinstra framstykki (ermi/öxl), heklið 12-14-16 (18-18) loftlykkjur (= aftan í hnakka) og heklið hálfan stuðul yfir 42-45-49 (58-66) hálfa stuðla á hægra framstykki = 96-104-114 (134-150) hálfir stuðlar. Haldið áfram með hálfa stuðla þar til stykkið mælist 7-7½-7½ (8-8) cm. Fækkið síðan lykkjum í ermum í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig – LESIÐ ÚRTAKA: 18-20-17 (25-25) hálfir stuðlar 1 sinni, 5 hálfir stuðlar 2-2-3 (3-4) sinnum = 40-44-50 (54-60) hálfir stuðlar í umferð. Endið þegar bakstykki mælist 26-28-31 (33-36) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og passið uppá að fram- og bakstykki séu jafn löng. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 2 umferðir með hálfum stuðlum fram og til baka með heklunál nr 4,5 með litnum natur yfir 34-38-42 (46-46) hálfa stuðla í kringum hálsmál. VASI: Heklið 5-6-7 (8-9) loftlykkjur (meðtaldar 2 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál nr 4,5 með litnum natur. Heklið 1 hálfan stuðul í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 hálfur stuðull í hverja af 2-3-4 (5-6) næstu loftlykkjum = 4-5-6 (7-8) hálfur stuðull. Snúið stykkinu. Heklið síðan 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 1 hálfan stuðul í hvorri hlið með því að hekla 2 hálfa stuðla í síðasta hálfa stuðul í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í hverri umferð alls 3 sinnum = 10-11-12 (13-14) hálfa stuðla. Heklið síðan hálfan stuðul þar til vasinn mælist ca 5-5-6 (7-7) cm. Klippið frá og festið enda. Heklið síðan kant í kringum allan vasann með heklunál nr 4,5 með litnum ljós bleikur þannig – byrjið efst í horni: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju * endurtakið frá *-* meðfram efri kanti á vasa (= ca 4-4-5 (5-6) bogar), heklið síðan í kringum afganginn á vasanum þannig: * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 umferð/hálfan stuðul, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar. Heklið hinn vasann á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið erma- og hliðarsauma í eitt – saumið kant í kant með smáu spori – passið uppá að saumurinn undir ermum verði eins jafn og mögulegt er. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið einn vasa í hvort framstykki ca 3-3-4 (5-6) cm frá neðri kanti og ca 5-5-6 (6-7) ca frá miðju að framan. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í lokin meðfram báðum köntum að framan og í kringum kraga með heklunál nr 4,5 með litnum ljós bleikur – byrjið neðst á hægra framstykki: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 umferð, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* að 1 cm ofan við efsta hnappagat. Haldið síðan áfram í kringum kraga þannig: * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* í kringum allan kragann og endið 1 cm ofan við efstu tölu. Heklið síðan meðfram vinstri kant að framan þannig: * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 umferð, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið neðst á vinstra framstykki. Heklið kant í lokin í hring neðst á báðum ermum með heklunál nr 4,5 með litnum ljós bleikur þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 umferð, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
Karen wrote:
Ok, ik zie het mijn fout ligt in het begin. Het 1e hstk moet in 2e l, en dan verder juist? Had ook nog een vraagje bij het meerderen (ja sorry,beginneling) 5l=5hstk meer op de volgende toer, maar na die 5l moet je dan nog 2l doen om te keren? anders kom ik niet aan +5hstk in de volgende toer?
19.03.2012 - 13:56DROPS Design answered:
Ja, klopt. Betreffend de tweede vraag: het is hetzelfde principe. Lees ook TIP VOOR HET MEERDEREN. Je meerdert door eerst het aantal l te haken (dus eerst 5 l), keert het werk en haakt 1 v in de 2e l vanaf de haak = 2 v aan het begin van de toer = 1 l en 1 v.
20.03.2012 - 09:34Karen Cauwenbergh wrote:
Beste, als ik het patroon opzet met 35 l kom ik maar aan 27 hkst op de toer ipv 28. Zie niet wat ik fout doe. Heb het al uitgetekend.
18.03.2012 - 08:20DROPS Design answered:
Je moet haken als volgt: 1 hstk in de 3e l vanaf de haak (2 l = 1 hstk + 1 hstk in de 3e l = 2 hstk). Dan 1 hstk in de volgende 3 l (= 5 hstk), 5 keer 4 hstk (20 hstk) en 4 l over op de nld, sla 1 over + 3 hstk in de laatste l (3 hstk) = 5 + 20 + 3 = 28 hstk.
19.03.2012 - 11:33DROPS Design wrote:
Vi har nå enderet økningene til erme.
20.01.2012 - 09:35DROPS Design NL wrote:
Het patroon is correct. Met de juiste haakstekenverhouding zou u een hoogte van het armsgat krijgen van ongeveer 11 tot 15 cm afhankelijk van de maat, die u maakt (14 toeren per 10 cm in de hoogte). Aan het eind van de mouw zit u aan ongeveer 6 tot 8 hoogte afhankelijk van de maat. Vergeet niet dat u meerdert aan het eind van iedere toer. Succes.
11.01.2012 - 15:07An wrote:
Beste, ik heb het patroon exact gevolgd en ben nu halverwege het achterpand. Wanneer ik echter het werkstuk dubbelvouw en dus het voorpand en achterpand op elkaar leg, blijkt dat de mouwtjes aan het uiteinde veel en veel te smal zijn. Ik heb het patroon al 100 keer opnieuw doorgelezen maar begrijp niet wat ik verkeerd heb gedaan. Zit er wellicht dan toch een fout in het patroon? Graag uw reactie. Mvg, An
09.01.2012 - 22:02Britt-Mari Glyssbo wrote:
Efter att ha virkat h framstycke två ggr inser jag att ök för ärmen inte stämmer. Ärmen blir för smal. Ökningarna borde göras dubbelt så fort - ni måste göra ändringar så att inte fler arbetar i onödan. Nu drar jag upp och gör om ännu en gång, men efter vad jag själv tror blir bra.
09.01.2012 - 18:21Drops Design wrote:
Hi Cheryl, you should try follow the tip for how to increase. There is also a video linked from the pattern on how to inc.
14.11.2011 - 19:24Cheryl wrote:
I love the pattern but confused about how to start the sleeve and the back part of the pattern. Thanks for your help.
13.11.2011 - 08:01Cheryl wrote:
I love the pattern but confused about how to start the sleeve and the back part of the pattern. Thanks for your help.
13.11.2011 - 08:01Cheryl wrote:
I love the pattern but confused about how to start the sleeve and the back part of the pattern. Thanks for your help.
13.11.2011 - 08:01