Sweet Little Cupcake |
|
|
|
Sett með hekluðum kjól og húfu fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Baby 20-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KJÓLL: HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta hálfa stuðli í hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur og fyrstu fastalykkju í hverri umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju. Hver umferð með hálfum stuðli endar með 1 hálfum stuðli í 2. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar og hver umferð með fastalykkjum endar með 1 fastalykkju í 1. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar. ÚRTAKA 1: Fækkað er um 1 hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla saman, þ.e.a.s. heklið einn hálfan stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju og dragið síðasta hálfa stuðulinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni. ÚRTAKA 2 (á við um handveg og hálsmál): Fækkið lykkjum í byrjun á umferð þannig: Skiptið út 1 fastalykkju með 1 keðjulykkju. Fækkið lykkjum í lok umferðar þannig: Snúið stykkinu þegar eftir eru nægilega margar fastalykkjur sem á að fækka og heklið til baka. FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN (á við um dúska að framan): Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu lykkju, takið upp þráðinn, stingið heklunálinni í næstu lykkju, takið upp þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka í tveimur stykkjum. FRAMSTYKKI: Heklið 68-74-81 (89-95) loftlykkjur (meðtaldar 2 loftlykkjur til að snúa við) með heklunál 4,5 með litnum ljós bleikur. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – heklið 1 hálfan stuðul í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 hálfan stuðul í hverja af næstu 3 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 hálfur stuðull í hverja af næstu 4 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* þar til 2-3-5 (3-4) loftlykkjur eru eftir, hoppið yfir 1 loftlykkju og endið með 1 hálfum stuðli í hverja af síðustu 1-2-4 (2-3) loftlykkjum = 54-59-65 (71-76) hálfur stuðull. Heklið síðan 1 hálfan stuðul í hvern hálfan stuðul – ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 hálfan stuðul í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA 1. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 2-2½-3 (3-3½) cm millibili alls 9-9-9 (10-10) sinnum = 36-41-47 (51-56) hálfur stuðull í umferð. Þegar stykkið mælist 22-24-30 (33-37) cm (úrtöku á nú að vera lokið) heklið nú 2 umferðir með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju). NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: Heklið 2-1-1 (2-1) fastalykkjur, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju (= gatakantur fyrir snúru). Heklið nú fastalykkjur yfir allar lykkjur (eftir gataumferð er hekluð 1 fastalykkja í hverja fastalykkju og 2 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga = 36-41-47 (51-56) fastalykkjur í umferð. Þegar stykkið mælist 24-26-32 (36-40) cm fækkið um 3-4-5 (5-6) fastalykkjur í hvorri hlið fyrir handveg – LESIÐ ÚRTAKA 2! Fækkið síðan lykkjum í hvorri hlið í hverri umferð þannig: 2 fastalykkjur 1-1-1 (2-2) sinnum og 1 fastalykkja 2 sinnum = 22-25-29 (29-32) fastalykkjur. Þegar stykkið mælist 29-31-38 (42-47) cm setjið eitt prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 6/9 MÁN, 12/18 MÁN og 2 ÁRA er prjónamerkið sett í miðju fastalykkju í umferð). Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Heklið frá öxl og inn að hálsmáli þar til eftir eru 4-4-5 (5-7) fastalykkjur á undan prjónamerki (í stærð 6/9 MÁN, 12/18 MÁN og 2 ÁRA verður á UNDAN fastalykkju með prjónamerki). Snúið stykkinu. Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli: 2 fastalykkjur 1 sinni og 1 fastalykkja 1 sinni = 4-5-6 (6-6) fastalykkjur eftir á öxl. Þegar eftir eru 3 umferðir að loka máli eru hekluð hnappagöt á öxl þannig: 1-1-2 (2-2) fastalykkjur, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur, 1 fastalykkja í hverja af 1-2-2 (2-2) síðustu lykkjum. Heklið 2 umferðir með fastalykkjum (heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju og 2 fastalykkjur um hvern loftlykkjuboga frá fyrri umferð) = 4-5-6 (6-6) fastalykkjur. Klippið frá og festið enda, stykkið mælist ca 33-36-43 (48-53) cm. Endurtakið í hinni hlið í hálsmáli. BAKSTYKKI: Fitjið upp og heklið eins og framstykki. Fækkið lykkjum fyrir handveg eins og á framstykki = 22-25-29 (29-32) fastalykkjur. Þegar stykkið mælist ca 31-34-41 (46-51) cm setjið eitt prjónamerki mitt í stykkið (í stærð 6/9 MÁN, 12/18 MÁN og 2 ÁRA er prjónamerki sett í miðju fastalykkju í umferð). Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli þannig: Heklið frá öxl og inn að hálsmáli þar til eftir eru 5-5-6 (6-8) fastalykkjur á undan prjónamerki (í stærð 6/9 MÁN, 12/18 MÁN og 2 ÁRA verður á UNDAN fastalykkju með prjónamerki). Snúið stykkinu. Fækkið síðan um 1 fastalykkju í 2 næstu umferðum frá hálsmáli = 4-5-6 (6-6) fastalykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 33-36-43 (48-53) cm setjið eitt prjónamerki = mitt á öxl. Heklið 3 umferðir með fastalykkjum sem liggja undir, klippið frá og festið enda. Endurtakið í hinni hlið í hálsmáli. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma kant í kant með smáu fínu spori. Saumið niður tölur á bakstykki í línu með prjónamerki á öxl. HEKLAÐUR KANTUR: Byrjið á hlið og heklið með heklunál 4,5 með litnum natur í kringum báða handvegi, hálsmál og öxl í eitt þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 2 fastalykkjur/2 umferðir, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 2 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í fyrstu fastaalykkju. Heklið kant í lokin meðfram neðri kant á kjól með heklunál 4,5 með litnum natur þannig – byrjið í hlið: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. SNÚRA MEÐ FLÖTUM DÚSKUM: Heklið einn dúsk þannig: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Fyrsta fastalykkjan í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Leggið stykkið flatt og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin = 4 fastalykkjur. UMFERÐ 8: Heklið saman fastalykkjur tvær og tvær = 2 fastalykkjur. Heklið annan dúsk. Heklið 1 keðjulykkju mitt þar sem dúskurinn er minnstur þar sem hann var heklaður flatur í gegnum bæði lögin, heklið loftlykkju þar til loftlykkjusnúran mælist ca 75-80-85 (95-100) cm. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferð á kjólnum (byrjið við miðju að framan). Endið með því að hekla loftlykkjusnúruna í seinni dúskinn með 1 keðjulykkju mitt þar sem hann er minnstur. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: HEKLLEIÐBEININGAR-1: Fyrsta hálfa stuðli í hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur Hver umferð endar með 1 hálfum stuðli í 2. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Fyrsta hálfa stuðli í byrjun á hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Hver umferð enda með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla í næst síðasta hálfa stuðul. HÁLFIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Fækkað er um einn hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla saman, þ.e.a.s. heklið einn hálfan stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju og dragið að lokum þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni. FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu lykkju, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru eyrnaleppar heklaðir fram og til baka, síðan er húfan hekluð í hring. EYRNALEPPUR: Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum ljós bleikur. Heklið 1 hálfan stuðul í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 hálfan stuðul í 2 næstu loftlykkjur = 4 hálfir stuðlar, snúið stykkinu. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið 1 hálfan stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 1 hálfan stuðul í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í hverri umferð alls 6-7 (8) sinnum = 16-18 (20) hálfir stuðlar. Haldið áfram með hálfa stuðla og endið þegar eyrnaleppurinn mælist 6-7 (8) cm. Geymið stykkið og heklið hinn eyrnaleppinn á sama hátt. HÚFA: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 7-8 (9) loftlykkjur, heklið hálfa stuðla yfir annan eyrnaleppinn, heklið 18-20 (22) loftlykkjur (= miðja að framan), heklið hálfa stuðla yfir hinn eyrnaleppinn, heklið 7-8 (9) loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 64-72 (80) hálfir stuðlar. Haldið áfram með hálfa stuðla hringinn. Þegar stykkið mælist 8-10 (11) cm frá kanti við miðju að aftan er næsta umferð hekluð með úrtöku þannig: * 1 hálfur stuðull í hvern af fyrstu 6 lykkjum, heklið síðan næstu 2 hálfa stuðla saman – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn (nú hefur fækkað um 8-9-10 hálfa stuðla í umferð). Heklið 1 umferð án úrtöku og síðan næstu umferð þannig: * 1 hálfur stuðull í hverja af fyrstu 5 lykkjum, heklið síðan næstu 2 hálfa stuðla saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (með 1 hálfum stuðli færri á milli úrtöku í hvert skipti sem lykkjum er fækkað) 3 sinnum til viðbótar = 24-27 (30) hálfir stuðlar í umferð. Heklið 2-2 (3) umferðir án þess að fækka lykkjum. Næsta umferð er hekluð þannig: * 1 hálfur stuðull í fyrstu lykkju, síðan eru næstu 2 hálfu stuðlarnir heklaðir saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16-18 (20) hálfir stuðlar. Í næstu umferð eru allir hálfu stuðlarnir heklaðir saman 2 og 2 = 8-9 (10) hálfir stuðlar til baka í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar og herðið að, húfan mælist ca 17-19 (21) cm ofan frá topp og niður. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál 4,5 með litnum natur í kringum opið á húfunni þannig: * 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju/umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. SNÚRA MEÐ DÚSK: Byrjið á dúsknum: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 og litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. ATH: 1. fastalykkja í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Leggið dúskinn flatan og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin = 4 fastalykkjur. UMFERÐ 8: Heklið fastalykkjurnar saman 2 og 2 = 2 fastalykkju. Heklið 22-26 (30) cm með loftlykkjum fyrir snúru og festið með 1 keðjulykkju neðst mitt á öðrum eyrnaleppnum. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR: Heklið ca 7 umferðir með kanti í kringum húfuna. Byrjið á umferð 2 ofan frá toppi á húfu og heklið 1. umferð þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn á toppnum á húfunni og endið með keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Heklið síðan 6 umferðir til viðbótar (eða að óskuðu máli) alveg eins með ca 2-2½ cm á milli hverra umferða. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (26)
Anna wrote:
Ik wil ipv een jurkje een hemdje van dit patroon maken. Dus ik wil het patroon korter maken. Voor de maat 2 jr. Met hoeveel lossen moet ik dan beginnen, en hoeveel keer moet ik minderen? Oftewel, waar in het patroon begin ik dan? Ik hoop dat jullie me willen helpen. Bedankt en een groet, Anna
12.04.2013 - 10:09DROPS Design answered:
Hoi Anna. We kunnen je niet helpen met individuele aanpassingen op onze gratis patronen. Je kunt hiervoor beter contact opnemen met jouw verkooppunt of probeer zelf te puzzelen met een juiste oplossing. Veel haakplezier.
17.04.2013 - 22:22Silke wrote:
Hallo. Ihr habt tolle Muster und ausführliche Anleitungen, die selbst ein blutiger Anfänger wie ich versteht. Toll! Das Kleid ist toll geworden. Bin gerade bei der Mütze und glaube einen kleinen Fehler entdeckt zu haben. In der Häkelinfo 2 heißt es die Runde! mit H-Stb in die 2. Lm schließen. Ich denke es sollte die Km sein. Zumindest sieht das Ergebnis besser aus und die 2 Lm als Anfang der Runde machen dann wieder Sinn! DANKE
29.12.2012 - 19:50Amalia wrote:
Salve, vorrei realizzare questo modello,ma ho riesco a capire il lavoro. Mi spego: Il lavoro inizia facendo 4 mmb su 4 cat, saltare 1 cat e ripetere 4mmb...il mio dubbio è quando io lavoro 4 mmb devo fare anche 1 cat dato che devo saltarne 1?spero di nn avervi confuso..certa di una vostra risposta porgo cordiali saluti
30.10.2012 - 08:09DROPS Design answered:
No, ha capito benissimo! è proprio così come dice, non deve fare 1 cat. Se va a vedere le cat iniziali "Avviare 68-74-81 (89-95) catenelle..." e poi alla fine della 1° riga: "= 54-59-65 (71-76) m.m.a...." Può vedere che le m.m.a alla fine della riga sono diminuite, proprio perché salta alcune cat.(per formare i buchini nel motivo.
03.11.2012 - 01:30Amalia wrote:
Salve, vorrei realizzare questo modello,ma ho riesco a capire il lavoro. Mi spego: Il lavoro inizia facendo 4 mmb su 4 cat, saltare 1 cat e ripetere 4mmb...il mio dubbio è quando io lavoro 4 mmb devo fare anche 1 cat dato che devo saltarne 1?spero di nn avervi confuso..certa di una vostra risposta porgo cordiali saluti
30.10.2012 - 08:09DROPS Design answered:
è stata chiarissima. Prima mi scuso per non aver risposto prima, ma mi è sfuggito questa domanda. E' giusto come c'è scritto, NON bisogna fare la catenella. Saranno leggermente meno maglie alla fine.
21.11.2012 - 17:42Hulda Henriksdottir wrote:
Er i gang med huen og har brug for lidt hjælp. Der er åbenbart noget jeg ikke forstår - tror jeg. I hvert fald bliver begyndelsen af hver omgang forskudt - dvs når man kigger på huen så går den sådan skråt, altså begyndelsen af omgangen, og det kan man jo godt se. Hvad er det jeg gør forkert?
16.10.2012 - 23:09DROPS Design answered:
Prøv at læs hækleinfo i begyndelsen af opskriften, så tror jeg det hjælper. God fornøjelse!
16.11.2012 - 10:05Christina wrote:
Hvordan erstatter man den 1. Halvst i hver række med 2 luftmasker. Svarer det til at jeg hver gang jeg begynder på en ny række, hækler 2 lm og starter rækken med en halvst i 3. Maske fra nålen? Og hvordan tager man ind i siden?
29.02.2012 - 18:56DROPS Design answered:
Ja det stemmer, du hækler 2 lm istedet for 1.Halvst på rækken. Øverst i opskriften beskriver vi både hvordan du tager ind og hvordan du lukker af. God fornøjelse!
01.03.2012 - 15:12