DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 78-8
DROPS Design: Mynstur nr E-099
--------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L - XL - XXL
Efni: DROPS Safran frá Garnstudio
250-300-300-350-400 gr litur nr 17, hvítur.
Og einnig: DROPS Cotton Viscose frá Garnstudio
350-400-450-450-500 gr litur nr 02, natur.

DROPS PRJÓNAR NR 4,5
DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða sú stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni og 1 þræði af Safran + 1 þræði af Cotton Viscose verði 10 x 10 cm.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
-----------------------------------------------

FRAMSTYKKI:
Fitji upp 72-78-84-92-100 l á prjóna nr 4,5 með 1 þræði af Safran + 1 þræði af Cotton Viscose. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan! Skiptið yfir á prjóna nr 5 og haldið áfram með sléttprjón með 3 l garðaprjón á hvorri hlið. (= klauf/op). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 7 cm endar klaufin. Fitjið upp 1 nýja l á hvorri hlið (= kantlykkja til þess að sauma stykkið saman) = 74-80-86-94-102 l. Haldið áfram með sléttprjón og 4 l garðaprjón á hvorri hlið þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir klauf/op. Prjónið nú sléttprjón yfir allar l.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

ÚTAUKNING Á HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l á hvorri hlið með 10 cm millibili alls 3 sinnum = 80-86-92-100-108 l.

MYNSTUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29 cm er prjónað áfram með garðaprjóni yfir allar l.

V-LAGA HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist ca 33-34-35-36-37 cm – passið uppá að næsta umf er prjónuð frá röngu – prjónið miðju 6 l brugðið í 4 umf = 4 umf garðaprjón sem eru gagnstæðir miðað við þær l sem eftir eru (aðrar l eru prjónaðar slétt í öllum umf). Í næstu umf skiptist stykkið við miðju við op við hálsmál og helmingur l eru settar á band.
FYRRI HLUTI: Haldið áfram með garðaprjón og 3 l við hálsmál sem eru prjónaðar brugðnar í öllum umf.

HANDVEGUR: Jafnframt þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39 cm er fellt af fyrir handveg á hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 4 l 1 sinni, 3 l 0-1-1-1-2 sinnum, 2 l 1-1-2-3-3 sinnum og 1 l 4-3-3-4-4 sinnum.

HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54 cm er fellt af 7 l við miðju að framan við hálsmál. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 4 sinnum = 14-15-16-17-18 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62 cm.
SEINNI HLUTI: Setjið l af bandi aftur til baka á prjóninn og prjónið upp eins og FYRRI HLUTI.
ATH: Umferð 1 er prjónuð frá miðju að framan. Byrjið með að taka upp 1 l í fyrstu l frá hinni hliðinni og prjónið hana saman með 1. l á prjóni. Þetta er gert til þess að styrkja neðri brún á hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykki, en ekki er stykkinu skipt upp við hálsmál. Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60 cm. Fellið nú af miðju 28 l fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 2 l í næstu umf við hálsmál = 14-15-16-17-18 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62 cm.

ERMI:
Fitjið upp 36-38-40-42-44 l (meðtalin 1 kantlykkja á hvorri hlið) á prjóna nr 4,5 með 1 þræði af Safran + 1 þræði af Cotton Viscose. Prjónið garðaprjón í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram með sléttprjón til loka. Jafnframt þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l á hvorri hlið með 3,5 – 3 – 3 - 2,5 - 2,5 cm millibili alls 12-13-13-14-15 sinnum = 60-64-66-70-74 l. Þegar ermin mælist 48-47-46-44-43 cm er fellt af fyrir ermakúpu á hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 5-6-7-9-10 sinnum. Fellið síðan af 2 l á hvorri hlið þar til stykkið mælist 57 cm, að lokum er fellt af 3 l 1 sinni á hvorri hlið. Stykkið mælist ca 58 cm, fellið af þær l sem eftir eru.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.

LISTI Í HÁLSMÁLI:
Takið upp ca 80-86 l í kringum hálsmál á prjóna nr 4,5 með 1 þræði af Safran + 1 þræði af Cotton Viscose. Prjónið 4 umf garðaprjón, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju að klauf/opi.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 78-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Carina wrote:

Kan man sticka detta mönster i en tråd Drops Saffran och en tråd Drops Belle?

05.03.2023 - 11:54

DROPS Design answered:

Hej Carina, DROPS Belle er lidt tykkere end DROPS Viscose, så den vil nok blive lidt mere kompakt. Husk at overholde strikkefastheden som står i opskriften for at få målene i den størrelse du vælger ifølge måleskitsen :)

08.03.2023 - 08:26

country flag Liliane Goret wrote:

Wat een rot draad is die Paris katoen . Heb hem gebreid breedte 50 cm en na een uur gedragen te hebben meet hij al 55 cm . Rekt uit en blijft maar uitrekken . Al dat werk voor niks .

27.04.2022 - 10:46

country flag Amona Elder wrote:

I'm keen to knit this vee neck but can find knitting needle sizes nowhere! What am I missing? Thanks.

25.04.2022 - 00:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Elder, you will find the needle size under the header, just below the sizes and yarn amount. Happy knitting!

25.04.2022 - 08:38

country flag Celine wrote:

Bonjour Je suis débutante dans le tricot et je suis bloquée au niveau de l’emmanchure. Vous notez: tous les 2 rangs : 1 fois 4 m, 0-1-1-1-2 fois 3 m, 1-1-2-3-3 fois 2 m et 4-3-3-4-4 fois 1 m. Ma question va peut être paraître ridicule mais pourriez vous plus me détailler svp car je suis bloquée et j’ai vraiment envis de Le finir. Merci pour votre retour Belle journée

15.03.2022 - 13:26

DROPS Design answered:

Bonjour Celine, vous devez rabattre les mailles au début de chaque rang de chaque côté, autrement dit en début de rang sur l'endroit + en début de rang sur l'envers pour rabattre le même nombre de mailles de chaque côté: rabattez 4 mailles au début des 2 rangs suivants, 3 mailles au début des 0-2-2-2-4 rangs suivants (0-1-1-1-2 fois de chaque côté) etc... Bon tricot!

15.03.2022 - 13:37

country flag Christine AUBERT wrote:

Pour les manches il est dit: " A 48-47-46-44-43 cm de hauteur totale, rabat de chaque côté tous les 2 rangs : 1 fois 3 m, 2 fois 2 m et 5-6-7-8-9-10 fois 1 m, puis 2 m jusqu'à 57 cm de hauteur totale, puis 1 fois 3 m". Quand vous dites : "puis 2m jusqu'à 57cm de hauteur totale", faut-il diminuer de 2m de chaque côté tous les 2 rangs jusqu'à 57 cm? Et combien de mailles doit-il rester: " La manche mesure environ 58 cm de hauteur totale, rabattre les mailles restantes". merci

19.12.2021 - 12:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Aubert, il faut rabattre 2 mailles au début de chaque rang de chaque côté (= sur l'endroit + sur l'envers) jusqu'à ce que la manche mesure 57c m de hauteur totale, le nombre de fois va dépendre de votre tension en hauteur, et la hauteur est ici plus importante que le nombre de mailles restantes, veillez juste à bien avoir rabattu le même nombre de mailles de chaque côté. Bon tricot!

20.12.2021 - 07:44

country flag Simone wrote:

Kan ik dit patroon ook breien met een v-hals? Is het eenvoudig aan te passen?

05.05.2021 - 13:02

DROPS Design answered:

Dag Simone,

Je zou dan steken af kunnen kanten langs de halslijn om een V-vorm te maken in plaats van een split.

05.05.2021 - 13:37

country flag Gauron wrote:

Bonjour.Explication devant : continuer avec 4 m au point mousse de chaque côté pendant 4 rangs. sur photos on se demande si ce n'est pas plutôt 4 rangs de point mousse ?? merci d'avance pour la réponse

21.04.2021 - 20:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gauron, effectivement, il faut tricoter 4 côtes mousse et non 4 rangs point mousse, les explications vont être corrigées, merci pour l'info. Bon tricot!

22.04.2021 - 07:46

country flag Liliane Goret wrote:

Model naxos : u zegt dat het ook met drops Paris kan gemaakt worden maar deze heeft maar 75 meter op 50 gram en safran heeft 160 meter .moet ik dan 12 bollen bestellen ipv 6 welke zijn aangeven bij Paris ? Voor de maat large aub ?

12.04.2021 - 12:02

DROPS Design answered:

Dag Liliane,

Ja dat klopt. Het is dikker garen, dus per 50 gram heb je minder meters en moet je dus meer bollen bestellen. Het totaal aantal meters geeft een goede indicatie en ik denk dat je met 12 bollen redelijk in de buurt komt, maar je kunt voor de zekerheid een extra bol bestellen. Je kunt ook kijken naar hoeveel bollen er in een vergelijkbare trui met Paris gebruikt worden, bijvoorbeeld patroon 221-36, daar heb je ook 600 gram, dus 12 bollen nodig voor maat L.

15.04.2021 - 11:46

country flag Hennie wrote:

Moet deze trui met 2 draden gebreid worden vind ik niet lekker breien

10.02.2021 - 16:19

DROPS Design answered:

Dag Hennie,

Ja, inderdaad met 2 draden. In plaats daarvan zou je ook met 1 draad uit garencategorie C kunnen breien. Bijvoorbeeld met DROPS Paris, dit is ook een katoengaren.

12.02.2021 - 13:13

country flag Sharon Mallett wrote:

I would love to know what yarn I can replace this with in South Africa

06.02.2021 - 08:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mallett, you will find here the list of DROPS stores shipping worldwide - do not hesitate to contact them for any further information. Happy knitting!

08.02.2021 - 08:03