DROPS Vienna
DROPS Vienna
91% Mohair, 9% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS Extra 0-763
DROPS Design: Mynstur nr O-303
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS VIENNA frá Garnstudio
250-300-300-350-400-400 gr litur 20, ljós grár

Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio
200-250-250-250-300-300 gr litur nr 02, þoka

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

TÖLUR:
DROPS TALA NR 522, 2 stykki.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Vienna
DROPS Vienna
91% Mohair, 9% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð).
1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 36 og 44 cm
STÆRÐ M: 37 og 45 cm
STÆRÐ L: 38 og 46 cm
STÆRÐ XL: 40 og 48 cm
STÆRÐ XXL: 42 og 50 cm
STÆRÐ XXXL: 44 og 52 cm
-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp.

PEYSA:
Fitjið upp 127-139-147-159-179-197 lykkjur á hringprjón 7 með DROPS Vienna eða DROPS Melody.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 11-11-12-12-13-13 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, stroff 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið þar til 14-14-15-15-16-16 lykkjur, endið með 3 lykkjur slétt, 11-11-12-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 3 cm er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið 11-11-12-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 11-11-12-12-13-13 lykkjur eru eftir, JAFNFRAMT er fækkað um 17-21-21-21-25-27 lykkjur jafnt yfir, endið umferð með 11-11-12-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni = 110-118-126-138-154-170 lykkjur. Setjið tvö merki í stykkið, 30-32-34-37-41-45 lykkjur inn frá hvorri hlið (bakstykki = 50-54-58-64-72-80 lykkjur).
Haldið áfram í sléttprjóni með 11-11-12-12-13-13 lykkjur í garðaprjóni við miðju að framan í hvorri hlið. Þær 11-11-12-12-13-13 lykkjur sem eru í garðaprjóni = kantar að framan.
Kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni að loka máli.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merki í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 7-8-10-11-11-12 cm millibili alls 4 sinnum = 94-102-110-122-138-154 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 37-37-43-45-47-49 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki.
Stærð S og M: Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 47 cm.
Stærð L-XL- XXL-XXXL: Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 46-48-49-51 og 49-51-51-53 cm) = 102-110-122-134-150-166 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm fellið af 4-6-6-6-6-6 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið (fellið af 2-3-3-3-3-3 lykkjur hvoru megin við merki í hvorri hlið). Síðan er hvort stykki prjónað fyrir sig.

BAKSTYKKI:
Haldið áfram að fella af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 0-1-1-2-4-5 sinnum og 1 lykkja 1-0-1-1-1-2 sinnum = 40-40-44-46-46-48 lykkjur. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af miðju 10-10-12-12-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 14-14-15-16-15-16 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fellið af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki = 25-25-27-28-28-29 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni í kanti að framan. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm fellið af ystu 15-15-15-16-15-16 lykkjur fyrir öxl = 10-10-12-12-13-13 kragalykkjur eftir á prjóni. Prjóni út umferðina.
Með byrjun frá kanti að framan er nú prjónaðar stuttar umferðir yfir kantlykkjur að framan þannig: * Prjónið fram og til baka yfir ystu 5-5-6-6-6-6 lykkjur, fram og til baka yfir allar lykkjur *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 8-8-9-9-9-9 cm, mælt frá þar sem stykkið er styst (mælt frá öxl). Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 30-36-36-36-36-36 lykkjur á sokkaprjón 7.
Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið yfir allar lykkjur.
Þegar stykkið mælist 3 cm er skipt yfir á sokkaprjóna 8. Prjónið 1 umferð í sléttprjóni, JAFNFRAMT er fækkað um 0-4-4-2-2-0 lykkjur jafnt yfir í umferð = 30-32-32-34-34-36 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt merki í byrjun umferðar. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki. Endurtakið útaukningu með 18-12-9-7-4½-4½ cm millibili alls 3-4-5-6-8-8 sinnum = 36-40-42-46-50-52 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-49-48-48-45-44 cm – ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna hærri ermakúpu og breiðari axla – fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (felldar eru af 3 lykkjur hvoru megin við merki). Prjónið síðan stykkið fram og til baka, JAFNFRAMT er haldið áfram að fella af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1-1-1-1-2-2 sinnum, 1 lykkja 0-1-2-3-3-4 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-56-56-57-57-58 cm. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið áður en afgangur af lykkjum er felldur af. Stykkið mælist nú ca 56-57-57-58-58-59 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið kragann saman mitt að aftan og saumið að hnakka. Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-763

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Mieke wrote:

Bedankt voor de reactie maar ik begrijp het niet goed. Als ik steken toevoeg dan wordt de kraag toch breder maar niet de hals volgens mij ?? Zou ook niet weten hoe ik de extra steken moet minderen richting schouder ?? Graag een reactie

15.09.2022 - 16:59

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Je gaf aan dat je steken toe wilt voegen aan de ribbel, dus bij de kraag. Daarmee wordt het voorpand breder bij het deel van de kraag, dus de kraag zelf ook, die doorloopt naar het achterpand.

24.09.2022 - 12:34

country flag Mieke Kouters wrote:

Hallo, ik ga dit vest breien met 3 draden kid silk. Heb het eerder gebreid met melody en vond toen dat de voorpanden wat breder hadden mogen zijn. Kan ik bv 2 of 3 extra steken aan de ribbel toevoegen aan elke kant? Volgens mij maakt dat verder niets uit voor het patroon. Graag advies. Groet Mieke

12.09.2022 - 15:44

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Ja, dat is een goed idee. Je kan aan beide voorpanden aan de kant van midden voor steken toevoegen. Da hals wordt dan wel breder, dus kijk even of je het extra aantal steken weer wilt minderen richting de schouder om de breedte van de kraag wel hetzelfde te houden.

14.09.2022 - 11:53

country flag Mieke wrote:

Hallo, ik ga dit vest breien met 3 draden kid silk. Heb het eerder gebreid met melody en vond toen dat de voorpanden wat breder hadden mogen zijn. Kan ik bv 2 of 3 extra steken aan de ribbel toevoegen aan elke kant? Volgens mij maakt dat verder niets uit voor het patroon. Graag advies. Groet Mieke

10.09.2022 - 19:20

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

Ja, dat zou je kunnen doen. Je maakt dan eigenlijk alleen de kraag wat breder en dit heeft verder geen invloed op het patroon.

02.10.2022 - 16:24

country flag Eileen wrote:

Hello can I use one strand of drops sky and one strand of drops kid silk to obtain the same tension to follow this pattern please?

26.11.2020 - 15:32

DROPS Design answered:

Dear Eileen, to replace Melody (a yarn of Group D), you'd need: either 2 threads of a yarn from group B (Drops Sky) or, if you work with 1 thread of Sky and 1 of Kid Silk, with the same needle as the one recommended, you can make the garment, but it will have a more open texture. You can read more detailed information in the following section: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=5110&cid=19#question3 Happy knitting!

26.11.2020 - 22:57

country flag Susanne Liebe wrote:

Hvad er strikkefastheden? Kan ikke se den i forklaringen

28.04.2020 - 14:57

DROPS Design answered:

Hej Susanne :) DROPS STRØMPEP OG RUNDP (80 cm) nr 8 – eller det p.nr du skal bruge for at få 12 m x 14 p glatstrik på 10 x 10 cm.

28.04.2020 - 15:15

country flag Manja wrote:

Hallo, ich möchte die Jacke stricken mit der Wolle Melody, in S. Nach den ersten Reihen habe ich gemessen u. das Rückenteil ist viel zu groß, jenseits von den angegebenen cm. Gibt es da eine Korrektur? Danke für die Hilfe! 🤗

17.08.2017 - 18:15

DROPS Design answered:

Liebe Manja, stimmt Ihre Maschenprobe? Nach Bündchen werden Sie abnehmen, so daß die Breite stimmt. Viel Spaß beim stricken!

28.08.2017 - 11:52

country flag Coetma wrote:

Merci beaucoup pour ces précieux conseils. Bonne journée

24.03.2017 - 08:47

country flag Coetma wrote:

Merci pour votre réponse trės rapide. Il me reste une question .....quel type de couture pour fixer le col à l'encolure ?

23.03.2017 - 16:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Coetma, vous assemblez les fins de rangs (col) le long des mailles de l'encolure dos, vous pouvez utiliser le même type de couture que pour des manches assemblées au dos et au devant. Bon tricot!

23.03.2017 - 17:19

country flag Coetma wrote:

Bonjour Comment faut il faire pour assembler le col ?

23.03.2017 - 16:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Coetma, Assemblez d'abord entre elles les 2 parties du col (= les 11-13 m (cf taille) tricotées en rangs raccourcis à la fin du devant droit et du devant gauche), puis vous pouvez coudre le col le long de l'encolure dos. Bon tricot!

23.03.2017 - 16:19

country flag Mieke wrote:

Ok bedankt, ik had het verkeerd begrepen maar snap het nu :-)

27.02.2017 - 19:38