Wonderchild |
||||||||||
|
|
|||||||||
Sett fyrir börn með prjónaðri hjálmhúfu og galla með norrænu mynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS Baby 21-4 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. SNÚRA – PRJÓNUÐ Í HRING: * Prjónið 1 l sl, leggið þráðinn fyrir framan stykkið (á móti þér), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, leggið þráðinn aftur fyrir aftan stykkið (frá þér) * , endurtakið frá *-* í öllum umf. Nú myndast hringprjónuð snúra. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá hlið frá miðju að aftan. HÚFA: Fitjið upp 33-38-42 (46-50) l með litnum ljós gráfjólublár á prjóna nr 2,5. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í hægri hlið og fækkað um 1 l í vinstri hlið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 l sl, aukið út um 1 l – Lesið ÚTAUKNING að ofan, prjónið þar til 4 l eru eftir og prjónið 2 l sl saman, prjónið 2 l sl. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. Endurtakið þessar 2 umf þar til stykkið mælist 5½-6-6½ (7-8) cm. Setjið eitt prjónamerki í hægri hlið = hægri eyrnaleppur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fækkið nú um 1 l í hægri hlið og aukið út um 1 l í vinstri hlið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið þar til 2 l eru eftir, aukið út um 1 l, prjónið 2 l sl. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. Endurtakið þessar 2 umf þar til stykkið mælist alls 11-12-13 (14-16) cm (= 5½-6-6½ (7-8) cm lengri). Skiptið yfir í litinn gráfjólublár og haldið áfram í garðaprjóni þannig: Aukið út um 1 l í hægri hlið í 4. hverri umf og fækkið um 1 l í vinstri hlið í annarri hverri umf þar til stykkið mælist 15½-16½-17½ (18-19) cm (= miðju oddurinn sem vísar niður á enni við miðju að framan). Haldið áfram í garðaprjóni þannig: Fækkið um 1 l í hægri hlið í 4. hverri umf og aukið út um 1 l í vinstri hlið í annarri hverri umf þar til stykkið mælist 20-21-22 (22-22) cm. Skiptið aftur yfir í litinn ljós gráfjólublár og haldið áfram í garðaprjóni þannig. Fækkið um 1 l í vinstri hlið í annarri hverri umf og aukið út um 1 l á hægri hlið í annarri hverri umf þar til stykkið mælist 25½ -27-28½ (29-30) cm. Setjið eitt prjónamerki í hægri hlið = vinstri eyrnaleppur. Fækkið nú um 1 l í hægri hlið í annarri hverri umf og aukið út um 1 l í vinstri hlið í annarri hverri umf til loka = 31-33-35 (36-38) cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið oddana á toppnum á húfunni (gagnstæð hlið prjónamerkin) saman kant í kant með smáu spori. Saumið uppfitjunar- og affellingarkantinn saman við miðju að aftan. SNÚRA: Fitjið upp 4 l með litnum ljós gráfjólublár á prjóna nr 2,5. Prjónið SNÚRA – sjá útskýringu að ofan. Fellið af þegar stykkið mælist ca 16-18-20 (20-24) cm. Prjónið 1 snúru til viðbótar á sama hátt. Festið síðan snúrurnar í hvorn eyrnalepp. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ---------------------------------------------------------- GALLI: PERLUPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í 1 l á undan og á eftir prjónamerki. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum með því að prjóna 4. og 5. l frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir 5-5-5 (6-6) hnappagötum í hægri kant að framan þegar stykkið mælist, frá þeim stað sem skálmar voru settar saman við: 1/3 mán: 6, 12, 17, 22, 27 cm. 6/9 mán: 6, 12, 18, 24, 30 cm. 12/18 mán: 7, 14, 21, 28, 34 cm. 2 ára: 7, 14, 20, 26, 32, 38 cm. 3/4 ára: 7, 14, 21, 28, 35, 42 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmar prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Síðan eru skálmarnar settar á sama hringprjón og stykkið er prjónað fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. SKÁLM: Fitjið upp 38-44-50 (54-60) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum gráfjólublár, prjónið 9-10-10 (10-10) cm PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf (= innanverðu á skálm) og látið prjónamerkið fylgja með upp úr. Skiptið nú yfir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Lesið ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu með 2-3-4 (4-4) umf millibili alls 14-15-16 (18-19) sinnum = 66-74-82 (90-98) l. Þegar stykkið mælist 21-25-29 (33-37) cm fellið af 2 l hvoru megin við prjónamerki (= 4 l færri) = 62-70-78 (86-94)l. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið inn báðar skálmarnar á sama hringprjóna nr 2,5 með úrtöku á móti hvorri annarri = 124-140-156 (172-188) l. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN. Prjónið síðan áfram fram og til baka frá miðju að framan með litnum ljós gráfjólublár þannig (umf 1 = rétta): Fitjið upp 5 nýjar l á prjóninn, prjónið slétt yfir allar l og fitjið upp 5 nýjar l í lok umf = 134-150-166 (182-198) l. Setjið prjónamerki 36-40-44 (48-52) l inn frá hvorri hlið (= 62-70-78 (86-94) l á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með upp úr. Prjónið síðan sléttprjón en þær 5 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN til loka – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-7 (7-7) cm fellið af fyrir fyrsta HNAPPAGAT í hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (26-29) cm prjónið næstu umf frá réttu mynsturteikning M.1 með 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið. ATH: Í síðustu umf í M.1 (= ranga) fellið af 4-4-4 (5-5) l hvoru megin við hvort prjónamerki fyrir handveg (= 8-8-8 (10-10) l felldar af í hvorri hlið) = 118-134-150 (162-178) l. Nú mælist stykkið ca 20-24-27 (30-33) cm frá þeim stað þar sem skálmar voru settar saman. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 38-40-42 (44-46) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum grá fjólublár, prjónið 5-5-5 (6-6) cm perluprjón. Setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi) og látið prjónamerki fylgja með upp úr. Skiptið nú yfir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið í næstu umf. Endurtakið útaukningu með 2-3-3(4-5) umf millibili alls 7-8-9 (10-11) sinnum = 52-56-60 (64-68) l. Þegar stykkið mælist 10-13-15 (18-23) cm prjónið M.1 – Í síðustu umf í M.1 eru felldar af 4-4-4 (5-5) l hvoru megin við prjónamerki fyrir handveg (= 8-8-8 (10-10) l felldar af) = 44-48-52 (54-58) l. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 206-230-254 (270-294) l. Prjónið nú fram og til baka í mynsturteikningu M.2 með 5 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (umf 1 = rétta). ATH: Fellið af 20-20-24 (24-28) l jafnt yfir í umf sem er merkt með ör í M.2. MUNIÐ EFTIR AÐ HALDA ÁFRAM AÐ FELLA AF FYRIR HNAPPAGÖTUM Í HÆGRI KANTI AÐ FRAMAN! Þegar M.2 hefur verið prjónað eru 86-110-110 (126-126) l í umf og stykkið mælist ca 12-12-13 (14-15) cm frá þeim stað þar sem ermarnar voru settar í (þ.e.a. s. umf 1 í mynstri M.2). HÁLSMÁL: Prjónið síðan fram og til baka í perluprjóni með litnum gráfjólublár þannig: Prjónið slétt frá réttu jafnframt því sem fækkað er um 4-20-16 (30-26) l jafnt yfir í umf 1 (= rétta) = 82-90-94 (96-100) l. Prjónið nú 1 umf í perluprjóni. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir síðasta hnappagati í hægri kanti að framan. Haldið áfram í perluprjóni þar til kantur í hálsmáli mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið laust af allar l. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og á milli skálma, saumið tölur í. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (54)
Stina wrote:
Ich denke der Fehler ist, dass man nicht mit graulila sondern mit hell graulila anfangen muss, richtig?
08.02.2012 - 22:10Stina wrote:
Muss nach den ersten 5,5 etc. cm die Farbe gewechselt werden?
08.02.2012 - 21:08DROPS Deutsch wrote:
Sollte jetzt in Ordnung sein.
06.01.2012 - 11:12..^--^.. wrote:
In der deutschen Anleitung werden die Diagrammbilder nicht angezeigt.
06.01.2012 - 03:25