DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS Baby 21-14
DROPS Design: Mynstur nr BS-002-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
150-150-200 (200-250) g litur nr 3125, ljós bleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 2,5 – fyrir stroff.
DROPS TRÉTALA, NR 503: 5-5-6 (6-7) st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

TVÖFALT PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 4: Eins og umferð 2.
Endurtakið umferð 1 til 4.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki. Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir séð frá réttu.
-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 366-394-422 (450-478) lykkjur á hringprjóna 2,5 með Baby Alpaca Silk.
Prjónið stroff þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan -, 2 lykkjur brugðið, * 10 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 13 lykkjur eru eftir og endið með 10 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 8-8-12 (12-12) umferðir stroff.
Fækkið nú um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri sléttri einingu með því að allar 10 lykkjur slétt eru prjónaðar þannig (4 lykkjur brugðið eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 158-170-182 (194-206) lykkjur (= 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið).
Prjónið 1 umferð frá röngu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 44-44-40 (40-36) lykkjur jafnt yfir = 114-126-142 (154-170) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki eftir 29-32-36 (39-43) lykkjur og eitt prjónamerki eftir 85-94-106 (115-127) lykkjur (merkir miðju í hliðum). Bakstykki = 56-62-70 (76-84) lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT.
Haldið nú áfram í sléttprjóni og 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 10-11-12-16-18 cm frá prjónamerki.
Prjónið nú M.1. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 18-19-21 (25-28) cm frá prjónamerki eru felldar af 6 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki) fyrir handveg. Prjónið síðan fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 50-56-64 (70-78) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 42-48-56 (62-70) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 21-22-24 (28-31) cm prjónið M.2 yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með tvöföldu perluprjóni þar til stykkið mælist 25-27-30 (35-39) cm. Fellið nú af miðju 20-22-24 (26-28) lykkjur fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.
Í næstu umferð er felld af 1 lykkja til viðbótar við háls 10-12-15 (17-20) lykkjur eftir á hvorri öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 27-29-32 (37-41) cm frá prjónamerki. Fellið laust af. Stykkið mælist alls 32-34-38 (43-47) cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 26-29-33 (36-40) lykkjur.
Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í hlið eins og á bakstykki = 22-25-29 (32-36) lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-24 (28-31) cm prjónið M.2 yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-27 (31-34) cm frá prjónamerki eru 6-7-7 (7-8) lykkjur við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2-2-3 (4-4) sinnum = 10-12-15 (17-20) lykkjur eftir á öxl. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 27-29-32 (37-41) cm frá prjónamerki. Fellið laust af. Stykkið mælist alls 32-34-38 (43-47) cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt.

ERMI:
Fitjið upp 44-44-44 (50-50) lykkjur á prjóna 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (umverð 1 = frá réttu) 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 3-3-4 (4-4) cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 6-4-4-8-6 lykkjur jafnt yfir = 38-40-40 (42-44) lykkjur. Skiptið yfir á prjóna 3. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 4-2½-2 (2-2) cm millibili alls 3-5-7 (9-10) sinnum = 44-50-54 (60-64) lykkjur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-13-14 (17-19) cm prjónið M.2. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATH! Passið uppá að perluprjónið verði eins í hvorri hlið. Haldið áfram að auka út í hvorri hlið – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í perluprjón.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 17-19-21 (25-29) cm. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir ermakúpu. Fellið síðan af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í byrjun hverrar umferðar: 3 lykkjur 0-0-0 (1-1) sinni, 2 lykkjur 2-3-3 (3-3) sinnum og 1 lykkja 3-1-0 (0-0) sinnum. Fellið nú af 2 lykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-23-25 (29-33) cm. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið 1 sinni. Stykkið mælist nú ca 22-24-26 (30-34) cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju og saumið ermar í.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið efst í hálsmáli. Prjónið upp 82-86-94 (106-118) lykkjur á prjóna 2,5 frá réttu innan við 1 kantlykkju niðri meðfram vinstra framstykki. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram þar til kantur að framan mælist ca 2-2-2 (2½-2½) cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið eins og vinstri kantur að framan, nema þegar stroffið mælist ca 1 cm þá eru fellt af fyrir 5-5-6 (6-7) hnappagötum. Efsta hnappagatið er ca 1 cm frá hálsmáli, það neðsta ca 2 cm frá neðri kanti. Fellt er af fyrir hinum hnappagötunum með ca 6-7-6 (7-6) cm millibili. Fellt er af fyrir öllum hnappagötum með því að fella af í 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið og slá 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið síðan stroff eins og áður þar til stroffið mælist ca 2-2-2 (2½-2½) cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KRAGI:
Prjónið upp 68 til 96 lykkjur frá réttu á prjóna 3 (meðtaldar lykkjur af þræði) og meðtalinn kantur í hvorri hlið að framan (í kant að framan eru prjónaðar upp lykkjur yst í lykkjubogana). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 76-84-92 (100-108) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan TVÖFALT PERLUPRJÓN yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 4 cm. Fellið laust af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.03.2013
ERMI:..JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-13-14 (17-19) cm prjónið M.2. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina...
Yfirfarið á vefsvæði: 10.09.2019
Efnismagn leiðrétti: Efni: DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio 150-150-200 (200-250) g nr 3125, ljós bleikur

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Amalthea wrote:

In der Anleitung steht beim Ärmel: Danach auf beiden Seiten jeweils 2 M. abk. bis die Arbeit 21-23-25 (29-33) cm misst Nehme ich hier einmal beidseitig je 2 Maschen ab und stricke gerade hoch bis ich auf beiden Seiten je 3 M abkette, oder wiederholt sich die Abnahme der je 2M mehrmals? Wieviele Maschen sind in Größe 92 übrig, bevor ich alle abkette? Vielen Dank!

20.10.2016 - 13:02

DROPS Design answered:

Liebe Amalthea, Sie sollen 2 M. am Anfang jeder Reihe (d.h. Hin- und Rückreihe) abketten bis die Ärmel 29 cm misst. Wieviele Reihe/Abnahmen hängt von Ihrer Maschenprobe an, einfach 2 M. beidseitig bis 29 cm abketten, dann 3 M. 1x beidseitig abketten.

20.10.2016 - 15:29

country flag Renata wrote:

Nach der Anleitung soll man be den Vorderteilen nach 25 cm due äusseren 7 Maschen gegen den Halsausschnitt auf einen Hilfsfaden legen.Warum?Und wo brauch ich due wieder oder nehm ich die wieder zu?

23.09.2016 - 11:09

DROPS Design answered:

Liebe Renata, diese Maschen werden aufgenommen, wenn sie am Ende den Kragen stricken (siehe letzte Absatz "KRAGEN").

23.09.2016 - 13:20

country flag Zsuzsa wrote:

Elakadtam. Az ujjánál a szaporításnál mennyi az elérendő szemszám? Ha az előírtnak megfelelően minden 4.sorban szaporítok kétoldalon a szélszem mellett, akkor hamar elérem a 44 szemet és egyenesen folytassam a karöltőig ? Akkor nem lesz egyenletes a bővülés ? Azt írják: folytassuk a szaporítást, de nem írják, összesen hány szemig ? Nem írják le azt sem, hogy az ujja végén hány szem marad a leláncoláshoz-befejezéshez!? Előre is köszönöm válaszukat.

22.08.2016 - 23:07

DROPS Design answered:

Kedves Zsuzsa! Az ujja szaporításánál a minta azt mondja: UGYANAKKOR, amikor a darabunk 5 cm-es mindkét oldalon szaporítsunk 1 szemet a szélszem mellett. Ismételjük meg a szaporítást 4-2½-2 (2-2) soronként összesen 3-5-7 (9-10) alkalommal =44-50-54 (60-64) szem. Az ujja felső ívénél a megmaradt szemeket kell az utolsó sorban leláncolni, a pontos szám az angolban sincs meghatározva, tehát ahány szem maradt, azt mindet. Bízom benne a fentiek segítenek. Javaslom továbbá, hogy keresse a Facebook-on a Magyar Drops csoportot, ott is választ kaphat a mintákkal kapcsolatos kérdéseire.

06.11.2016 - 14:06

country flag Tovethea Ruth wrote:

Smuk model.som både mødrene og småpigerne godt kan lide.

28.04.2015 - 17:25

country flag Sandy wrote:

I would like to make baby drops 21-14 for a size 4/5. Can you tell me how you would convert the pattern? I made this in the 2 years size and my granddaughter loved it so much that she wants it made again and she is now 4. Thanks

23.04.2015 - 22:27

DROPS Design answered:

Dear Sandy, we unfortunately are not able to answer each individual request. You can adapt the pattern to the desired size with the help of another similar pattern in the correct size. Remember you can get help from your DROPS Store. Happy knitting!

24.04.2015 - 10:30

country flag Marie-Gabrielle wrote:

Le nombre de mailles à monter intitialement ne me semble pas cohérent avec les dimensions finales de cette veste... S'il faut environs 24 mailles (ou même quelques unes de plus si on travaille en 2,5) pour obtenir un échantillon de 10 cm, je ne comprends pas qu'il faille monter 336 mailles intiales (soit environs 140 cm) pour le bas d'une veste taille 3 mois... Pourriez-vous m'éclairer? Ce modèle est vraiment adorable, j'aimerais comprendre.

23.10.2014 - 07:56

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Gabrielle, on monte bien 366 m en taille 1/3 mois et on tricote une petite bordure volantée en côtes en diminuant comme indiqué pour terminer avec 114 m pour le dos et les 2 devants. La bordure volantée explique le nombre de mailles important au début. Bon tricot!

23.10.2014 - 10:36

country flag Deborah Dodson wrote:

The pattern says to use a 2.5 mm needle but these don't seem to exist. I can only buy 2.25mm or 2.75mm. Which one of these should I use.

17.10.2014 - 16:41

country flag Marian Giesekam wrote:

Brei liever niet met rondbreinaalden maar met 2 naalden kunt u de patronen ook aanpassen?

02.09.2014 - 20:39

DROPS Design answered:

U kunt dit patroon ook op rechte naalden breien. Als u de grootste maat breit, hebt u dan wel vrij veel steken op de naald voor het lijf, maar als u dat niet erg vindt, zijn rechte naalden ook geschikt.

03.09.2014 - 10:50

country flag Marie-louise wrote:

När jag lagt upp maskorna på rundstickan blir väl det 1:a varvet jag stickar den så kallade aviga sidan av plagget och ska stickas 10 aviga och 4 räta maskor

04.02.2014 - 20:23

DROPS Design answered:

På denna modell så är 1:a varvet man stickar det som ska bli rätsidan. Om man tittar jättenoga på bilden ser man att uppläggsninsvarvets baksida med små bumps är utåt :)

05.02.2014 - 22:59

country flag Mary wrote:

Man nimmt doch ab!

28.12.2013 - 18:33