Lea |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með bylgjukanti og áferðamynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS Baby 21-14 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 3: brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 4: Eins og umferð 2. Endurtakið umferð 1 til 4. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki. Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 366-394-422 (450-478) lykkjur á hringprjóna 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið stroff þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan -, 2 lykkjur brugðið, * 10 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 13 lykkjur eru eftir og endið með 10 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið og 1 lykkja GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 8-8-12 (12-12) umferðir stroff. Fækkið nú um 1 lykkju í hvorri hlið í hverri sléttri einingu með því að allar 10 lykkjur slétt eru prjónaðar þannig (4 lykkjur brugðið eru prjónaðar eins og áður): Takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 158-170-182 (194-206) lykkjur (= 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið). Prjónið 1 umferð frá röngu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 44-44-40 (40-36) lykkjur jafnt yfir = 114-126-142 (154-170) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki eftir 29-32-36 (39-43) lykkjur og eitt prjónamerki eftir 85-94-106 (115-127) lykkjur (merkir miðju í hliðum). Bakstykki = 56-62-70 (76-84) lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Haldið nú áfram í sléttprjóni og 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 10-11-12-16-18 cm frá prjónamerki. Prjónið nú M.1. Þegar M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 18-19-21 (25-28) cm frá prjónamerki eru felldar af 6 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki) fyrir handveg. Prjónið síðan fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 50-56-64 (70-78) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 42-48-56 (62-70) lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-24 (28-31) cm prjónið M.2 yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með tvöföldu perluprjóni þar til stykkið mælist 25-27-30 (35-39) cm. Fellið nú af miðju 20-22-24 (26-28) lykkjur fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Í næstu umferð er felld af 1 lykkja til viðbótar við háls 10-12-15 (17-20) lykkjur eftir á hvorri öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 27-29-32 (37-41) cm frá prjónamerki. Fellið laust af. Stykkið mælist alls 32-34-38 (43-47) cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 26-29-33 (36-40) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í hlið eins og á bakstykki = 22-25-29 (32-36) lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-24 (28-31) cm prjónið M.2 yfir allar lykkjur. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með tvöföldu perluprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-27 (31-34) cm frá prjónamerki eru 6-7-7 (7-8) lykkjur við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2-2-3 (4-4) sinnum = 10-12-15 (17-20) lykkjur eftir á öxl. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 27-29-32 (37-41) cm frá prjónamerki. Fellið laust af. Stykkið mælist alls 32-34-38 (43-47) cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: Fitjið upp 44-44-44 (50-50) lykkjur á prjóna 2,5 með Baby Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff (umverð 1 = frá réttu) 4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 3-3-4 (4-4) cm prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 6-4-4-8-6 lykkjur jafnt yfir = 38-40-40 (42-44) lykkjur. Skiptið yfir á prjóna 3. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 4-2½-2 (2-2) cm millibili alls 3-5-7 (9-10) sinnum = 44-50-54 (60-64) lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-13-14 (17-19) cm prjónið M.2. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATH! Passið uppá að perluprjónið verði eins í hvorri hlið. Haldið áfram að auka út í hvorri hlið – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í perluprjón. Haldið áfram þar til stykkið mælist 17-19-21 (25-29) cm. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir ermakúpu. Fellið síðan af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í byrjun hverrar umferðar: 3 lykkjur 0-0-0 (1-1) sinni, 2 lykkjur 2-3-3 (3-3) sinnum og 1 lykkja 3-1-0 (0-0) sinnum. Fellið nú af 2 lykkju í hvorri hlið þar til stykkið mælist 21-23-25 (29-33) cm. Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið 1 sinni. Stykkið mælist nú ca 22-24-26 (30-34) cm. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju og saumið ermar í. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið efst í hálsmáli. Prjónið upp 82-86-94 (106-118) lykkjur á prjóna 2,5 frá réttu innan við 1 kantlykkju niðri meðfram vinstra framstykki. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram þar til kantur að framan mælist ca 2-2-2 (2½-2½) cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri kantur að framan, nema þegar stroffið mælist ca 1 cm þá eru fellt af fyrir 5-5-6 (6-7) hnappagötum. Efsta hnappagatið er ca 1 cm frá hálsmáli, það neðsta ca 2 cm frá neðri kanti. Fellt er af fyrir hinum hnappagötunum með ca 6-7-6 (7-6) cm millibili. Fellt er af fyrir öllum hnappagötum með því að fella af í 2 lykkjur brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið og slá 1 sinni uppá prjóninn. Prjónið síðan stroff eins og áður þar til stroffið mælist ca 2-2-2 (2½-2½) cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KRAGI: Prjónið upp 68 til 96 lykkjur frá réttu á prjóna 3 (meðtaldar lykkjur af þræði) og meðtalinn kantur í hvorri hlið að framan (í kant að framan eru prjónaðar upp lykkjur yst í lykkjubogana). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 76-84-92 (100-108) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan TVÖFALT PERLUPRJÓN yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 4 cm. Fellið laust af. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (74)
Alma wrote:
Podran poner la muestra del grosor del estambre a utilizar tambien decirme q significa kson muy amables al compartir sus diseños en verdad q me han servido de mucho muchas gracias
09.09.2012 - 02:20DROPS Design answered:
Alma, para obtener toda la información y características de la lana a usar, favor hacer clic debajo de la lista de materiales, donde dice "ver muestrario de colores para: BabyAlpaca Silk".
09.09.2012 - 06:25Linda wrote:
Mamma strikket denne til dattera mi, i str 0-3 mnd. Og den er så fiiiin!! Helt fantastisk. Mykeste, beste garnet, og veldig fint mønster på denne kåpa. Stor i str, kunne ikke bruke den før hun var 2 mnd, og nå er hun 3 mnd, og den passer en god stund til:) Har nesten lyst på en til til neste sommer!
02.09.2012 - 13:12Emilija wrote:
(2/2) Also - although I already knew from earlier works that, but I did not expect that much of a mismatch - the sizes are absolutely off. I knitted size for a 2 year old (and my daughter will turn 2 in 2 months), but it is huge, don't imagine putting it on her for at least a year. Don't know what to do now. So much work, so much yarn, total waste - too big, too ugly.
30.06.2012 - 12:41Emilija wrote:
(1/2) This sweater - because of the yarn - is a total bag. It doesn't look anything like the one in the picture. Moss stitch is not to be recognized, looks some kind of mess in that part.
30.06.2012 - 12:41