DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Junior

Prjónað vesti fyrir börn með V-hálsmáli og áferðamynstri úr DROPS BabyMerino eða DROPS BabyAlpaca Silk

DROPS Baby 21-8
DROPS Design: Mynstur nr BM-036-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-100-100 (100-150) gr litur nr 19, grár

Eða notið:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
100-100-100 (150-150) gr litur nr 8465, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3 (60 eða 80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5 (60 eða 80 cm) – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 4 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

TVÖFALT PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sl yfir sl og br yfir br.
UMFERÐ 3: br yfir sl og sl yfir br.
UMFERÐ 4: eins og umf 2.
Endurtakið frá 1-4.

HNAPPAGAT:
Fellið er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 MÁN: 2, 6, 10 og 14 cm.
STÆRÐ 6/9 MÁN: 2, 7, 11 og 16 cm.
STÆRÐ 12/18 MÁN: 2, 7, 12 og 17 cm.
STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 8, 13 og 19 cm.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 8, 14 og 20 cm.

ÚRTAKA FYRIR V-HÁLSMÁLI OG HANDVEG MEÐ TVÖFÖLDU PERLUPRJÓNI:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum Á UNDAN kanti að framan/ermi:
Þegar síðasta l á að vera sl: 2 l slétt saman.
Þegar síðasta l á að vera br: 2 l brugðið saman:
Fækkið lykkjum Á EFTIR kanti að framan/ermi:
Þegar fyrsta l á að vera sl: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Þegar fyrsta l á að vera br: 2 l snúnar brugðið saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 148-168-184 (204-224) l á hringprjóna nr 2,5 með Baby Merino. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 l GARÐAPRJÓN (= kantur að framan) – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, endið á 2 l sl og 5 l GARÐAPRJÓN (= kantur að framan). Haldið áfram með stroff með 5 l garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 3-3-4 (4-5) cm – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið sléttprjón en kantar að framan halda áfram í garðaprjóni eins og áður. JAFNFRAMT í fyrstu umf á eftir stroff er fækkað um 32-36-40 (44-52) l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 116-132-144 (160-172) l. Setjið 1 prjónamerki 31-35-39 (43-45) l inn frá hvorri hlið (= 54-62-66 (74-82) l á milli prjónamerkja á bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTU! Þegar stykkið mælist 7-7½-8 (9-10) cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: 5 l garðaprjón, 21-21-27 (27-31) l sléttprjón, setjið síðustu 16-16-20 (20-24) l sem prjónaðar voru á þráð fyrir vasalok, prjónið þar til eftir eru 10-10-12 (12-12) l á prjóni, setjið síðustu 16-16-20 (20-24) l sem prjónaðar voru á þráð fyrir vasalok, prjónið 5-5-7 (7-7) l sléttprjón og endið á 5 l garðaprjón. Í næstu umf eru fitjaðar upp 16-16-20 (20-24) nýjar l yfir lykkjum á þráðum = 116-132-144 (160-172) l. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni þar til stykkið mælist 13-14-16 (16-18) cm. Prjónið nú 4 umf slétt yfir allar l). Síðan er prjónað TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (kantar að framan halda áfram í garðaprjóni eins og áður).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 15-17-18 (20-21) cm prjónið 2 umf garðaprjón yfir 5 fyrstu l á prjóni (hinar l eru ekki prjónaðar), prjónið síðan 1 umf yfir allar l áður en prjónaðar eru 2 umf garðaprjón yfir 5 fyrstu l í umf í hinni hlið á stykki (þetta er gert svo að V-hálsmálið leggist fallega að). Fellið síðan af fyrir V-hálsmáli – sjá útskýringu að ofan: Fellið af 1 l í annarri hverri umf (þ.e.a.s. frá hverri umf frá réttu) alls 12-13-16 (16-16) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir miðju 18-20-20 (20-20) l í hvorri hlið (þ.e.a.s. yfir 9-10-10 (10-10) l hvoru megin við bæði prjónamerkin) - hinar l eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umf eru felldar af miðju 8-10-10 (10-10) l í hvorri hlið fyrir handveg og fram- og bakstykki eru prjónuð til loka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 46-52-56 (64-72) l. Prjónið tvöfalt perluprjón með 5 l garðaprjón í hvorri hlið (= kantur á ermum). JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi – sjá útskýringu að ofan: Fellið af 1 l í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hveri umf frá réttu) alls 5-6-6 (6-6) sinnum = 36-40-44 (52-60) l. Haldið áfram með tvöfalt perluprjón og garðaprjón þar til stykkið mælist 24-26-29 (31-34) cm. Prjónið nú garðaprjón yfir allar l til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 25-27-30 (32-35) cm fellið af miðju 16-18-20 (20-24) l fyrir hálsmáli = 10-11-12 (16-18) l eftir á hvorri öxl. Prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram með tvöfalt perluprjón og garðaprjón JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki og úrtaka fyrir V-hálsmáli heldur áfram eins og áður. Eftir síðustu úrtöku eru 10-11-12 (16-18) l eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm og fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra framstykki nema gagnstætt.

VASALOK:
Setjið til baka 16-16-20 (20-24) l af þræði á öðru framstykkinu á prjóna nr 2,5. Prjónið stroff með 1 l garðaprjón og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar vasalokið mælist 2½-2½-3 (3-3) cm fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Saumið vasalokið við framstykkið með lykkjuspori í hvorri hlið. Saumið vasalokið við botninn á vasalokinu (þar sem l voru settar á þráð) á bakhlið á stykki.
Prjónið annað vasalok á sama hátt á hitt framstykkið.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Junior

Isidor Knits, Germany

Little gentleman

Isidor Knits, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (208)

country flag Rene Goukd wrote:

Hi me again the part where I’m stuck is creating a neat v shape with the 2rows in garter but don’t knit all stitches just don’t understand that part at all the rest is fabulous just stuck at this point can’t go no further thank you for your help

12.03.2024 - 18:10

DROPS Design answered:

Dear Rene, please see the answer to your previous question. It should help you to understand. Happy Knitting!

13.03.2024 - 01:05

country flag Rene Gould wrote:

Hi I’m doing one of your beautiful vest pattern for a boy pattern number is BM-036-by I’m stuck on the body part of pattern. Just after where it says please read all this section before continuing it say work 2rows I garter 5sturches but don’t knit the rest in the needle I don’t understand all that section about knit 2 rows knit 5 stitches but not to knit the other stitches in needle could you please help me with this section I just don’t know what it means when saying knit 2rows

12.03.2024 - 18:05

DROPS Design answered:

Dear Rene, you basically knit a short row on the first 5 stitch (and then on the first 5 stitch at the other side. ): You knit the first 5 stitches, turn the piece, pull the yarn thight and knit back to the edge. Turn, and knit the whole row. Repat on the other side. This way there will be two extra rows on the button band, which helps it to lay nicely. This video might also help to understand: https://www.garnstudio.com/video.php?id=438&lang=en Happy Knitting!

13.03.2024 - 01:04

country flag Salla wrote:

Miten kavennukset (joka toisella kerroksella yhteensä 16 silmukkaa) voi tehdä siististi ja säilyttää helmineulekuvion? kavennetaanko selän puolella myös?

26.12.2023 - 09:08

country flag Martine Vermeulen wrote:

Hallo, Kan ik de inhoud van dit patroon verkrijgen om dit te breien zonder ronde breinaalden aub Jullie hebben zoveel mooie patronen maar de meeste mensen in België breien niet met ronde breinaalden TIP vermeld ook het breipatroon met gewone breinaalden. Alvast bedankt

02.12.2023 - 13:27

DROPS Design answered:

Dag Martine,

Helaas is het voor ons niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen.

Om een patroon aan te passen om op rechte naalden te breien hebben we een instructie gemaakt. Deze vind je hier.

02.12.2023 - 17:40

country flag Apeksha Rathod wrote:

From your previous reply, I understood that I have to reduce 16 sts on each side of the neck & 6 sts on each armhole in the front. So I will have 28 sts on each shoulder in the front (50-16-6=28). But in the back, I have 18 sts left on each shoulder. Clearly, I am wrong somewhere. Pls, guide me. Also if you could make it clear if I have to start reducing the neck & the armhole at the same time, that'll be great!

24.06.2023 - 07:14

DROPS Design answered:

Dear Apeksha, when the piece measures 21 cm, you will start decreasing: decrease 1 st for the neck on each side on every RS row for the next 16 RS rows. When the piece measures 22 cm, continue with the neck decreases and work the garter stitch rows and cast off the middle sts for each armhole; after this you will continue each piece separately. Now you are still decreasing for the neck and you will start to decrease for the armholes: 1 st on each side of the back piece on every RS row for the next 6 RS rows (=12 sts decreased), or 1 st on the side of each front piece on every RS row for the next 6 RS rows (= 6 sts decreased). Happy knitting!

25.06.2023 - 16:32

country flag Apeksha Rathod wrote:

Hello! I have been following the "Knitted vest with V-neck and a textured pattern for baby and children in DROPS BabyMerino or DROPS BabyAlpaca Silk". I have 172 sts on my needle. Now I have to start reducing sts for the neck. Can you pls tell me how many sts I have to reduce in total? Both on the right & left side?

23.06.2023 - 13:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rathod, in the largest size, you will decrease 1 stitch 16 times on each right and left front piece. Happy knitting!

23.06.2023 - 15:53

country flag Inger Nielsen wrote:

Forstykke 45 m + bakstk 82 m + forstk 45 m = 172 m på største størrelse. Fell 10 m på hver side av merke (+). Da får jeg 62 m igjen til bakstk. I oppskriften står 72 m. Noe er feil her?

21.05.2023 - 13:40

DROPS Design answered:

Hej Inger 5 af de 10 masker du lukker af i hver side tilhører forstykkerne.

23.05.2023 - 11:26

country flag Spørgsmål wrote:

Er fuldstændig vild med denne vest. Men kan man ikke få samme opskrift men på rundpinde. Jeg skal strikke en str 1.1/2 år . Jeg er lidt handicappet i højre hånden pga operation. Så jeg kan ikke så godt bruge min tommelfinger , Men har lettere ved det på en rundpind 🙂 vh connie palsgreen

19.03.2023 - 20:43

DROPS Design answered:

Hei Connie. Dette er en vest med knapper i midten og det må da strikkes frem og tilbake. Men du strikker med rundpinne, slik det står i oppskriften. mvh DROPS Design

20.03.2023 - 13:44

country flag Susan Dilly wrote:

I am just about to start the front pieces. The picture shows rib on the arm hole edge as well as the v neck. The pattern doesn’t tell me to do a five stitch garter section on the arm hole edge do I just assume that I need to do this?

06.03.2023 - 18:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Dilly, you worked 18 or 20 stitches (see size) in garter stitch on each side then cast off 4 or 5 stitches for armhole = 5 stitches garter stitch remain; when working front piece, continue working stitches as before, including these 5 stitches in garter stitch towards armhole. Happy knitting!

07.03.2023 - 10:11

country flag Cathleen Black wrote:

Hi, I'm wondering if you can help me understand this pattern where is says "When the piece measures 15cm work 2 rows in garter st over the first 5 sts on the needle (do not work the other sts on needle). I'm not quite understanding how to go forward here? Can you help me, Cathleen

07.02.2023 - 00:29

DROPS Design answered:

Hi Cathleen, This means you work 2 knitted rows over the band stitches to help the bands to sit nicely on the jacket. So you knit 5 stitches, turn and knit back. Then work the full row as before. Happy knitting!

07.02.2023 - 06:51