Blueberry |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Sett fyrir börn með prjónuðum buxum, sokkum og peysu með berustykki og brómberjamynstri úr DROPS Alpaca
DROPS Baby 21-24 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Umferð 1 = rétta. ÚRTAKA: Fækkið l 3 l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman, 1 l sl. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. og 4. l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 5, 10, 14, 19 og 23 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 5, 10, 15, 20 og 25 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 6, 12, 17, 23 og 28 cm. STÆRÐ 2 ára: 6, 12, 18, 24 og 30 cm. STÆRÐ 3/4 ára: 6, 13, 20, 27 og 33 cm. ATH: Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu þegar 2 umf garðaprjón eru eftir í kanti að framan fyrir hálsmál. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 120-134-150 (164-178) l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= umf 1 = rétta). JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 18-20-24 (26-28) l jafnt yfir = 138-154-174 (190-206) l. Prjónið síðan M.1 með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 13-14-16 (17-19) cm – stillið af eftir 3. umf í M.1 – prjónið næstu umf frá röngu þannig: 33-37-42 (46-50) l (= vinstra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 56-64-74 (82-90) l (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg og prjónið 33-37-42 (46-50) l (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar! ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 38-38-40 (42-45) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 8 umf garðaprjón (umf 1 = rétta). JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 8-8-10 (8-9) l jafnt yfir = 46-46-50 (50-54) l. Prjónið síðan M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-5 (6-6) cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 3-2-1½-1½-2 cm millibili alls 4-6-8 (10-10) sinnum = 54-58-66 (70-74) l – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í M.1, þær l sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 15-15-18 (22-26) cm – stillið af eftir 3. umf í M.1 – fellið af 5 l í hvorri hlið (fellið af í byrjun og í lok umf ) = 44-48-56 (60-64) l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 210-234-270 (294-318) l. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 34-37-43 (46-49) l jafnt yfir (ekki er l fækkað yfir kant að framan) = 176-197-227 (248-269) l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka yfir allar l JAFNFRAMT í 1 umf er fækkað um 11-11-12 (12-13) l jafnt yfir (ekki er l fækkað yfir kant að framan). Endurtakið úrtöku í 6. hverri umf (frá réttu) alls 8-9-10 (11-11) sinnum = 88-98-107 (116-126) l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist ca 23-25-28 (30-33) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá röngu – fækkið um 20-22-23 (24-34) l jafnt yfir = 68-76-84 (92-92) l eftir á prjóni. HÁLSMÁL: Prjónið frá réttu þannig: 5 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 5 l garðaprjón. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar kantur í hálsmáli mælist 3-3-4 (4-4) cm. FRÁGANGUR: Saumið sauma innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir höndum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru skálmarnar settar á sama hringprjón og prjónað er í hring. SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið LAUST upp 56-60-64 (68-72) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innanverð skálm. Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff = 2 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 8-8-9 (9-10) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 8-8-10 (12-12) l jafnt yfir = 48-52-54 (56-60) l. Prjónið nú GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 9-9-10 (10-11) cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 4-6-7 (10-13) umf millibili alls 9 sinnum = 66-70-72 (74-78) l. Haldið áfram í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 16-19-22 (27-33) cm (passið uppá að síðasta útaukningin sé búin) skiptist stykkið við innanverða skálmina og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (þetta er gert til þess að það sé auðveldara að setja skálmarnar á sama hringprjón síðar). Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið fyrir saum = 68-72-74 (76-80) l. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-35) cm fellið af 3 l á hvorri hlið = 62-66-68 (70-74) l. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. BUXUR: Setjið skálmarnar á sama hringprjón nr 3 = 124-132-136 (140-148) l. Setjið prjónamerki við miðju að framan. Prjónið nú garðaprjón hringinn – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 6-6-6 (4-4) sinnum = 112-120-124 (132-140) l. Þegar stykkið mælist 29-35-38 (43-50) cm prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 24-24-24 (28-28) l jafnt yfir = 136-144-148 (160-168) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið stroff = 2l sl, 2 l br í 7-7-8 (9-9) cm. Fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Buxurnar mælast ca 36-42-46 (52-59) cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op á milli skálma. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 40-44-44 (48-48) l á sokkaprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff = 2 l sl, 2 l br í 6-7-7 (8-8) cm. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-44) l. Haldið eftir miðju 12 l framan á sokknum (= ofan á fæti) á prjóni, aðrar 24-28-28 (32-32) l eru settar á þráð. Prjónið M.1 fram og til baka yfir 12 l ofan á fæti í ca 3-3½-4 (5-6) cm – stillið af eftir heila mynstureiningu af M.1 á hæðina. Klippið frá. Haldið eftir 12 l á prjóninum, takið upp 8-10-10 (12-16) l meðfram annarri hliðinni ofan á fæti, setjið til baka þær 24-28-28 (32-32) l af þræði á prjóninn og takið upp 8-10-10 (12-16) l meðfram hinni hliðinni ofan á fæti = 52-60-60 (68-76) l – ATH: þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Byrjið við miðju að aftan og prjónið M.2 yfir allar l í ca 1½-2-2½ (3-3½) cm – endið eftir 1. eða 3. umf í M.2. Prjónið 1 umf brugðið og fellið síðan af allar lykkjur nema 12 lykkjur ofan á fæti. Prjónið M.1 fram og til baka fyrir sóla/undir il yfir þessar lykkjur í ca 9-10-11 (13-15) cm – stillið af eftir heila mynstureiningu. Fellið af og saumið sólann við sokkinn – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (68)
Tina wrote:
Takk for svar ang. garnet :) Jeg har et spørsmål om tegningen av mønstrene også. På den andre pinnen på begge mønstrene begynner raden en maske tidligere. Det gjør den tredje raden også, og så begynner den fjerde (øverste) rykket en plass inn igjen liksom. Hva betyr det? Det skal strikkes kun fem stolpemasker i hver ende på jakken, eller skal det strikkes seks noen ganger, eller ... ? Takknemlig for svar, jeg er ganske fersk på å lese mønstre. Hilsen Tina
29.08.2012 - 22:38Nina wrote:
Jag tror att mönsterstickningen =rätstickning och björnbärsmönster gör att plagget verkar tyngre!
22.08.2012 - 15:22Tina wrote:
Hei! På bildene ser det ikke ut som om det er alpaca som er brukt..? Garnet ser noe tykkere ut enn kl A ... ?
21.08.2012 - 08:41DROPS Design answered:
Det er Drops Alpaca som er brukt. Riller og bjørnebærmønster er strukturer som gör det ser tykkere ut än glattstrikk gör.
28.08.2012 - 02:41Linda wrote:
På mønstersiden ligger det link til bjørnebær mønster, men det strikkes ikke slik som M1. Jeg finner ingen forklaring på hvordan man strikker 1vr/1kast/1vr i samme maske. I videoen er det strikket 1r/1vr/1r i samme maske i stedet. I M1 skal man også strikke annenhver runde rett fra vrangen, men på videoen skal man strikke vrang fra retten. Det burde vært en video som viser begge deler eller iallefall en litt bedre forlklaring på hvordan man skal gjøre det. :-/
22.07.2012 - 23:00DROPS Design answered:
Du har ret i at denne video ikke er som mönstret angiver. Det er ment som indikation af hvordan du kan göre det. Men til dette mönster skal du rigtig nok först strikke björnebaer paa retten; du strikker i één m 1 vr, 1 kast, 1 vr osv, og i naeste pind fra vrangen strikker du ret. Resultatet bliver det samme, saa tvivler du kan du strikke björnebaerene som paa videoen.
07.01.2013 - 15:58Elisabeth Rinaldi wrote:
Jeg har det samme spörgsmaal som Isabella Sörensen fra d.30.05.12
17.07.2012 - 20:41DROPS Design answered:
Se svar til Isabella!
18.07.2012 - 08:11Isabella Sørensen wrote:
Hejsa jeg har aldrig før strikket brombærmønstre. Jeg er blevet noget forviret over at der i opskriften i bladet er et diagram M1. I M1 beskrivelsen er der en klar firkant = vrang fra ret siden. Men den er ikke med i diagrammet?? Den viste beskrivelse af diagrammet passer ikke overens med den beskrivelse der er på jeres strikke skole her på hjemmesiden.. Hvilken vil I anbefale at jeg følger????
30.05.2012 - 23:03DROPS Design answered:
Hej, Den klare firkant er med i M.2. Der er mange måder at strikke brombær på, du kan vælge at følge diagrammet som ligger på selve opskriften, så kommer det til at se nøgagtig ud som på billedet.
18.07.2012 - 08:10Sandra wrote:
Hej igen! Såg nu att redan efter 3 ökningar gånger 2 så blir det 58 m. Jag har förstått att det skulle vara 6 ökningar gånger 2 men nu tror jag att det är 3 gånger 2 istället. Kan det stämma? / Sandra
04.03.2012 - 17:15DROPS Design answered:
Hej Sandra, det stämmer bra!
06.03.2012 - 14:51Sandra wrote:
Hej! Undrar om det stämmer att man ska öka 6 ggr på koftans ärm storlek 6/9 mån. Jag får 58 m efter 4 ökningar om jag ökar en i varje sida. Läser jag mönstret på fel sätt? / Sandra
03.03.2012 - 17:47DROPS Design answered:
Hej, på sista varvet av rätst skall du öka 8 m, 38+8= 46. Sedan skall du öka 1 maska i varje sida 6 ggr, dvs 2 x 6, 46+12= 58 maskor.
06.03.2012 - 14:43