Little William |
|
|
|
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með laskalínu og röndum og buxum úr DROPS Lima
DROPS Baby 21-30 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- STROFF: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. RÖND-A: 2 umferðir í litnum ljós brúnn 3 umferðir í litnum brúnn 3 umferðir í litnum ljós brúnn 2 umferðir í litnum brúnn 1 umferð í litnum ljós brúnn 3 umferðir í litnum brúnn 4 umferðir í litnum ljós brúnn 1 umferð í litnum brúnn 2 umferðir í litnum ljós brúnn RÖND-B: 4 umferðir í litnum brúnn 2 umferðir í litnum ljós brúnn 4 umferðir í litnum brúnn 4 umferðir í litnum ljós brúnn 4 umferðir í litnum brúnn 1 umferð í litnum ljós brúnn 1 umferð í litnum brúnn 1 umferð í litnum ljós brúnn 4 umferðir í litnum brúnn 3 umferðir í litnum ljós brúnn 1 umferð í litnum brúnn 1 umferð í litnum ljós brúnn 2 umferðir í litnum brúnn ÚRTAKA (fyrir berustykki án kants): Prjónið 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við næstu 2 prjónamerkin, prjónið síðan þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt. ÚRTAKA (fyrir berustykki með kanti): FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* við næstu 2 prjónamerki, prjónið síðan þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið saman. * Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, 2 lykkjur snúnar brugðið saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogana í stað fremri), 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur brugðið saman *, endurtakið frá *-* við 2 næstu prjónamerki, prjónið síðan þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur snúnar brugðið saman, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. ATH: Passið uppá að lykkjurnar snúi í rétta átt frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í kanti að framan með laskalínu sem er staðsett á ermi – athugið hvort þess þurfi í stærri stærðum. Fellið af þannig: 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist: Stærð 1/3 mán: 2, 5 og 8 cm. Stærð 6/9 mán: 3, 6 og 9 cm. Stærð 12/18 mán: 3, 7 og 10 cm. Stærð 2 ára: 3, 7 og 11 cm. Stærð 3/4 ára: 4, 8 og 12 cm. ÚRTAKA (á við um buxur): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 102-114-126 (138-150) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum brúnn Lima. Prjónið 1 umferð slétt, haldið síðan áfram með STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið eitt prjónamerki í 1. lykkju (= byrjun á umferð), 50-56-62 (68-74) lykkjur sléttprjón, setjið eitt prjónamerki (= mitt í hlið) í næstu lykkju, 50-56-62 (68-74) lykkjur sléttprjón. Þegar stykkið mælist 14-15-18 (21-23) cm prjónið RÖND-A – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm fellið af 5 lykkjur í hvorri hlið fyrir handvegi (= lykkja með prjónamerki + 2 lykkjur hvoru megin við hana) = 92-104-116 (128-140) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 30-30-36 (36-36) lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með litnum brúnn. Prjónið 1 umferð sléttprjón, haldið áfram með stroff í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í 1. lykkju í umferð, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi hvoru megin við prjónamerki með 3-2-3(2,5-2,5) cm millibili alls 4-6-5 (7-9) sinnum = 38-42-46 (50-54) lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-17-18 (23-27) cm prjónið nú RÖND-A. Þegar stykkið mælist 17-19-20 (25-29) cm (passið uppá að það verði jafn margar renndur og á fram- og bakstykki) fellið af 5 lykkjur mitt undir ermi = 33-37-41 (45-49) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 158-178-198 (218-238) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma. Hægt er að prjóna stykkið með eða án ops með tölum – sjá útskýringu að neðan. BERUSTYKKI MEÐ KANTI: Prjónið nú fram og til baka frá hægri með laskalínu að framan. Fitjið upp 4 auka lykkjur á framstykkinu (= kantur fyrir tölur) = 162-182-202 (222-242) lykkjur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram í garðaprjóni og röndum ásamt 4 lykkjum GARÐAPRJÓN í byrjun og lok umferðar (fyrir kant með tölum). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA- fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð 1-3-4 (6-7) sinnum. ATH: Fellið einnig af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm setjið miðju 13-13-13 (15-15) lykkjur að framan á þráð og hvor hlið er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af við hálsmál í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir allar úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru alls 45-49-53 (53-57) lykkjur á prjóni. BERUSTYKKI ÁN KANTS: Prjónið nú í hring. Haldið áfram í sléttprjóni og renndur. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA – fækkið lykkjum í annarri hverri umferð: 11-11-12 (12-13) sinnum og síðan í hverri umferð: 1-3-4 (6-7) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-35) cm setjið miðju 13-13-13 (15-15) lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og prjónað er til loka fram og til baka. Fellið síðan af við hálsmál í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2-2-2 (3-3) sinnum. Eftir allar úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 41-45-49 (49-53) lykkjur á prjóni. HÁLSMÁL: Prjónað er í hring á berustykki án talna og fram og til baka á berustykki með tölum. Takið upp ca 23 til 27 lykkjur framan í hálsmáli (meðtaldar lykkjur af þræði) með litnum brúnn = 68 til 84 lykkjur. Setjið allar lykkjur á sokkaprjón 3,5 – prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt sem lykkjum er fækkað/aukið út jafnt yfir til 64-76 lykkjur. Prjónið 4 cm stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Ef þú hefur prjónað kant fyrir tölur: Leggið kantinn fyrir tölur yfir kant með hnappagötum efst og saumið niður í neðri kanti frá röngu. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring frá mitti og niður. BUXUR: Fitjið upp 108-112-116 (128-132) lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum brúnn. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í RÖND-A- sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 8-9-9 (10-10) cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón jafnframt er lykkjum fækkað til 96-100-104 (112-116) lykkjur jafnt yfir í umferð. Setjið eitt prjónamerki í miðjulykkju að framan og 1 prjónamerki í miðjulykkju að aftan (= 47-49-51 (55-57) lykkjur á milli lykkja með prjónamerki í). Haldið áfram í sléttprjóni – ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-13-14 (16-17) cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 miðjulykkjur að aftan – aukið út með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð og prjónið hana slétt. Endurakið útaukningu í annarri hverri umferð alls 9-9-9 (10-10) sinnum = 114-118-122 (132-136) lykkjur. Eftir alla útaukningu mælist stykkið ca 18-20-21 (23-24) cm. Í næstu umferð eru 3 miðjulykkjur að framan og 3 miðjulykkjur að aftan felldar af (þ.e.a.s. lykkjur með prjónamerki og 1 lykkja hvoru megin við þær) og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. Setjið 54-56-58 (63-65) lykkjur af annarri skálminni á þráð og 54-56-58 (63-65) lykkjur á hinni skálminni á sokkaprjón 4,5. SKÁLM: Prjónið sléttprjón í hring – setjið eitt prjónamerki í byrjun = innan á skálm. Þegar skálmin mælist 2-2-2 (3-3) cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-3-3½ (4-5½) cm millibili alls 5 sinnum = 44-46-48 (53-55) lykkjur. Þegar skálmin mælist 28-34-37 (43-49) cm skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT eru lykkjur auknar út jafnt yfir til 48-48-54 (54-60) lykkjur. Prjónið síðan stroff: 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið hringinn yfir allar lykkjur í RÖND-B – sjá útskýringu að ofan. Þegar skálmin mælist 18-22-25 (28-35) cm (buxurnar eiga að mælast 36-42-46 (52-59) cm frá mitti) fellið LAUST af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Prjónið hina skálmina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op á milli skálma. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (26)
Anna Urbánková wrote:
Nemohu najít návod na svetřík pro miminko pletený raglánem od krku vcelku i s rukávy. Tu nejmenší velikost. Děkuji Anna
25.12.2019 - 10:14DROPS Design answered:
Dobrý den, Anno, prohlédněte si například tyhle modely - snad vám některý padne do oka. Příjemné pletení! Hana
05.01.2020 - 12:25Bernadette Böhm wrote:
Was bedeutet 1M markieren?
27.01.2019 - 17:32DROPS Design answered:
Liebe Frau Böhm, setzen Sie einen Markierer in die 1. Masche, und einen anderen Markierer in die Masche nach den 50-56-62 (68-74) M glatt rechts gestrickt (= 2 Markierer, die je in einer Masche sind, dh nicht zwischen Maschen). Viel Spaß beim stricken!
28.01.2019 - 11:34Regina wrote:
Was bedeutet denn "unter dem Ärmel" zunehmen? Ist damit eine bestimmte Stelle gemeint?
09.10.2018 - 11:00DROPS Design answered:
Liebe Regina, wenn Sie 5 M unter dem Ärmel abketten sollen, ketten Sie die 2 letzten Maschen der Runde + die 3 ersten Maschen der Runde = 5 M werden jetzt abgekettet, die werden zusammen mit dem 5 M vom Rumpfteil, die auf die Seiten abgekettet wurden. Viel Spaß beim stricken!
09.10.2018 - 12:11Laila Sandaas wrote:
Str 12-18 md. Når alle fellinger er gjort, også til hals , er det tilsammen 95 masker fellt, Bolen pluss ærmer er 198 masker, hvordan skal jeg da sitte igjen med 53 masker?
27.02.2018 - 16:54DROPS Design answered:
Hei Laila. Strikker du genseren/bærestykket med knapp eller uten knapp? mvh Drops design
02.03.2018 - 07:57Laila Sandaas wrote:
Skal det felles både fram og bak til hals på genser
27.02.2018 - 16:01DROPS Design answered:
Hei Laila. Nei, det er kun de midterste 13-13-13 (15-15) maskene i front som settes på 1 tråd (til hals). Videre felles det mot halsen på hver 2.p: 2 m 1 gang og 1 m 2-2-2 (3-3) ganger. God Fornøyelse!
02.03.2018 - 07:38Yvonne Vest wrote:
Tænkte på, om jeg får svar snart, kan ikke få det færdigt før i svarer😊
14.12.2017 - 16:12Yvonne Vest wrote:
Jeg har det samme problem som Birgitta, jeg har alt for mange masker tilbage, når jeg er færdig med raglan og indtagningerne til hals. Min str. 12-18 mdr er der 198 m , når jeg starter raglan. indtagning og raglan er tilsammen 136 dvs at jeg har 62 masker tilbage, hvor der kun skulle være 49
11.12.2017 - 10:04Yvonne Vest wrote:
På bukserne står der i str 12 til 18 mdr, at benet skal 37 cm skal der skiftes til strømpepinde, og fortsættes med rib, indtil benet er 25 cm. Hvilke af de to mål passer?
15.11.2017 - 12:42DROPS Design answered:
Hej Yvone, bukserne skal måle ialt 46cm, benet incl rib skal måle 25 cm og fra linningen og ned til ribben 37 cm og ribben 9 cm. God fornøjelse!
17.11.2017 - 14:56Emke wrote:
Hi, should I finish the 'stripe A' pattern in the body part or should I put it aside after casting of the stitches for the arms?
22.08.2016 - 14:28DROPS Design answered:
Dear Emke, the stripes are not finished when you put piece aside, work now the sleeve (make sure to work last round on sleeve as on body) and continue stripes when working all pieces tog with raglan. Happy knitting!
23.08.2016 - 07:59Carola wrote:
Die Deutsche Version ist falsch. Man strickt 1r, 1 l im Bündchen.
30.06.2016 - 21:43