Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= prjónastefna |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Grey Gosling |
||||
|
|
|||
Prjónuð peysa fyrir börn, prjónuð frá hlið úr 2 þráðum DROPS Alpaca
DROPS Baby 21-39 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING (á við um hálsmál): Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkju með garðaprjóni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. að prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan þannig að ekki myndist gat). ATH: Síðasta lykkja í hálsmáli er prjónuð aðeins fast svo að kanturinn verði fallegur. HNAPPAGAT: 1. hnappagat = fellið af 1 l og sláið 1 sinni uppá prjóninn í næstu umf yfir þá l sem felld var af. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið, frá ermi að ermi. HÆGRI ERMI: Fitjið laust upp 26-28-28 (30-30) l (= neðst á hægri ermi) á prjóna nr 5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið GARÐAPRJÓN- sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 l hvoru megin, endurtakið þetta í öðrum hverjum cm alls 6-6-8 (9-11) sinnum = 38-40-44 (48-52) l. Þegar stykkið mælist 17-18-20 (24-28) cm fitjið laust upp 27-29-34 (39-42) nýjar l í byrjun og lok umf fyrir fram- og bakstykki = 92-98-112 (126-136) l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 9-10-11 (12-13) cm frá þeim stað þar sem fitjað var upp fyrir fram- og bakstykki (stykkið mælist 26-28-31 (36-41) cm frá uppfitjunarkanti neðst á ermi). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið slétt yfir fyrstu 46-49-56 (63-68) l á prjóni (= framstykki) og setjið 46-49-56 (63-68) l sem eftir eru á þráð (= bakstykki). Setjið prjónamerki í síðustu umf, bakstykkið er nú mælt héðan. FRAMSTYKKI: = 46-49-56 (63-68) l. Snúið við og fellið af fyrstu 6-6-6 (7-7) l á prjóni fyrir hálsmáli. Fellið nú af fyrir hálsmáli í hverjum cm: 1 l alls 3 sinnum – fellið af með því að prjóna saman 2 l innan við 2 kantlykkjur = 37-40-47 (53-58) l á prjóni. Prjónið þar til breiddin á framstykki = 12,5-14-15,5 (17-18,5) cm. Í næstu umf er fellt af 5-5-5 (6-6) fyrir HNAPPAGAT jafnt yfir – sjá útskýringu að ofan – ATH: Efsta hnappagatið við hálsmál er fellt af eftir 2 l frá kanti í hálsmáli. Prjónið nú 4 umferðir garðaprjón og fellið af. BAKSTYKKI: Setjið til baka þær 46-49-56 (63-68) l af þræði á prjóninn og prjónið slétt í hverri umf þar til stykkið mælist 7-8-9 (10-11) cm frá prjónamerki á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið laust upp 37-40-47 (53-58) l á prjóna nr 5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið slétt í hverri umf þar til stykkið mælist 4-4,5-5 (5,5-6) cm. Aukið áfram út í vinstri hlið í hverjum cm: 1 l alls 3 sinnum – lesið ÚTAUKNING! Þegar stykkið mælist 6-6,5-7 (7,5-8) cm eru fitjaðar upp 6-6-6 (7-7) l í vinstri hlið = 46-49-56 (63-68) l . Þegar búið er að auka út allar l fyrir hálsmáli eru stykkin prjónuð saman – sjá FRAM- OG BAKSTYKKI – að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið inn þær 46-49-56 (63-68) l frá bakstykki á sama prjón og vinstra framstykki = 92-98-112 (126-136) l á prjóni. Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið – héðan er nú mælt! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 9-10-11 (12-13) cm. Fellið laust af í byrjun næstu 2 umf 27-29-34 (39-42) l á hvorri hlið = 38-40-44 (48-52) l eftir á prjóni fyrir vinstri ermi – héðan er nú mælt. Þegar stykkið mælist 2-3-1 (3-3) cm fellið af 1 l í hvorri hlið, endurtakið í öðrum hverjum cm alls 6-6-8 (9-11) sinnum = 26-28-28 (30-30) l á prjóni. Fellið laust af þegar ermin mælist 17-18-20 (24-28) cm (stykkið mælist ca 59-64-71 (82-93) cm frá ermi til ermi). HÁLSMÁL: Prjóni upp frá réttu ca 40 til 50 l í kringum hálsmál á prjóna nr 5 með 2 þráðum. Prjónið 3 umf slétt fram og til baka, fellið síðan laust af. FRÁGANGUR: Brjótið saman stykkið tvöfalt á öxlum og saumið erma- og hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (109)
Bjørg Kvinge wrote:
Ser at det er kommet svar på spørsmål om venstre erme. Ville spurt om det jeg også, men jeg har spørsmål til hvilken ene av strikketøyet skal settes sammen med bilen. Er det den siden hvor det ikke er økninger?
17.12.2021 - 08:39DROPS Design answered:
Hei Bjørg. Litt usikker om jeg skjønner spørsmålet dit helt, men de maskene du har økt på venstre forstykket (altså der det er økt 1 maske 3 ganger + lagt opp 6 eller 7 masker), dette er "hals-området". Dette skal være lik (speilvendt) på halsen på høyre side. Når du setter venstre forstykke sammen med bolen, er det den siden med økninger som settes sammen med ryggstykket (bolen). mvh DROPS Design
21.12.2021 - 09:48Manuela Schedel wrote:
Hallo, ich bin den Anleitung bis Vorder- und Rückteil gefolgt und nun weiß ich nicht weiter. Lt. eurem Diagramm (wird hier das Rückteil gezeigt?) strickt man von links nach rechts. Aber lt. Anleitung strickt man doch erst den rechten Ärmel und das rechte Vorderteil, oder? Wenn ich eurer Anleitung folge, müsste ich das linke Vorderteil an ein halbes Rückteil stricken oder was habe ich nicht verstanden? Bitte um Hilfe! Leider kann man hier keine Bilder hochladen :( LG, Manu
23.05.2021 - 17:02DROPS Design answered:
Liebe Frau Schedel, die Jacke wird quer gestrickt, dh man schlägt die Maschen von der rechten Ärmel (wenn mann die Jacke strickt, dh auf den linken Seite wenn die Ärmel wie bei der Skizze liegt) bis zum linken Ärmel gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
25.05.2021 - 09:45Anja Roerade wrote:
Bijhet linker voorpand moet je iedere cm een steek meerderen, je begint na 5 cm, dan kom ik uit op 8 cm na iedere meerdering. Maar in het patroon staat 6,5 cm, dan direct 6 steken erbij. Dit klopt dus niet. bij het rechter voorpand staat minderen voor de hals en dan vanaf daar meten, is 14 cm. Dit klopt dus niet met de vorige opmerking.
08.03.2021 - 09:34Patri wrote:
Hola no entiendo muy bien las notas de la parte del escote. Una vez rematados los seis primeros puntos, tengo que hacer una disminucion? Y despues de ahi, tejo pd hasta el final de la vuelta, y las siguientes disminuciones se hacen a un cm de la disminucion anterior, cuando vuelvo en la siguiente vuelta, o son disminuciones a un cm entre ellas en la misma primera vuelta? Me he atascado y no se seguir...
28.02.2021 - 00:01DROPS Design answered:
Hola Patri, las siguientes disminuciones se hacen a un cm de la disminucion anterior, cuando vuelves en la siguiente vuelta. Buen trabajo!
04.03.2021 - 16:13DUBOIS ANNE wrote:
BONJOUR Pour le départ de la manche par le poignet, il n y a pas le nombre de mailles en centimètre. Pouvez vous répondre à cette question? Merci pour votre réponse
31.01.2021 - 19:12DROPS Design answered:
Bonjour Mme Dubois, la largeur du poignet est env. de 7,5-9 cm (selon la taille). La circonference du poignet est respectivement de 15 au 18 cm (env). Bon tricot!
31.01.2021 - 19:49Elke wrote:
Ich habe diese Babyjacke in Größe 74 gestrickt. Diese Mama des Babys ist so begeistert und hätte gerne die gleiche Jacke in Größe 42. können Sie mir bitte einen Tipp geben welche Jacke in ihren Sortiment diesem am ähnlichsten ist? Vielen Dank für Ihre Bemühungen
10.12.2020 - 09:37DROPS Design answered:
Liebe Elke, genau dieselbe Jacke haben wir nicht für Damen, aber hier finden Sie unsere Jacken-Modellen, die quer gestrickt sind. Bestimmt finden Sie eine Idee bzw Inspiration. Viel Spaß beim stricken!
10.12.2020 - 13:55Marije Van Hattum wrote:
Zoals eerder door iemand (jaren geleden al) is opgemerkt, klopt de beschrijving niet van de tweede mouw: bij de eerste mouw moet om de centimeter gemeerderd worden. Bij 'LIJF' wordt gemeld dat om de centimeter geminderd moet worden. Dit resulteert in twee ongelijke mouwen. Misschien toch de moeite waard om aan te passen of zie ik het toch verkeerd? Alvast dank!
06.12.2020 - 11:13DROPS Design answered:
Dag Marije,
Je hebt inderdaad gelijk, op de linker mouw moet ook om de 2 cm geminderd worden. Het is nu aangepast. Bedankt voor het doorgeven en veel breiplezier!
06.12.2020 - 14:15Karin wrote:
I have made this pattern about five times in different sizes for my grandchildren. My daughter loves the design and would like me to knit one for her in your boucle wool. Could give me a small adult size version of the same pattern.
04.11.2020 - 19:50DROPS Design answered:
Dear Karin, we do not have the exact same pattern in adult size, but you will find our jackets worked sideways here - hope this can help. Happy knitting!
05.11.2020 - 10:01Yolanda wrote:
Moet het achterland niet breder, want nu kom ik niet goed uit met voorhanden, Knoopsgaten komen niet in midden maar schuin
04.10.2020 - 07:38DROPS Design answered:
Dag Yolanda,
Als ik als voorbeeld even de kleinste maat neem dan wordt het voorpand 12,5 breed (+ nog eens stukje overlap voor de knoopbies). Het achterpand wordt eerst samen met het voorpand gebreid tot een breedte van 9 cm, dan brei je (bij de paragraaf over 'ACHTERPAND') er nog een stuk van 7 cm aan en op het moment dat het rechter voorpand mee gebreid wordt brei je er opnieuw een stuk van 9 cm aan. Daarmee kom je op een totaal van 25 cm voor het achterpand. Dit is ook de breedte van beide voorpanden samen. (De knoopbies reken je dan niet mee).
21.11.2020 - 18:12Nancy wrote:
I am having an issue with the instructions of this pattern. I have read all the English comments and still am unable to figure out my next step. How do I attach the left front stitches to the back stitches? Do I attach at the neckline of the back stitches or at the bottom of the back stitches?
21.09.2020 - 00:01DROPS Design answered:
Dear Nancy, after you have worked left front piece, work the sts of left front piece from RS then at the end of this row (make sure it's on the same side where you cast on the new sts for neck on the left side of piece), work the stitches on back piece on same needle = 92-136 sts (see size) and now continue back and fort other all stitches for shoulder and cast off sts for front/back piece to work the 2nd sleeve. Happy knitting!
21.09.2020 - 15:31