Rani |
|
|
|
Settið samanstendur af: Heklaðri húfu, hálsskjóli og vettlingum úr DROPS Merino Extra Fine með sólfjaðrakanti.
DROPS 141-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fl í byrjun hverrar umf með fl er skipt út fyrir 1 ll og hver umf endar með 1 kl í ll í byrjun umf. Fyrsti st í byrjun hverrar umf með st er skipt út fyrir 3 ll og hver umf endar með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 fl með því að hekla 2 fl í sömu l. Aukið er út um 1 st með því að hekla 2 st í sömu l. TVEIR ST HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 1 st, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á nálinni), heklið síðan næsta st og þegar þráðurinn er dreginn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 l. TVÆR FL HEKLAÐAR SAMAN: Heklið 1 fl, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næstu fl og dragið þráðinn í gegnum báðar l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! HÚFA: Heklið 4 ll, með heklunál nr 4 með Merino Extra Fine og tengið þær í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 st í hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 st í hvern st umf hringinn = 12 st. UMFERÐ 3: Heklið * 1 st í fyrsta st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 st. UMFERÐ 4: Heklið * 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 st. Haldið svona áfram með útaukningu þar til 84-96 st eru í umf (þ.e.a.s. að í hverri umf er heklaður 1 st fleiri áður en heklaðir eru 2 st í sama st, svo að aukið er út um 6 sl í hverri umf). Heklið nú hringinn með 1 st í hvern st (þ.e.a.s. aukið ekki út), þar til húfan mælist ca 26-28 cm ofan frá og niður. Heklið nú eina umf með fl JAFNFRAMT er aukið út um 6-4 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 90-100 fl í umf, klippið ekki frá, snúið við og heklið sólfjaðrakant hringinn frá röngu þannig: SÓLFJAÐRAKANTUR: UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 fl í fyrstu l, * hoppið yfir 3 l, í næstu fl eru heklaðir 3 st + 1 ll + 3 st, hoppið yfir 3 fl, 1 fl í næstu fl **, 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*, síðasta endurtekningin í umf endar eftir **, heklið nú 1 ll og 1 kl í fl í byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 5 ll (= 1 st + 2 ll), 1 st í sömu l í byrjun umf, * 3 ll, 1 fl í ll í miðjan st-hópinn, 3 ll **, í næstu ll er heklaður 1 st + 2 ll + 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll (= 1 st), 2 st í ll-boga á undan næsta st, 1 ll, 3 st í sama ll-boga, * 1 ll, 1 fl í næsta ll-boga, 1 ll, 1 fl í næsta ll-boga, 1 ll **, í næsta ll-boga eru heklaðir 3 st + 1 ll + 3 st *, endurtakið frá *-*, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 4: Heklið kl fram að ll í miðjan st-hópinn, 1 fl í ll í miðjan st-hópinn, * 3 ll, í ll á milli 2 fl eru heklaðir 2 st + 2 ll + 1 st, 3 ll **, 1 fl í ll miðjan st-hópinn *, endurtakið frá *-*, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið nú 1 kl í fl í byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið 1 kl í fyrsta ll-boga, 1 fl í sama ll-boga, 1 ll, * í næsta ll-boga (þær 2 ll á milli 2 st) heklið 3 st + 1 ll + 3 st, 1 ll, 1 fl í næsta ll-boga, 1 ll **, 1 fl í næsta ll-boga, 1 ll, endurtakið frá *-*, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið 1 kl í fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Brjótið sólfjaðrakantinn út á móti réttu. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Sólfjaðrakantur er heklaður í lokin. HÁLSSKJÓL: Heklið 90-102 LAUSAR ll með heklunál nr 4,5 með Merino Extra Fine og tengið þær í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 st í hverja ll umf hringinn = 90-102 st. Heklið nú hringinn með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist ca 16-18 cm. Heklið 1 umf með fl og 1 fl í hvern st = 90-102 fl. Heklið 1 umf með sl JAFNFRAMT er aukið út um 50-48 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 140-150 fl. Klippið ekki frá, heklið nú sólfjaðrakant hringinn frá réttu þannig: SÓLFJAÐRAKANTUR (meðfram neðri brún á hálsskjóli): UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu l, 1 ll, hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu l, * hoppið yfir 3 l, í næstu fl er heklað 3 st + 1 ll + 3 st, hoppið yfir 3 fl **, 1 fl í næstu fl, 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*, síðasta endurtekningin í umf endar eftir **, heklið nú 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 1 kl í fyrstu ll, 5 ll (= 1 st + 2 ll), 1 st i sömu ll, * 3 ll, 1 fl í ll í miðjan st-hópinn, 3 ll **, í næstu ll er heklaður 1 st + 2 ll + 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið 1 kl í ll-boga milli 2 st, 3 ll (= 1 st), 4 st í sama ll-boga, 2 ll, 5 st í sama ll-boga, * 1 ll, 1 fl í næsta ll-boga, 1 ll, 1 fl í næsta ll-boga, 1 ll **, í næsta ll-boga (milli 2 st) heklið 5 st + 2 ll + 5 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. SÓLFJAÐRAKANTUR (meðfram efri brún á hálsskjóli): Heklið 1 fl í fyrstu l, * 1 ll, hoppið yfir 2 l, í næstu fl eru heklaðir 3 st + 1 ll + 3 st, 1 ll, hoppið yfir 2 fl **, 1 fl í næstu l, *, endurtakið frá *-*, síðasta endurtekningin í umf endar eftir **, heklið nú 1 ll og 1 kl í fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er heklað hringlaga stroff með sólfjaðrakanti, síðan eru heklaðar upp nýjar l kringum opið og vettlingurinn er heklaður í hring til loka. STROFF: Heklið 30 MJÖG LAUSAR ll með heklunál nr 4 með Merino Extra Fine og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 1 fl í hverja ll umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í fyrstu l, 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl, * hoppið yfir 3 l, í næstu fl eru heklaðir 3 st + 1 ll + 3 st, hoppið yfir 3 fl **, 1 fl í næstu fl, 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl*, endurtakið frá *-*, síðasta endurtekningin í umf endar eftir **, heklið nú 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. UMFERÐ 4: Heklið 1 kl í fyrstu ll, 5 ll (= 1 st + 2 ll), 1 st í sömu ll, * 3 ll, 1 fl í ll í miðjan st-hópinn, 3 ll **, í næstu fl er heklaður 1 st + 2 ll + 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið 1 kl í ll-boga á milli 2 st, 3 ll (= 1 st), 2 st í sama ll-boga, 1 ll, 3 st í sama ll-boga, * 1 ll, 1 fl í næsta ll-boga, 1 ll, 1 fl í næsta ll-boga, 1 ll **, í næsta ll-boga (milli 2 st) heklið 3 st + 1 ll + 3 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 6: Heklið kl fram að ll í miðjan st-hópinn, 1 fl í ll í miðjan st-hópinn, * 3 ll, í ll á milli 2 fl er heklaður 1 st + 2 ll + 1 st, 3 ll **, 1 fl í ll miðjan st-hópinn *, endurtakið frá *-*, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið 1 kl í fl í byrjun umf. UMFERÐ 7: Heklið 1 kl í fyrsta ll-boga, 1 ll, * í næsta ll-boga (þær 2 ll á milli 2 st) heklið 3 st + 1 ll + 3 st, 1 ll, 1 fl í næsta ll-boga, 1 ll **, 1 fl í næsta ll-boga, 1 ll, endurtakið frá *-*, síðasta endurtekningin endar eftir **, heklið 1 kl í kl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. VETTLINGUR: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Byrjið umf í byrjun á ll-hring sem heklaður var í byrjun á vettlingnum og heklið 1 fl í hverja l kringum allt stroffið = 30 fl. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið st hringinn með st í hverja l JAFNFRAMT sem fjöldi l er jafnaður út til 27-30 st í 1. umf – LESIÐ TVEIR ST HEKLAÐIR SAMAN. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-9 cm er aukið út fyrir þumal í hvorri hlið við 2. l í byrjun umf – aukið er út um 1 st í hvorri hlið við 2. l - LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu hvoru megin við þessa l í hverri umf, 3-4 sinnum til viðbótar = 35-40 st í umf (þumallykkja = 9-11-st). Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 kl í hverja og eina af þeim 10-12 fyrstu st í byrjun umf, 3 ll (= 1 st), síðan er heklaður 1 st í hvern af næstu 25-28 st, 1 ll og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 26-29 st og 1 ll í umf. Í næstu umf er heklað 1 st í hvern st og 1 st í ll í lok umf = 27-30 st. Heklið st hringinn þar til vettlingurinn mælist ca 20-21 cm frá prjónamerki (mátið vettlinginn, það eru ca 3 cm að loka máli). Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT sem annar hver og 3. hver st eru heklaðir saman – TVEIR ST HEKLAÐIR SAMAN sjá útskýringu að ofan = 18-20 st. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT sem 2 og 2 st eru heklaðir saman = 9-10 st. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hvern st JAFNFRAMT sem 2 og 2 fl eru heklaðar saman. Klippið frá, dragið þráðinn í gegnum l, herðið að og festið. ÞUMALL: UMFERÐ 1: Heklið 1 kl í fyrstu af 9-11 þumallykkjum, 3 ll (= 1 st), heklið nú 1 st í hvern og einn af næstu 8-10 st, heklið nú 6 st í l fyrir aftan þumal JAFNFRAMT eru þessir st heklaðir saman 2 og 2 – sjá útskýringu að ofan = 12-14 st. UMFERÐ 2-4: Heklið 1 st í hvern st = 12-14 st. Mátið vettlinginn, nú er ca 1 cm eftir að loka máli á þumli. Heklið e.t.v. 1 umf til viðbótar með 1 st í hvern st. Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT sem 2 og 2 st eru heklaðir saman = 6-7 st. UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hvern st JAFNFRAMT sem 2 og 2 fl eru heklaðar saman. Klippið frá, dragið bandið í gegnum l, herðið að og festið. Heklið annan vettling á sama hátt, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið er út fyrir þumal hvoru megin við næst síðustu l í umf (í stað fyrir hvoru megin við 2. l í umf) og fyrsta umf eftir útaukningu fyrir þumal er hekluð þannig: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvern af næstu 25-28 st, 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun næstu umf = 26-29 st. Í næstu umf er heklaður 1 st í hvern st og 1 st í ll í lok umf = 27-30 st. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Elisabeth wrote:
Vældig sød sæt og god farve
02.06.2012 - 23:02Bella wrote:
Veldig søt lue
01.06.2012 - 10:12