DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 148-1
DROPS Design: Mynstur nr z-642
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S / M – L/XL – XXL /XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
300-350-400 gr litur nr 3112, daufbleikur
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-150-175 gr litur nr 03, ljós bleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 19 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hvorri tegund.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 + A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá miðju að aftan. Prjónið fyrst með sokkaprjónum, eftir því sem lykkjum fjölgar er skipt yfir á hringprjóna.

HRINGPEYSA:
Fitjið upp 12 l með 1 þræði af hvorri tegund og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT eru prjónaðar 2 l í allar l = 24 l. Prjónið 1 umf slétt án útaukningar. Í næstu umf er prjónað þannig: * Prjónið 1 l sl, 2 l sl í næstu l *, endurtakið frá *-* = 36 l. Prjónið nú eftir mynstri A.1 (= 6 mynstureiningar hringinn). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 234 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvern og einn af öngum stjörnunnar (í miðju l í hverja mynstureiningu) = 6 prjónamerki alls. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með því að slá uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat = 12 l fleiri í hverri umf. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 1-2-3 sinnum til viðbótar (alls 24-36-48 fleiri l) = 258-270-282 l (42-44-46 l á milli hverra l með prjónamerki). Prjónið nú 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir allar l, án útaukninga. Í næstu umf er prjónað sl, JAFNFRAMT eru felldar af allar l á milli 1. og 2. prjónamerkis, fellið af miðju 32-34-36 l á milli 2. og 3. prjónamerkis og miðju 32-34-36 l á milli 6. og 1 prjónamerkis fyrir handveg. Næsta umf er prjónuð brugðið, JAFNFRAMT er prjónuð upp 1 ný l í hverja l sem felld var af á milli 1. og 2. prjónamerkis og fitjaðar eru upp 32-34-36 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 6. og 1. prjónamerkis. (Lykkjurnar á milli 1. og 2. prjónamerkis jafngilda breidd axla efst uppi. Til þess að axlavíddin verði ekki of víð eru þessar l felldar af og síðan prjónaðar aftur upp í næstu umf. Þetta kemur í veg fyrir að stykkið teygist yfir axlirnar). Þegar fitjað hefur verið upp/prjónað upp allar l eru 258-270-282 l eftir á prjóni. Prjónið 2 umf garðaprjón. Stykkið mælist ca 31-32-33 cm frá miðju.

Prjónið nú sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki (= 12 útaukningar). Aukið út með því að slá uppá prjóninn (sem prjónaður er snúinn í næstu umf svo að ekki myndist gat). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 9-11-13 sinnum til viðbótar (alls 10-12-14 útaukningar) = 378-414-450 l.

Haldið eftir l á milli 2. og 4. prjónamerkis á prjóni, þær l sem eftir eru eru settar á þráð = 125-137-149 l á prjóni. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir l á prjóni, JAFNFRAMT í lok hverrar umf eru 4 síðustu l settar á þráð (þær eru ekki prjónaðar, snúið við), haldið áfram þar til 37- 49- 61 l er eftir á prjóni. Setjið síðustu 37- 49- 61 l á þráð. Setjið l á milli 5. og 1. prjónamerkis á hringprjóna nr 6, prjónið á sama hátt og í hinni hliðinni. Prjónið nú allar l slétt frá réttu aftur inn á hringprjón nr 6 – á milli í hvert sinn sem l eru settar á hjálparþráð í hvorri hlið er þráðurinn tekinn upp og snúið áður en hann er settur uppá prjóninn (þ.e.a.s. á milli 4. hverrar l, þetta er gert til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingunum), að auki er aukið út jafnt yfir þannig að það verða alls 452-496-540 l á prjóni.

Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið nú eftir A.2. Prjónið A.2A, endurtakið A.2B þar til 2 l eru eftir og endið á A.2C. Prjónið A.2 í 6 cm, prjónið 2 umf garðaprjón og fellið af.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 36-38-40 l á sokkaprjóna nr 6 með 1 þræði af hvorri tegund. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Prjónið 4 umf garðaprjón. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3 cm millibili 10-11-13 sinnum til viðbótar (alls 11-12-14 útaukningar) = 58-62-68 l. Þegar stykkið mælist 53-54-56 cm fellið af 6 l við miðju undir ermi og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Fellið nú af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf á hvorri hlið: 3 l 3 sinnum = 34-38-44 l. Fellið af þær l sem eftir eru, ermin mælist ca 56-57-59 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt og saumið ermar í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.02.2013
Í 2. málsgrein undir HRINGPEYSA:...Stykkið mælist ca 31-32-33 cm frá miðju.
Í síðustu málsgrein undir HRINGPEYSA:...Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið nú eftir A.2. Prjónið A.2A, endurtakið A.2B þar til 2 l eru eftir og endið á A.2C. Prjónið A.2 í 6 cm, prjónið 2 umf garðaprjón og fellið af.
Ný A.1 og A.2 – mynsturteikning.
Yfirfarið á vefsvæði: 02.10.2014
HRINGPEYSA...Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 1-2-3 sinnum til viðbótar (alls 24-36-48 fleiri l) = 258-270-282 l (42-44-46 l á milli hverra l með prjónamerki).

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðið
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt af hjálparprjóni
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
symbols = setjið 1 lykkju á hjálparprjón framan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (291)

country flag Ryter Cornelia wrote:

Guten Tag Ich bräuchte Eure hilfe. Ich komme auf die 127 Maschen zwischen den 2 Markirer und der 4 Markierer. dann müsste es 37 Maschen noch übrig sein. Vielen dank für Ihre schnelle erklärung. Mit Freundlichen Grüssen C.Ryter

11.12.2016 - 11:30

DROPS Design answered:

Liebe Frau Ryter, jetzt stricken Sie über die 125 M (1. Größe) Hin- Und Rück-R glatt re mit verkürzten Reihen, dh von der 1. Reihe legen Sie die letzten 4 M still, wiederholen Sie so am Ende jeder Reihe bis 37 M auf der Nadel bleibt (= 44 M beidseitig wurden nach und nach nicht gestrickt). Viel Spaß beim stricken!

12.12.2016 - 10:54

Donna wrote:

Still working on A2. Reading first line of A2 as- A2A-K2 tog, 1 YO between 2 sts, A2B- K2 tog, 1YO between 2 sts until 2 sts remain A2C-K2 tog, 1 YO. 2nd line of graft knit, How do you read 3rd line?

17.10.2016 - 23:34

DROPS Design answered:

Dear Donna, on 3st row work the last st in A.2A tog with 1st st in A.2B (= 2 sts in A.2A), *YO (= 1st st in A.2B), work the last st in A.2B tog with the first st next A.2B (= 2 sts in A.2B)*, repeat from *-* and on last repeat in A.2B K tog the last st in A.2B with 1st st in A.2C (= 2 sts in last A.2B), YO (1st st in A.2C), K1 (= 2 sts in A.2C). Happy knitting!

18.10.2016 - 09:17

Donna wrote:

I am working on A2 with 496 stitches. When I worked the 3rd round I was left with 4 stitches. The math doesn't work. A2 is over 6 stitches. Please clarify.

16.10.2016 - 19:46

DROPS Design answered:

Dear Donna, you work A.2 over the 496 sts as follows: A.2 A (= 2 sts) 1 time, repeat A.2B (= 2 sts) a total of 246 times (= over the next 492 sts), finish with A.2C (= 2 sts) a total of 2 times = 2+ 492 + 2 = 496 sts. Happy knitting!

17.10.2016 - 10:26

Donna Hein wrote:

Do you continue with cast off/on stitches between 1st and 2nd marker (shoulder width) on garter stitch rows only or do you continue over the stocking stitch rows?

14.10.2016 - 11:17

DROPS Design answered:

Dear Mr Hein, after you have cast off sts between 1st and 2nd marker and sts between 6th and 1st marker then picked up the sts again, work 1 ridge over all sts, and continue in stocking st. Happy knitting!

14.10.2016 - 11:31

country flag KathrinJunghof wrote:

Kann mir jemand sagen ob das Model wirklich mit Nadel und Nadelspiel 6mm gestrickt werden soll oder was bedeutet Nr. 6

19.01.2016 - 22:14

DROPS Design answered:

Ja genau, Nr. 6 bedeutet 6 mm. Sie müssen allerdings die Nadelstärke verwenden, mit der Sie die angegebene Maschenprobe erhalten, Nadelstärke 6 ist nur ein Richtwert. Sie stricken die Jacke (und die Maschenprobe entsprechend auch) mit beiden Garnen zusammen.

24.01.2016 - 20:44

country flag Swen Dreiling wrote:

Muss ich wirklich beim weiterstricken die Maschen stilllegen oder kann ich sie auf der Nadel behalten? Bzw diesen Querfaden mitstricken???

29.11.2015 - 17:24

DROPS Design answered:

Der besseren Übersicht und Handhabbarkeit halber sollten Sie die je 4 M jeweils wie beschrieben stilllegen und so vorgehen wie in der Anleitung beschrieben.

05.12.2015 - 17:34

country flag Pernilla Lindberg wrote:

Hej, Jag får inte varv 45 i diagram A1 att stämma. Om man ska sticka 4 räta maskor innan omslag och ihoptagning får jag inte mittenmaskan centrerad. Hur ska jag gå tillväga? Efterföljande varv får jag inte heller att stämma. Hoppas ni kan hjälpa mig. /Pernilla

14.09.2015 - 21:22

DROPS Design answered:

Hej Er det næst sidste mønsterpind du mener, den som starter med 4r, 1 omslag, tag 1 m løst.... Husk at du også har 4 retm i den anden side af diagrammet, har du talt dem med. Sørg for at få 19 m imellem de to midterste omslag i diagrammet. God fornøjelse!

17.09.2015 - 10:00

country flag Cathy wrote:

Working o this part and cannot figure out how do twist the yarn to prevent the hole when added the sts from the holder? ( Then K all sts from RS back on to circular needle size 6 mm / US 10 -every time sts where slipped on stitch holders in each side, get the yarn and twist it before slipping it on needle (i.e. between every 4th st, to avoid holes in the transitions)

07.05.2015 - 20:49

DROPS Design answered:

Dear Cathy, when working back all sts onto needle you will pick up 1 strand (like inc in make 1) between sts worked on right needle and sts from left needle, and work this new st with the next st tog, but to avoid hole, the new st should be worked twisted while the next st on left needle will be work in front of loop as usual. Happy knitting!

08.05.2015 - 09:36

country flag Lill Connie Furu wrote:

Størrelsen er oppgitt i S/M, L/XL og XXL/XXXL. Er størrelsene «normale»? Hva tilsvarer den største størrelsen? Jeg bruker normalt størrelse 48-50 i overdeler (stor byste). Jeg har prøvd å måle etter diagrammet som er oppgitt, men er ikke sikker på hvilken størrelse jeg bør velge.

23.04.2015 - 12:59

DROPS Design answered:

Hei Lill. Jeg ville da vaelge en XXX/XXXL, da den da nok kommer til at blive for stram. Men kig ogsaa paa laengden af ermene.

23.04.2015 - 13:27

country flag Jacquie Laughton wrote:

Can you please tell me if the yarn amounts are tight as it seems small amounts to make the large size

01.04.2015 - 02:38