Emma |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr Cotton Light með stuttum ermum, gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 148-12 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.4. ÚTAUKNING Aukið er út um 1 l með því að prjóna 2 l í sömu l. ÚRTAKA-1 (á við um þrengingu): Byrjið á 1 l á undan l með prjónamerki og fækkið lykkjum þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku við ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan prjónamerki og á undan kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og á eftir kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. KJÓLL: Fitjið laust upp 324-360-396-432-468-504 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Light. Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 252-280-308-336-364-392 l á prjóni. Prjónið nú mynstur A.2 (= 9-10-11-12-13-14 mynstureiningar með A.2 í umf). Þegar A.2 hefur verið prjónað (stykkið mælist ca 10 cm), setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 42-42-42-56-56-70 l, setjið 1 prjónamerki í síðustu l, prjónið 41-55-69-55-69-55 l, setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 83-83-83-111-111-139 l, setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 41-55-69-55-69-55 l. Setjið 1 prjónamerki í næstu l og prjónið síðustu 41-41-41-55-55-69 l í umf. Prjónið nú sléttprjón hringinn (látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11 cm er fækkað um 2 l við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 8 l færri). Endurtaki úrtöku í 4. hverri umf, 11-12-13-14-14-15 sinnum til viðbótar (= alls 12-13-14-15-15-16 úrtökur) = 156-176-196-216-244-264 l. Þegar stykkið mælist 30 cm í öllum stærðum er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 0-2-4-0-4-0 l jafnt yfir = 156-174-192-216-240-264 l. Fjarlægið prjónamerki, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið mynstur eftir A.3. Þegar stykkið mælist ca 49-50-51-52-53-54 cm (endið eftir 1 umf með gati), prjónið nú 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 8-10-12-14-14-14 l jafnt yfir = 148-164-180-202-226-250 l. Prjónið 1 umf brugðið, 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 28-36-36-42-42-42 l jafnt yfir = 120-128-144-160-184-208 l. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.4. Þegar A.4 hefur verið prjónað er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-36-36-42-42-44 l jafnt yfir = 148-164-180-202-226-252 l. Prjónið 1 umf brugðið. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 74-82-90-101-113-126 l (= hliðar) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið aftur yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – SJÁ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 og 9 cm = 160-176-192-214-238-264 l. Þegar stykkið mælist 10 cm – passið uppá að næsta umf er brugðin umf, fellið af 8-10-12-16-20-24 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 4-5-6-8-10-12 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 72-78-84-91-99-108 l eftir á fram- og bakstykki. BAKSTYKKI: = 72-78-84-91-99-108 l. Byrjið á sl frá réttu og fellið af í byrjun umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1-1-2-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 68-74-76-83-91-100 l, klippið frá. Prjónið nú inn ermakúpur á bakstykki (1. umf = rétta) þannig: Fitjið upp 30-30-32-34-36-38 l á prjón, setjið 1 prjónamerki, prjónið 68-74-76-83-91-100 l frá bakstykki, setjið 1 prjónamerki og fitjið upp 30-30-32-34-36-38 l á prjóninn = 128-134-140-151-163-176 l. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka á hringprjóna nr 4. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka þannig – LESIÐ ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 l í byrjun og lok umf innan við 1 kantlykkju: Fækkið lykkjum í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 12-12-13-13-14-14 sinnum. Fellið JAFNFRAMT af í hvorri hlið við ermar (þ.e.a.s. á undan fyrsta prjónamerki og á eftir öðru prjónamerki séð frá réttu): Fækkið lykkjum í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu): Fækkið um 1 l alls 12-12-13-13-14-14 sinnum. Fækkið JAFNFRAMT kykkjum í hvorri hlið inn við bakstykki (þ.e.a.s. á eftir fyrsta prjónamerki og á undan öðru prjónamerki séð frá réttu): Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu): Fækkið um 1 l alls 0-2-2-4-7-9 sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm eru felldar af miðju 34-34-36-37-37-38 l frá réttu fyrir hálsmál og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: Haldið áfram með úrtöku við ermakúpu eins og áður. Eftir síðustu úrtöku eru 23-24-24-27-28-32 l eftir á prjóni (þ.e.a.s. 17-18-18-19-20-22 l á öxl + 6-6-6-8-8-10 l eftir efst á ermakúpu). Prjónið 1 umf slétt frá röngu og setjið síðustu 6-6-6-8-8-10 l af ermakúpu á þráð. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir 17-18-18-19-20-22 l á öxl JAFNFRAMT eru l frá ermakúpu prjónaðar saman með l á prjóni þannig: Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar til 1 l er eftir á vinstri prjóni, setjið síðustu l á hægri prjón án þess að prjóna hana, setjið til baka fyrstu og aðra l af þræði á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l af hægri prjón aftur til baka á vinstri prjón og prjónið þessar 3 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá röngu, * prjónið 1 umf slétt frá réttu þar til 1 l er eftir á vinstri prjóni, setjið síðustu l á hægri prjón án þess að prjóna hana, setjið til baka næstu l af þræði á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l af hægri prjóni til baka yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 2 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá röngu *, endurtakið þessar 2 umf frá *-* þar til allar l af þræði hafa verið prjónaðar saman með síðustu l á prjóni, fellið laust af. Berustykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki og allur kjóllinn mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm. VINSTRI ÖXL: Prjónið á sama hátt og hægri öxl en eftir síðustu úrtöku eru síðustu 6-6-6-8-8-10 l fyrir ermakúpu settar á þráð. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umf slétt þar til 1 l er eftir á vinstri prjón, setjið síðustu l yfir á hægri prjón án þess að prjóna þær, setjið til baka fyrstu og aðra l af þræði yfir á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l á hægri prjóni yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 3 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá réttu, endurtakið síðan þessar 2 umf frá *-* eins og á hægri öxl (en með byrjun frá röngu) þar til allar l af þræði hafa verið prjónaðar saman með síðustu l á prjóni, fellið laust af. FRAMSTYKKI: = 72-78-84-91-99-108 l. Prjónið á sama hátt og bakstykki og fitjið upp fyrir ermakúpur í hvorri hlið eins og á bakstykki = 128-134-140-151-163-176 l. Fellið nú af á framstykki og á ermakúpum eins og á bakstykki en þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm er fellt af miðju 34-34-36-37-37-38 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með úrtöku og prjónið síðan hægri og vinstri öxl á bakstykki. Berustykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki. Kjólinn mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlarsaumana og niður meðfram ermakúpum – saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (84)
Elisabeth wrote:
Sommer sommer
10.12.2012 - 18:42June-Ann Holmén wrote:
Sommar dröm
10.12.2012 - 18:17EA wrote:
Sommerens nummer en
10.12.2012 - 15:39Johanna Peltomaa wrote:
Kesäheinä
10.12.2012 - 15:09