Orange Delight |
|
|
|
Hekluð taska / net og farsímahulstur úr 2 þráðum úr DROPS Safran
DROPS 147-43 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Þegar stykkið er heklað í hring er byrjað með þessari aðferð til að sleppa við göt í miðjunni (í stað þess að gera ll-hring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og dreginn upp úr hringnum, heklið 3 ll (teklin með sem 1. st), heklið nú st utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi st er kominn sem þú óskar eftir, dragið í endann á þræðinum svo að hægt sé að draga hringinn saman. Festið endann á bakhlið. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf með st byrja á 3 ll (koma í stað fyrir 1 st). Umferð endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. ST-HÓPUR: Heklið 1 st um ll-boga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st um sama ll-boga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st og dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (3 st hafa nú verið heklaðir saman í 1 st-hóp). ÚRTAKA: Fækkað er um 1 st með því að hekla 2 st saman, þ.e.a.s. heklið 1 st, bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn ekki í gegn. Heklið næsta st, en nú er uppslátturinn og þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. RENDUR TASKA: Rendurnar eru heklaðar í st-hóp þannig: 3 umf með 1 þræði af dökk bleikur + 1 þræði af appelsínugulur 3 umf með 1 þræði appelsínugulur + 1 þræði ferskja 3 umf með 1 þræði ferskja + 1 þráður skærgulur 3 umf með 1 þræði ferskja + 1 þræði appelsínugulur 1 umf með 1 þræði appelsínugulur + 1 þráður dökk bleikur. RENDUR FARSÍMAHULSTUR: Rendurnar eru heklaðar í st-hóp þannig: 3 umf með 1 þræði dökk bleikur + 1 þræði appelsínugulur 2 umf með 1 þræði appelsínugulur + 1 þræði ferskja 2 umf með 1 þræði ferskja + 1 þræði af skærgulur 2 umf með 1 þræði ferskja + 1 þræði appelsínugulur 1 umf með 1 þræði appelsínugulur + 1 þræði dökk bleikur ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá botni og upp. TASKA: Heklið með heklunál nr 4 með 1 þræði í litnum dökk bleikur + 1 þræði í litnum appelsínugulur og byrjið á GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. UMFERÐ 1: Heklið 16 st um galdrahringinn. UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 2 st í hvern st = 32 st. UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í næsta st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st. UMFERÐ 4: * Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 st. UMFERÐ 5: Heklið 1 st í hvern st. UMFERÐ 6: * Heklið 1 st í hvern af næstu 3 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 80 st. UMFERÐ 7: Heklið 1 st í hvern st. UMFERÐ 8: * Heklið 1 st í hvern af næstu 4 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 96 st. UMFERÐ 9: Heklið 1 st í hvern st. UMFERÐ 10: * Heklið 1 st í hvern af næstu 5 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 112 st. UMFERÐ 11-13: Heklið 1 st í hvern st. Setjið 1 prjónamerki eftir síðustu umf. Heklið nú RENDUR TASKA – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru st-hópar heklaðir þannig: UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 st í næsta st, dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni (= 3 st hafa verið heklaðir saman), *2 ll, heklið 1 st í næsta st, bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn , heklið 1 st í næsta st, síðasti uppslátturinn er dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* umf hringinn, hoppið yfir síðasta st í umf og endið á 2 ll og 1 kl efst í fyrsta st-hópinn í byrjun umf = 37 st-hópar með 2 ll á milli hverra, snúið við og heklið næstu umf frá röngu. UMFERÐ 2: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngilda 1 st), heklið 1 st um sama ll-boga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 st um sama ll-boga, dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni, * 2 ll, 1 ST-HÓPUR – sjá útskýringu að ofan, um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 2 ll og 1 kl efst í fyrsta st-hópinn. Snúið við, næsta umf er hekluð frá réttu. Endurtakið umf 2, heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu JAFNFRAMT er haldið áfram með rendur. Þegar rendur hafa verið heklaðar mælist stykkið ca 16 cm frá prjónamerki. Heklið nú frá réttu (með 1 þræði í litnum dökk bleikur + 1 þráður í litnum appelsínugulur) þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, 1 kl um fyrsta ll-boga, 3 ll, 2 st um sama ll-boga, heklið nú 3 st í hvern ll-boga. Endið umf með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 111 st. UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT er fækkað um 11 st jafnt yfir (þ.e.a.s heklið 9. og 10. st saman – lesið ÚRTAKA = 100 st. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 st í hvern st = 100 st. UMFERÐ 5: * Heklið 4 ll, 1 st í 4. ll frá heklunálinni, hoppið yfir 3 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í 1. ll í byrjun umf = 25 ll-bogar. Klippið frá og festið enda. AXLARÓL: Heklið 6 ll með heklunál nr 4 með 1 þræði í litnum dökk bleikur + 1 þræði í litnum appelsínugulur og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið 1 fl í hverja ll = 6 fl. Heklið nú hringinn með 1 fl í hverja fl þar til axlarólin mælist ca 100 cm, klippið frá og festið enda. Dragið endann á axlarólinni í gegnum gat á ll-boga efst á töskunni frá röngu, gerið hnút frá réttu. Endurtakið í hinni hliðinni á töskunni. ------------------------------------------------------- FARSÍMAHULSTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá botni og upp. FARSÍMAHULSTUR: Heklið 27 lausar ll með heklunál nr 4 með 1 þræði í litnum dökk bleikur + 1 þræði í litnum appelsínugulur og tengið í hring með 1 kl í 1. ll – ATH: Ef óskað er eftir því að farsímahulstrið verði minni eða stærra er dregið frá eða bætt við 3 ll í lykkjufjöldann (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3). UMFERÐ 1: Heklið RENDUR FARSÍMAHULSTUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT eru heklaðir st-hópar þannig: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), heklið 1 st í næsta st, bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, síðasti uppslátturinn er dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni (= 3 st hafa verið heklaðir saman), * 2 ll, heklið 1 st í næsta st, bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 st í næsta st, síðasti uppslátturinn er dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 2 ll og 1 kl efst í fyrsta st-hópinn í byrjun umf = 9 st-hópar með 2 ll á milli hverra, snúið við og heklið næstu umf frá röngu. UMFERÐ 2: Heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngilda 1 st), heklið 1 st um sama ll-boga, bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 st til viðbótar um sama ll-boga, síðasti uppslátturinn er dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni, * 2 ll, 1 ST-HÓPUR – sjá útskýringu að ofan, um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 2 ll og 1 kl efst í fyrsta st-hópinn. Snúið við, næsta umf er hekluð frá réttu. Endurtakið umf 2, heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu JAFNFRAMT er haldið áfram með rendur. Þegar rendur hafa verið heklaðar, mælist stykkið ca 15 cm. Síðasta umf er hekluð þannig: Heklið 1 ll, heklið 1 kl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 fl um næsta ll-boga*, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í 1. ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Saumið saman farsímahulstrið í botninn – saumið yst í lykkjubogann. BLÓM: Stykkið er heklað í hring. Heklið 5 ll með heklunál nr 3 í litnum pistasía og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), heklið 15 st um hringinn, skiptið yfir í litinn rauður og endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 16 st. UMFERÐ 2: * Heklið 7 ll, heklið til baka í loftlykkju umferðir þannig: Byrjið á 2. ll frá heklunálinni og heklið 1 fl, í næstu 5 ll er heklað: 1 st, 1 tbst, 1 tbst, 1 st, 1 fl, heklið 1 kl í næsta st í umf *, endurtakið frá *-* 15 sinnum til viðbótar (= alls 16 sinnum) og endið umf á 1 kl í 1. ll í byrjun umf = 16 blöð. Klippið frá og festið enda. Saumið blómið framan á farsímahulstrið. FLÉTTAÐ BAND: Klippið 6 þræði í litnum dökk bleikur ca 50 cm. Hnýtið hnút á annan endann. Fléttið með 2 þráðum í hverjum hluta og hnýtið hnút á endann. Gerið 1 fléttu til viðbótar alveg eins. Byrjið í annarri hliðinni á farsímahulstrinu og þræðið eitt fléttað band alla leiðina hringinn – þræðið upp og niður í gegnum götin efst í umf með st-hópum. Þræðið annað fléttað band alveg eins, en byrjið og endið í gagnstæðri hlið á farsímahulstrinu. Farsímahulstrið er lokað með því að draga í endana á báðum böndunum. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (14)
Robert wrote:
Très jolie
31.12.2012 - 11:56Susanne Ericsson wrote:
Vilken härlig väska. Namnförslag: Sommartid.
20.12.2012 - 12:40Annie wrote:
Precioso el diseño de accesorios, y colores utilizados.
14.12.2012 - 20:03Eva wrote:
Kan godt lide mobiltasken. Husk opskrift til notes as well, de er større
12.12.2012 - 19:22