Dana |
|
|
|
Hekluð hringpeysa úr DROPS Paris með gatamynstri og löngum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 145-5 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PICOT: Heklið 4 ll, síðan 1 st í fyrstu ll sem hekluð var. ÚRTAKA: Fækkið um 3 tbst í byrjun og enda umf með því að heklað 4 fyrstu og 4 síðustu tbst saman. Þetta er gert þannig: Heklið 1 tbst en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (þegar lykkjum er fækkað í byrjun umf, heklið 3 ll í stað 4), heklið 1 tbst til viðbótar en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tbst til viðbótar en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið síðasta tbst, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni. MYNSTUR –ERMI: UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (þessar koma í stað 1 fl + 3 ll), hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst , * 3 ll, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* út umf. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (þessar koma í stað fyrsta tbst), heklið nú 2 tbst um hvern ll-boga og 1 tbst í hverja fl á milli ll-boga, endið með 3 tbst í síðasta ll-boga. Snúið við. Endurtakið umf 1 og 2 til loka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 4 ll með Paris með heklunál nr 6 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (þær koma í stað 1 st), 11 st um ll-hringinn, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 2: * Heklið 1 PICOT – sjá útskýringu að ofan – hoppið yfir 1 st, 1 kl í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið á 1 picot og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 6 blöð. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll, 1 fl efst á fyrsta blaði, * 7 ll, 1 fl efst á næsta blaði *, endurtakið frá *-* 6 sinnum, en endið á 1 kl í fl á toppi á fyrsta blaði í umf = 6 ll-bogar. UMFERÐ 4: * Heklið 1 picot, 1 fl um ll-boga, 1 picot, 1 fl í fl á milli ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, en endið á 1 kl í fyrstu ll á picot í byrjun umf = 12 blöð. UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, 1 fl efst á fyrsta blaði, 6 ll, * 1 fl efst á næsta blaði, 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar. UMFERÐ 6: Heklið 4 ll + 5 tbst um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 6 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 72 tbst. UMFERÐ 7: * Heklið 8 ll, hoppið yfir 6 tbst, 1 fl um ll á milli tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 12 ll-bogar. UMFERÐ 8: Heklið kl að toppi á fyrsta ll-boga, 1 fl um ll-boga, * 10 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 10 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar. UMFERÐ 9: *Heklið 1 picot, 1 fl um ll-boga, 1 picot, 1 fl um sama ll-boga, 1 picot, 1 fl í fl á milli ll-boga *, endurtakið frá *-* þannig að það verða 3 picot í hverjum ll-boga = 36 picot, endið á 1 kl í fyrstu ll á picto í byrjun umf. UMFERÐ 10: Heklið 3 ll, 1 fl efst í fyrsta picot, * 3 ll, 1 fl efst í næsta picot *, endurtakið frá *-* út umf = 36 ll-bogar. UMFERÐ 11: Heklið 4 ll + 2 tbst um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 3 tbst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 1 ll og 1 kl í 4. ll í byrjun umf =108 tbst. UMFERÐ 12: * Heklið 8 ll, hoppið yfir 3 tbst + 1 ll + 3 tbst, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 8 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 18 ll-bogar. UMFERÐ 13: * Heklið 1 picot, 1 fl um ll-boga, 1 picot, 1 fl í fl á milli ll-boga * , endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 kl í fyrstu ll = 36 picot. UMFERÐ 14: Heklið 2 ll, 1 kl efst í fyrsta picot, * 4 ll, 1 fl efst í næsta picot *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 4 ll og 1 kl efst á fyrsta picot = 36 ll-bogar. UMFERÐ 15: Heklið 4 ll + 3 tbst um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 4 tbst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 144 tbst. Stykkið mælist nú ca 20 cm frá miðju og út. STÆRÐ S/M: UMFERÐ 16: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 9 sinnum, 29 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 tbst-hópa, 1 fl um næstu ll, endurtakið frá *-* 17 sinnum, 29 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 síðustu tbst-hópa, 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 17: Heklið 4 ll + 3 tbst um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 4 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum, í löngu ll-bogum fyrir handveg er heklað þannig: ** Heklið 1 tbst í hverja og eina af 4 fyrstu ll, 1 ll, hoppið yfir 1 ll ** , endurtakið frá **-** alls 5 sinnum, endið á 1 tbst í hverja og eina af 4 síðustu ll, 1 ll, endurtakið nú frá *-* 17 sinnum, þ.e.a.s. fram að næsta langa ll-boga fyrir handveg, heklið frá **-** yfir þær, endið á 1 tbst í hverja og eina af 4 síðustu ll, 1 ll og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 152 tbst. UMFERÐ 18: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl um ll sem hekluð var á milli tbst-hópa * , endurtakið frá *-* umf hringinn, en í stað síðustu fl, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 38 ll-bogar. UMFERÐ 19: Heklið 4 ll + 5 tbst um fyrsta ll-boga, heklið nú 5 tbst um hvern ll-boga en í tíunda boga eru heklaðir 6 tbst (þetta er gert til þess að lykkjufjöldinn verði deilanlegur með 3), endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 192 tbst. UMFERÐ 20: Heklið * 3 ll í fyrsta tbst, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 kl í 1. ll í byrjun umferðar = 64 ll-bogar. UMFERÐ 21: Heklið 4 ll + 2 tbst um fyrsta ll-boga, 1 tbst í fl, 2 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl, * 3 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl, 2 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 224 tbst. UMFERÐ 22: Heklið eins og umf 20, en á 2 stöðum jafnt yfir, hoppið yfir 3 tbst í stð 2 = 74 ll-bogar. Stykkið mælist nú ca 33 cm frá miðju og út, klippið frá. Nú er einungis heklað yfir 21 ll-boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 16 ll-boga efst við hnakka og 16 ll-boga neðst á baki. Haldið áfram og sjá útskýringu á framstykki fyrir neðan. STÆRÐ L/XL: UMFERÐ 16: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 36 ll-bogar. UMFERÐ 17: Heklið 4 ll + 3 tbst um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 5 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, 4 tbst um næsta ll-boga, 1 ll, 4 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 tbst um næst síðasta ll-boga, 1 ll og 5 tbst um síðasta ll-boga, 1 ll og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 156 tbst. UMFERÐ 18: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, 1 fl í ll sem hekluð var á milli ll-boga * , endurtakið frá *-* alls 9 sinnum, 35 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 tbst-hópa, 1 fl í næstu ll, endurtakið frá *-* 17 sinnum, 35 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 síðustu tbst-hópa, 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 19: Heklið 4 ll + 4 tbst um fyrsta ll-boga, heklið nú 5 tbst um hvern af næstu 8 ll-bogum, í langa ll-bogann fyrir handveg er heklað þannig: * Heklið 1 tbst í hverja af fyrstu 5 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið á 1 tbst í hverja af síðustu 5 ll, heklið nú 5 tbst um hvern af næstu 17 ll-bogum, áður en heklað er yfir hinn langa ll-bogann á sama hátt og sá fyrri, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 190 tbst. UMFERÐ 20: * Heklið 3 ll í fyrsta tbst, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 ll, hoppið yfir 3 síðustu tbst, 1 kl í 1. ll í byrjun umf = 63 ll-bogar. UMFERÐ 21: Heklið 4 ll + 2 tbst um fyrsta ll-bogann, * 1 tbst í fl, 3 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl, 2 tbst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 tbst í síðustu fl og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 221 tbst. UMFERÐ 22: Heklið * 3 ll í fyrsta tbst, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, endið með 3 ll, hoppið yfir síðasta tbst, 1 kl í 1. ll í byrjun umferðar = 74 ll-bogar. UMFERÐ 23: Heklið 4 ll + 2 tbst um fyrsta ll-bogann, * 1 tbst í fl, 2 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl, 3 tbst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 tbst í síðustu fl, 2 tbst um síðasta ll-bogann og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 258 tbst. UMFERÐ 24: * Heklið 3 ll, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-*, í stað síðustu fl er endað á 1 kl í 1. ll í byrjun umf = 86 ll-bogar. Stykkið mælist nú ca 36 cm frá miðju og út, klippið frá. Nú er einungis heklað yfir 24 ll-boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 19 ll-boga efst við hnakka og 19 ll-boga neðst á baki. Haldið áfram og sjá útskýringu á framstykki fyrir neðan. STÆRÐ XXL/XXXL: UMFERÐ 16: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 36 ll-bogar. UMFERÐ 17: Heklið 4 ll + 3 tbst um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 4 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, 5 tbst um næsta ll-boga, 1 ll, 4 tbst um næsta ll-boga, *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 tbst um næst síðasta ll-boga, 1 ll og 5 tbst um síðasta ll-boga, 1 ll og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 156 tbst. UMFERÐ 18: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, 1 fl í ll sem hekluð var á milli ll-boga * , endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 36 ll-bogar. UMFERÐ 19: Heklið 4 ll + 4 tbst um fyrsta ll-bogann, 1 ll, * 5 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 5 tbst um síðasta ll-bogann og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 180 tbst. UMFERÐ 20: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, 1 fl í ll sem hekluð var á milli ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 9 sinnum, 41 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 tbst-hópa, 1 fl í næstu ll, endurtakið frá *-* 17 sinnum, 41 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 síðustu tbst-hópa, 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 21: Heklið 4 ll + 5 tbst um fyrsta ll-boga, 6 tbst í hvern af næstu 8 ll-bogum, í langa ll-boganum fyrir handveg er heklað þannig: * Heklið 1 tbst í hverja af fyrstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið á 1 tbst í hverja af síðustu 6 ll, heklið nú 6 tbst í hvern af næstu 17 ll-bogum, áður en heklað er yfir seinni langa ll-bogann á sama hátt og sá fyrri, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 228 tbst. UMFERÐ 22: *Heklið 3 ll, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 ll, hoppið yfir 2 síðustu tbst, 1 kl í 1. ll í byrjun umf = 76 ll-bogar. UMFERÐ 23: Heklið 4 ll + 2 tbst um fyrsta ll-bogann, * 1 tbst í fl, 2 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl, 3 tbst um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 tbst í fl, 3 tbst um síðasta ll-bogann, 1 tbst í síðustu fl og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 266 tbst. UMFERÐ 24: Heklið eins og umf 22 en á 2 stöðum jafnt yfir er hoppað yfir 3 tbst í stað 2 = 88 ll-bogar. UMFERÐ 25: Heklið eins og umf 23 = 308 tbst. UMFERÐ 26: Heklið eins og umf 24 = 102 ll-bogar. Stykkið mælist nú ca 40 cm frá miðju og út, klippið frá. Nú er einungis heklað yfir 28 ll-boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 23 ll-boga efst við hnakka og 23 ll-boga neðst á baki. Haldið áfram og sjá útskýringu á framstykki fyrir neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 21-24-28 ll-bogar. Haldið áfram þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 tbst í hverja fl (fyrsti tbst er skipt út fyrir 4 ll) og 2 tbst um hvern ll-boga – JAFNFRAMT eru 4 fyrstu og 4 síðustu tbst í umf heklaðir saman SJÁ ÚRTAKA! – þ.e.a.s. að nú verða 6 tbst færri í umf í hvert sinn sem umf 1 er hekluð. UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (jafngilda 1 fl + 3 ll) upp frá fyrsta tbst (þ.e.a.s. þeir 4 sem heklaðir voru saman), * hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst, 3 ll *, endurtakið frá *-*, endið á 1 fl í síðasta tbst (þ.e.a.s. þeir 4 sem heklaðir voru saman). Endurtakið umf 1 og 2 alls 4-5-6 sinnum (= ca 13-17-20 cm). Nú eru 13-14-16 ll-bogar eftir síðast á framstykki. Klippið frá. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og vinstra framstykki, yfir 21-24-28 ll-bogar í hægri hlið. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka og er saumað saman í lokin. Heklið 42-46-49 lausar ll (meðtaldar 4 ll til þess að snúa við með) með heklunál nr 6 með Paris. UMFERÐ 1: Hekli 1 tbst í 5. ll frá heklunálinni, 1 tbst í hverja af næstu 5-2-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* þar til 4 ll eru eftir, hoppið yfir 1 ll og heklið 1 tbst í hverja af síðustu 3 ll = 34-37-40 tbst. Snúið við. Heklið 1 umf með 1 tbst í hvern tbst til baka (fyrsta tbst er skipt út fyrir 4 ll). Haldið áfram MYNSTUR fyrir ermi – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 20 cm (passið uppá að næsta umf sem hekluð er, sé umf 2 í mynstri) aukið út um 3 tbst jafnt yfir. Endurtakið útaukningu með ca 8 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 46-49-52 tbst alls í umf. ATH: Haldið stykkinu uppi þegar lengd á ermum er mæld, annars verður ermin of löng þegar hún er sett saman við fram- og bakstykki), fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Heklið kl yfir fyrstu 4 tbst, síðan eru heklaðir ll-bogar eins og áður þar til 3 tbst eru eftir, snúið við. Í næstu umf eru 4 fyrstu og 4 síðustu tbst heklaðir saman – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 2 sinnum til viðbótar. Klippið frá, stykkið mælist ca 59 cm í öllum stærðum. Saumið ermasauma kant í kant, svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Heklið 1 umf í kringum allt fram- og bakstykkið – byrjið við miðju að aftan við hnakka með 1 fl um fyrsta ll-bogann þannig: * Heklið 1 picot (= 4 ll, 1 st í fyrstu ll), hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum alls stykkið, endið á 1 kl í fyrstu fl. Heklið eins að neðan í kringum ermar. Saumið ermar í fram- og bakstykki – passið uppá að ermakúpan er saumuð inn efst við handveg, þ.e.a.s. þar sem er stysta bilið á milli handvegs. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (99)
Mirta wrote:
Nombre " ATREVIDA!
22.01.2013 - 18:38Graciela wrote:
Es como un sueter y un bolero al mismo tiempo, muy buena la forma y el diseño!
20.01.2013 - 21:56Hoferlin wrote:
Tous tre beaux on ne sait pas par lequel commence
13.01.2013 - 06:25Dina wrote:
Jauka! Noteikti notamborēšu arī sev!
12.01.2013 - 20:54Angi wrote:
Ein traum von jacke,lohnt sich nachzumachen!!!!
10.01.2013 - 11:15Ulla Hensgen wrote:
En smuk trøje ien smuk farve
09.01.2013 - 22:25Hanneke wrote:
Mooi model en kleur.
09.01.2013 - 17:41Renate Rausch wrote:
Traumpfad oder Traumfänger oder Mittelpunkt als Modellname
09.01.2013 - 00:49Carmen wrote:
Me encanta este modelo!. Deportivo y elegante al mismo tiempo. Impresionante!
07.01.2013 - 18:41Connie Lykke wrote:
En fantastisk flot trøje lige i øjet.
06.01.2013 - 22:37