Campanula |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Heklaður kjóll úr DROPS Safran með tölum að framan og bylgjulaga kanti að neðan. Stærð S-XXXL
DROPS 145-9 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll, endið umf á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. HEKLIÐ 2 ST SAMAN: Heklið 1 st í fyrsta st í umf að neðan, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st í umf að neðan, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Nú hefur fækkað um 1 st. ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum í byrjun umf þannig: Heklið kl yfir þann fjölda st sem fækka á. Fækkið lykkjum í lok umf þannig: Snúið við þegar eftir er sá fjöldi st sem fækka á. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru ferningarnir heklaðir – þeir eru síðan heklaðir saman jafnóðum. +Síðan er heklað meðfram annarri hliðinni á ferningunum og upp kjólinn og síðan efrihlutann. Að lokum er bylgjulaga kantur heklaður meðfram annarri hliðinni á ferningunum og niður og bylgjulaga kantur í kringum handveg. FERNINGUR-1: Sjá einnig mynsturteikningu A.1. Heklið 4 ll með Safran með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), 11 st um ll-hringinn, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 2 ll, 1 fl í næsta st, 1 ll, * 1 fl í næsta st, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í 2. ll frá fyrri umf, * 4 ll, 1 fl um næstu ll frá fyrri umf *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar. UMFERÐ 4: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll (= horn), 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf (í stað 1 fl um næsta ll-boga). Klippið frá. FERNINGUR-2: Heklið á sama hátt og FERNINGUR-1 frá umf 1 til 3. UMFERÐ 4: Sjá einnig mynsturteikningu A.2. Heklið þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, leggið ferninginn með röngu á móti röngu við FERNINGUR-1, heklið 1 fl um annan stóra ll-bogann á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2, * 2 ll, 1 fl um næsta litla ll-boga á FERNINGUR-1, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta stóra ll-boga á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2. Heklið nú í kringum FERNINGUR-2 þannig: ** 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, en endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá. Heklið nú FERNINGUR-2 þar til heklaðir hafa verið alls 22-24-26-28-30-32 ferningar. Síðasti ferningurinn er heklaður saman við næst síðasta ferning og fyrsta ferning, þannig að allir ferningarnir eru tengdir saman í hring. KJÓLL: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið með Safran og heklunál nr 3 með fram annarri langhliðinni á ferningunum þannig: UMFERÐ 1: Heklið 4 st um hvern af stóru ll-bogunum í horninu á ferningunum og 3 st um hvern af litlu ll-bogunum = 14 st hver ferningur og 308-336-364-392-420-448 st alls. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja að aftan. UMFERÐ 2: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 5 st, HEKLIÐ 2 ST SAMAN – sjá útskýringu að ofan! *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 264-288-312-336-360-384 st. UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hvern st. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 4: Heklið 4 ll, hoppið yfir fyrsta st, * 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið 1 st í hvern st og 1 st í hverja ll = 264-288-312-336-360-384 st. UMFERÐ 6: Heklið 1 st í hvern st. UMFERÐ 7: Heklið eins og umf 4. UMFERÐ 8: Heklið eins og umf 5. UMFERÐ 9: Heklið 1 st í hvern st. UMFERÐ 10: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 4-6-6-1-8-8, heklið 2 st saman, * 1 st í hvern af 4-5-6-7-8-9 næstu st, heklið 2 st saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 220-247-273-298-324-349 st. Stykkið mælist nú ca 14 cm ásamt hekluðu ferningunum. Haldið áfram hringinn með 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 8-3-7-10-0-2 st, heklið 2 st saman, * 1 st í hvern af næstu 8-9-10-11-12-13 st, heklið 2 st saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 198-224-250-275-300-325 st. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st, klippið frá. Héðan er byrjað að hekla fram og til baka frá miðju að framan svo að það myndist op fyrir tölur. Teljið 99-112-125-138-150-163 st frá miðju að aftan og setjið 1 prjónamerki (= miðja að framan). Teljið 3 st til hægri á undan prjónamerki (þegar stykkið liggur fyrir framan þig), byrjið og heklið hér með 1 kl og 3 ll, heklið nú 1 st í hvern st kringum allan kjólinn fram að byrjun umf, endið ekki umf með 1 kl, heldur heklið 1 st á bakhlið og hver og einn af þeim 6 fyrstu st sem heklaðir voru (svo að það skarist við framkant) = 204-230-256-281-306-331 st. Snúið við og haldið áfram fram og til baka með 1 st í hvern st. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fækkið um 22-23-23-23-23-24 st jafnt yfir þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6-4-6-7-9-3 st, heklið 2 st saman, * heklið 1 st í hvern af næstu 7-8-9-10-11-12 st, heklið 2 st saman *, endurtakið *-* þar til eftir eru 7-4-6-8-9-4 st, heklið 1 st í hvern af þessum = 182-207-233-258-283-307 st. Heklið nú áfram með 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fækkið um 16-17-19-20-23-25 jafnt yfir þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 7-6-7-14-8-8 st, heklið 2 st saman, * heklið 1 st í hvern af næstu 9-10-10-10-10-10 st, heklið 2 st saman *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 8-7-8-14-9-9 st, heklið 1 st í hvern af þessum = 166-190-214-238-260-282 st. Heklið nú 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm. Í næstu umf er aukið út um 14 l jafnt yfir þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 12-8-4-14-8-16 st, * hekli 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 10-12-14-15-17-18 st *, endurtakið frá *-* út umf = 180-204-228-252-274-296 st. Heklið áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 56-57-58-59-60-61 cm. Í næstu umf er aukið út um 14 l jafnt yfir þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 12-8-4-14-8-16 st, * heklið 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 11-14-15-16-18-19 st *, endurtakið frá *-* út umf = 194-218-242-266-288-310 st. Haldið áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 64-65-66-67-68-69 cm. Nú byrjar handvegur og fram- og bakstykki er heklað til loka fyrir sig. FYRRA FRAMSTYKKI: STÆRÐ S: Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 47 st. JAFNFRAMT í umf 3 er aukið út um 1 st við handveg með því að hekla 2 st í næst síðustu st (= öxl). Endurtakið útaukningu í hverri umf 6 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 70 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 14 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir útaukningu fyrir öxl og úrtöku við hálsmál eru 30 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 18 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 82 cm, klippið frá. STÆRÐ M: Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 52 st. JAFNFRAMT í umf 3 er aukið út um 1 st við handveg með því að hekla 2 st í næst síðustu st (= öxl). Endurtakið útaukningu annarri hverri umf 4 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 71 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 14 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir útaukningu fyrir öxl og úrtöku við hálsmál eru 33 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 19 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 84 cm, klippið frá. STÆRÐ L: Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 57 st. JAFNFRAMT í umf 4 er aukið út um 1 st við handveg með því að hekla 2 st í næst síðustu st (= öxl). Endurtakið útaukningu umf 8 (þ.e.a.s. alls 2 útaukningar). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 72 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 15 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir útaukningu fyrir öxl og úrtöku við hálsmál eru 34 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 20 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 86 cm, klippið frá. STÆRÐ XL: Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 62 st. JAFNFRAMT í umf 2 er fækkað um 1 st við handveg með því að hekla 2 st síðustu st saman = 61 st. Þegar stykkið mælist 73 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 15 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir úrtöku eru 36 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 21 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 88 cm, klippið frá. STÆRÐ XXL: Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 67 st. JAFNFRAMT í umf 2 er fækkað um 1 st við handveg með því að hekla 2 st síðustu st saman, endurtakið úrtöku í hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 64 st. Þegar stykkið mælist 74 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 16 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir úrtöku eru 38 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 22 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 90 cm, klippið frá. STÆRÐ XXXL: Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 71 st. JAFNFRAMT í umf 2 er fækkað um 1 st við handveg með því að hekla 2 st síðustu st saman, endurtakið úrtöku í hverri umf 5 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 76 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 16 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir úrtöku eru 39 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 23 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 92 cm, klippið frá. SEINNA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og fyrra framstykki, nema spegilmynd. BAKSTYKKI: Heklið st fram og til baka yfir miðju 88-98-108-118-126-136 st (6-8-10-12-14-16 st á hvorri hlið = handvegur). Aukið (í 3 minnstu stærðum) / fækkið (í 3 stærstu stærðum) í hvorri hlið við handveg eins og á framstykki. Eftir alla útaukningu/úrtöku eru 102-108-112-116-120-124 st í umf. Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm á hæð, heklið 2 cm yfir einungis 30-33-34-36-38-39 st í hvorri hlið (miðju 42-42-44-44-44-46 st = hálsmál), klippið frá. Stykkið mælist alls ca 82-84-86-88-90-92 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Heklið 2 umf með fl í kringum hálsmálið (fyrsta umf er hekluð frá röngu) – passið uppá að kanturinn verði ekki of stífur eða víkkar út hálsmálið. BYLGJULAGA KANTUR AÐ NEÐAN: Heklið meðfram annarri hliðinni á ferningunum neðst niðri á kjólnum – byrjið við miðju að aftan þannig: UMFERÐ 1: Heklið 4 st um hvern af stóru ll-bogunum í horninu á ferningunum og 3 st um hvern af litlu ll-bogum = 14 st hver ferningur og 308-336-364-392-420-448 st alls. UMFERÐ 2: Heklið 4 ll, hoppið yfir 1 st, * 1 fl í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 154-168-182-196-210-224 ll-bogar. UMFERÐ 3: Heklið 2 ll, 1 fl efst á fyrsta ll-boga frá fyrri umf, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. UMFERÐ 4: Heklið 2 ll, 1 fl efst á fyrsta ll-boga frá fyrri umf, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið eins og umf 4. UMFERÐ 6: * Heklið 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. UMFERÐ 7: Heklið eins og umf 6. UMFERÐ 8: * Heklið 7 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. UMFERÐ 9: Heklið um hvern ll-boga þannig: Heklið 3 fl, 1 picot (= 3 ll, 1 fl í fyrstu ll) og 3 fl. Endið á 1 kl í fyrstu fl í umf, klippið frá og festið enda. BYLGJULAGA KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Byrjið lengst út í umf 4, talið frá þar sem handvegur byrjar. UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í síðustu l, * heklið nú 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* fram að umf 4 í hinni hliðinni, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 2 ll, 1 fl efst í fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 2 ll, 1 fl efst í fyrsta ll-boga, * 5 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf (ekki er heklað í 2 ll í byrjun umf), snúið við. UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, 1 fl efst í fyrsta ll-boga frá fyrri umf, * 6 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf (ekki er heklað í 2 ll í byrjun umf), snúið við. UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, 1 fl efst í fyrsta ll-boga frá fyrri umf, * 6 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf (ekki er heklað í 3 ll í byrjun umf), snúið við. UMFERÐ 6: Heklið 4 ll, 1 fl efst í fyrsta ll-boga frá fyrri umf, * 7 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf (ekki er heklað í 3 ll í byrjun umf), snúið við. UMFERÐ 7: Heklið nú í hvern ll-boga þannig: Heklið 3 fl, 1 picot (= 3 ll, 1 fl í fyrstu ll), og 3 fl. Klippið frá og festið enda. Heklið á sama hátt meðfram hinum handveginum. Saumið tölur í vinstra kant að framan – efsta talan á að vera 1 cm frá toppi, síðan er þeim deilt niður með jöfnu millibili niður úr, hneppið í gegnum lykku. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (43)
Kerstin wrote:
Sehr chic
16.12.2012 - 08:01Sabine wrote:
Sehr schönes Kleid. Würde ich gern nachstricken.
14.12.2012 - 11:34Nathalie Rocar wrote:
Très jolie robe facile à porter, les boutons sur le devant donnent un bel effet.
13.12.2012 - 15:13Marthe Sveen Edvardsen wrote:
Pen og yndig, blå sommerkjole til sommerfesten!
13.12.2012 - 12:57Marthe Sveen Edvardsen wrote:
Pen og feminin blå kjole, passer godt når du vil pynte deg!
13.12.2012 - 12:13Bente wrote:
Only Seksteen som navn
12.12.2012 - 10:00Camilla Halldén wrote:
Förgätmigej som namn
12.12.2012 - 00:19Andrea wrote:
Ein wunderbares Sommerkleid für jeden Tag!
11.12.2012 - 22:59Joan Andresen wrote:
Midnatssol
11.12.2012 - 16:00J. De Ruiter wrote:
Heel schattig!
11.12.2012 - 14:34