Mufasa |
|
|
|
Heklað ljón úr DROPS Safran eða DROPS Paris
DROPS Children 24-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU: Fyllið dýrið með vatti jafnóðum og heklað er. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf með fl byrja á 1 ll (þessi kemur ekki í stað fyrstu fl) og endar á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Allar umf með fl er snúið við með 1 ll – þessi ll kemur ekki í stað fyrstu fl í umf. ÚRTAKA: Fækkað er um 1 l með því að hekla 2 l saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LÍTIÐ LJÓN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað frá neðst á baki á búk og fram að og með höfði. Síðan er heklaður makki í kringum höfuðið, eyru, lappir og skott er heklað hvert fyrir sig og saumað á í lokin. LESIÐ RÁÐ VARÐANDI FYLLINGU! BÚKUR OG HÖFUÐ: Heklið 4 ll með litnum appelsínugulur með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um ll-hringinn – umf byrjar fyrir miðju undir ljóninu. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 4: Heklið * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 5-14: Heklið 1 fl í hverja fl. Nú er hekluð 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, snúið við með 1 ll – héðan er heklað fram og til baka í eitt stykki fyrir brjóstkassa. UMFERÐ 15 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 16 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 16 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 13 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 17 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 10 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 18 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 7 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 19 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 20 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið nú 7 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 21 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 10 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 22 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 13 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 23 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, heklið nú 16 fl, snúið við með 1 ll, heklið nú aftur í hring. UMFERÐ 24: Heklið 22 fl í hringinn (umf byrjar nú við miðju á hnakka). UMFERÐ 25: Heklið 8 fyrstu fl saman 2 og 2 – LESIÐ ÚRTAKA! Heklið nú 1 fl í hverja af næstu 6 fl, síðan eru síðustu 8 fl heklaðar 2 og 2 = 14 fl. UMFERÐ 26: Heklið 2 fl í hverja af fyrstu 3 fl, síðan 1 fl í hverja af næstu 8 fl og 2 fl í hverja af síðustu 3 fl = 20 fl, heklið nú 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, snúið við með 1 ll – héðan er nú heklað fram og til baka í eitt stykki og myndað höfuð. UMFERÐ 27 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 15 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 28 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 12 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 29 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 9 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 30 (rétta): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 31 (ranga): Hoppið yfir 2 fyrstu fl, heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 32 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, síðan eru heklaðar 6 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 33 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, síðan eru heklaðar 9 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 34 (rétta): Hoppið yfir fyrstu fl, síðan eru heklaðar 12 fl, snúið við með 1 ll. UMFERÐ 35 (ranga): Hoppið yfir fyrstu fl, síðan eru heklaðar 15 fl, snúið við með 1 ll, heklið nú aftur í hring. UMFERÐ 36: Heklið 21 fl í hring. UMFERÐ 37: Heklið 1 fl í hverja fl – setjið 1 prjónamerki í þessa umf (hér er makkinn heklaður á í lokin). UMFERÐ 38: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 39: * Heklið 2 fyrstu fl saman, síðan 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 14 fl. UMFERÐ 40: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 41: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt er fækkað um 4 fl jafnt yfir = 10 fl. UMFERÐ 42: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 43: Heklið 2 og 2 fl saman umf hringinn, klippið frá, þræðið í kringum opið framan á nefi og herðið að. AFTUR FÓTUR: Heklið 4 ll með litnum appelsínugulur og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um ll-hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, síðan eru heklaðar næstu 6 fl saman 2 og 2 – SJÁ ÚRTAKA, síðan eru 1 fl hekluð í hverja af síðustu 3 fl = 9 fl. UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 7: Hekli 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 7 fl og 2 fl í síðustu fl = 11 fl. UMFERÐ 8: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 9 fl og 2 fl í síðustu fl = 13 fl. Klippið frá. Heklið 2 alveg eins aftur lappir. Troðið aðeins vatti í þær og saumið þær niður undir aftari hluta á búknum með fótinn fram. FRAM FÓTUR: Heklið 4 ll með litnum appelsínugulur og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 5 fl um ll-hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 10 fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, síðan eru heklaðar næstu 6 fl saman 2 og 2 – SJÁ ÚRTAKA, síðan er hekluð 1 fl í hvora af síðustu 2 fl = 7 fl. UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 7: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 5 fl og 2 fl í síðustu fl = 9 fl. UMFERÐ 8: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 7 fl og 2 fl í síðustu fl = 11 fl. Klippið frá. Heklið 2 alveg eins lappir. Troðið aðeins vatti í þær og saumið þær niður undi fremri hluta á búknum með fótinn fram. SKOTT: Heklið 10 ll með litnum appelsínugulur, snúið við og heklað 2 st í 3. ll frá heklunálinni, heklið nú 2 ll, festið með 1 kl í sömu ll eins og 2 st voru heklaðir, heklið nú 1 fl í hverja af síðustu 7 ll. Klippið frá og saumið skottið fast aftan á búknum svo að það hangi niður. MAKKI Á HÖFUÐ: UMFERÐ 1: Heklið með litnum appelsínugulur í umf 37 í kringum höfuðið þannig: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 5 ll, heklið nú 1 kl í 2. ll frá heklunálinni og 1 kl í hverja af síðustu 3 ll, festið með 1 kl í næstu fl í umf *, endurtakið frá *-* í kringum allt höfuðið, klippið frá og festið enda. UMFERÐ 2: Heklið nú einungis meðfram efri helmingnum á höfði, byrjið á hlið 2 umf aftan við þá fyrri sem var hekluð. Heklið með litnum ljós brúnum þannig: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 5 ll, síðan 1 kl í 2. ll frá heklunálinni og 1 kl í hverja af síðustu 3 ll, festið með 1 fl í næstu fl í umf *, endurtakið frá *-* fram að hinni hliðinni á höfðinu, klippið frá og festið enda. UMFERÐ 3: Heklið í 2. l fyrir aftan þá fyrri sem hekluð var, nú er heklað með litnum appelsínugulur alveg eins og í umf 2. EYRA: Heklið 4 ll með litnum ljós brúnn, heklið nú 1 st í fyrstu ll sem hekluð var, klippið frá. Heklið annað eyra á sama hátt, saumið eyrun á höfuðið. Saumið út augu, nef og munn með litnum svartur. ------------------------------------------------------- STÓRT LJÓN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklið á sama hátt og lítið ljón, nema með heklunál nr 4 með Paris. Skiptið út litnum appelsínugulur fyrir litinn ljós gulur og skiptið út litnum ljós brúnn fyrir litinn dökk beige. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Weber wrote:
Gibt es zu dem Löwen auch eine Video Anleitung
18.05.2014 - 11:08Herdis Anholm wrote:
Jeg kan ikke komme videre fra række 14 til 15, jeg har 10fm. og jeg skal springe 2fm. over og hækle 16 fm. men jeg har jo kun 10 fm.
13.05.2014 - 17:13DROPS Design answered:
Hej Herdis. Du skulle gerne have 24 fm efter 4. omg. Derefter haekler du 1 fm i hver fm til og med omg 14, og derefter kan du gaa videre som beskrevet.
15.05.2014 - 16:25Stine Lernæs wrote:
Oppskriften på disse dyrene er svært vanskelig og forstå. når det står: hekle fram og tilbake et stykke, skal man da hekle noen rader virkålig, eller fortsette å følge nr på oppskrifta? f.eks fra omg 14 og rett til rad 15.eller skal man hekle noen rader mellom der som ikke er nummerert?
09.01.2014 - 13:23DROPS Design answered:
Hei Stine. Du skal fölge opskriften, men du hekler (fra omg 15) frem og tilbage og ikke rundt. Fra omg 24 hekler du rundt igen.
09.01.2014 - 16:24