DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 149-34
DROPS Design: Mynstur nr de-101
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
350-400-450-450-500-550 gr litur nr 04, ljós blár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eðar 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 6-6-6-7-7-7 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RANDARMYNSTUR:
* Prjónið 8 umf garðaprjón, 4 umf sléttprjón *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónarður br þegar prjónað er sléttprjón og sl þegar prjónað er garðaprjón.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð í stykkjum. Vegna fjölda l eru stykkin prjónuð fram og til baka á hringprjóna.

VINSTRI ERMI + FRAMSTYKKI:
Byrjað er lengst út á ermi, fitjið upp nýjar l fyrir framstykki og prjónið fram að miðju að framan.
Fitjið upp 58-58-58-66-66-66 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Delight. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 2 l sléttprjón, * 4 l garðaprjón, 4 l sléttprjón *, endurtakið frá *-* alls 6-6-6-7-7-7 sinnum og endið á 4 l garðaprjón, 2 l sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í vinstri hlið á stykki (séð frá réttu – ATH: Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í sömu l og útaukna l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur). Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf 7 sinnum til viðbótar (= alls 8 útaukningar undir ermi) = 66-66-66-74-74-74 l. Þegar stykkið mælist 15 cm er prjónað sléttprjón JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu eru fitjaðar upp 21-21-20-12-10-7 nýjar l í lok umf = 87-87-86-86-84-81 l. Prjónið 1 umf br til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið nú sléttprjón þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sl þar til 1 l er eftir og prjónið 2 l í síðustu l (= 1 l fleiri) = 88-88-87-87-85-82 l.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sl þar til 2 l eru eftir, sláið uppá prjóninn, 1 l sl (setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl.
UMFERÐ 4: Prjónið allar l og uppsláttinn br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT í hverri umf frá réttu er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri í hverri umf með útaukningu). Þegar stykkið mælist 26-28-30-30-33-36 cm mælt lengst út á ermi þar sem hún er lengst (stykkið mælist ca 11-13-15-15-18-21 cm þar sem fitjaðar voru upp nýjar l á prjóni), prjónið RANDARMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – ATH: útaukning heldur áfram hvoru megin við l með prjónamerki í eins og áður.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 31-33-34-37-39-42 cm lengst út á ermi, fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umf frá réttu) þannig: Fellið af 12-12-12-13-13-13 l 1 sinni og 1 l 2-2-2-3-3-3 sinnum, síðan er fellt af 1 l í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 2 sinnum. Haldið áfram með RANDARMYNSTUR, 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið og útaukningar eins og áður þar til stykkið mælist ca 38-40-42-45-48-51 cm lengst út á ermi – endið eftir 7 umf slétt (stykkið mælist ca 23-25-27-30-33-36 cm þar sem lagðar voru upp nýjar l á prjóni og kantur með RANDARMYNSTUR mælist ca 12-12-12-15-15-15 cm). Í næstu umf frá röngu er lykkjum fækkað í byrjun umf og fram meðtöldum l með prjónamerki (= neðribrún á peysu) = ca 122-126-132-134-138-142 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið garðaprjón fram og til baka í 2 cm að kanti að framan áður en fellt er laust af.

HÆGRI ERMI + FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið er út á ermi í hægri hlið á stykki (séð frá réttu) og þegar fitjaðar eru upp nýjar l á prjón (að hliða á framstykki), fitjið upp í lok umf frá röngu (í stað frá réttu). Prjónið 1 umf slétt frá réttu. Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið br þar til 1 l er eftir og prjónið 2 l í síðustu l (= 1 l fleiri við lista að neðan) = 88-88-87-87-85-82 l.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (setjið 1 prjónamerki í þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sl út umf.
UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT í hverri umf frá réttu er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki eins og á vinstra framstykki.
Þegar fellt er af fyrir hálsmáli er fellt af í byrjun í hverri umf frá röngu (í stað frá réttu) og þegar fella þarf af l í kanti neðan á peysunni er það gert frá réttu í stað röngu.
Þegar kantur að framan mælist ca ½-1 cm fellið af að auki 6-6-6-7-7-7 l fyrir hnappagötum jafnt yfir. Efsta hnappagatið á að vera staðsett mest 0,5 cm frá kanti við hálsmál og neðsta hnappagatið ca 10 cm frá neðri brún. 1 hnappagat = fellið af 2 l og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf.

VINSTRI ERMI + BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægri ermi + framstykki, nema þegar stykkið mælist 31-33-34-37-39-42 cm er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá röngu þannig: Fellið af 1 l alls 4 sinnum. Þegar fella á af l á neðri brún eru ca 134-138-142-148-152-156 l eftir á prjóni. Prjónið 2 umf garðaprjón og fellið laust af (= miðja að aftan).

HÆGRI ERMI + BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstri ermi + framstykki, nema nú er fellt af fyrir hálsmáli eins og á vinstra bakstykki (og fellið af í byrjun á hverri umf frá réttu).

FRÁGANGUR:
Saumið saman bakstykki við miðju að aftan innan við affellingarkantinn. Saumið axlasauma innan við 1 kantlykkju. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 94 til 116 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 3 með Delight. Prjónið 4 umf slétt (1. umf = ranga) og fellið laust af með sl frá röngu.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Manuela wrote:

Hallo Würde dieses Muster gerne in glatt rechts stricken Ob das ausschaut?

02.08.2023 - 09:51

DROPS Design answered:

Liebe Manuela, Ihre Maschenprobe in der Höhe würde dann unterschiedlich sein, und die Anleitung sollten Sie dann entsprechend anpassen, am besten stricken Sie diese Jacke krausrechts, genauso wie bei der Anleitung. Hier finden Sie sonst unsere glattrechts gestrickte Jacken. Viel Spaß beim stricken!

02.08.2023 - 11:42

country flag Rosalba Ruiz Juárez wrote:

Cómo puedo tener en dos agujas, está chaqueta no sé tener con agujas circulares. Gracias y felicitaciones está bellísimo.

13.02.2023 - 22:25

DROPS Design answered:

Hola Rosalba, puedes tejer con agujas rectas. Nosotros usamos agujas circulares por el elevado número de puntos; si te entran en las agujas rectas puedes trabajar con ellas.

16.02.2023 - 22:33

country flag Maria Edilene wrote:

Tem um vídeo ensinando esse trabalho por favor?

15.02.2022 - 13:38

DROPS Design answered:

Boa tarde, Se descer até ao fundo da receita, irá encontrar uma secção com os vídeos que ensinam as técnicas utilizadas neste modelo. Pode ver no link abaixo: https://www.garnstudio.com/video.php?patternid=6197&lang=pt Bons tricôs!

15.02.2022 - 15:40

country flag Maricarmen wrote:

Podría hacer un vídeo de esta chaqueta. Gracias

12.12.2020 - 21:39

country flag Françoise062b wrote:

Bonjour, Merci pour la réponse qui confirme ce que j'avais, enfin, compris. J'ai hâte de commencer, mais la laine n'est pas encore arrivée (à cause du covid !). Cordialement

06.06.2020 - 11:01

country flag Françoise062b wrote:

Bonjour, Merci de votre réponse très rapide. Pour les 8rg, c'est le point fantaisie : 8 rgs point mousse et 4 rgs jersey - le 8ème rg étant à l'endroit, doit-on commencer le 1er rg jersey par des mailles à l'envers ou à l'endroit ?. Je ne manquerai pas de mettre une photo de mon ouvrage . Sincères salutations.

02.06.2020 - 11:58

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise062b, oui bien sûr, pardon :) on va tricoter ainsi, en commençant sur l'endroit: pour les 4 côtes mousse: 8 rangs endroit, puis pour les 4 rangs jersey: 1 rang endroit sur l'endroit, 1 rang envers sur l'envers, 1 rang endroit sur l'endroit et 1 rang envers sur l'envers (= et on aura bien 4 côtes mousse et 4 rangs jersey). Bon tricot!

02.06.2020 - 14:24

country flag Françoise062b wrote:

Bonjour, Vous parlez de 4m point mousse et 4 m en jersey : après les 4m endroit, doit-on commencer avec 4m envers ? dans ce cas, le motif, sur l'endroit, n'est pas jersey, mais petit point mousse. Que doit-voir ? De même, après les 8 rgs endroit, le 1er rg jersey commence par mailles endroit ou envers ? Merci de me préciser cela car je vais recevoir très prochainement la laine et j'aimerais bien commencer cet ouvrage. Cordialement de France.

30.05.2020 - 13:57

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise062b, les 4 m jersey se tricotent en jersey endroit, donc à l'endroit sur l'endroit mais à l'envers sur l'envers. La manche gauche/devant gauche va donc avoir 2 m jersey endroit de chaque côté et des côtes (4 m point mousse, 4 m jersey end) au milieu. Je ne vois ps de quels 8 rangs endroit vous parlez, pouvez-vous m'éclairer? Merci!

02.06.2020 - 09:18

country flag Anne Marie Olesen wrote:

Når man strikker glatstrikning 15 cm = 45 pinde iflg. strikkefasthed og så tager man ud ved at slå om pinden det bliver til 23 masker på hver side af markeret maske men 23 masker = 10 cm det bliver altså skævt skal man trække det i facon eller skal man tage en maske ud indenfor kantmasken f.eks på hver 4. Pind

04.09.2017 - 12:10

DROPS Design answered:

Hej Anne Marie, jeg kan ikke regne ud hvor i opskriften du er. Vil du skrive hvor langt du er kommet og nøjagtig hvad der bliver skævt. Tak :)

13.09.2017 - 11:59

country flag Anne Marie Olesen wrote:

Er det rigtig forstået, at den første pind efter de 4 pinde retstrik, er på retsiden og at det er ene retmasker der skal strikkes?

01.09.2017 - 18:00

DROPS Design answered:

Hej Anne Marie, den første pind efter de 4 pinde retstrik, strikkes således: Skift til rundp 3,5 og strik næste p således fra retsiden: 1 kant-m retstrik, 2 m glatstrik, * 4 m retstrik, 4 m glatstrik *, gentag fra *-* totalt 6-6-6-7-7-7 gange og afslut med 4 m retstrik, 2 m glatstrik og 1 kant-m retstrik. Fortsæt mønsteret således.God fornøjelse!

12.09.2017 - 15:46

country flag Woro wrote:

Bonjour, Ce gilet me plait beaucoup mais avant de me lancer, je me pose des p'ti'questions: Toute la beauté de ce gilet réside dans la symétrie des rayures. Ne risque-t-on pas de la perdre au changement de pelote? Et lors de l'assemblage des différentes "pièces", les rayures sont-elles automatiquement parallèles?? Amicalement

30.01.2014 - 08:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Woro, pour une transition plus douce entre les pelotes, commencez la nouvelle par la même couleur que la fin de la précédente. Les différentes parties se tricotent en vis à vis, les rayures seront donc parallèles à l'assemblage. Bon tricot!

30.01.2014 - 11:04