DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7395.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 151-26
DROPS Design: Mynstur nr ne-119
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
750-850-900-1000-1100-1200 gr litur nr 0618, kamel

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 12 fl/tbst á breidd og ca 3½ áferðarendur á hæðina verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7395.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl er byrjað á 1 ll, síðan er 1 fl hekluð í fyrstu l áður en haldið er áfram með 1 fl í hverja l (ll er EKKI talin með sem 1 l).
Hver umf endar á 1 fl í 4. ll frá byrjun fyrri umf.
Í byrjun á hverri umf með tbst er byrjað á 4 ll í 1. ll, síðan er 1 tbst heklaður í hverja l (þær 4 ll JAFNGILDA 1. tbst).
Hver umf endar á 1 tbst í fyrstu fl frá byrjun fyrri umf.

RENDUR MEÐ ÁFERÐ:
* Heklið 1 umf tbst, 1 umf fl *, endurtakið frá *-* til loka – ATH: Heklað er í hverja fl/tbst frá fyrri umf (ekki á milli).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (á við um ermi) og A.2 (á við um kant að framan).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

PEYSA:
Heklið 139-151-163-179-196-213 ll með heklunál nr 5 með Nepal.
Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, * 1 fl í hverja af næstu 3 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 1-1-1-1-2-3 ll og endið á 1 fl í hverja af síðustu ll = 104-113-122-134-147-160 fl, snúið við. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið síðan RENDUR MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 45-46-47-48-49-50 cm skiptist stykkið upp við handveg og hvor hluti er heklaður fyrir sig þannig:

FRAMSTYKKI:
Haldið áfram rendur með áferð fram og til baka yfir síðustu 22-24-26-29-32-35 l í annarri hlið á stykki (framstykki). Þegar stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm – endið eftir 1 umf með fl, klippið frá. Endurtakið yfir síðustu 22-24-26-29-32-35 l í annarri hlið á stykki.

BAKSTYKKI:
Haldið áfram með rendur með áferð fram og til baka yfir 60-65-70-76-83-90 l á bakstykki þar til stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm – stillið af að síðasta umf sé umf með fl. Heklið nú rendur með áferð (þ.e.a.s 1 umf tbst + 1 umf fl) fram og til baka yfir síðustu 22-24-26-29-32-35 l á öxl. Klippið frá og endurtakið yfir 22-24-26-29-32-35 síðustu l í hinni hliðinni (þ.e.a.s. heklið ekki yfir miðju 16-17-18-18-19-20 l = hálsmál aftan við hnakka). Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Heklið 35-37-37-40-40-43 ll með heklunál nr 5 með Nepal. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, * 1 fl í hverja af næstu 3 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* þar til 1-3-3-2-2-1 ll er eftir og endið á 1 fl í hverja af síðustu ll = 26-28-28-30-30-32 fl, snúið við. Heklið nú rendur með áferð fram og til baka.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
JAFNFRAMT í umf 4 (þ.e.a.s. í 3. umf með tbst), setjið 1 prjónamerki í mitt stykkið. Heklið tbst eins og áður þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 yfir 4 næstu l, þ.e.a.s. að heklað er þannig: Hoppið yfir 1 l, 1 tbst í næstu l, 2 ll , 1 tbst í næstu l, hoppið yfir 1 l og haldið áfram út umf með tbst eins og áður.
Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er í A.1 (ör fyrir miðju á A.1 merkir prjónamerki).
JAFNFRAMT í 4.- 4.- 4.- 4.- 3.- 3. umf með tbst (stykkið mælist nú ca 9-9-9-9-6-6 cm), aukið út um 1 tbst í hvorri hlið með því að hekla 2 tbst í næst síðasta tbst í hvorri hlið) og síðan í hverja umf með tbst alls 0-3-5-5-7-8 sinnum = 40-44-46-48-50-52 l. Þegar stykkið mælist 49-48-47-45-43-41 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), klippið frá. Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið í ermar við handveg með smáu spori – passið að saumurinn verði ekki of stífur.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Byrjið frá réttu neðst niðri á hægra framstykki og heklið eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2, þ.e.a.s. heklið þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu l, 5 ll (jafngildir 1 tbst + 1 ll), um fyrsta tbst eru heklaðir 2 tbst + 2 ll + 2 tbst + 2 ll, * hoppið yfir 1 tbst, í næsta tbst eru heklaðir 2 tbst + 2 ll + 2 tbst + 2 ll *, endurtakið frá *-* meðfram hægra framstykki, meðfram hálsmáli aftan við hnakka og niður meðfram vinstra framstykki. Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 5 ll (jafngilda 1 tbst + 1 ll), heklið nú um hvern ll-boga mitt í hvern tbst-hóp þannig: Heklið 2 tbst + 2 ll + 2 tbst, 2 ll.
Endurtakið umf 2 þar til heklað hefur verið alls 4-4-5-5-5-5 umf. Síðasta umf er hekluð þannig: Heklið 5 ll (jafngilda 1 tbst + 1 ll), heklið nú um hvern ll-boga mitt í hvern tbst-hóp þannig: Heklið 3 tbst + 2 ll + 3 tbst + 2 ll. Þegar umf er lokið er klippt frá. Festið alla enda.

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 fl
symbols = 1 tbst
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Manuela Pereira wrote:

Obrigada pela partilha deste bonito modelo. Estou na fase das orlas frentes, diagrama A.2, e não sei o que fazer com os 2 pc do fim de cada carreira. É que as instruções não dizem como finalizar o último leque de cada carreira. Obrigada.

02.11.2022 - 23:33

DROPS Design answered:

Bom dia, Os 2 pc servem para ligar os leques. No fim de cada carreira, faz 1 pad tal como fez no princípio. Bons crochés!

03.11.2022 - 10:07

country flag Ourd59 wrote:

Bonjour Je veux réaliser ce modèle , j’ai réalisé l’échantillon et je constate que les DB sont sur l’envers Est ce normal ? Merci

14.12.2021 - 22:03

DROPS Design answered:

Bonjour Ourd59, en général, les rangs de double-brides sont sur l'endroit et ceux de mailles serrées sur l'envers, mais ce peut être un choix personnel. Si vous voulez les double-brides sur l'endroit, considérez le tout premier rang du bas de la veste comme un rang sur l''envers. Bon crochet!

15.12.2021 - 08:06

country flag Ourd59 wrote:

Bonjour , J’ai l’intention de réaliser ce gilet et j’ai fait l’échantillon et je constate que les DB sont sur l’envers de l’ouvrage et les ms sur l’endroit . Est ce normal ? Merci

14.12.2021 - 21:58

country flag Stephanie wrote:

Bonjour. Je ne comprend pas la 2ème partie du DOS.après les 60cm de hauteur. Que faire? Merci

11.06.2019 - 14:15

DROPS Design answered:

Bonjour Stéphanie, vous allez maintenant former l'encolure en ne crochetant que les 22 premières du rang (taille S): tournez, crochetez 1 rang de double-brides sur les 22 premières mailles, tournez, crochetez 1 rang de ms sur ces 22 m, coupez le fil. Crochetez maintenant les 22 m de l'autre épaule de la même façon en laissant les 16 mailles centrales non travaillées, elles vont former l'encolure dos. Bon crochet!

11.06.2019 - 14:59

country flag Becky wrote:

Hi! Lovely pattern - quick question. This is the first piece of clothing I’ve ever crocheted. When I do the assembly, which side of the fabric is the “right” side? I see texture on both! Would it be the side that is facing me when I am working the single crochet? (I am right handed.) Thank you!

07.08.2018 - 05:23

DROPS Design answered:

Dear Becky, the right side of piece is the side where you crocheted trebles (the single crochets were worked from WS). Happy crocheting!

07.08.2018 - 09:41

country flag Val wrote:

Hello\r\nI have worked the jacket front & back pieces to the point where all is level at 64cm tall (size M). I do not understand where the next instructions are worked. \"Now work 1 texture row back and forth over the outermost 24 sts on shoulder\"\r\nI have not cut the yarn at the end of the back piece but I am not sure I then continue from the same point. The picture or diagrams are not helpful to me. Please help. Thanks in advance. Val :-)

13.04.2018 - 16:52

DROPS Design answered:

Dear Val, When back piece measures 62 cm in size M (or adjust after a row with dc), you will now shape neck working only on the first sts on each side for the shoulder, ie turn and work 1 textured row over the first 24 sts, cut yarn. And work now 1 textured row over the first 24 sts from the other side = leave the middle 17 sts unworked for neckline on back piece. Happy crocheting!

13.04.2018 - 17:16

country flag Val wrote:

Hello I am making this in size M but may want the jacket to be slightly longer than 64cm. If I add more rows to the jacket, will it mess up the band later? I have read the instructions for the band and it seems to me that the band works with a certain number of rows. Could you please confirm what multiples I need to work with? Thanks in advance :-)

02.04.2018 - 17:04

DROPS Design answered:

Dear Val, each fan in A.2 is worked over 4 sts, to get A.2 working around you will have to get the number of rows matching. You can always adjust by working the front bands skipping more/less rows to get the front band working. Happy crocheting!

03.04.2018 - 09:32

country flag Martha Van Dam wrote:

Waar kan ik maten vinden zodat ik kan kijken welke ik moet nemen bedankt Martha

27.01.2016 - 13:25

DROPS Design answered:

Hoi Martha. Onderaan het patroon vind je de afmetingen per maat in cm.

27.01.2016 - 15:26

Rose wrote:

Is the jacket part of the pattern supposed to be just the back of the cardigan of does it include the from as well ? My current jacket part has an enormous width (100 cm) and I'm reaching gauge. It's either too big for just the back or too small for being both...

09.01.2016 - 12:41

DROPS Design answered:

Dear Rose, the jacket part consists on both front pieces + back piece worked together to armholes, you then finish each piece separately. You will find check measurements for each size in chart at the bottom of the pattern. Happy crocheting!

11.01.2016 - 09:41

country flag Beth wrote:

I will be starting this pattern shortly. I just want to clarify when the pattern says it is written in American English that means i do not have to convert from UK crochet terms. I was a little confused by the note in that same paragraph that says "If this pattern includes crochet, click for "crochet terms" here." That seems to indicate i need to be doing US DC when the pattern says TR??? Thanks in advance

08.09.2015 - 22:03

DROPS Design answered:

Dear Beth, you can always check the written language for the pattern with the flag under the picture. If it is written in US-English, you can follow it as usual. Crochet terminology is different for crocheting in British and American English that's the reason why we advice to check the language. As you can see here, a dc in US-English is a tr in UK-English. Happy crocheting!

09.09.2015 - 09:49