DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5500.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 149-33
DROPS Design: Mynstur nr ee-460
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
500-550-600-650-750-800 gr litur nr 35, lime

DROPS HRINGPRJÓNAR (50 cm og 80 cm) NR 10 – eða þá stærð sem þarf til að 9 l og 12 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HORNATAL, KÖNTUÐ, NR 538: 4 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5500.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 12, 20, 28 og 36 cm.
STÆRÐ M: 13, 21, 29 og 37 cm.
STÆRÐ L: 14, 22, 30 og 38 cm.
STÆRÐ XL: 15, 23, 31 og 39 cm.
STÆRÐ XXL: 16, 24, 32 og 40 cm.
STÆRÐ XXXL: 17, 25, 33 og 41 cm.

ÚRTAKA (á við um laskalínu):
Fækkið lykkjum frá réttu þannig:
Á undan prjónamerki: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl (prjónamerkið er staðsett eftir þessari l).
Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 l sl (prjónamerki er staðsett á undan þessari l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

Fækkið lykkjum frá röngu þannig:
Á undan prjónamerki: Prjónið 2 l snúnar brugðið saman, 1 l br (prjónamerki er staðsett á eftir þessa l).
Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 l br (prjónamerki er staðsett á undan þessari l), 2 l brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 92-100-108-116-128-136 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 10 með Snow. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 l PERLUPRJÓN (= kantur að framan), stroff 1 l sl, 1 l br þar til 6 l eru eftir, prjónið 6 l perluprjón (= kantur að framan). Prjónið 1 umf frá röngu alveg eins. Prjónið nú sléttprjón með 6 l perluprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm prjónið næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 22-24-26-28-31-33 l (= vinstra framstykki), fellið af 8 l, prjónið 32-36-40-44-50-54 l (= bakstykki), fellið af 8 l og prjónið þær 22-24-26-28-31-33 l sem eftir eru (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna. Fitjið laust upp 56-58-60-62-64-66 l á hringprjóna nr 10 með Snow. Prjónið 4 umf í perluprjóni, prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7 cm er fellt af 8 l í byrjun umf = 48-50-52-54-56-58 l.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 172-184-196-208-224-236 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram í sléttprjóni og 6 l perluprjóni í hvorri hlið. Nú byrjar úrtaka fyrir laskalínu – LESIÐ ÚRTAKA: Úrtaka er mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki – fækkið lykkjum þannig:
Á ERMI: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf 17-17-17-17-18-18 sinnum, síðan í hverri umf 3-4-5-6-6-7 sinnum (= 8 l eftir á ermi).
Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Fækkið lykkjum í 6. hverri umf 2-1-0-0-0-0 sinnum, síðan í 4. hverri umf 7-9-8-8-6-4 sinnum, síðan í annarri hverri umf 0-0-4-5-10-14 sinnum (= 13-14-14-15-15-15 l eftir á hvoru framstykki og 14-16-16-18-18-18 l eftir á bakstykki).

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm er prjónuð 1 l sléttprjón inn í kant að framan, þ.e.a.s. fjöldi l með perluprjóni í kanti að framan er aukin og fjöldi l í sléttprjóni á framstykki fækkar (fjöldi l er sá sami), endurtakið með 9-6-7-5-5-6 cm millibili alls 3-4-4-5-5-5 sinnum (= 9-10-10-11-11-11 l með perluprjóni í kanti að framan).

Eftir úrtöku eru 56-60-60-64-64-64 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf frá réttu þar sem fækkað er um 8-8-8-10-10-10 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 48-52-52-54-54-54 l. Eftir síðustu umf með úrtöku er prjónuð 1 umf slétt frá röngu jafnframt eru fyrstu 9-10-10-11-11-11 l á prjóni settar á þráð (prjónið þær fyrst), fellið af næstu 30-32-32-32-32-32 l og haldið eftir síðustu 9-10-10-11-11-11 l á prjóni, snúið við. Prjónið nú stuttar umferðir fyrir kraga yfir l á prjóni (haldið áfram í perluprjóni) þannig: * Prjónið 2 umf yfir fyrstu 5-5-5-6-6-6 l við miðju að framan, prjónið 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 17-18-18-18-18-18 cm þar sem byrjað var með stuttar umferðir (mælt lengst inn við kraga þar sem stykkið er styst), fellið af. Setjið til baka l af þræði frá hinni hliðinni á prjóninn, prjónið 1 umf slétt frá réttu, prjónið nú stuttar umferðir alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið saman kraga við miðju að aftan (saumið kant í kant) og saumið við hálsmál aftan við hnakka með smáu spori. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.08.2013
DROPS HRINGPRJÓNAR (50 cm og 80 cm) NR 10 – eða sú stærð sem þarf til að 9 l og 12 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
ERMI: Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna. Fitjið laust upp...

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag BAUDET wrote:

Bonjour Je voudrais tricoter une veste oversize taille L hauteur 65 avez des torsades et point de riz avec 4 fils de kid silk et aiguilles 7, pouvez vous me dire combien de pelotes, merci

18.06.2023 - 21:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Baudet, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, toutefois, vous pouvez vous baser sur ce type de veste. oversize et retrouver ici comment calculer la nouvelle quantité correspondante; votre magasin saura vous aider si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

19.06.2023 - 09:09

country flag Kristina wrote:

Jag har stickat den nu i storlek XL. Den passar utmärkt, förutom att ärmarna är mycket kortare än vad som syns på modellen. Mina slutar 5 cm ovanför armbågen, medan hennes ser ut att nå en god bit nedanför armbågen. Jag har följt mönstret exakt och allt annat stämmer. Funderar på att sticka en till fast med längre ärmar. Kan man öka från de 7 centimetrarna i mönstret innan man stickar oket till t ex 15 eller 20 cm?

04.05.2021 - 11:47

DROPS Design answered:

Hej Kristina. Om du önskar längre armar så går det helt fint att göra så. Mvh DROPS Design

04.05.2021 - 12:14

country flag Nadine BABIN wrote:

Pouvez vous me dire à quoi correspondent les tailles S et M, 38 , 40 , 42 ???? Merci

18.03.2021 - 07:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Babin, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la taille, comparez ensuite ces mesures à celles du schéma, vous trouverez ainsi la taille correspondante. Cette leçon donne quelques informations complémentaires. Bon tricot!

18.03.2021 - 10:00

country flag Eve Bird wrote:

I am at the Yoke part of the pattern and it is confusing to me as I try to understand all the decreasing instructions. I don't see how I can keep track of it all. Are there some row by row instructions for this part so I can just follow that?

08.03.2021 - 00:48

DROPS Design answered:

Dear Eve, unfortunately we do not have a row-by row, stitch by stitch instructions. If you find it difficult, try to make notes, or drawing some reminder on a graph paper might help. Also, do not forget you an always ask for help in the store you bought your DROPS yarn from, either in person, or over the phone. Happy Knitting.

08.03.2021 - 03:18

country flag Anny wrote:

Hei! Hvordan syr jeg sjalskragen til halskanten, syr jeg fra retten eller vrangen? God helg hilsen Anny

30.01.2021 - 16:57

DROPS Design answered:

Hei Anny, Du skal ha sømmen på baksiden av kragen når den er brettet ned (så dette blir retten i forhold til bærestykke). God fornøyelse!

01.02.2021 - 11:29

country flag Anny wrote:

Hvordan strikke forkortete pinner i perlestrikk uten å få hull

10.01.2021 - 23:56

country flag Anny Aanestad wrote:

Hei, i denne oppskrift står det felle 8 masker i begynnelsen av omg på ermet, men er det riktig ? Blir det skjeavtale når jeg setter ermen inn på bolen?Eller felle 4 Masker på hver side av merketråden under ermet! Hva er riktig! På forhånd takk.

13.12.2020 - 12:22

DROPS Design answered:

Hei Anny. Du kan fint gjøre slik du skriver, men det blir heller ikke galt å gjøre slik det står i oppskriften. Det står ikke at man skal sette en merketråd under ermet, slik at midt i erme kan da være mellom 4. og 5. avfelte maske av de 8 maskene. God Fornøyelse!

16.12.2020 - 15:21

country flag Eve Bird wrote:

The model shows the bottom corners at an angle, but I did not read any instructions to do this when I started my sweater? Did I miss something? One more, am I decreasing for arm holes and making a button hole and decreasing at button edges all at the same time once I reach length?

09.02.2020 - 04:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bird, I'm sorry, I don't understand what you mean with the "bottom corners at an angle" - You will have to decrease for raglan (they happen at a different rythm on body and sleeve) and for buttonholes on the right front band - this can happen that the decreases have to be worked at the same time, make sure to check the measurements. Happy knitting!

10.02.2020 - 09:02

country flag Marilyn wrote:

Hi, I am working the decreases on the Pistachio cardigan. For the raglan decreases on the body, when it states that at the end, there should be 15 sts remaining on each front piece, does that include the button band? I do not think it should, looking carefully at the sweater on the model.

24.01.2017 - 02:48

DROPS Design answered:

Dear Marilyn, these 15 sts include front band sts, eg in larger size, there were 33 sts for each front piece, you dec for raglan (on each front piece): 4 x 1 st + 14 x 1 st = 18 sts, 15 sts remain. Remember to work 1 more st in seed st (and 1 st less in stocking st). Happy knitting!

24.01.2017 - 09:52

country flag Suus wrote:

Ik kan fysiek niet met een rondbreinaald omgaan. Kan het ook op 2 pennen? Hoe pak ik dit aan.

03.11.2016 - 08:24

DROPS Design answered:

Hoi Suus. Ja, dat kan als je ruimte hebt voor alle st op de rechte naald. Je kan hier ook lezen hoe je een patroon kan aanpassen voor rechte naalden.

03.11.2016 - 15:53