DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Eva Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL

DROPS 149-3
DROPS Design: Mynstur nr z-647
Garnflokkur A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250-250-300-300-350-400 gr litur nr 9020, ljós perlugrár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
100-125-125-125-150-175 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ATH! Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LEIÐBEININGAR:
Þegar úrtaka fyrir hálsmál byrjar er haldið áfram með gataumferð sem þegar hefur verið byrjað á, nema að ekki er byrjað á nýrri gataumferð. ATH! Passið uppá að lykkjum er ekki fækkað fyrir hálsmáli í 4 fyrstu umf í mynstri A.1/A.2.

ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir hálsmál):
Fækkið lykkjum innan við 2 l garðaprjón. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 2 l þannig: Takið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 2 l þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 93-95-107-115-125-137 l með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 2-2-3-2-2-2 l sléttprjón, MYNSTUR A.2 – sjá útskýringu að – yfir næstu 44-45-50-55-60-66 l (= 4-5-5-5-6-6 mynstureiningar á breiddina), 1 l sléttprjón, mynstur A.1 yfir næstu 44-45-50-55-60-66 l (= 4-5-5-5-6-6 mynstureiningar á breiddina) og endið á 2-2-3-2-2-2 l í sléttprjóni. Mynstur A.1/A.2 færist til alla leið út að 2-2-3-2-2-2 l í hlið sem prjónaðar eru í sléttprjóni tilloka. Prjónið 1 nýja mynstureiningu A.1/A.2 á hæðina fyrir 22.-18.-20.-22.-20.-22. hverja umf. Prjónið svona þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm. Fellið síðan af 1-1-1-2-2-4 l fyrir handveg í hvorri hlið = 91-93-105-111-121-129 l. Haldið áfram með mynstur, nema síðustu 5 l í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm – lesið LEIÐBEININGAR, prjónið 2 umf garðaprjón yfir miðju 27-27-29-29-29-29 l (= 32-33-38-41-46-50 l í hvorri hlið), prjónið þær l sem eftir eru eins og áður. Fellið nú af miðju 23-23-25-25-25-25 l fyrir hálsmáli = 34-35-40-43-48-52 l eftir í hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir 2 síðustu l við hálsmál, mynstur og 5 l sléttprjón. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm eru prjónaðar 2 umf sléttprjón með 2 l garðaprjón hvoru megin við hálsmál. Fellið af. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 47-49-50-52-54-55 cm eru prjónaðar 2 umf garðaprjón yfir 5 miðju l (= 43-44-50-53-58-62 l í hvorri hlið), aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Fækkið nú miðju l í garðaprjóni og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. – Munið eftir LEIÐBEININGAR. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir 2 síðustu l við hálsmál, mynstur og 5 l sléttprjón, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli innan við 2 l garðaprjón – lesið ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 10-10-11-11-11-11 sinnum til viðbótar (= alls 11-11-12-12-12-12 sinnum = 34-35-40-43-48-52 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 42-42-44-48-48-50 l með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 7-6-4-4-3-3 cm millibili 4-5-6-6-8-8 sinnum til viðbótar (= alls 5-6-7-7-9-9 sinnum) = 52-54-58-62-66-68 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 35-35-33-32-30-29 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma yst í lykkjubogann.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.08.2013
undir FRAMSTYKKI: ... -lesið ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 10-10-11-11-11-11 sinnum til viðbótar (= alls 11-11-12-12-12-12 sinnum)...
Yfirfarið á vefsvæði: 05.08.2013
BAKSTYKKI:... Prjónið 1 nýja mynstureiningu af A.1/A.2 á hæðina fyrir 22.-18.-20.-22.-20.-22. hverja umf. Prjónið svona þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm. Fellið síðan af 1-1-1-2-2-4 l fyrir handveg á hvorri hlið = 91-93-105-111-121-129 l. Haldið áfram með mynstur, nema síðustu 5 l á hvorri hlið eru prjónaðar með sléttprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm – lesið LEIÐBEININGAR, prjónið 2 umf garðaprjón yfir miðju...

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (95)

country flag Marianne Sabbagh wrote:

Hvis jeg vil strikke langt ærme i stedet for 3/4 langt hvilken længde skal jeg strikke det

10.10.2019 - 01:05

DROPS Design answered:

Hej Marianne, det er nok bedst at du prøver ærmet sammen med selve blusen, så får du det så langt som du vil have. God fornøjelse!

10.10.2019 - 14:20

country flag Sylvie wrote:

Bonjour. Je ne comprends pas la phrase " les points fantaisie A1/A2 de décalent sur le côté de 2 m. 1 nouveau rapport A1/A2 en hauteur tous les 22 rgs" alors que le diagramme ne comporte que 20 rgs. Merci pour votre réponse

21.11.2018 - 14:16

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, pour continuer les diagonales logiquement, vous allez décaler les motifs sur le côté - vous ne pourrez répéter les motifs en hauteur qu'après un total de 22 rangs - continuez simplement à tricoter le point ajouré pour que les diagonales se prolongent. Bon tricot!

21.11.2018 - 16:09

country flag Evelyn Letourneau wrote:

I do not understand the wording "displacing yo k2tog as before when completing the diagram.

15.10.2018 - 04:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Letourneau, continue working the diagrams so that the eyelet will make a diagonal = start to work K2 tog, YO 1 stitch before previous row (as in diagram A.2) and make the YO 1 stitch after the previous YO from previous row in A.1 (as in diagram) so that the eyelet will continue on a same diagonal line. Happy knititng!

15.10.2018 - 10:57

country flag Carmen Ruiz Oppitz wrote:

Hola, me encantan las labores que tenéis, en especial los jerseys, pero, ¿no podrías poner las explicaciones con agujas que no sean circulares?.

23.01.2018 - 21:37

Mercedes wrote:

Hola. Estoy haciendo la talla M. No entiendo como seguir en la vuelta siguiente a haber completado por primera vez los patrones A2 y A1 Muchas gracias!

03.04.2017 - 06:53

DROPS Design answered:

Hola Mercedes. Los diagramas A.1/A.2 tienen que desplazarse. Para eso tenemos que comenzar y terminar las repeticiones nuevas de los diagramas con 2 puntos más ( para la talla M), es decir, la 2ª repetición comienza con 4 pts y termina con 4 puntos.

14.04.2017 - 12:29

country flag Viktoria wrote:

Liebes Drops-Team, ich stricke gerade dieses Modell in dunkelbraun und bin von der Garnkombi Alpaca + Alpaca Kid Silk absolut begeistert. Beide Garne gehören zur Garngruppe A und ich frage mich, ob ich auch Strickstücke, die bei Ihnen unter Garngruppe C gelistet sind, mit dieser Kombi stricken könnte. Denn A+A ergibt ja C . Oder muss ich dabei etwas beachten? Ich würde nämlich gerne mehr Modelle mit dieser edlen Garnkombi stricken. Viele Grüße Viktoria

25.08.2016 - 23:25

DROPS Design answered:

Liebe Victoria, genau, Sie können die Modelle von Garngruppe C durch A+A (also z.B. Alpaca und Kid-Silk) ersetzen. Machen Sie in jedem Fall aber jeweils eine Maschenprobe.

27.08.2016 - 15:07

country flag Michelle wrote:

Kære DROPS. Jeg strikker denne til min mor i str. XL. Der skal påbegyndes ny mønsterrapport for hver 22. p. Det står både i opskrift OG under rettelser. Men der er stadig kun 20 i højden i følge diagrammet. Hvad skal jeg gøre på hhv. p. 21 og 22? Jeg kan se at andre har spurgt om det samme, men jeg kan ikke se forskel på rettelserne og på opskriften.. Håber I vil hjælpe :)

15.05.2016 - 19:15

DROPS Design answered:

Hej Michelle. Det du gör er at du bliver ved med at forskyde mönstret - altsaa slaa om/2 r sammen flytter hele tiden 1 maske til venstre i A.1 og til höjre i A.2. I pinde 21-22 starter du med en ny rapport, saa det vil sige du faar 9 r i mellem hvert hulmönster. Haaber du forstaar hvad jeg mener.

27.05.2016 - 14:47

country flag Sumaya wrote:

Re, ou alors le diagramme se lit de droite à gauche et non de gauche à droite ?

22.03.2016 - 22:38

DROPS Design answered:

Bonjour Sumaya, on lit les diagrammes en commençant dans le coin en bas, de droite à gauche sur l'endroit, et de gauche à droite sur l'envers. Bon tricot!

23.03.2016 - 08:43

country flag Sumaya wrote:

Bonjour, sur les explications il est ecrit qu'il faut faire le diagramme A.2 puis A.1 etes vous sur que ce n'est pas l'inverse ? Car en faisant A.2 puis A.1 mes "triangles" vont vers le haut et non vers le bas comme sur la photo. De plus, il est précisé de recommencer l'opération tous les 18 rangs, je fais la taille M et votre diagramme ne va que jusqu'au rang 16, que dois-je faire au rang 17 et 18 . Merci beaucoup !

22.03.2016 - 22:33

DROPS Design answered:

Bonjour Sumaya, on doit bien commencer par A.2 (diag. vers la droite) puis A.1 (diag. vers la gauche), on a ainsi une "pointe" au milieu et les diagonales partiront comme sur la photo. Après avoir tricoté 1 fois les diagrammes en hauteur, continuez à décaler les jours (1 dim, 1 jeté) et (1 jeté, 1 dim) comme avant, vous n'aurez suffisamment de mailles pour tricoter un nouveau motif en largeur qu'à partir du rang 18. Bon tricot:

23.03.2016 - 08:28

country flag Sum wrote:

Bonjour, je ne comprend pas cette phrase : "Rabattre ensuite 1 mailles pour l'emmanchure de chaque côté" Je dois rabattre une seule maille en début et fin de rang? Ou bien au début du rang endroit puis au début du rang arrière? Cette opération ne se réalise que une seule fois ?

01.03.2016 - 10:28

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sum, on rabat ensuite 1 m de chaque côté = on va rabattre 1 m au début de chaque rang de chaque côté (= 2 m rabattues au total, 1 de chaque côté de l'ouvrage: la 1ère en début de rang sur l'endroit, l'autre, au début du rang suivant sur l'envers). Bon tricot!

01.03.2016 - 13:30