DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Grey Sunset Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Snow með röndum, perluprjóni og laskalínu. Stærð S - XXXL

DROPS 150-45
DROPS Design: Mynstur nr ee-456
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
300-350-350-400-450-450 gr litur nr 46, milligrár
300-350-350-400-450-450 gr litur nr 53, ljós grár
250-300-300-350-400-450 gr litur nr 14, dökk grár
100-150-150-150-150-150 gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 10 – eða þá stærð sem þarf til að 9 l og 15 umf með perluprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 9 – fyrir stroff.
DROPS HORNATALA DÖKK, LITUR NR 536: 4 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10450.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LASKALÍNA:
Laskalína er hvoru megin við öll 4 prjónamerkin og lykkjum er fækkað þannig:
Á undan A.1 : Prjónið 2 l slétt saman.
Á eftir A.1: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
ATH: Síðasta úrtaka hvoru megin á ermi er gerð þannig:
Takið síðustu l í A.1 (= 1 l br) eins og prjóna eigi brugðið, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir. Þær 2 næstu l eru prjónaðar br saman (þ.e.a.s. næsta l á ermi og fyrsta l í A.1).

LEIÐBEININGAR:
Til að litaskipting í röndum verði falleg eru rendur prjónaðar fram og til baka á hringprjóna þannig: Prjónið 1. umf með lit 1, færið síðan allar l á hringprjóninum yfir á annan endann þannig að næsta umf er prjónuð með lit 2 frá sömu hlið. Snúið síðan við og prjónið næstu 2 umf eins og þær 2 fyrstu – þ.e.a.s. að prjónuð er 1 umf með hverjum lit og prjónað er alls 2 umf frá sömu hlið.

RENDUR (á við um fram- og bakstykki og ermi):
Rendur eru prjónaðar í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að neðan. Prjónið 12-12-14-14-13-13 cm á fram- og bakstykki og 15-13-14-13-10-9 cm, á ermum með lit nr 14, dökk grár. Prjónið nú rendur á fram- og bakstykki og ermum þannig:

Prjónið 10-10-10-10-11-11 cm með lit nr 14, dökk grár og lit nr 46, milligrár þannig:
UMFERÐ 1: Milligrár
UMFERÐ 2: Dökk grár
Endurtakið umf 1 og 2.
Prjónið 10-10-10-10-11-11 cm með lit nr 46, milligrár.
Prjónið 10-10-10-10-11-11 cm með lit nr 46, milligrár og lit nr 53, ljós grár þannig:
UMFERÐ 1: Ljós grár
UMFERÐ 2: Milligrár
Endurtakið umf 1 og 2.
Prjónið 10-11-11-12-12-13 cm með lit nr 53, ljós grár.
Prjónið 10-11-11-12-12-13 cm með lit nr 53, ljós grár og lit nr 01, natur þannig:
UMFERÐ 1: Ljós grár
UMFERÐ 2: Natur
Endurtakið umf 1 og 2.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl.
Endurtakið umf 2.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = fellið af þriðju l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 12, 22, 32 og 42 cm
STÆRÐ M: 14, 24, 34 og 44 cm
STÆRÐ L: 16, 26, 36 og 46 cm
STÆRÐ XL: 18, 28, 38 og 48 cm
STÆRÐ XXL: 15, 26, 37 og 48 cm
STÆRÐ XXXL: 17, 28, 39 og 50 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. LESIÐ LEIÐBEININGAR!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 100-108-116-124-132-144 l (meðtaldar 8 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 10 með litnum dökk grár. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 84-92-100-108-116-128 l og endið á 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki eftir 29-31-33-35-37-40 l inn frá hvorri hlið (= 42-46-50-54-58-64 l á bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur með 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 12,14,16,18,15,17 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT - sjá útskýringu að ofan, í hægri kanti að framan - JAFNFRAMT þegar stykkið mælist mælist 15 cm er fækkað um 1 l hvoru megin prjónamerki í hvorri hlið (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm = 92-100-108-116-124-136 l. Þegar stykkið mælist 33-33-35-35-37-37 cm eru felldar af 3 l hvoru megin við prjónamerki fyrir handveg í hvorri hlið (= 6 úrtökur í hvorir hlið) = 24-26-28-30-32-35 l eftir á hvoru framstykki og 32-36-40-44-48-54 l eftir á bakstykki = 80-88-96-104-112-124 eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf.
Fitjið laust upp 24-24-28-28-32-32 l á sokkaprjóna nr 9 með litnum dökk grár og prjónið RENDUR JAFNFRAMT er prjónað stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 7 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 10 og prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 2-2-4-4-6-6 l jafnt yfir = 22-22-24-24-26-26 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 21-21-23-23-25-25 l perluprjón, 1 l br. Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við br l. Endurtakið útaukningu með 2 cm millibili 9-6-7-5-6-2 sinnum til viðbótar, síðan eftir hvern cm alls 5-10-8-12-10-16 sinnum (= útaukning alls 15-17-16-18-17-19 sinnum) = 52-56-56-60-60-64 l. ATH: Útauknu l eru prjónaðar í perluprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 36-34-35-34-34-33 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 3 l, prjónið næstu 46-50-50-54-54-58 l, fellið síðan af síðustu 3 l í umf (= 6 l felldar af) = 46-50-50-54-54-58 l.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt– ATH: Prjónið spegilmynd, þ.e.a.s. byrjið umf á 1 l br og prjónið síðan 21-21-23-23-25-25 l í perluprjóni.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 172-188-196-212-220-240 l – haldið áfram með RENDUR. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki) – 1. prjónamerki er sett í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 8 kantlykkjur að framan í garðaprjón, 16-18-20-22-24-27 l í perluprjóni (= framstykki), A.1 yfir næstu 4 l (þ.e.a.s. á eftir 1. prjónamerki), perluprjón yfir næstu 38-42-42-46-46-50, A.1 (= 4 l á undan 2. prjónamerki = hægri ermi), perluprjón yfir næstu 32-36-40-44-48-54 l (= bakstykki), A.1 (= 4 l á eftir 3. prjónamerki), perluprjón yfir næstu 38-42-42-46-46-50 l. A.1 yfir næstu 4 l (þ.e.a.s. á undan 4. prjónamerki = vinstri ermi), 16-18-20-22-24-27 l perluprjón (= framstykki) og endið á 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT er prjónuð 1 l perluprjón inn við kant að framan, þ.e.a.s. fjöldi l í garðaprjóni í kanti að framan eykst og fjöldi l í perluprjóni á framstykki fækkar (heildarfjöldi l er sá sami), endurtakið þessa tilfæringu í 4. hverri umf 6-7-7-7-8-8 sinnum til viðbótar (= alls 7-8-8-8-9-9 sinnum) = alls 15-16-16-16-17-17- l garðaprjón í kanti að framan. JAFNFRAMT í 4. hverri umf á eftir þar sem fram- og bakstykki og ermar voru settar saman byrjar LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið úrtöku að neðan eins og útskýrt var frá. ATH: Úrtaka er mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki.

ERMAR:
Fækkið lykkjum í 4. hverri umf 2-1-1-1-1-0 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf alls 16-19-19-21-21-24 sinnum (= alls 19-21-21-23-23-25 úrtökur hvoru megin við A.1 inn við ermar). ATH: Síðasta úrtaka á ermi er þannig:
Takið síðustu l í A.1 (= 1 l br) eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir. Næstu 2 l eru prjónaðar brugðið saman (þ.e.a.s. næsta l á ermi og fyrsta l í A.1).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fækkið lykkjum í 8. hverri umf 2-1-0-1-0-0 sinnum til viðbótar, í 6. hverri umf alls 4-5-5-3-3-0 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 0-1-3-5-7-12 sinnum (= alls 7-8-9-10-11-13 úrtökur hvoru megin við A.1 inn við fram- og bakstykki) = 17-18-19-20-21-22 l eftir á framstykki og 18-20-22-24-26-28 l eftir á bakstykki.

Eftir úrtöku eru 68-72-76-80-84-88 l eftir á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 15-16-16-16-17-17 l, setjið l á þráð, fellið af næstu 38-40-44-48-50-54 l og -prjónið garðaprjón yfir síðustu 15-16-16-16-17-17 l á prjóni.

KRAGI:
Prjónið nú stuttar umferðir með litnum natur yfir 15-16-16-16-17-17 l á prjóni fyrir kraga (1. umf = rétta) þannig: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 11-12-12-12-13-13 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 21-22-24-27-28-30 cm lengst inn þar sem hann er minnstur. Fellið af.

Setjið 15-16-16-16-17-17 kantlykkjur að framan frá þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna nr 10 og prjónið stuttar umferðir alveg eins en byrjið frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið hann niður við hálsmál aftan við hnakka. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.01.2023
KRAGI: Prjónið nú stuttar umferðir með litnum natur yfir 15-16-16-16-17-17 l á prjóni fyrir kraga (1. umf = rétta)...

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-45

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Yoann wrote:

Bonjour, j'ai commencé la partie empiècement et j'ai fait les diminutions de chaque côté de A1. Je suis au rang suivant, sur l'endroit, et je ne comprends pas ce qu'il faut faire concernant la dernière diminution de la manche. Comment identifier la 1ère maille de A1 et la dernière ? Et si je suis bien la description, lorsque je tricote ensemble à l'envers les 2 mailles suivantes comme indiqué, je ne suis plus dans la partie manche mais le dos...

05.12.2023 - 12:54

DROPS Design answered:

Bonjour Yoann, les diminutions du raglan se font en même temps pour les manches et le dos/les devants mais pas au même rythme, autrement dit, vous allez diminuer soit 4 mailles (manches seulement), soit 8 mailles (manches, dos et devants quand on diminue tous les 8 rangs en taille S M et XL par ex). Les mailles de A.1 sont décrites au tout 1er rang de l'empiècement, n'hésitez pas à placer un marqueur de part et d'autre pour mieux les repérer. Bon tricot!

05.12.2023 - 16:08

country flag Regina wrote:

Vielen Dank für die Antwort. Das habe ich verstanden. Aber wenn die Blenden wie auf dem Foto wegen der Knöpfe aufeinander und nicht jeweils auf dem anderen Vorderteil liegen sollen, ist das Vorderteil 8 Maschen breiter als das Rückenteil. Das sind ca 9cm. Rückenteil 42 Maschen, 2 Vorderteile 2 x 21 =42 Maschen + 1 Blende 8 Maschen = 50 Maschen. Können Sie mir bitte bestätigen, dass das Vorderteil wirklich breiter ist. Bisher hatte ich noch nie eine Anleitung , bei der das der Fall war.

14.11.2023 - 11:04

DROPS Design answered:

Liebe Regina, so stimmt es, aber die 8 Maschen von den beiden Blenden werden sich vorne überlappen, so das Vorderteil wird 8 Maschen breiter sein. Viel Spaß beim stricken!

14.11.2023 - 11:14

country flag Regina wrote:

Ich habe eine Frage zur Maschenzahl beziehungsweise Breite. Meine Berechnungen beziehen sich auf Größe S. Nach dem Setzen der Marker: Rückenteil 42M~46cm, 2Vorderteile 29M~32cm x 2 =64cm, eine Blendenbreite 8M~ 9cm. Das bedeutet 2 Vorderteile 64cm -9cm (eine Blendenbreite wegen Überlappung) = 55cm Breite Vorderteil. Dann wäre das Vorderteil 9cm breiter als das Rückenteil oder die Überlappung müsste 18cm betragen.

13.11.2023 - 21:00

DROPS Design answered:

Liebe Regina, jedes Vorderteil ist die Hälfte vom Rückenteil: 21 Maschen + Blende = 29 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

14.11.2023 - 10:25

country flag Ulrike wrote:

Hallo, auf dem Foto scheint es, dass der Kragen nicht hellgrau-natur meliert, sondern in Farbe natur gestrickt wurde. Ist das richtig? In der Beschreibung steht beim Kragen nichts von einem Farbwechsel, oder hab ich das überlesen? Viele Grüße

25.01.2023 - 17:35

DROPS Design answered:

Liebe Ulrike, stimmt, ich habe Ihren Hinweis unser Design Team weiterleitet, aber ich denke schon, der Kragen wird dann mit natur gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

26.01.2023 - 10:04

country flag Matteo Ballardini wrote:

My Wife is tall 175 and weigh 72 kg These model is ok to order an L size ? Thanks soo much for Your reply Matteo

31.12.2022 - 20:57

DROPS Design answered:

Dear Mr Ballardini, measure a similar garment she has and likes and compare the measurements to those in the chart, that's the best way to find the appropriate size - read more here. Happy knitting!

02.01.2023 - 13:56

country flag Karen Holmegaard wrote:

Ærme -Hvorfor skal jeg tage ind når jeg skifter til pind 10 - der tages jo ud igen lige efter?

20.03.2022 - 16:11

DROPS Design answered:

Hei Karen. Det er det nok gjort for at det skal blir en mer markert overgang mellom vrangbord og perlestrikk / maskeantallet skal stemme med perlestikk i alle str. / antall økninger på et x -antall cm før det skal felles til ermtopp. mvh DROPS Design

21.03.2022 - 14:20

country flag Janne wrote:

What is the finished bust measurement for your large, XML and XML pattern sizing.

16.03.2021 - 08:10

DROPS Design answered:

Dera Janne, the finished sized of this sweater can be found on the scematic drawing at the bottom of the insturctions. At the moment, the site has some technical diffculties witth images, ass soon as it is solved, you will be able to see all measurements again. Thank you for your patience.

16.03.2021 - 12:43

country flag Cynthia wrote:

Hallo, das Gesamtgewicht bei Größe S liegt bei 950g. Wenn ich die Jacke unifarben stricke, benötige ich genau so viel oder weniger? Kann ich als Ersatz das Garn Andes nehmen?

11.01.2020 - 22:30

DROPS Design answered:

Liebe Cynthia, da wir diese Jacke mit Streifen gestrickt haben, haben wir leider die Garnmenge mit nur eine Farbe, am besten addieren Sie alle Farben (ex. 950 g in S) es kann sein, daß Sie etwas weniger brauchen. Andes und Eskimo sind beide Garngruppe E, benutzen Sie unser Garnumrechner um die Garnmenge in Andes zu haben. Viel Spaß beim stricken!

13.01.2020 - 09:32

country flag Isabelle Urban wrote:

Bonjour Je souhaite réaliser ce modèle en 1 seule couleur. Ai-je besoin de autant de pelotes que le modèle rayé ? C'est à dire, pour la taille L : 1150g, soit 23 pelotes. Merci Salutations

07.10.2016 - 11:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Urban, il vous en faudra probablement un peu moins, mais vous pouvez vous baser sur la quantité des 4 couleurs pour être sûre de ne pas en manquer. Bon tricot!

07.10.2016 - 11:32

country flag HUET wrote:

A quoi est égal A1 ? de plus entre le tuto sur le raglan et les explications que vous en donnez ce n'est pas le même chose. Quand vous parlez de côté manche qu'est ce exactement ? bref pourriez vous faire un tuto sur le premier rang d'assemblage j'ai le sentiment que les diminutions ne se font pas de la même façon à droite et à gauche de la manche. d'avance merci, j'aimerai tant finir ce pull et je ne comprends rien pourtant j'ai plus d'un pull à mon actif et pas forcement des simples.

15.04.2016 - 14:07

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Huet, vous tricotez A.1 comme indiqué au 1er rang de l'empiècement, puis diminuez pour le raglan à un rythme différent pour les manches et pour le dos et les devants (voir taille). Les diminutions du raglan se font comme indiqué sous "Raglan" au début des explications. Pour toute assistance complémentaire, n'hésitez pas à contacter le magasin où vous avez acheté votre fil ou le forum DROPS (plus d'espace pour communiquer). Bon tricot!

15.04.2016 - 17:53