Rose des Vents |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð ferhyrnd peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk með gatamynstri að aftan og blaðamynstri meðfram kanti að framan. Stærð S - XXXL
DROPS 150-11 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá miðju að aftan í ferhyrning, prjónið síðan út að hvorri hlið fyrir framstykki. Að lokum eru ermarnar prjónaðar. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Fitjið upp 8 l með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) og skiptið l yfir á 4 sokkaprjóna nr 6 (= 2 l á prjóni). Setjið 1 prjónamerki í fyrstu, þriðju, fimmtu og sjöundu l (= 4 prjónamerki). Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1 fjórum sinnum eftir hverri annarri í umferð. Lykkjur með prjónamerki eru hornlykkjur, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað og umferð merkt með ör í mynstri, endar ferhyrningurinn í stærð S/M = 64 l meðfram hvorri hlið og alls 256 l á prjóni. STÆRÐ L/XL + XXL/XXXL: Haldið svona áfram út eins og útskýrt er í A.1A (þ.e.a.s. að útaukning heldur áfram eins og áður í annarri hverri umf með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn í hverju horni og prjónað er br meðfram hverri hlið). Endið ferhyrninginn þegar 76-90 l eru meðfram hverri hlið og alls 304-360 l á prjóni. ALLAR STÆRÐIR: = 256-304-360 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 l sl (= miðju-l í fyrsta horni), fellið af næstu 63-75-89 l (= öxl og hnakki við miðju að aftan), fellið af næstu 26-29-32 l fyrir handveg, prjónið 38-47-58 l br og 1 l sl (setjið síðan þessar 39-48-59 l á þráð (= vinstri hlið á framstykki), prjónið 63-75-89 l sl (= neðri kantur), prjónið 1 l sl, 38-47-58 l br og setjið síðan þessar 39-48-59 l á þræði (= hægri hlið á framstykki) og fellið síðan af síðustu 25-28-31 l í umf + fyrsta l í byrjun umf (= 26-29-32 l fyrir handveg). Klippið frá. Setjið 63-75-89 l af neðri kanti á hringprjóna nr 5. Byrjið frá röngu og prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka áður en fellt er laust af með sl frá röngu. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 26-29-32 l fyrir handveg á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir), setjið síðan 39-48-59 l af þræði frá vinstri hlið á framstykki á sama hringprjón = 65-77-91 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki – héðan er nú mælt. Prjónið sléttprjón fram og til baka, en 2 síðustu l í lok umf frá réttu (= við neðri kant) eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 12-14-16 cm frá prjónamerki eru allar 65-77-91 l settar á þráð. Leggið stykkið með röngu á móti röngu við opið fyrir handveg og saumið sauminn efst við handveg innan við 1 kantlykkju (saumið A við B eins og útskýrt er í mynsturteikningu = 12-14-16 cm saumur) – punktur þar sem saumurinn endar inn við stykki = C. VINSTRI KANTUR VIÐ HÁLSMÁL/KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ BLAÐAMYNSTRI + FRAMSTYKKI: Fitjið upp 20-23-27 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af hvorri tegund. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (= 5 l – byrjið frá 1. umf í mynstri merktri með ör, síðan er mynstureiningin endurtekin frá umf 2 til 23) og prjónið garðaprjón yfir 15-18-22 l sem eftir eru. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka jafnframt sem aukið er út og lykkjum fækkað í A.2 eins og útskýr er í mynsturteikningu þar til stykkið mælist ca 11-13-16 cm (leggið kant að framan frá miðju að aftan efst á ferhyrninginn og fram að punkti C þar sem saumurinn endar efst við handveg, athugið mál á meðan stykkinu er haldið uppi og prjónið ef til vill lengra þar sem stykkið teygist aðeins). Setjið nú l af þræði frá vinstra framstykki inn á sama hringprjóna og kantur að framan frá réttu þannig: Prjónið A.2 eins og áður, prjónið 15-18-22 l sl eins og áður og prjónið síðan sléttprjón með 2 l garðaprjón í kanti að neðan yfir 65-77-91 l af þræði á vinstra framstykki. Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt. Haldið áfram fram og til baka með A.2, garðaprjóni og sléttprjóni þar til vinstra framstykki mælist ca 36-42-52 cm frá prjónamerki – passið að það verða 10 umf í 1 mynstureiningu af A.2 og næsta umf sé frá röngu. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka, en A.2 heldur áfram yfir síðustu l í kanti að framan eins og áður. Þegar síðasta mynstureiningin með A.2 er lokið og prjónaðar hafa verið 10 umf garðaprjón (stykkið mælist ca 40-46-56 cm), fellið af mjög laust með sl frá röngu. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið 39-48-59 l af þræði í hægri hlið við framstykki á hringprjóna nr 6, fitjið að auki upp 26-29-32 nýjar l í lok umf fyrir handveg = 65-77-91 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki – héðan er nú mælt. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 þræði af hvorri tegund, en síðustu 2 l í frá byrjun umf frá réttu (= við neðri kant) eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 12-14-16 cm frá prjónamerki eru allar 65-77-91 l settar á þráð. Leggið röngu á stykki við röngu við op fyrir handveg alveg eins og á vinstra framstykki og saumið sauminn efst við handveg innan við 1 kantlykkju (saumið A við B eins og útskýrt er í mynsturteikningu = 12-14-16 cm saumur) – punktur þar sem saumurinn endar inn við stykki = D HÆGRI KANTUR VIÐ HÁLSMÁL/KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ BLAÐAMYNSTRI + FRAMSTYKKI: Fitjið upp 20-23-27 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 1 umf sl frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 15-18-22 l og A.3 yfir síðustu 5 l. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka jafnframt er aukið út og lykkjum fækkað í A.3 eins og útskýrt er í mynsturteikningu þar til stykkið mælist ca 11-13-16 cm (athugið mál alveg eins og gert var á vinstri kanti við hálsmál/kantur að framan og prjónið álíka langt eins á á vinstri kanti við hálsmál/kantur að framan). Setjið nú inn l af þræði frá hægra framstykki inn á saman hringprjón og kantur að framan frá réttu: Prjónið sléttprjón með 2 l garðaprjón í neðri kanti (þ.e.a.s. í byrjun umf frá réttu) yfir 65-77-91 l af þræði frá hægra framstykki, prjónið 15-18-22 l garðaprjón eins og áður og prjónið síðan A.3 eins og áður. Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt. Haldið áfram fram og til baka með A.3, garðaprjón og sléttprjón fyrir hægra framstykki þar til stykkið mælist ca 36-42-52 cm frá prjónamerki – passið að það verði 10 umf í 1 mynstureiningu af A.3 og næsta umf frá réttu. Prjónið nú garðaprjón fram og til baka, en A.3 heldur áfram yfir síðustu l í kanti að framan eins og áður. Þegar síðasta mynstureiningin með A.3 er lokið og prjónaðar hafa verið 10 umf garðaprjón (stykkið mælist ca 40-46-56 cm), fellið af mjög laust með sl frá röngu. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 30-34-36 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 6. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-7-9 cm, aukið út um 2 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við prjónamerki). Endurtakið útaukningu með 3-3-2 cm millibili, 11-11-13 sinnum til viðbótar (= alls 12-12-14 sinnum) = 54-58-64 l. Þegar stykkið mælist 44-42-39 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), prjónið fram og til baka og fækkið um 5 l í byrjun á 4 næstu umf fyrir ermakúpu. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 46-44-41 cm. FRÁGANGUR: Saumið inn ermar við miðju að framan- og bakstykki innan við affellingarkantinn á hvorum handveg. Saumið saman hálsmál/kant að framan við miðju að aftan (passið uppá að saumurinn sjáist ekki þegar kanturinn að framan er brotinn niður) og saumið hálskantinn við ferhyrninginn aftan við hnakka á milli punkta C og D. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (42)
Arja wrote:
Erittäin kaunis kuvio!
30.05.2013 - 14:20Dorthe Hansen wrote:
SÅ flot, håber den kommer med det må jeg bare eje
30.05.2013 - 14:17