Ladylike |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð húfa og sjal úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk í garðaprjóni og gatamynstri
DROPS 151-8 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, til að koma í veg fyrir göt er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. STUTTAR UMFERÐIR-1: Prjónaðar eru stuttar umferðir til að fá meira form á gatamynstur þannig: Byrjið frá réttu og prjónið sl yfir allar l, snúið við og prjónið 17 l sl frá röngu (þ.e.a.s. fram að prjónamerki), snúið við og prjónið 17 l sl frá réttu, snúið við, fellið af fyrstu 6 l og prjónið sl til baka yfir allar l á prjóni = 1 mynstureining með stuttum umferðum. STUTTAR UMFERÐIR-2: Byrjið frá réttu og prjónið sl yfir allar l, snúið við og prjónið til baka 11 l sl frá röngu (þ.e.a.s. fram að prjónamerki), snúið við og prjónið 11 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 8 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 8 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 5 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 5 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 2 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 2 l sl frá réttu. Prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar 68 l, nú hefur verið prjónað fram að miðju á sjalinu. Prjónið nú með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 2 l sl, snúið við og prjónið 2 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 5 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 5 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 8 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 8 l sl frá réttu, snúið við og prjónið 11 l sl frá röngu, snúið við og prjónið 11 l sl frá réttu, snúið við og prjónið sl til baka yfir allar l = 1 mynstureining með stuttum umferðum. STUTTAR UMFERÐIR-3: Byrjið frá réttu, prjónið sl yfir allar l og fitjið upp 6 nýjar l í lok umf, snúið við og prjónið 17 l sl frá röngu (þ.e.a.s. fram að prjónamerki), snúið við og prjónið 17 l sl frá réttu, snúið við og prjónið sl til baka yfir allar l í umf = 1 mynstureining með stuttum umferðum. ÚRTAKA: Fækkað er um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin. HÚFA: Fitjið upp 100 l með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 3 cm sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá röngu (= brotalína) og haldið áfram í sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 3 cm – passið uppá að næsta umf sé frá réttu. Skiptið yfir í hringprjóna nr 5 og prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er fækkað um 16 l jafnt yfir í 1. umf = 84 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni þar til stykkið mælist 20 cm. Í næstu umf frá réttu eru allar l prjónaðar saman slétt 2 og 2 = 42 l á prjóni. Prjónið 3 umf slétt. Í næstu umf (= rétta) prjónið allar l saman slétt 2 og 2 = 21 l á prjóni. Prjónið 3 umf slétt. Í næstu umf (= rétta) eru allar l prjónaðar saman slétt 2 og 2 = 11 l á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. FRÁGANGUR: Brjótið neðri kantinn á húfunni saman tvöfaldan að röngu í brotalínuna og saumið niður með smáu spori – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Saumið síðan saman húfuna við miðju að aftan yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Húfan mælist ca 26 cm á hæðina (meðtaldir 3 cm kantur neðst niðri). ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í garðaprjóni með kanti með gatamynstri og prjónað er fram og til baka á hringprjóna. SJAL: Fitjið upp 14 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 l sl, setjið 1 prjónamerki, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 11 l) = 15 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 12 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn – LESIÐ ÚTAUKNING, prjónamerki, A.1 yfir síðustu 12 l = 17 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 13 l, prjónamerki, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og prjónið sl út umf, snúið við. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki og prjónið A.1 yfir síðustu 13 l = 18 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 14 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (LESIÐ ÚTAUKNING), prjónamerki, A.1 yfir síðustu 14 l = 20 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 15 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, A.1 yfir síðustu 15 l = 21 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 16 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við. UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá, prjónamerki, A.1 yfir síðustu 16 l = 23 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið A.1 yfir fyrstu 17 l, prjónamerki, prjónið sl út umf. Nú hefur verið prjónuð 1 mynstureining með A.1 og aukið út um 3 l garðaprjón á undan prjónamerki (séð frá réttu). Prjónið 1 mynstureiningu með STUTTAR UMFERÐIR-1 – sjá útskýringu að ofan, yfir l með gatakanti (aðrar l á prjóni eru ekki prjónaðar). Prjónið nú til skiptis 1 mynstureining af A.1 á hæðina og 1 mynstureining með STUTTAR UMFERÐIR-1 (ATH: Í hvert skipti sem 1. umf í A.1 er prjónað verða 3 l fleiri á undan prjónamerki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 og STUTTAR UMFERÐIR-1 hefur verið prjónað alls 18 sinnum á hæðina eru 57 l í garðaprjóni á undan prjónamerki og 11 l í gatakanti á eftir prjónamerki = 68 l á prjóni. Prjónið 1 mynstureining með STUTTAR UMFERÐIR-2 – sjá útskýringu að ofan. Eftir stuttar umferðir-2 er prjónuð 1 mynstureining með STUTTAR UMFERÐIR-3 – sjá útskýringu að ofan = 74 l á prjóni. Prjónið nú fram og til baka yfir allar l þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (= 17 l) = 73 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 16 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, prjónamerki, A.2 yfir síðustu 16 l = 17 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 15 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, A.2 yfir síðustu 15 l = 70 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 14 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, prjónamerki, A.2 yfir síðustu 14 l = 68 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 13 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið sl fram að prjónamerki, A.2 yfir síðustu 13 l = 67 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 12 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við. UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, prjónamerki, A.2 yfir síðustu 12 l = 65 l á prjóni, snúið við. UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 11 l, prjónamerki, prjónið sl út umf, snúið við. Nú hefur verið prjónuð 1 mynstureining af A.2 og fækkað um 3 l á undan prjónamerki (séð frá réttu). Prjónið 1 mynstureiningu með STUTTAR UMFERÐIR-3 – sjá útskýringu að ofan, yfir l á gatakanti (aðrar l á prjóni eru ekki prjónaðar). Prjónið nú til skiptis 1 mynstureiningu af A.2 á hæðina og 1 mynstureining með STUTTAR UMFERÐIR-3: (ATH: Í hvert skipti sem 1. umf með A.2 er prjónuð kemur til með að vera 3 l færri á undan prjónamerki). Þegar A.2 og STUTTAR UMFERÐIR-3 hafa verið prjónaðar alls 18 sinnum á hæðina eru 14 l eftir á prjóni. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l og fellið síðan laust af. Sjalið mælist nú ca 145 cm á breiddina efst uppi og er ca 40 cm breitt fyrir miðju. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (78)
Choisnet wrote:
J'adore tout simplement, mais je n'arrive pas à me décider de le faire, j'ai tout simplement peur, de ne pas y arriver ! Dommage.
26.03.2014 - 21:10Loredana wrote:
Miiiiii non riesco a capire cosa sbaglio...provo da 2 ore ma c'è qualcosa che non va... '-.- sono io o il modello è difficile? A guardarlo sembra cosi semplice....
07.01.2014 - 23:30DROPS Design answered:
Buongiorno Loredana, non è un modello particolarmente difficile, se ci dice cosa sta realizzando e in che punto si è bloccata possiamo provare ad aiutarla. Buon lavoro!
08.01.2014 - 10:44Marie wrote:
Peut-on tricoter ce bonnet en rond et non en aller-retour? merci!
10.12.2013 - 17:14DROPS Design answered:
Bonjour Marie, vous pouvez volontiers le tricoter en rond, n'oubliez pas dans ce cas de tricoter le point mousse en alternant 1 tour end/1 tour env (cf vidéo ci-dessous). Bon tricot!
10.12.2013 - 17:54Hanneke wrote:
Klopt het dan in A2 in de laatste naald maar 4 omslagen zijn? Dit terwijl het verder steeds 5 omslagen zijn, ook in A1. Ik hoor het graag. Alvast bedankt! groet, Hanneke
10.11.2013 - 17:11DROPS Design answered:
Hoi Hanneke. Ja, dat klopt. Je moet minderen van 12 st in nld 10 tot 11 st in nld 11.
12.11.2013 - 12:30Mariann Kvinge wrote:
Jeg er kommet hertil på sjalet; Videre strikkes det vekselvis 1 rapport A.1 i høyden og 1 rapport VENDINGER Men; Jeg har 17 m. på p., mens A1-skjemaet begynner med 11 m. og avslutter med 17; Det stemmer jo ikke, eller har jeg allerede gjort noe feil, siden jeg har 17 m. på p? Jeg skjønner heller ikke hvordan jeg skal få økning på 3 m. før merketråden etterhvert; Står ikke noe i A1 eller vendinger 1 om økning. Jeg trenger hjelp til veien videre fra der jeg nå er kommet i oppskriften. Vh Mariann
13.09.2013 - 19:43DROPS Design answered:
Efter 11.p har du 23 m på p.
18.09.2013 - 15:12Mariann Kvinge wrote:
Hei. I kortintroduksjonen til denne oppskriften står det at både sjal og lue skal strikkes på rundpinne 5. Når jeg leser begynnelsen på oppskriften til luen står det at man skal legge opp 100 m på rundp 3. Hva er riktig? Vh Mariann
30.08.2013 - 15:51DROPS Design answered:
Hej Mariann. Der var en lille fejl i opskriften. Du begynder med 3.5 mm (ikke 3 mm) og bytter efter 3 cm til pind 5 mm. Vi har rettet opskriften ;-)
02.09.2013 - 13:35Karla wrote:
Fint og enkelt sett, dette kommer garantert til å ende opp på pinnene mine når mønsteret kommer :-)
26.06.2013 - 01:36Rossella Coco wrote:
Bellissimo ed evanescente. molto soffice. Aspetto le spiegazioni
25.06.2013 - 18:00Renate wrote:
I can't wait to make this beautiful shawl.
22.06.2013 - 22:43Fulconis wrote:
Une douce écharpe pour nous envelopper cet hiver. A quand les explications??? Merci
22.06.2013 - 22:26