Home Sweet Home |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Heklaður piparkökuhús pottaleppur úr 2 þráðum DROPS Safran og DROPS Paris. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-987 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf byrja á 1 ll, heklið fl í hverja fl í umf. HEKLAÐ SAMAN: Heklið 1 fl en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl (eða næstu 2 fl alveg eins), en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni = 1 fl á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- STÓRT PIPARKÖKUHÚS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er framhliðin á þakinu hekluð og síðan bakhliðin, síðan er framhliðin á húsinu hekluð ásamt bakhlið. ÞAK: Stykkið er heklað fram og til baka. UMFERÐ 1: Heklið 32 ll með 2 þráðum af Safran með heklunál nr 4, snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja ll þar til 2 ll eru eftir, heklið síðustu 2 fl saman – LESIÐ HEKLAÐ SAMAN = 30 fl, snúið við. ATH: Fyrsta fl sem hekluð var = punkti A í mynsturteikningu (og síðasta fl er punktur B). UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið fyrstu 2 fl saman, 1 fl í hverja fl út umf = 29 fl, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl þar til 2 fl eru eftir í umf, heklið síðustu 2 fl saman = 28 fl, snúið við. Endurtakið umf 2 og 3 – þ.e.a.s. fækkið um 1 fl á annarri hliðinni á þríhyrningnum í öllum umf – þar til 1 fl er eftir (= punktur c). Klippið frá og festið enda (= bakhlið). Heklið 1 þak til viðbótar á sama hátt (= framhlið). LYKKJA: Heklið með litnum rauður Paris. Heklið 1 kl í punkt A á bakhlið, heklið síðan ll í ca 12 cm, endið á 1 kl í sömu l, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Leggið framhlið ofan á bakhlið með röngu á móti röngu, heklið saman með 1 þræði af litnum natur Paris þannig. Byrjið í punkti B – sjá mynsturteikningu, heklið 1 kl í gegnum bæði stykkin, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 kl í síðustu lykkjubogana í gegnum bæði stykkin *, endurtakið frá *-* upp að punkti A efst á þaki og niðu að punkti c. Endurtakið nú frá *-* meðfram kanti á milli punkta C og B frá bakhlið að framan – ATH! Passið að það verða 23 ll-bogar yfir þennan kant, síðan 23 ll-bogar frá kanti á milli punkta B og C á bakhlið, endið á 1 kl um 1. ll-boga í punkti C á framhlið. Heklið nú þannig: Heklið 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, um næsta ll-boga eru heklaðir 4 st með 1 ll á milli hverra stuðla, * 1 fl um hvorn af næstu 2 ll-bogum, 4 tbst með 1 ll á milli hverra tbst í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*. Endið á 1 fl í síðasta ll-boga = 8 bogar á hvorri hlið (= 16 bogar alls). Klippið frá og festið enda. Með 1 þræði af litnum natur Paris, saumið út ferninga á framhlið á þaki – sjá mynsturteikningu. Með litnum appelsínugulur/rauður/dökk turkos/ljósgrænn Paris, gerið 1 franskan hnút í hvern ferning – sjá mynsturteikningu. HÚS: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 37 ll með 2 þræði af Safran með heklunál nr 4, snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja ll = 36 fl, snúið við. Heklið nú 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 10 cm. Í næstu umf er hekluð 1 fl í hverja fl – en aðeins er heklað aftan í lykkjubogann (= uppábrotskantur) = kantur á milli punkta D og E í mynsturteikningu. Heklið nú 1 fl í hverja fl eins og áður þar til stykkið mælist ca 10 cm eftir uppábrotskanti (þ.e.a.s. jafn langt á báðum hliðum). Klippið frá og festið enda. HJARTA: Stykkið er heklað fram og til baka. UMFERÐ 1: Heklið 2 ll með 1 þræði af litnum rauður Paris með heklunál nr 4, heklið 2 fl í 1. ll sem hekluð var, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 4 fl, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 2 fl í 1. fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í síðustu fl = 6 fl, snúið við. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl, snúið við. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, snúið við (það verður 3 fl fleiri öðrum megin í umf). UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl, snúið við. UMFERÐ 7: Heklið allar 3 fl saman = 1 fl, klippið frá og haldið eftir ca 30 cm fyrir frágang. Endurtakið umf 5-7 öðrum megin á hjartanu. FRÁGANGUR: Saumið niður hjartað framan á annarri hliðinni á húsinu (= framhlið) – AHT: Hornið neðst niðri á hjartanu á sauma við kantinn neðst niðri á húsinu (utan á uppabrotskant), saumið 2 stjörnur hvoru megin við hjartað með natur Paris – sjá mynsturteikningu. Brjótið hliðarnar meðfram uppábrotskanti með röngu á móti röngu, heklið þær saman með 1 þræði af litnum natur Paris þannig: Byrjið í punkti E í teikningu, heklið 1 kl í gegnum bæði stykkin, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 kl yst í lykkjubogann í gegnum bæði stykkin *, endurtakið frá *-* meðfram 3 köntum í kringum húsið upp að punkti D, þ.e.a.s. heklið ekki yfir uppábrotskant (á milli punkta E og D), endið á 1 kl í punkti D. Leggið uppábrotskantinn á húsið með opið á milli fram – og bakstykkis á þaki, saumið framhlið á húsinu við framhlið á þaki undir bogana, endurtakið alveg eins á bakhlið á húsi og þaki. ------------------------------------------------------- LÍTIÐ PIPARKÖKUHÚS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er framhliðin á þakinu hekluð og síðan bakhliðin, síðan er framhliðin á húsinu hekluð ásamt bakhlið. ÞAK: Stykkið er heklað fram og til baka. UMFERÐ 1: Heklið 22 ll með 2 þráðum Safran með heklunál nr 4, snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja ll þar til 2 ll eru eftir, heklið síðustu 2 fl saman – LESIÐ HEKLAÐ SAMAN = 20 fl, snúið við. ATH: Fyrsta fl sem hekluð var = punkti A í mynsturteikningu. UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið fyrstu 2 fl saman, 1 fl í hverja fl út umf = 19 fl, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl þar til 2 fl eru eftir í umf, heklið síðustu 2 fl saman = 18 fl, snúið við. Endurtakið umf 2 og 3 – þ.e.a.s. fækkið um 1 fl á annarri hliðinni á þríhyrningnum í öllum umf – þar til 1 fl er eftir (= punktur c). Klippið frá og festið enda (= bakhlið). Heklið 1 þak til viðbótar á sama hátt (= framhlið). LYKKJA: Heklið með litnum rauður Paris. Heklið 1 kl í punkt A á bakhlið, heklið síðan ll í ca 12 cm, endið á 1 kl í sömu l, klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Leggið framhlið ofan á bakhlið með röngu á móti röngu, heklið saman með 1 þræði í litnum natur Paris þannig. Byrjið í punkti B – sjá mynsturteikningu, heklið 1 kl í gegnum bæði stykkin, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 kl í síðustu lykkjubogana í gegnum bæði stykkin *, endurtakið frá *-* upp að punkti A efst á þaki og niðu að punkti C. Endurtakið nú frá *-* meðfram kanti á milli punkta C og B frá bakhlið að framan – ATH! Passið að það verða 11 ll-bogar yfir þennan kant, síðan 11 ll-bogar á kanti á milli punkta B og C á bakhlið, endið á 1 kl um 1. ll-boga í punkti C á framhlið. Heklið nú þannig: Heklið 1 ll, 1 fl um sama ll-boga, um næsta ll-boga eru heklaðir 4 st með 1 ll á milli hverra stuðla, * 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 bogar á framhlið) 1 fl um 1. ll-bogann á bakhlið, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 bogar á bakhlið), klippið frá og festið enda. Með 1 þræði af litnum natur Paris, saumið út ferninga á framhlið á þaki – sjá mynsturteikningu. Með litnum appelsínugulur/rauður/dökk turkos/ljósgrænn Paris, gerið 1 franskan hnút í hvern ferning – sjá mynsturteikningu. HÚS: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið 21 ll með 2 þráðum Safran með heklunál nr 4, snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hverja ll = 20 fl, snúið við. Heklið nú 1 fl í hverja fl þar til stykkið mælist ca 8 cm. Í næstu umf er hekluð 1 fl í hverja fl – en aðeins er heklað aftan í lykkjubogann (= uppábrotskantur) = kantur á milli punkta D og E í mynsturteikningu. Heklið nú 1 fl í hverja fl eins og áður þar til stykkið mælist ca 8 cm eftir uppábrotskanti (þ.e.a.s. jafn langt á báðum hliðum). Klippið frá og festið enda. HJARTA: Stykkið er heklað fram og til baka. UMFERÐ 1: Heklið 2 ll með 1 þræði í litnum rauður Paris með heklunál nr 4, heklið 2 fl í 1. ll sem hekluð var, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 4 fl, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 2 fl í 1. fl, 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í síðustu fl = 6 fl, snúið við. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl, snúið við. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, snúið við (það verður 3 fl fleiri öðrum megin í umf). UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl, snúið við. UMFERÐ 7: Heklið allar 3 fl saman = 1 fl, klippið frá og haldið eftir ca 30 cm fyrir frágang. Endurtakið umf 5-7 öðrum megin á hjartanu. FRÁGANGUR: Saumið niður hjartað framan á annarri hliðinni á húsinu (= framhlið) – AHT: Hornið neðst niðri á hjartanu á sauma við kantinn neðst niðri á húsinu (utan á uppabrotskant), saumið 2 stjörnur hvoru megin við hjartað með litnum natur Paris – sjá mynsturteikningu. Brjótið hliðarnar meðfram uppábrotskanti með röngu á móti röngu, heklið þær saman með 1 þræði af litnum natur Paris þannig: Byrjið í punkti E í teikningu, heklið 1 kl í gegnum bæði stykkin, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 kl yst í lykkjubogann í gegnum bæði stykkin *, endurtakið frá *-* meðfram 3 köntum í kringum húsið upp að punkti D, þ.e.a.s. heklið ekki yfir uppábrotskant (á milli punkta E og D), endið á 1 kl í punkti D. Leggið uppábrotskantinn á húsið með opið á milli fram – og bakstykkis á þaki, saumið framhlið á húsinu við framhlið á þaki undir bogana, endurtakið alveg eins á bakhlið á húsi og þaki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Erika wrote:
Hey, excellent idea, I do love your web side..Thank you very much for sharing all these beautiful patterns!
28.12.2013 - 16:41Ludivine wrote:
Bonjour, Je ne comprends pas, le toit n'est pas pointu et ne forme pas un triangle. Les diminutions ne sont que d'un côté ?? Merci de votre aide
05.12.2013 - 21:37DROPS Design answered:
Bonjour Ludivine, on diminue effectivement que d'un seul côté : à la fin des rangs impairs et au début des rangs pairs. Bon crochet!
06.12.2013 - 09:38Bettina Martinez wrote:
Fantastic! I´m going to do this.
02.12.2013 - 23:18Ludivine wrote:
Merci de votre réponse, je vais me mettre à l'ouvrage ! Maman trouve cela charmant :-) Félicitations
02.12.2013 - 16:35Ludivine wrote:
Bonjour à vous, Comment fait on les petites fantaisies de couleur sur le toit s'il vous plait ? Merci de votre aide (pardon pour l'erreur de Pays)
02.12.2013 - 12:49DROPS Design answered:
Bonjour Ludivine, les fantaisies sur le doit sont brodées au point de nœud (cf vidéo ci-dessous) - pour qu'elles soient plus épaisses, vous pouvez passer le fil plusieurs fois, en fonction de comment vous aimez. Bon crochet!
02.12.2013 - 14:00Ludivine wrote:
Bonjour à vous, Comment fait on les petites fantaisies de couleur sur le toit s'il vous plait ? Merci de votre aide
02.12.2013 - 12:47Ludivine wrote:
Très mignon ! Merci pour ces idées toujours aussi raffinées ! Bon préparatifs de Noël à tous
02.12.2013 - 11:30