DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 154-19
DROPS Design: Mynstur nr cl-033
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
300-350-350-400-450-450 gr litur nr 18, bleikur

DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: Lengd 80 cm
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 80 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðal
DROPS PERLUTALA, NR 521: 7 stk í allar stærðir.

PRJÓNFESTA:
21 lykkj á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2244.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum frá réttu. Fellið af á undan 1. og 3 prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á eftir 2. og 4. Prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út frá réttu. Aukið út á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 5, 11, 17, 23, 29, 35 og 41 cm.
STÆRÐ M: 7, 13, 19, 25, 31, 37 og 43 cm.
STÆRÐ L: 8, 14, 20, 26, 32, 39 og 45 cm.
STÆRÐ XL: 8, 14, 20, 26, 32, 39 og 45 cm.
STÆRÐ XXL: 5, 12, 19, 26, 33, 40 og 47 cm.
STÆRÐ XXXL: 7, 14, 21, 28, 35, 42 og 49 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 184-204-222-232-268-292 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið síðan fyrstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 l garðaprjón (= kantur að framan), A.5 (= 5 l), sléttprjón yfir næstu 60-70-79-84-102-114 l, A.1 (= 38 l), sléttprjón yfir næstu 60-70-79-84-102-114 , A.5 (= 8 l), endið á 5 l garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með garðaprjón, mynstur og sléttprjón þar til stykkið mælist 6 cm. ATH: A.2 (= 38 l) er prjónað yfir A.1 þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (mynstur A.2 er prjónað til loka). Mynstur A.5 er prjónað til loka. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, A.5, 32-37-41-44-53-59 l sléttprjón, setjið 1. Prjónamerki, 3 l sléttprjón, 2. prjónamerki, 25-30-35-37-46-52 l sléttprjón, A.2, 25-30-35-37-46-52 l sléttprjón, setjið 3. prjónamerki, 3 l sléttprjón, setjið 4. prjónamerki 32-37-41-44-53-59 l sléttprjón, A.5, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki (= 4 l færri) – sjá ÚRTAKA að ofan. Þ.e.a.s. það eru 3 l á milli hverrar úrtöku alla leið uppúr. Endurtakið úrtöku með 1½-1½-1½-1½-1-1 cm millibili 6-6-7-6-8-9 sinnum til viðbótar (= alls 7-7-8-7-9-10 sinnum) JAFNFRAMT í 2. – 4. og 6. úrtöku er lykkjum fækkað eftir A.5 (hægra framstykki), í hvorri hlið á A.2 og á undan A.5 (vinstra framstykki), þ.e.a.s. prjónið 3 l saman í stað 2 l saman (= 8 l færri í annarri hverri umf) = 144-164-178-192-220-240 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 25-25-25-26-26-26 cm, aukið út í næstu umf frá réttu 1 l við hvert prjónamerki (= 4 l fleiri) – sjá útskýringu að ofan= 148-168-182-196-224-244 m.

Aukið síðan út mismunandi eftir stærðum:
STÆRÐ S: Endurtakið útaukningu með 1½ cm millibili 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum) JAFNFRAMT í 2. og 4. útaukningu er aukið út um 1 l á eftir A.5 (hægra framstykki), hvoru megin við A.2 og á undan A.5 (vinstra framstykki), aukið út með því að slá uppá prjóninn strax eftir A.2/A.5, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf = 176 l á prjóni.
STÆRÐ M-L-XL-XXL-XXL: Endurtakið útaukningu með 1½ cm millibili 5-5-6-6-7 sinnum til viðbótar (= alls 6-6-7-7-8 sinnum) JAFNFRAMT í 2.- 4. og 6. útaukningu er aukið út um 1 l á eftir A.5 (hægra framstykki), hvoru megin við A.2 og á undan A.5 (vinstra framstykki), aukið út með því að slá uppá prjóninn strax eftir A.2/A.5, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf (= 8 l fleiri í annarri hverri útaukningu) = 200-214-232-260-284 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5, sléttprjón yfir næstu 24-30-34-38-45-51 l, 14 l garðaprjón, 18-24-27-32-39-45 l sléttprjón, A.2 (= 38 l), 18-24-27-32-39-45 l sléttprjón, 14 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 24-30-34-38-45-51 l, A.5, endið á 5 l garðaprjón. Endurtakið þessa umf 1 sinni til viðbótar frá röngu.

Síðan (frá réttu) fellið af fyrir handveg þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.5, sléttprjón yfir næstu 24-30-34-38-45-51 l, 3 l garðaprjón, fellið af næstu 8 l, 3 l garðaprjón, 18-24-27-32-39-45 l sléttprjón, A.2 (= 38 l), 18-24-27-32-39-45 l sléttprjón, 3 l garðaprjón, fellið af næstu 8 l, 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 24-30-34-38-45-51 l, A.5, endið á 5 l garðaprjón = 80-92-98-108-122-134 l á bakstykki og 40-46-50-54-61-67 l á hvoru framstykki og hvort stykkið er prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 40-46-50-54-61-67 l. Prjónið frá röngu: Prjónið 5 l garðaprjón, A.5 (= 8 l), 24-30-34-38-45-51 l sléttprjón, endið á 3 l garðaprjón. Í næstu umf (= rétta) prjónið 2 fyrstu l í sléttprjóni snúnar saman eftir 3 l garðaprjón fyrir handveg, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 0-3-5-5-6-7 sinnum til viðbótar (= alls 1-4-6-6-7-8 sinnum) = 39-42-44-48-54-59 l eftir á prjóni. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, mynstur A.4 (= 4 l) (ATH: Mynstur A.4 færist til um 1 l í hverri umf frá réttu inn við miðju JAFNFRAMT er aukið út um 1 l í A.4 fyrir ermi í hverri umf frá réttu (eins og útskýrt er í mynsturteikningu)), 19-22-24-28-34-39 l sléttprjón, A.5, endið á 5 l garðaprjón. Haldið áfram með A.4 þar til aukið hefur verið út um 13-13-13-12-7-4 l fyrir ermi (aukið út um 1 l í hverri umf frá réttu SJÁ UPPSLÁTTURI í mynstri) = 52-55-57-60-61-63 l á prjóni. Prjónið síðan A.7 yfir A.4 til loka. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og garðaprjón þar til stykkið mælist 40-42-44-44-46-48 cm. Síðan í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 2 umf garðaprjón yfir fyrstu 16-16-17-17-18-18 l, aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Fellið af fyrstu 14-14-15-15-16-16 l fyrir hálsmál = 38-41-42-45-45-47 l eftir. Prjónið nú garðaprjón yfir 2 síðustu l við háls, sléttprjón og mynstur eins og áður JAFNFRAMT er fækkað um l í byrjun í hverri umf frá hálsmáli (= ranga) innan við 2 l garðaprjón þannig: Prjónið 2 l slétt saman (= 1 l færri), endurtakið úrtöku 8 sinnum til viðbótar (= alls 9 sinnum) = 29-32-33-36-36-38 l eftir á öxl (eftir allar útaukningar fyrir ermi). Prjónið sléttprjón og garðaprjón þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra framstykki en fellið af fyrir handveg á undan 3 l garðaprjón með því að prjóna 2 l slétt saman og við hálsmál er fellt af í byrjun á umf frá réttu. Munið eftir HNAPPAGAT! Prjónið mynstur A.3 og A.6 í stað A.4 og A.7. ATH! Þeir 2 uppslættir í mynstri A.3 eru prjónaðir gagnstætt í næstu umf, þ.e.a.s. að fyrri uppslátturinn er prjónaður snúinn br og sá seinni er prjónaður br, þ.e.a.s. að 1. uppslátturinn verður 1 l og 2. uppslátturinn verður 1 l en það myndast gat.

BAKSTYKKI:
= 80-92-98-108-122-134 l. Fellið laust af fyrir handveg eins og á framstykki = 78-84-88-96-108-118 l eftir á prjóni. Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.3 yfir 4 næstu l (A.3 færist til að miðju), 13-16-18-22-28-33 l sléttprjón, A.2 yfir miðju 38 l eins og áður, 13-16-18-22-28-33 l sléttprjón, A.4 yfir 4 næstu l, endið á 3 l garðaprjón. ATH: A.3/A.4 færist til að hálsmáli.
Haldið áfram með tilfærsluna þar til auknar hafa verið út 13-13-13-12-7-4 l bæði í mynstri A.3 og A.4 fyrir ermar = 104-110-114-120-122-126 l. Haldið áfram með tilfærsluna með því að prjóna A.6 yfir A.3 og A.7 yfir A.4. Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og garðaprjón þar til stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm. Í næstu umf frá réttu eru allar kaðla-l prjónaðar í A.2 2 og 2 slétt saman = 94-100-104-110-112-116 l á prjóni. Prjónið 2 umf garðaprjón yfir miðju 40-40-42-42-44-44 l, aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Fellið síðan af miðju 36-36-38-38-40-40 l (= 2 l garðaprjón á hvorri hlið) = 29-32-33-36-36-38 l á hvorri hlið. Prjónið hvora öxl fyrir sig. Prjónið sléttprjón og garðaprjón yfir 2 síðustu l við hálsmál saman þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlasauma kant í kant. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 06.02.2014
Bætt aukalega við undir ATH: texta undir HÆGRA FRAMSTYKKI: ATH! Þeir 2 uppslættirnir í mynstri A.3 eru prjónaðir gagnstætt í næstu umf, þ.e.a.s. að fyrri uppslátturinn er prjónaður snúinn br og sá seinni er prjónaður br, þ.e.a.s. að 1. uppslátturinn verður 1 l og 2. uppslátturinn verður 1 l en það myndast gat.
Ný útskýring í 8. mynsturtexta: = sláið 2 uppá prjóninn, í næstu umf er fyrri uppslátturinn prjónaður br, seinni uppslátturinn er prjónaður snúinn br, þ.e.a.s. að fyrri uppslátturinn verður 1 l og sá seinni verður 1 l
Yfirfarið á vefsvæði: 19.02.2014
Nýtt A.5 mynstur (úrtaka og uppsláttur á að vera frá réttu)
Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2016
Leiðrétting: Rangur fjöldi l í stærð L. Leiðrétting á fram- og bakstykki og vinstra framstykki

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = setjið 5 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 5 l sl, 5 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 5 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 5 l sl, 5 l sl af hjálparprjóni
symbols = Sláið 2 sinnum uppá prjóninn. Í næstu umf er fyrri uppslátturinn prjónaður br sá seinni er prjónaður snúinn br, þ.e.a.s. að fyrri uppslátturinn verður 1 l og það myndast gat, seinni uppslátturinn verður 1 l.
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Laetitia wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas comment au niveau de l'encolure on peut être à 42 cm de hauteur en taille M dans les demis-devant alors que l'on a tricoté déjà 38 cm avant les 13 augmentations (26 rangs en plus au total)? J'en suis à 52 cm après mes augmentations et je vais devoir rajouter une boutonnière du coup avant de rabattre... Est-ce qu'il n'y aurait pas une erreur?

05.05.2023 - 22:22

DROPS Design answered:

Bonjour Laetitia, l'encolure se commence en taille M à 42 cm de hauteur totale: on tricote les 16 mailles de l'encolure au point mousse pendant 2 rangs et on rabat ensuite les 14 mailles de l'encolure, en même temps, continuez à augmenter sur le côté comme avant, ces augmentations se font sur le côté, elles n'influencent pas l'encolure. Bon tricot!

08.05.2023 - 07:38

country flag Gaby wrote:

Hallo, ich habe die Anleitung erstmal gelesen und verstehe nicht, an welcher Stelle ich das Nadelspiel jeweils einsetzen soll, habe ich was übersehen? LG Gaby

25.01.2021 - 21:58

DROPS Design answered:

Liebe Gaby, es sieht tatsächlich aus, daß die Nadelspiel nicht benutzt werden, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!

26.01.2021 - 08:54

country flag Joëlle Gac wrote:

Bonjour , Je suis au début de ce modèle ,très joli . Quand mon ouvrage mesure 6 cm , je n'ai pas terminé A1 , or l'explication me dit de placer les marqueurs et de tricoter A2 et de diminuer avant ou après les marqueurs. Dois-je commencer les diminutions alors que A1 n'est pas terminé ? Merci de votre réponse et de tous les beaux modèles que vous nous proposez. .

27.01.2019 - 16:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gac, vous placez vos marqueurs à 6 cm pour commencer à diminuer mais continuez A.1 jusqu'à ce qu'il soit tricoté 1 fois en hauteur, puis vous tricoterez A.2 au-dessus de A.1. Bon tricot!

28.01.2019 - 11:30

country flag Annika Sorokin wrote:

Järgmisel töö PP real kahanda 1 silmus enne 1. ja 3. SM-i ja pärast 2. ja 4. SM-i (= 4 kahandatud silmust) – vaata ülevalt, st. iga kahanduse vahel on 3 silmust kuni üles välja. Korda kasvatamist iga 1,5-1,5-1,4-1,4-1-1 cm järel veel 6-6-7-6-8-9 korda (= 7-7-8-7-9-10 korda kokku) Tekkis küsimus, kas kasvatada ja kahandada korraga? Ilma kasvatuseta jääb 164 s , koos kasvatusega 180? Kus ma valesti loen

27.09.2018 - 17:55

DROPS Design answered:

Tere Annika! Viga on parandatud, Kahandamist tuleb korrata, mitte kasvatamist. Head kudumist!

14.10.2018 - 00:51

country flag Sussi Beck wrote:

Hej. Hvornår kommer der svar fra Design? Venter på at få strikket blusen færdig.

07.10.2015 - 08:07

DROPS Design answered:

Hej Sussi, Nu endelig har vi fået tid til at se på den og der er lagt en rettelse ud. God dag!

29.02.2016 - 10:50

country flag Sussi Beck wrote:

Hej igen. Har lige et spørgsmål igen, som jeg regner med i kan svare på ved samme lejlighed. Hvordan kan der blive 212m efter udtagning i str. L. 178m + udt 6 gange (24m) + extra udt 3 gange (12m) = 214m. Er der fejl i opskriften eller kan jeg ikke regne?

19.08.2015 - 22:00

DROPS Design answered:

Hej Sussi, Jeg får det også til 214 m, så jeg sender lige spørgsmålet videre til Design, så må vi se om vi tænker helt forkert :) Vi kommer tilbage!

21.08.2015 - 10:07

country flag Sussi Beck wrote:

Hej. Ved ekstra indtagning og udtagning på (2.-4. og 6. indt og udt) er det lige efter de 8p i A.5, eller er det efter A.5 og glatstrikmasker. Altså 1. mærketråd. På billedet ser det ud til at det er lige efter A.5, men hvis der skal strikkes 3m sammen må det være ved mæketråden??

14.08.2015 - 07:36

DROPS Design answered:

Hej Sussi, De ekstra indtagninger sker ved at strikke 3 m sammen istedet for 2 sammen i hver side af A.2. God fornöjelse!

09.09.2015 - 08:13

country flag Montse wrote:

Creo que la explicación correspondiente al aumento de puntos en A4 está mal taducida. La frase en inglés dice "2 YO, on next row P 1st YO, P 2nd YO twisted" y se ha taducido como "tejer la primera hebra retorcida Y DEJAR la 2a hebra". Esto hace que el cómputo de puntos no sea correcto.

01.03.2014 - 17:26

country flag Ines wrote:

Hallo, konnten Sie Ihre Designerinnen fragen? Wie ist das nun mit A5? Hinreihen rechts, Rückreihe Muster? Bei den anderen ist Hinreihe Muster. Ines

18.02.2014 - 18:21

DROPS Design answered:

Liebe Ines, das Diagramm A.5 wurde nun korrigiert, es war tatsächlich um eine Reihe "verschoben". Die Muster werden immer in Hin-R gestrickt, in den Rück-R werden alle M li gestrickt. Weiterhin gutes Gelingen!

19.02.2014 - 14:45

country flag Kerstin wrote:

Hallo, kann es sein das das angegebene Muster(Rücken) nicht dem Bild entspricht? VG Kerstin

18.02.2014 - 11:03

DROPS Design answered:

Liebe Kerstin, Muster und Foto stimmen überein. A.2 wird nach A.1 fortlaufend wiederholt und A.2 passt zum Foto. Viel Spaß beim Stricken!

18.02.2014 - 12:59