DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Milla

Heklaðir sokkar með gatamynstri úr 1 þræði DROPS Big Fabel eða 2 þráðum DROPS Fabel. Stærð 35-43.

DROPS 154-33
DROPS Design: Mynstur nr bf-016
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm

Efni:
DROPS BIG FABEL frá Garnstudio
200-200-200 gr litur nr 109, kirsuber

Eða notið:
DROPS FABEL frá Garnstudio
150-150-150 gr litur nr 109, dökk bleikur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 fl á breidd og ca 20 umf með fl á hæðina verði 10 x 10 cm

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun hverrar umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf.
Í byrjun hverrar umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.
Umf endar á 1 kl í þriðju ll frá byrjun umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá tá og aftur að ökkla, síðan er heklað fram og til baka að miðju aftan á hæl.

SOKKUR:
Heklið 4 ll með heklunál nr 3,5 með 1 þræði af Big Fabel eða 2 þráðum úr Fabel og tengið í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 5 fl um hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 10 fl.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 15 fl.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 20 fl.
UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 25 fl.
UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl.
UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 30 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 35/37.
UMFERÐ 9: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 35 fl.
UMFERÐ 10: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 40 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 38/40.
UMFERÐ 11: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 45 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 41/43.

ALLAR STÆRÐIR:
(= 30-40-45 fm). Heklið 1f l í hverja fl JAFNFRAMT er aukið út um 6-2-0 fl jafnt yfir = 36-42-45 fl í umf. Heklið nú þannig: A.1A (= 1 l), A.1C (= 12 l), A.1D yfir síðustu 23-29-32 fl. ATH! Tvær fyrstu umf í mynstri sýna byrjun á mynstri og eru bara heklaðar einu sinni, endurtakið síðan UMFERÐ 1-4. Haldið áfram svona þar til stykkið mælist ca 14-16-18 cm, stillið af að síðasta umf er umf 3 í A.1. Heklið nú fl fram og til baka yfir síðustu 22-28-31 fl (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir l í A.1A, A.1C og fyrstu l í A.1D) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið áfram þar til stykkið mælist 22-24-27 cm, leggið sokkinn saman tvöfaldan og heklið við miðju að aftan með einni umf kl í gegnum bæði stykkin frá röngu.
Klippið frá og festið enda.

STROFF / LEGGUR:
Byrjið framan á sokknum. Heklið A.1A eins og áður, A.1B, haldið áfram með A.1B (stillið af að heklaðar hafa verið alls 2½-2½-3 mynstureiningar af A.1B fram að miðju að aftan. Heklið nú mismunandi í stærðum þannig: STÆRÐ 35/37-38/40: Heklið til loka síðasta A.1B (= alls 3-3 mynstureiningar af A.1B). STÆRÐ 41/43: Heklið 1 mynstureiningu af A.1B (= alls 4 mynstureiningar af A.1B.
Allar stærðir: Heklið A1.C og endið á 1 kl í fyrstu l. Heklið 2
mynstureiningar af A.1 á hæðina, klippið frá og festið enda.

Heklið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = fl
symbols = ll
symbols = Picot/takkar: Heklið 3 ll, 1 st í fyrstu af 3 ll
symbols = st
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Siebke wrote:

Goedemorgen "Dropsdesign", Klopt het dat ik een punt onderaan de hiel heb. Op de foto ziet het er zo mooi rond uit. Heb de hiel precies zo afgewerkt als in het filmpje, de sok dubbel vouwen en samenhaken. vriendelijke groeten, Siebke

10.09.2015 - 09:11

DROPS Design answered:

Hoi Siebke. Bedoel je dat er een puntje is aan de onderkant waar je de naad middenachter hebt? Dat kan, maar meestal wordt dat veel beter na een keer wassen en dragen. Als je het niet mooi vindt, kan je ook de naad een beetje aanpassen, zodat die niet zo "scherp" is.

11.09.2015 - 14:10

country flag Diana wrote:

Ik denk dat ik er uit ben, aar moet je bij de pijp A1D overslaan?

15.06.2015 - 12:22

DROPS Design answered:

Hoi Diana. Zie mijn reactie hieronder.

15.06.2015 - 14:26

country flag Diana wrote:

Ik ben nu bij de pijp, ik begin aan de rechts aan de voorkant, I'm haak dan 2,5 x a1B en kom dan precies middenachter uit. En dan? Ik ben dan nog niet helemaal rond tot waar ik begonnen ben dus rechts aan de voorkant

15.06.2015 - 12:08

DROPS Design answered:

Hoi Diana. Ja, dat is ook wat er staat in het patroon: (pas zo aan dat er 2½-2½-3 patroonherhalingen in totaal van A.1B komen tot middenachter). Je haakt dan Ga nu verder als volgt voor de verschillenden maten: Maat 35/37 en 38/40: maak de laatste herh van A.1B af (in totaal zijn er 3-3 herh van A.1B). Maat 41/43: maak de laatste herh van A.1B af (in totaal zijn er 4 herh van A.1B). Alle maten: haak A.1C en eindig met 1 hv in eerste st. Haak twee herh van A.1 in de hoogte, hecht dan af. Je haakt inderdaad niet meer A.1D

15.06.2015 - 14:26

country flag Diana wrote:

Ik heb een vraag, ik ben nu bij het telpatroon maar waarom loopt de getekende lijn tussen A.1B en A.1C schuin weg? Is dat voor de grotere maten? En moet ik gewoon voor de kleinste maat recht omhoog gaan?

10.06.2015 - 09:28

DROPS Design answered:

Hoi Diana. Nee, dat geldt voor alle maten. En het toont gewoon de opdeling tussen de verschillende telpatronen, en bovenaan verschuift die een beetje.

10.06.2015 - 12:42

country flag Virginie wrote:

Bonjour, Je débute en crocher. Je ne comprends pas les diagrammes. Lorsqu'on commence la partie toutes les tailles, on doit crocheter les diagrammes au dessus des 29 dernières ms. Que fait on des mailles avant ces 29 mailles ? Merci d'avance pour votre réponse. Virginie

14.03.2015 - 20:51

DROPS Design answered:

Bonjour Virginie, après la pointe, on crochète en point fantaisie ainsi: A.1A (au-dessus de la 1ère m = 1 ml au 1er rang), puis A.1C au-dessus des 12 m suivantes (partie encadrée) et terminez en répétant A.1D au-dessus des 29 dernières m (= 1 ms dans chacune des 29 ms suiv au 1er rang). Chaque symbole dans le diagramme représente 1 m - voir aussi ici. Bon crochet!

16.03.2015 - 08:56

Katya wrote:

Hi again, I worked out my previous question, but I have another one. When I finished my last 3rd round with a sl st., how do I move on up to the next row to work 28 sts without working over A.1A st? Thanks!

22.02.2015 - 23:59

DROPS Design answered:

Dear Katya, you continue working A.1A (beg of round). Happy crocheting!

23.02.2015 - 10:49

Katya wrote:

Hello, I really like this pattern, but I'm having difficulty in this place "place sock double and work tog mid back with a row sl sts through both layers from WS". I'm relatively new to this and I don't understand what "sock double" and "through both layers from WS" mean. I'd appreciate if someone could clarify this for me. Thank you!

22.02.2015 - 22:21

DROPS Design answered:

Dear Katya, you will work here back of heel - fold the work so that the part worked back and forth is double and work from WS a row with sl st in double layer - see video below. Happy crocheting!

23.02.2015 - 10:40

country flag Katharina Rosmüller wrote:

Hallo, wie muss ich mit dem Diagramm beginnen? Wird jeder Abschnitt separat gehäkelt? Was bedeutet, das runde 1-4 bis zu einer bestimmten Höhe wiederholt werden sollen? Leider fehlt auch die Häkelinfo beispielsweise Anleitung. Danke für die Hilfe! Katharina

26.12.2014 - 20:37

DROPS Design answered:

Das Diagramm wird von unten rechts nach links gelesen. Es beginnt bei A.1A (= 1 fM). Dann folgt A.1C (A.1B überspringen Sie) und zuletzt häkeln Sie A.1D, d.h. fM, über die letzten Stb der Rd. Die ersten beiden Rd, die Sie im Diagramm sehen (die erste besteht aus fM, die nächste aus fM + Lm), häkeln Sie nur 1x, danach wiederholen Sie dann immer dann die Rd, die mit "1." und "4." bezeichnet sind, d.h. wenn Sie die 4. Rd gehäkelt haben, fangen Sie wieder bei der 1. an. Die Häkelinfo steht über der eigentlichen Anleitung.

08.01.2015 - 09:56

Brita wrote:

Ta bort spamen!

13.07.2014 - 20:17

country flag Biulaindhwa wrote:

Hello. And Bye. ¥¢¥Ó¥ì¥Ã¥¯¥¹ ¥Ö©`¥Ä

13.07.2014 - 10:46