DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2288.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 73-7
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - M/L - XL
Efni:
DROPS Muskat frá Garnstudio
500-550-600 gr nr 01, ljós bláfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 4 OG 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 26 umf með prjóna nr 4,5 verði 10 x 10 cm. 1 mynstureining af M.1 = 7 cm á breidd.
DROPS PERLUTALA NR 521: 6 st.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2288.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá teikningu M.1 til M.5. Teikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.
ATH: M.2 og M.3 (= úrtaka fyrir handveg) er mismunandi eftir stærðum – passið uppá að fylgja réttri stærð.

STROFF: * 2 l sl, 4 l br *, endurtakið frá *-*.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum meðfram hægri kant að framan.
1 hnappagat = fellið af 2 miðju kantlykkjurnar að framan (= br l) og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist:
STÆRÐ: S/M: 2, 9, 15, 22, 28 og 34 cm.
STÆRÐ M/L: 2, 9, 15, 22, 29 og 35 cm.
STÆRÐ XL: 2, 9, 16, 22, 29 og 36 cm.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 202-226-250 l (meðtaldar 10 kantlykkjur á hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með Muskat. Prjónið stroff þannig (séð frá réttu): 2 l GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, * 2 l sl, 4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 12 l eru eftir prjónið þær hér: 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl og 2 l garðaprjón. Prjónið stroff í 8-9-10 cm – munið eftir HNAPPAGAT – sjá skýringu að ofan – meðfram hægri kant að framan. Setjið nú 10 kantlykkjur að framan á hvorri hlið á band, þær eru prjónaðar upp síðar. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5, fitjið upp 1 nýja l á hvorri hlið við miðju að framan (til að sauma niður kantinn að framan í) og aukið út um 0-2-4 l jafnt yfir = 184-210-236 l. Prjónið M.1 með 1 kantlykkju með garðaprjóni í lokin á hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 31-32-33 cm – stillið af eftir 1 heilli mynstureiningu af M.1 – prjónið næstu umf þannig (frá réttu): 1 kantlykkja, 26 l af M.1, M.2A (= 17-23-29 l), fellið af 5-6-7 l = handvegur, M.3A (= 17-23-29 l), 52 l af M.1, M.2A (= 17-23-29 l), fellið af 5-6-7 l = handvegur, M.3A (= 17-23-29 l), 26 l af M.1, 1 kantlykkja. Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 44-50-56 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fellið nú af fyrir handveg á hlið samkvæmt M.3A, aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Eftir úrtöku fyrir handveg er M.3B prjónað til loka. JAFNFRAMT þegar prjónuð er 1 mynstureining af M.1 á eftir úrtöku fyrir handveg (stykkið mælist ca 35-38 cm) er fellt af fyrir hálsmáli samkvæmt M.5A (affelling að innanverðu við 1 kantlykkju sem prjónuð er utan við mynstur). Eftir affellingu fyrir hálsmáli er prjónað til loka með M.5B. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og V-hálsmál eru 23-25-27 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 51-54-57 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 44-50-56 l. Fellið af fyrir handveg og V-hálsmáli á vinstra framstykki samkvæmt M.2 og M.4. Fellið af þegar stykkið mælist ca 51-55-57 cm.

BAKSTYKKI:
= 86-98-110 l. Fellið af fyrir handveg á hvorri hlið samkvæmt M.2 og M.3 = 76-80-84 l eftir á prjóni. Haldið áfram með M.1 yfir miðju 52 l og M.2B og M.3B yfir 12-14-16 l á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 49-52-55 cm fellið af miðju 30 l fyrir háls = 23-25-27 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þær l sem eftir eru þegar stykkið mælist 51-54-57 cm.

ERMI:
Fitjið upp 54-54-60 l á sokkaprjóna nr 4 með Muskat og prjónið STROFF – sjá skýringu að ofan í 15 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: * 1 l sl, sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og haldið áfram með sléttprjón til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi alls 10-13-14 sinnum í 9.-6.-5. hverri umf = 74-80-88 l. Þegar stykkið mælist 49-47-45 cm fellið af 6 l mitt undir ermi og prjónið til loka fram og til baka. Fellið síðan af fyrir ermakúpu á hvorri hlið í annarri hverri umf: 2 l 4 sinnum og 1 l 2-5-7 sinnum, síðan eru felldar af 2 l þar til stykkið mælist 57 cm og að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni. Fellið af, ermin mælist ca 58 cm. Prjónið aðra ermi alveg eins.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Takið upp l af bandi og haldið áfram með stroff á prjóna nr 4 með Muskat þar til kanturinn að framan mælist ca 60-66 cm (mælt við miðju að aftan við háls, dragið aðeins í kantinn þegar hann er saumaður á. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið eins og vinstri kantur nema munið eftir HNAPPAGAT – sjá skýringu að ofan. Saumið kantana saman við miðju að aftan. Saumið kantinn á peysunni niður með því að leggja ystu l á kanti yfir kantlykkju á peysu og saumið fallega niður frá réttu. Saumið ermar í og tölur.


Prjónaður DROPS toppur sjá; 73-6

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 73-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Gigi wrote:

Bonjour, il est dit dans l'explication d'ajuster après un motif entier de M1. Que doit-on comprendre par motif ? Est-ce que du rang 1 au rang 6 c'est un motif entier et que du rang 7 au 12 (2em motif) ? Merci

01.05.2024 - 23:11

DROPS Design answered:

Bonjour Gigi, un motif entier de M.1 correspond aux 12 rangs du diagramme. Ajustez ainsi après le 12ème rang du motif pour que le diagramme suivant tombe juste au-dessus de M.1. Bon tricot!

02.05.2024 - 08:30

country flag Manya Groskamp wrote:

In het patroon moeten de terugaande steken allemaal averechts in plaats van rechts zoals de tekening aangeeft

18.03.2024 - 14:03

country flag Muriel Barlow wrote:

Chart 2a/2b for M/L states 23 sts but counting on the chart it has 22 (at dividing row). The other sizes show correct at 17 and 29. Is the chart incorrect or have I missed something?

06.10.2023 - 00:39

DROPS Design answered:

Dear Mrs Barlow, thanks for noticing, the diagram M.2A/M.3A has now been edited and fixed over 23 sts. Happy knitting!

06.10.2023 - 14:44

country flag Sharon Elliott wrote:

I need to clarify the binding off for the sleeve cap size SMALL. After I bind off the initial 3 sts each side of marker (68 sts remaining) and then every other row 2 sts 4 times (-16 sts for 52 sts remaining and next 1 st 2 times (48 stitches remaining), it says to bind off 2 sts each side until piece measures 57 cm and then bind off 3 sts 1 time. HOW MANY STITCHES SHOULD BE LEFT AT THIS POINT? Thank you, Sharon

05.12.2021 - 01:42

DROPS Design answered:

Dear Sharon, depending on your gauge, you may need to work more or less rows to get to 57 cm, that's why we don't mention the amount of stitches. Once you make all the bind offs and you have reached 57 cm, you bind off all the remaining stitches in the same row. Happy knitting!

05.12.2021 - 17:13

country flag Noyer wrote:

Bonjour, À quoi correspond le patron à la fin des explications ? les dimensions ne sont pas les mêmes que le patron juste au-dessus. Pourquoi y a-t-il 4 tailles alors qu'il y en avait 3 jusque là ? Cordialement

10.08.2021 - 09:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Noyer, le gilet est disponible en 3 tailles: S/M, M/L et XL - en revanche le top (que vous trouverez ici) est en 4 tailles: S-M-L-XL. Bon tricot!

10.08.2021 - 14:07

country flag Noyer wrote:

Bonjour, Pour le diagramme du point fantaisie, aux rangs envers, doit-on tricoter les mailles envers ou endroit ? Cordialement

10.08.2021 - 08:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Noyer, effectivement, dans ce modèle, tous les rangs envers des diagrammes se tricotent à l'envers (= jersey endroit: à l'endroit sur l'endroit/à l'envers sur l'envers). Bon tricot!

10.08.2021 - 14:05

country flag Stephanie Stewart wrote:

Please could you clarify what Pattern 1 is? The charts only show what to do once each piece has been separated.

08.05.2021 - 18:18

DROPS Design answered:

Dear Stephanie, pattern one is the small chart in the middle of M.4 diagram. Happy Knitting!

08.05.2021 - 18:34

country flag Stephanie Stewart wrote:

I'm confused by the number of balls of yarn I need. Looking at the description it looks like I need 10 x 50g balls but further down it states that this cardigan can be made for £6.40 which would mean only 4 balls of yarn. I'm making the smallest size, please can you clarify?

06.05.2021 - 10:21

DROPS Design answered:

Dear Stephanie, according to the pattern, you will need about 500 gramms, 10 balls of DROPS Muskat yarn. The price stated as "from" probably calculates with the lowest sale price of the yarn. Happy Knitting!

06.05.2021 - 10:57

country flag Lisbeth Friberh wrote:

Hvor finner jeg armfellingen ? Forstår det slik at det bare er 5 masker som skal felles under armen. Skal det felles mer .?. Symbol mangler forklaring ser ut som trekant, Vanskelig å forstå oppskriften

25.08.2020 - 00:24

country flag Leona wrote:

1. Increase row after rib. Is this a rib row or a knit row 2. Says to use Pattern 1. No such pattern, only M1 3. Page 2 has half the legend, only then on page 3 is the full diagram explanation. Extremely confusing 4. No video showing the actual pattern. All videos in stocking stitch. Why no sample knit of pattern?

01.04.2020 - 15:26

DROPS Design answered:

Dear Leona, increase the 0-2-4 sts on a WS row so that first row in M.1 will be worked from RS - you will find how to read knitting diagrams here. Happy knitting!

01.04.2020 - 15:45