DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 153-12
DROPS Design: Mynstur nr w-523
Garnflokkur C eða A+A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
550-600-650-700-750-800 gr litur nr 16, hvítur

DROPS PRJÓNAR NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3872.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:

----------------------------------------------------------

PEYSA:
Peysan er prjónuð fram og til baka í stykkjum sem síðan eru saumuð saman í lokin.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 76-83-88-94-103-113 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 5,5 og prjónið 6 umf garðaprjón. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist ca 2 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf til þess að koma í veg fyrir göt.
Endurtakið útaukningu með ca 3-3½-3½-3-3½3½ cm millibili 11-10-10-12-10-10 sinnum til viðbótar (= alls 12-11-11-13-11-11 sinnum) = 100-105-110-120-125-135 l á prjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið sem merkir þar sem ermar eru saumaðar inn. Prjónið síðan frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 er endurtekið þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 1 l br, 1 l snúin slétt, 1 l br og 1 kantlykkju með garðaprjóni. Snúna lykkjan er prjónuð snúin br frá röngu. Prjónið svona þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm stillið af eftir heila mynstureiningu á A.1 á hæðina. Prjónið yfir fyrstu 35-37-39-44-46-51 l eins og áður, fellið af næstu 30-31-32-32-33-33 l og prjónið út umf eins og áður. Prjónið hvora öxl fyrir sig – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun á hverri umf frá hálsmáli alls 3 sinnum = 32-34-36-41-43-48 l eftir á hvorri öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki, EN prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm áður en fellt er af fyrir hálsmáli – stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1 á hæðina. Prjónið eins og áður yfir fyrstu 33-35-37-42-44-49 l, fellið af næstu 34-35-36-36-37-37 l og prjónið eins og áður. Prjónið hvora öxl fyrir sig – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun næstu umf frá hálsmáli = 32-34-36-41-43-48 l eftir á hvorri öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 45-45-50-50-53-53 l á prjóna nr 5,5 (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) og prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka. Prjónið nú þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 0-0-0-0-2-2 l br, A.1 þar til 4-4-4-4-5-5 l eru eftir, prjónið 1 l br, 1 l snúinn slétt, 1-1-1-1-2-2 l br og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Snúna l er prjónuð br snúin frá röngu. Prjónið þar til stykkið mælist 12 cm, stillið af eftir heilli mynstureiningu af A.1 á hæðina. Prjónið nú sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 1 l innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með ca 6½-4½-4½-3½-4-2½ cm millibili 3-4-4-5-4-5 sinnum til viðbótar (= alls 4-5-5-6-5-6 sinnum) = 53-55-60-62-63-65 l á prjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 34-33-33-31-30-28 cm og fellið af (styttra mál í stærri stærðum vegna meiri víddar á fram- og bakstykki). Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR OG HÁLSMÁL:
Saumið annan axlasauminn, látið hinn vera opinn. Takið upp frá réttu ca 80-100 l hringinn við hálsmálið. Prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka, fellið af. Saumið hinn axlasauminn og hlið í kanti við hálsmál. Saumið ermar í innan við bæði prjónamerkin sem voru sett í á fram- og bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt, innan við 1 kantlykkju.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.03.2014
BAKSTYKKI (nýr fjöldi yfir fyrstu lykkjur): Prjónið eins og framstykki, EN prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm áður en fellt er af fyrir hálsmáli – stillið af eftir heila mynstureiningu af A.1 á hæðina. Prjónið eins og áður yfir fyrstu 33-35-37-42-44-49 l, fellið af næstu....
Yfirfarið á vefsvæði: 02.06.2014
Nýtt efnismagn: Efni: DROPS PARIS frá Garnstudio 550-600-650-700-750-800 gr litur nr 16, hvítur

Mynstur

symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður brugðinn í næstu umf
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 2 l sl, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir 2 lykkjurnar sem voru prjónaðar.
symbols = l er ekki með í þessari umf
symbols = prjónið snúið slétt frá réttu, snúið brugðið frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er látinn falla niður í næstu umf
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Kath wrote:

Where's A1? I don't see it in the pattern.

13.05.2022 - 23:52

DROPS Design answered:

Dear Kath, you can find chart A.1 just under the sleeve in the measurements sketch, below the pattern instructions. Happy knitting!

15.05.2022 - 22:32

country flag Eva wrote:

Nagyon orulok, hogy vannak ezek a mintak, de a megadott fonalmennyiseg nem elegendo. Hogy leget az, higy a magyar leirasban kevesebbet adnak meg, mint pl az angolnal?

25.12.2021 - 20:08

country flag Jackie wrote:

This is a lovely jumper and worth the time and effort it took to work out the pattern! Last advice very helpful however you do need to remember that rows 1 and 3 you start with the pattern as stated but with rows 2 and 4 you need to first do 4 stitches (plus the edge stitch makes 5 total) as follows: K (edge stitch), K1, P1 twisted, K1 then do the pattern. Also, don't forget to drop the yarn overs in row 3. They are there purely to make the thread loose enough to go over 2 stitches.

12.08.2020 - 17:39

country flag Victoria wrote:

Thank you so much :)

09.07.2020 - 16:16

country flag Victoria wrote:

I have read the lesson but still find it confusing - perhaps it is my age. I cannot see how hard it would be to provide 4 lines of pattern for those of us who are struggling with the digram

08.07.2020 - 17:12

DROPS Design answered:

Hi Victoria, The jumper is worked back and forth, so the rows alternate from the right side to the wrong side (when working from the wrong side, you work from left to right). Starting on the right side the pattern is as follows Row 1: P1, K1 twisted, P1, K1. 1YO, K1, repeat. Row 2: P3, 1YO, K1, P1 twisted, K1, repeat Row 3: P1, K1 twisted, P1, slip 1, k2, psso, repeat Row 4: P2, K1, P1 twisted, K1, repeat. Happy knitting!

09.07.2020 - 07:39

country flag Victoria wrote:

I have read all the Q&As but I'm still struggling with the pattern in the A1 diagram. Is it possible to PLEASE just write out the full instructions. From the numbers of questions here I am sure many knitters would appreciate it. Thx

08.07.2020 - 15:54

DROPS Design answered:

Dear Victoria, The DROPS patterns are knitted and crocheted by thousands and thousands of people  around the world. We understand however that in certain countries, with different knitting/crochet traditions than Scandinavia, our patterns might be written in a way that differs from what some are used to. But of course we want everyone to understand our patterns, so that’s why we have created an extensive library of tutorial videos as well as step by step lessons that explain how to follow the techniques we use and how to read the diagrams in our patterns. Give them a try!

08.07.2020 - 16:43

country flag Mia wrote:

Hello, other than the garter edge stitch, how do we knit the 4 stitches in row 2 that we knitted at the end of row 1, before we start on the A.1 Diagram (pattern?) I am saying this because in row 1 we are not finishing the row with the same 6 stitches that are part of the A.1 Diagram. The 4 stitches are extra, not part of the A.1 Diagram. Can you please describe row 2 right at the start? like edge garter stitch, ...... Thank you

30.03.2020 - 09:16

DROPS Design answered:

Dear Mia, from RS you work: 1 edge st in garter st, repeat A.1 until 4 sts remain and work these 4 sts like this: P1, K1 twisted, P1, 1 edge st in garter st. From WS work: 1 edge st in garter st, K1, P1 twisted, K1, repeat A.1 (reading now from the left towards the right), 1 edge st in garter st. read more about diagrams here. Happy knitting!

30.03.2020 - 11:30

country flag Lotte Meincke wrote:

Hvad gør man, når der står at “omslaget slippes ned på næste pind”??? (Opskrift 153-12) Findes der videoer, der viser, hvad der menes med symbolerne? Mvh Lotte

13.02.2020 - 12:20

DROPS Design answered:

Hej Lotte, prøv at lave en lille strikkeprøve over de 5 masker i diagrammet, med 2 kantmasker i hver side 1.pind strikker du 2 kantm, 1vr, 1drejet ret, 1vrang, 1ret, 1 omslag, 1ret, 2 kantm 2.pind strikker du (fra vrangen) 2kantm, 3 vrang, 1omslag, 1 ret, 1 drejet vrang, 1ret, 2kantm 3.pind strikker du (fra retten) 2 kantm, 1vrang, 1drejet ret, 1vrang, slip omlaget af pinden så der bliver hul, tag 1 m løst af p som om den strikkes vrang, 2ret, løft den løse maske over de 2ret, 2kantm 4.pind strikker du fra vrangen, 2kantm, 2vrang, 1ret, 1 drejet vrang,1ret, 2kantm Strik gerne de 4 pinde 2-3 gange i højden så du kan se systemet. God fornøjelse!

14.02.2020 - 11:22

country flag Manuela wrote:

Herzlichen Dank für die rasche Antwort, natürlich gleich ausprobiert und klappt wunderbar. Möchte jedoch darauf hinweisen dass dann die Beschreibung des Symbols nicht korrekt ist, bei dieser wird nämlich davon gesprochen diesen Umschlag in der nächsten Reihe rechts zu stricken ! LG und danke nochmal

30.09.2019 - 17:07

country flag Manuela wrote:

Wenn ich das so Stricke wie es das Diagramm zeigt und wie es beschrieben ist, habe ich leider ein Riesenproblem. Nach der Beschreibung besteht das Muster [ Diagramm) aus 4 Reihen und wenn ich den Umschlag der 1. Reihe auf der Rückseite rechts stricken soll, kann diese Masche von vorne gesehen dann keine Rechte sein. Und wenn ich die 4. Reihe so Stricke wie angegeben, habe ich plötzlich weniger Maschen, denn die schwarzen Kästchen sind keine Masche ???

28.09.2019 - 16:52

DROPS Design answered:

Liebe Manuela, der Umschlag von der 1. Reihe wird bei der nächsten Reihen (=Rückreihe) links gestrickt, dann haben Sie 3 Maschen + 1 Umschlag (= siehe letzter Symbol) bei der 4. Reihe lassen Sie den Umschlag von der Nadel gleiten, dann: 1 M li abh, 2 M re stricken und die abgehobene Masche über die 2 M re ziehen (= 2 Maschen bleiben). Viel Spaß beim stricken!

30.09.2019 - 15:48