Beth |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Heklaður kjóll fyrir börn með laskalínu, stuttum ermum og sólfjaðramynstri, heklaður ofan frá og niður úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 0–4 ára
DROPS Baby 25-16 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl er 1. fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring). Umf endar á 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka). Í byrjun á hverri umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring). Umf endar á 1 st í ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka). UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ: * 1 umf fl, 1 umf st *, endurtakið frá *-* (1 umf fl + 1 umf st = 1 umf með áferð). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fl/st með því að hekla 2 fl/st í sömu l. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan og eftir klauf/opi við miðju að aftan, síðan er stykkið heklað í hring. BERUSTYKKI: Heklið 67-71-75-79 (79-83) ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með litnum púður. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 fl í hverja ll út umf = 66-70-74-78 (78-82) fl í umf. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið við miðju að aftan – ATH: Heklið EKKI þar sem prjónamerkin eru): Hoppið yfir 9-10-11-12 (12-13) fl (= hægra bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 13 fl (= ermi), setjið 1 merkiþráð í næstu fl, hoppið yfir 18-20-22-24 (24-26) fl (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 13 fl (= ermi) og setjið síðasta prjónamerkið í næstu fl (nú eru 9-10-11-12 (12-13) fl á vinstra bakstykki eftir síðasta prjónamerki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umf frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja fl, en í hverja fl með prjónamerki er heklað 2 st + 2 ll + 2 st = 78-82-86-90 (90-94) st í umf. Heklið síðan UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fl/st í hverja l frá fyrri umf, en í hverja umf með fl frá röngu eru heklaðar 2 ll yfir þær 2 ll frá fyrri umf í laskalínu). JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu (þ.e.a.s. í umf með st) er aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga í hverja laskalínu (= 16 st fleiri í umf – ATH: Heklið um báða ll-bogana). Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu, 3-3-4-4 (5-6) sinnum til viðbótar (= alls 4-4-5-5 (6-7) sinnum = 142-146-166-170 (186-206) l í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umf með fl frá röngu eins og áður. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 19-20-23-24 (26-29) fl (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 33-33-37-37 (41-45) fl (= ermi), heklið 6-8-6-10 (10-8) ll, heklið 1 st í hverja af næstu 38-40-46-48 (52-58) fl (= framstykki), hoppið yfir næstu 33-33-37-37 (41-45) fl (= ermi), heklið 6-8-6-10 (10-8) ll og heklið 1 st í hverja af síðustu 19-20-23-24 (26-29) fl (= vinstra bakstykki). Ermarnar eru nú tilbúnar og stykkið er heklað áfram í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið stykkið saman við miðju að aftan með réttu fram og heklið 1 umf með fl (heklið 1 fl í hvern st frá fyrri umf og 1 fl í hverja ll undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 88-96-104-116 (124-132) l í umf. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 44-48-52-58 (62-66) l á fram- og bakstykki. Haldið áfram hringinn með UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ. Þegar stykkið mælist ca 2 cm frá prjónamerki undir ermum er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 1½-2-3-3 (3-3½) cm millibili, 5-6-6-7 (8-8) sinnum til viðbótar (= alls 6-7-7-8 (9-9) sinnum) = 112-124-132-148 (160-168) l. Þegar stykkið mælist ca 13-19-22-25 (28-31) cm frá prjónamerki (endið eftir 1 umf með st, útaukningu á nú að vera lokið), heklið 1 umf fl JAFNFRAMT er aukið út um 8-2-0-2 (2-0) fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 120-126-132-150 (162-168) fl. Klippið frá. Skiptið yfir í litinn natur og heklið 1 umf fl til baka með 1 fl í hverja fl frá fyrri umf. Heklið síðan sólfjaðramynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. í næstu umf er heklað þannig: UMFERÐ 1: * Heklið 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 3 ll og 1 kl í 1. ll frá byrjun umf = 40-42-44-50 (54-56 ll-bogar). UMFERÐ 2: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngilda 1 st), * 3 st + 2 ll + 3 st um næsta ll-boga, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir, heklið 3 st + 2 ll + 3 st um síðasta ll-boga og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 20-21-22-25 (27-28) st-hópar með 1 st á milli hverra st-hópa. UMFERÐ 3-4: Heklið 3 ll (= 1 st), * 3 st + 2 ll + 3 st um ll-boga mitt í næsta st-hóp, 1 st í næsta st*, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 st + 2 ll + 3 st um ll-boga mitt í síðasta st-hóp og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið eins og umf 3-4, en í ll-boga mitt í hvern st-hóp er heklað 4 st + 2 ll + 4 st (í stað 3 st + 2 ll + 3 st). Endurtakið umf 5 þar til kanturinn mælist ca 6 cm í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd). Heklið síðan síðustu umf alveg eins, en með 5 st + 2 ll + 5 st í ll-boga mitt í hvern st-hóp. SNÚRA: Klippið 3 þræði með litnum natur ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda og þá tvinnar hún sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum st-umf, ca 2 cm undir handveg á kjólnum, með byrjun frá miðju að framan. SLAUFA: Heklið 11 ll með heklunál nr 3,5 með litnum natur. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af 7 næstu ll = 9 st í umf. Snúið við og heklið UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist ca 10 cm – endið eftir 1 umf með fl. Klippið frá og festið enda. Saumið saman skammhliðar í hring og vefjið þræði í kringum miðjuna á slaufunni þannig að hún dragist fallega saman fyrir miðju. Saumið slaufuna niður við miðju framan á kjólinn beint yfir snúruna. HÁLSMÁL: Til þess að fá betra form er hekluð smá upphækkun að aftan við hnakka. Setjið 1 prjónamerki í hvert “horn” í hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 prjónamerki við miðju að framan. Heklið með heklunál nr 3,5 með litnum púður þannig: Byrjið við miðju að aftan og heklið 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, heklið 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan næstu l með prjónamerki, 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 4-4-5-5 (5-6) l eru eftir á undan prjónamerki við miðju að framan. Snúið við og heklið 1 fl í hverja fl til baka við miðju að framan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fl saman, þ.e.a.s. heklið 1 fl í hst, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fl í st með prjónamerki, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fl í næsta hst, en nú síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 2 fl færri). Klippið frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan í hinni hliðinni. TÖLUKANTUR AÐ AFTAN: Heklið meðfram vinstra opi við miðju að aftan með litnum púður þannig: Heklið 1 fl í hverja fl-umf og 2 fl í hverja st-umf. Heklið alls 4 umf fl fram og til baka, klippið frá og festið end.a Meðfram hægra opi við miðju að aftan eru hekluð hnappagöt þannig (byrjið frá réttu við hálsmál: Heklið 3 fl (1 fl í fl-umf og 2 fl í st-umf). 4 ll (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið síðan fl ca að miðju á tölukanti, 4 ll, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fl þar til 1 cm er eftir á tölukanti, 4 ll og festið með 1 fl í síðustu l. Klippið frá og festið enda. Saumið tölur í tölukant í vinstri hlið. HÁLSMÁL: Heklið í kringum hálsmál með litnum natur þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 2 ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* út umf, klippið frá og festið enda. SÓLFJAÐRAKANTUR Í KRINGUM ERMAR: Heklið með litnum natur þannig: Heklið 1 fl í hverja af 6-8-6-10 (10-8) l við miðju undir ermi, heklið síðan sólfjaðrakant í kringum handveg þannig: * hoppið yfir ca 2 l, í næstu l er heklað 3 st + 2 ll + 3 st, hoppið yfir ca 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf (= ca 5-5-6-6 (7-7) sólfjaðrir meðfram ermi). Klippið frá og festið enda. Endurtakið alveg eins í kringum hina ermina. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (47)
Stina wrote:
Ja habe ich, es fehlt gut ein ganzes Knäuel der "Hauptfarbe", meiner Meinung nach muss sich hier ein Fehler eingeschlichen haben
19.03.2015 - 11:01Stina wrote:
Bei der grössten Grösse reichen 150g hinten und vorne nicht. Ist es möglich, dass sich in der Anleitung ein Fehler eingeschlichen hat?
18.03.2015 - 19:58DROPS Design answered:
Liebe Stina, haben Sie die Maschenprobe genau eingehalten und sich genau an die Maße gehalten? Beim Häkeln führt eine auch nur leicht abweichende Maschenprobe oder ein etwas "großzügigeres" Messen schnell zu einem erhöhten Garnverbrauch. Und für die Fächerbordüre haben Sie ja noch die 50 g in der anderen Farbe (natur).
19.03.2015 - 10:20Birgitte Andersen wrote:
Hej. Jeg er ved at lave kjolen i str 0-3 mdr. Jeg er ved nederdelen, og der står at jeg skal hækle ca 13 cm, Udtagningerne skal nu være færdig, er det så 13 cm fra under armen eller fra der hvor udtagningerne slutter?
05.02.2015 - 11:41DROPS Design answered:
Hej Birgitte, Det er 13 cm fra mærkerne under armene. God fornøjelse!
05.02.2015 - 14:14Niamh wrote:
Is there a pattern for the hat too? The hat and dress together look beautiful.
22.08.2014 - 18:34DROPS Design answered:
Dear Niamh, please click here to see the pattern for the hat, ie BabyDROPS 25-14. Happy crocheting!
25.08.2014 - 10:01Stine wrote:
Antal udtagningers på bærestykket passer ikke. Man skal tage ud en ekstra gang, for at det kommer til at passe med maskeantallet.
28.05.2014 - 08:38DROPS Design answered:
Hej Stine. Kan du angive hvilken störrelse du laver saa vi kan regne efter? Tak :-)
05.06.2014 - 17:32Fenja Helsdottir wrote:
Sehr süßes Kleid. Ich häkel es gerade für meine 3-jährige Tochter aus Baumwoll-Sockenwolle :-)
20.05.2014 - 17:21LivH wrote:
Søt :-)
08.05.2014 - 15:20