Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= 1 þráður litur dökk fjólublár + 1 þráður litur gallabuxnablár | |
= 1 þráður litur gallabuxnablár + 1 þráður litur fjólublár | |
= 1 þráður litur fjólublár + 1 þráður litur mosagrænn | |
= 1 þráður litur mosagrænn + 1 þráður litur gallabuxnablár | |
= 1 þráður litur fjólublár + 1 þráður litur dökk fjólublár |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
DROPS 73-22 |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Paris með röndum.
DROPS 73-22 |
||||||||||||||||
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. STROFF: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. RENDUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. AFFELLING (á við um laskalínu): Fellið af innan við 1 kantlykkju + 1 lykkju sléttprjón. Fellið af á eftir 2 lykkjum þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fellið af á undan 2 lykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ---------------------------------------------------------- BAKSTYKKI: Fitjið upp 40-44-48-52-56 lykkjur á prjón 8 með 1 þræði litnum dökk fjólublár + 1 þræði litum gallabuxnablár. Prjónið M.1 áfram – prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – fyrstu 4 cm, skiptið síðan yfir á prjón 9 og prjónið til loka í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9-9-10-10-10 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið og þegar stykkið mælist 18-18-20-20-20 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið = 44-48-52-56-60 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-32-33-34-36 cm fellið af 4 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg. Fellið síðan af fyrir laskalínu sjá AFFELLING að ofan: Í 4. hverri umferð 1 lykkja 2-2-1-1-1 sinnum, í annarri hverri umferð 1 lykkja 7-5-7-6-4 sinnum og síðan í hverri umferð 1 lykkja 0-4-5-8-12 sinnum. Fellið síðan af þær 18 lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 48-50-52-54-56 cm. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki. Fellið af fyrir laskalínu eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50 cm setjið miðju 8 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli, fellið síðan af 1 lykkju við hálsmál í annarri hverri umferð 3 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru 2 lykkjur eftir á hvorri öxl, fellið þessar lykkjur af. Stykkið mælist ca 48-50-52-54-56 cm upp að öxl. ERMI: Fitjið upp 24-24-28-28-28 lykkjur á prjón 8 með 1 þræði litnum dökk fjólublár og 1 þræði litnum gallabuxnablár. Prjónið M.1 áfram – prjónið stroff fyrstu 7 cm, skiptið síðan yfir á prjón 9 og prjónið til loka í sléttprjóni. JAFNFRAM eftir stroff er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í 5,5. - 5,5.- 6.- 5,5 - 5,5. hverjum cm alls 8-8-7-8-8 sinnum = 40-40-42-44-44 lykkjur á prjóni. Þegar ermin mælist 50-51-51-51-51 cm fellið af 4 lykkjur í hvorri hlið. Fellið síðan af fyrir laskalínu innan við 1 kantlykkju – sjá AFFELLING: Í 4. hverri umferð 1 lykkja 2-2-1-1-1 sinnum, í annarri hverri umferð 1 lykkja 5-5-8-8-8 sinnum og í hverri umferð 1 lykkja 4-4-3-4-4 sinnum = 10 lykkjur eftir á prjóni. Fellið af, ermin mælist ca 68-69-70-71-71 cm. FRÁGANGUR: Saumið alla laskalínu sauma innan við 1 kantlykkju nema hægra megin að aftan. Takið upp ca 46-52 lykkjur í kringum háls á prjóna 8 með 1 þræði litnum fjólublár + 1 þræði litnum gallabuxnablár. Prjónið 4 umferðir sléttprjón fram og til baka, fellið af – kantur í hálsi á að rúllast upp. Saumið hægri laskalínusaum upp meðfram kanti í hálsmáli. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (12)
Wilma wrote:
Als mijn proeflapje 8x 8 is in plaats van 10 x10, kan ik dan gewoon een grotere maat breien? Ik wil nl een ander garen/andere naalddikte gebruiken.
17.10.2023 - 10:35DROPS Design answered:
Dag Wilma,
Als je proeflapje 2 centimeter kleiner is, dan wordt je werkstuk ook 2 centimeter kleiner per 10 cm. Dus als de breedte van het pand bijvoorbeeld 40 zou worden, dan zou dat bij jou 32 worden. Met deze manier van rekenen zou je de juiste maat kunnen vinden. In de hoogte kun je extra naalden breien om de juiste lengte te krijgen. Hier moet je ook rekening mee houden met het verdelen van de minderingen voor de raglan.
18.10.2023 - 18:46Wilma wrote:
Als mijn proeflapje 8x 8 is in plaats van 10 x10, kan ik dan gewoon een grotere maat breien? Ik wil nl een ander garen/andere naalddikte gebruiken.
15.10.2023 - 14:17DROPS Design answered:
If you want an answer in Dutch, please, do choose the Dutch flag. Thank you!
17.10.2023 - 10:29Alexander wrote:
Bonjour, je ne comprends pas comment obtenir le bon nombre de mailles après les diminutions du devant. Je tricote une taille M. Si pour le dos, j'ai bien 52 - (4 + 1 + 7 + 5)x2 = 18 mailles restantes, pour le devant, j'ai 52 - (4 + 1 + 7 + 5)x2 (-> emmanchures) - 8 - 4x2 (-> encolure) = 2 mailles restantes alors qu'il est censé m'en rester 4 (2 pour chaque épaule). Pouvez-vous m'aider ? Merci !
28.01.2023 - 09:24DROPS Design answered:
Bonjour Mme Alexander, une correction a été faite, merci pour votre retour, on doit diminuer pour l'encolure 3 fois (et non 4 fois) 1 m, il reste ainsi 2 m pour chaque épaule. Bon tricot!
30.01.2023 - 11:48Kristine wrote:
Hej, Jeg strikker en størrelse L, men jeg forstår ikke helt hvordan raglan-indtagningerne fungerer. Der står, at man skal tage ind på hver 4. pind 1 gang, på hver 2. pind 6 gange og på hver pind 8 gange. Når der nu strikkes frem og tilbage, tæller vrang-siden så med i antal pinde? Fordi så vil man jo skulle lave halvdelen af de 8 sidste indtagninger fra vrangsiden? Og i så fald, har I så en video eller beskrivelse af dette? Vh Kristine
19.01.2023 - 17:13DROPS Design answered:
Hei Kristine. Ja, det blir felllinger fra vrangen også. Vi har 1 video du kan ta en titt på: "Hvordan felle 2 vrang sammen" under Instruksjonsvideoene som er linket til oppskriften. Mens når det skal felles ved å "Ta 1 maske løs av pinnen, strikk 1 vrang, løft den løse masken over" har vi ingen video på (enda), men da strikker du bare som skrevet mellom de to "). mvh DROPS Design
23.01.2023 - 09:06Anne Dantorp wrote:
På diagrammet over hvordan farverne skal sammensættes, dynes jeg der er et helt sort felt, men kan ikke se hvilken farvekombination det skulle være
04.02.2021 - 15:08DROPS Design answered:
Hej Anne, det sorte felt betyder 1 tråd mosgrøn + 1 tråd jeansblå. God fornøjelse!
04.02.2021 - 15:36Karina wrote:
Hola, no entiendo sobre este patron, que en la muestra lleva 10 puntos para 10 cm, y luego en el esquema dice que para 56 puntos da 60 cm
14.05.2019 - 23:20DROPS Design answered:
Hola Karina. 56 puntos miden 56 cm (ver los números abajo del todo en el diagrama). Los 60 cm son las medidas en la parte del pecho después de hacer los aumentos en los laterales.
25.05.2019 - 19:54Ina Drenth wrote:
Ik heb een vraag over de raglan. Je kant toch alleen af in de heengaande rechte naald? Er staat namelijk 1x 1 steek in de 4e naald dan iedere 2e naald en dan elke naald. Maar klopt dit dan wel want de 4e naald is de averechtse naald en de 2e naald ook en wat bedoelen ze dan met iedere naald. Ik snap het echt please help me.\r\nMet vriendelijke groet\r\nIna Drenth
15.01.2019 - 16:37WAXCIN wrote:
Bonjour, Je ne comprends pas comment obtenir 18 mailles à la fin du dos. Je réalise une taille XL : partant de 60 mailles, j'en rabats 8 pour les emmanchures, puis 1, 4, et 12 pour le raglan. J'ai donc diminué de 25 mailles au total, et il m'en reste 35 ! Pourriez-vous m'expliquer ? Merci ! Cordialement, Agnès
01.11.2018 - 17:57DROPS Design answered:
Bonjour Agnès, vous rabattez 8 m pour les emmanchures = restent 52 m puis vous diminuez pour le raglan de chaque côté: 1 x 1 m, 4 x 1 m et 12 x 1 m soit 1 + 4 + 12 m x 2 côtés = vous diminuez 34 m au total, il reste: 52-34=18 m. Bon tricot!
02.11.2018 - 07:37Marianne wrote:
Kan man strikke blusen rundt på rundpind?
12.02.2018 - 15:54DROPS Design answered:
Hej Marianne, du er velkommen til at strikke blusen rundt på rundpind, vi har dog ikke mulighed for at ändre i opskriften. God fornöjelse !
12.02.2018 - 16:25Ing-Marie Johansson wrote:
Hur mycket garn går åt till denna tröjan man vill göra den enfärgad eller i bara 2 färger eller om jag vill använda Big merino istället ?
02.03.2017 - 14:47DROPS Design answered:
Hej Ing-Marie. Se her hvordan du beregner hvor meget du skal bruge, naar du vil bruge et andet garn. God fornöjelse med den
02.03.2017 - 15:23